Morgunblaðið - 07.02.1992, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1992
39
URSLIT
IBK-UMFT 72:74
íþróttahúsið í Keflavík.
Gangur leiksins: 0:3, 2:3, 5:5, 10:7, 16:15,
24:17, 26:26, 30:30, 39:34, 42:39, 46:45,
59:51, 65:62, 65:67, 67:67, 67:73, 72:74.
Stig IBK: Hjörtur Harðarson 20, Jonathan
Bow 16, Nökkvi M. Jónsson 14, Albert
Óskarsson 7, Kristinn Friðriksson 6, Jón
Kr. Gíslason 5, Brynjar Harðarson 2, Júlíus
Friðriksson 2.
Stig UMFT: Ivan Jonas 21, Pétur Guð-
mundsson 16, Einar Einarsson 13, Valur
Ingimundarson 12, Bjöm Sigtryggsson 6,
Hinrik Gunnarsson 4, Haraldur Leifsson 2.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Helgi
Bragson.
Áhorfendur: Um 500.
Þór-UMFIM 94:115
íþróttahöllin á Akureyri, Islandsmótið I
körfuknattleik, Japisdeildin, fimmtudaginn
6. febrúar 1992.
Gangur leiksins: 8:9, 15:21, 30:47, 40:53,
42:60, 50:74, 63:86,80:98,88:106,94:115.
Stig Þórs: Joe Harge 26, Guðmundur
Bjömsson 18, Björn Sveinsson 16, Konráð
Óskarsson 15, Jóhann Sigurðsson 9, Helgi
Jóhannesson 7, Birgir Birgisson 3.
Stig UMFN: Teitur Örlygsson 27, Rondey
Robinson 25, Friðrik Ragnarsson 13, Ást-
þór Ingason 12, Jóhannes Kristbjörnsson
11, Sturla Örlygsson 9, ísak Tómasson 9,
Brynjar Sigurðsson 4, Gunnar Örlygsson
3, Kristinn Einarsson 2.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Einar
Þór Skarphéðinsson.
Áhorfendur: 150.
Haukar- UMFS 113:101
íþróttahúsið Strandgötu.
Gangur leiksins: 4:0, 10:4, 14:14, 22:22,
30:31, 43:34, 46:46, 57:56, 69:60, 79:67,
90:77, 104:81, 113:95, 113:101.
Stig Hauka: John Rhodes 29, Jón Arnar
Ingvarsson 23, ívar Ásgrfmsson 19, Jón
Örn Guðmundsson 10, Tryggvi Jónsson 9,
Reynir Kristjánsson 8, Pétur Ingvarsson
5, Bragi Magnússon 4, Henning Hennings-
son 4, Þorvaldur Henningsson 2.
Stig Skallagríms: Birgir Mikaelsson 27,
Sig. Elfar Þórólfsson 17, Maxim Krúpatsjew
16, Skúli Skúlason 16, Hafsteinn Þórisson
14, Þórður Helgason 11.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Víglundur
Sverrisson, góðir.
Áhorfendur: 60.
KR-Valur 113:79
íþróttahúsið Seltjarnarnesi.
Gangur leiksins: 2:0, 7:2, 8:15, 8:29, 23:49
34:60, 47:67, 64:94, 70:105, 79:113.
Stig KR: John Baer 19, Guðni Guðnason
18, Hannes Hermannsson 10, Sigurður
Jónsson 9, Ólafur Gottskálksson 8, Óskar
Kristjánsson 7, Tómas Hermannsson 5,
Lárus Árnason 3.
Stig Vnls: Franc Booker 27, Svali Björg-
vinsson 25, Magnús Matthíasson 23, Simon
Ólafsson 14, Ragnar Jónsson 10, Ari Gunn-
arsson 5, Tómas Holton 5, Gunnar Þor-
steinsson 2, Matthías Matthíasson 2.
Áhorfendur: Um 400.
Dómarar: Kristján Möller og Kristinn
Óskarsson. Flautuðu eins og þeir fengju
greitt sérstaklega fyrir hvert flaut.
A-RIÐILL
Fj. leikja u T Stig Stig
UMFN 19 16 3 1825: 1526 32
KR 19 14 5 1744: 1562 28
UMFT 19 11 8 1730: 1697 22
SKALLAGR. 19 3 16 1550: 1872 6
SNÆFELL 19 3 16 1482: 1805 6
B-RIÐILL
Fj. leikja U T Stig Stig
ÍBK 19 17 2 1868: 1580 34
VALUR 19 12 7 1795: 1676 24
UMFG 19 8 11 1622: 1569 16
HAUKAR 18 8 10 1659: 1743 16
ÞÓR 18 2 16 1540: 1785 4
Veggtennis
Þriðja og síðasta umferð meistaramóts
Bylgjunnar í Dansstúdíói Sóleyjar.
