Morgunblaðið - 07.02.1992, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1992
13
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bera Nordal og Þorgeir Ólafsson við eina af verðmætustu myndun-
um á sýningunni, „Stúlkurnar á ströndinni" (efri myndin).
*
Listasafn Islands:
ÍSLENSKT VATN
ER GULLS ÍGILDI
Sýning á 23 grafikmynd-
um eftir Edvard Munch
OPNUÐ verður sýning á grafíkmyndum hins kunna norska myndlistar-
manns Edvards Munch í Listasafni íslands laugardaginn 8. febrúar.
Samtals verða sýndar 23 myndir tréristur. steinprent og koparstung-
ur og eru 18 verkanna í eigu Listasafns íslands en 5 í eigu Munch
safnsins í Osló. Sýningin er haldin fyrir tilstilli norska sendiherrans
á íslandi, Per Aasen. Hún stendur til 8. mars og er opin daglega
nema mánudaga frá 12-18.
Munch-myndir Listasafnsins féllu
í skaut íslendinga árið 1947. Komu
þá til landsins 14 grafíkmyndir frá
ónefndum íslandsvini sem lét þess
getið að um „morgungjöf" til hins
unga íslenska lýðveldis væri að
ræða. Seinna kom í ljós að gefand-
inn var náinn vinur Munchs, Christ-
ian Gierlöff. Hann hafði fært gjöfina
í tal við Munch en stríðið kom í veg
fyrir að listamaðurinn gæti átt hlut
að máli og hann lést síðan í stríðs-
lok, rúmlega 80 ára gamall. Gierlöff
bætti síðar við einni grafíkmynd og
Ragnar Molzau, stjórnarformaður
Listiðnaðarsafnsins í Osló, 3 mynd-
um árið 1951. Myndirnar eru að
sögn Beru Nordal, forstöðumanns
Listasafnsins, með verðmætustu
eignum safnsins en þær hafa sjaldan
komið fyrir almenningssjónir.
Grafíkmyndirnar eru steinprent,
koparstungur og tréristur en að sögn
Þorgeirs Ólafssonar, listfræðings,
átti Munch sjálfur nokkurn þátt í
þróun síðastnefndu aðferðarinnar
með því að taka upp á því að saga
tréplötur í búta, setja lit á hvern
fyrir sig og raða þeim síðan saman
eins og púsluspili undir þrykk en
áður hafði verið notið ein tréplata
fyrir hvern lit. Mátti þá engu skeika
ef liturinn átti ekki að lenda á röng-
um stað. Myndefni Munchs er ekki
síður fjölbreytt en aðferðir hans.
Dauðaþemað er áberandi, nokkrar
andlitsmyndir eru á sýningunni og
ástarþemað kemur við sögu í öðrum.
Mörg myndefnin má einnig finna í
málverkum listamannsins.
Þorgeir Ólafsson sagði að verk
Munchs nytu nú afar mikilla vin-
sælda og benti í því sambandi á að
nýverið hefði verið haldin stórsýning
á verkum hans í París en sú sýning
hefði verið flutt til Osló og opnuð á
mánudag.
VATNSBERINN HF. hefur nú þegar gert
sölusamninga til 10 ára við UNITED
GULF TRADING í Bandaríkjunum um
stórfelldan útflutning á íslensku vatni.
(framhaldi af því hefur stjórn félagsins
ákveðið að auka við framkvæmdafé
fyrirtækisins.
Við leitum nú til aðila sem áhuga hafa
á að fjárfesta í arðvænlegu íslensku
iðnfyrirtæki.
Allar nánari upplýsingar veitir
framkvæmdastjórn félagsins, á
staðnum, eða í símum 65 34 90 og
65 34 91.
HJALLAHRAUN 2 220 HAFNARFJÖRÐUR
EINSTAKT TILBOÐ!
ALLTAÐ
AFSLÁTTUR
Seljum næstu
daga skápa og
húsgögná
stórlækkuðu
verði.
Lítið
útlitsgallaðir
fataskápar
með miklum
afslætti
Landsbyggðarþjónusta:
Tökum við símapöntunum og
sendum um land allt
VtSA
Opið: 9-18 virka daga
10-16 laugardaga
Visa raðgreiðslur i allt
að 18 mán., engin útborgun.
AXIS
AXIS HUSGOGN HF.
SMIÐJUVEGI9, KÓPAVOGI
SÍMI: 43500 FAX 43509.
u
C/5
C/5
UJ
T
■
I
■
I
i
■
I
■
I
■
I
i
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
i
i
i
■
I
i
i
■
I
■
I
■
I
i
■
I
■
I
i
■
-.1