Morgunblaðið - 12.01.1992, Page 32
32 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1992
Ráðstefna um j á-
kvæðar hliðar ís-
lensks atvinnulífs
VERKTAKASAMBAND fslands
gengst næstkomandi þriðjudag
fyrir ráðstefnu um jákvæðar
hliðar íslensks atvinnulífs, sem
ber yfirskriftina „Rjúfum kyrr-
stöðuna“. Ráðstefnan verður
haldin á Holiday Inn og hefst
hún klukkan 11,45.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra flytur erindi á ráðstefnunni,
sem nefnist „ísland er land tæki-
færanna", en erindi Markúsar
Arnar Antonsonar borgarstjóra,
heitir „Hvað getur borgin gert?“.
Þá flytur Magnús Gunnarsson for-
maður Samtaka atvinnurekenda í
sjávarútvegi erindið „Upp úr
öldudalnum“ og erindi Páls Kr.
Pálsonar, framkvæmdastjóra
Vífilfells hf. nefnist „Hvað þarf
til?“. Loks talar Þórhallur Jósefs-
son aðstoðarmaður samgönguráð-
herra um „Sóknarfæri í ferðaþjón-
ustu“
Þá verður flutt fróðlegt erindi
um tollfrjálsa iðnaðarsvæðið á
Shannon-flugvelli á írlandi, en írar
hafa náð mjög langt á því sviði á
meðal vestrænna iðnaðarþjóða.
Thomas J. O’Donnell fram-
kvæmdastjóri hjá Shannon Deve-
lopment Company kemur sérstak-
lega á þessa ráðstefnu til þess að
kynna þessi mál fyrir íslendingum.
Mikill áhugi er á því að koma á
fót sams konar tollfijálsu iðnaðar-
svæði við Keflavíkurflugvöli.
Samfok skorar á
foreldra skólabama
STJÓRN Samfoks, Sambands
foreldrafélaga í grunnskólum
Reykjavíkur, mótmælir fyrir-
huguðum niðurskurði í grunn-
skólum og skorar á foreldrafé-
lög um land allt að beita sér af
alefli gegn áformum stjórn-
valda þess efnis.
^ Þetta kemur fram í frétt frá
sambandinu, þar sem sagt er enn-
fremur að hugmyndir séu uppi um
að ijölga nemendum í bekkjar-
deildum og fækka kennslustund-
um í viku hverri. Síðan segir m.a.:
„Það gengur erfiðlega að tryggja
bömum okkar þann tímaíjölda
sem þeim ber samkvæmt grunn-
skólalögum og fráleitt að leggja
viðmiðunarstundaskrá alfarið í
hendur ráðuneytis/ráðherra, sem
getur þá ráðskast með stundaskrá
nemenda að vild.“
Sýningarsalur Honda Vatnagörðum 24
er opinn laugardag kl. 10:00 - 16:00,
sunnudag 12:00 - 16:00 og mánudaga til
föstudaga 9:00 - 18:00. Upplýsingar eru
einnig veittar t síma 68 99 00
Akureyri: Þórshamar hf., s. 96 - 11036
Keflavtk: B.G. Btlasalan, s. 92-14690
Verð frá: 949.000,- stgr.
a '
•t/>.
rfna
NYR CIVIC - FALLEGAR LINUR
Fegurð er afstæð. Vaxtarlag kvenna sem
þótti fagurt á Viktoríutímanum þykir
ekki fagurt í dag. Málverk eftir Van
Gogh var ekki mikils metið meðan hann
sjálfur lifði. VW bjallan þótti hálfgert
viðrini við hlið stóru drekanna á sfnum
tíma.
Honda hefur tekið forystu í hönnun
fallegra og góðra bíla undanfarin ár.
ÍSkýringar á forystu Honda eru góðir
tæknimenn og hönnuðir. Honda hefur
keppt í Formula 1 kappakstri undanfarin
li 10 ár. Þeim kappakstri er oft líkt við
^ rilraunastofu, þar sem hílaframleiðendur
keppa í nýjungum ekki síður en hraða.
Honda hefur undan-
farin sex ár verið heims-
meistari í Formula 1.
Þegar reynsla af kapp-
akstri og góð útlits-
hönnun sameinast síðan
í bíl eins og Civic
verður árangurinn það
sem samtíminn kallar
„fallegur bíll“.
Civic hefur verið
endurhannaður með nýjar kröfur sam-
tímans í huga. Nútímabílar þurfa að vera
kraftmiklir og þægilegir, cn jafnfrámt
taka tillit til umhverfisins.
Efnin sem notuð eru í
Civic eru 80% endur-
vinnanleg sem hefur
mikið að segja þegar horft
er til framtíðarinnar.
VTEC er nýjung í Civic
sem opnar ventlana í
hlutfalli við snúnings-
hraða vélarinnar. Þessi
tækni dregur mjög úr
mengun og eyðslu en
eykur kraft vélarinnar.
Civic er búinn skemmtilegum innrétt-
ingum. Hver hlutur er á hinum eina
rétta stað. Sætin eru mjúk og þægileg.