Kvennaflokkur:
1. Edda Svavarsdóttir
2. Soffía Halldórsdóttir
3. Halla Dóra Halldórsdóttir
Karlaflokkur:
1. Jón Steingrímsson
2. Sveinn Baldursson
3. Þrándur Amþórsson
■ Bylgjumeistarar urðu Þrándur Amþórs-
son (60 stig) og Edda Svavarsdóttir (60
stig). í öðru sæti urðu Jón Steingrímsson
(59) og Soffia Halldórsdóttir (58). í þriðja
sæti urðu Sveinn Baldursson (55) og Jó-
hannes Guðmundsson (55) og Halla Dóra
Halldórsdóttir (55).
NBA-deildin:
Leikir á miðvikudagskvöld:
Detroit — Milwaukee Bucks.....102: 94
Miami Heat — Golden State.....126:124
Seattle — New Jersey...........95: 85
Cleveland — Philadelphia......110:108
■Eftir framlengingu.
Boston Celtics — Houston Rockets ... 98: 85
Orlando Magic — Minnesota.....109:102
Phoenix Suns — Chicago Bulls..126:114
LA Lakers — Los Angeles.......100: 95
Sacramento Kings — UtahJazz...100: 98
KORFUKNATTLEIKUR
Algjörir yfirburðir
- þegar Valsmenn unnu KR-inga með 34 stiga mun
ÁHORFENDUR sem mættu á
Seltjarnarnesið til að sjá jafnan
og spennandi leik KR og Vals
fóru vonsviknir heim. Yfirburðir
Vals voru algjörir frá fyrstu
mínútu og leikurinn því aldrei
spennandi. Staða Vals er væn-
leg og nokkuð tryggt að þeir
komast í úrslitakeppnina.
Það er ekki á hveijum degi sem
KR tapar með 34 stiga mun.
Lokatölur í ótrúlega ójöfnum leik urðu
79:113. Valsmenn
Skúti Unnar höfðu mikla yfirburði
Sveinsson allt frá byijun. Allt
skrífar gekk upp hjá þeim á
sama tíma og hvorki
gekk né rak hjá KR. Valsmenn léku
vel og hittu hvenær og hvaðan sem
var en hjá KR var þetta allt með öfug-
um formerkjum.
Guðni var sá eini sem var eðlilegur
í fyrri hálfleik, allir aðrir voru óheyri-
lega daufir. Flestir voru ragir við að
skjóta, nema Baer og hann hitti ekk-
ert. Nýtingin í fyrri hálfleik var ægi-
leg og gæti ég best trúað að Vals-
menn hafi haft um 80% nýtingu en
KR-ingar um 20%. Hræðilegt að horfa
uppá leik liðsins.
Vörn KR sem hefur verið þekkt
fyrir ákefð og ágengni var löngum
eins og þokkaleg vörn í yngri flokkun-
um. Vörn Valsmanna var hins vegar
ágæt og átti ekki í teljandi erfiðleikum
með ungu piltana í KR.
Valsmenn fóru á kostum oger langt
síðan þeir hafa verið eins öflugir.
Svali, Booker og Magnús geysilega
sterkir og Símon, Ragnar og Tómas
mjög öruggir. Aliir leikmenn liðsins
léku vel og allt fór niður. Þrátt fyrir
að liðið kæmist snemma í hálfgerð
villuvandræði skipti það engu máli.
Þeir sem komu inná tóku upp þráðinn.
Valsmenn gerðu 10 þriggja stiga
körfur í fyrri hálfleik en urðu að láta
sér nægja sex slíkar í þeim síðari.
Samsvarandi tölur fyrir KR-inga eru
ein þriggja stiga karfa í fyrri hálfleik
og fimm í þeim síðari.
Tindastóll vann ÍBK
Sigurganga Tindastóls heldur
áfram. í gær vann liðið Keflvík-
inga, 74:72, og er þetta fyrsta tap ÍBK
á heimavelli á keppn-
BjQín istímabilinu. Gríðar-
Blöndal leg spenna var í lokin
skrífarfrá þegar Tindastóll náði
Keflavík forystunni og heima-
Svali Björgvinsson fann fjölina
sína og gerði sjö þriggja stiga körfur.
menn gerðu örvæntingarfullar tilraun-
ir til að rétta sinn hlut. En allt kom
fyrir ekki hjá þeim.
„Þetta var lélegasti leikur okkar í
vetur og ég vona að þetta tap komi
okkur niður á jörðina,“ sagði Jón Kr.
Gíslason þjálfari og leikmaður Keflvík-
inga eftir leikinn. „Þeir léku skynsam-
lega og höfðu sigur. Þetta minnir okk-
ur vonandi á hversu sárt er að tapa
og við komum tvíefldirtil næsta leiks,“
sagði Jón Kr.
Framan af leiknum benti fátt til
annars en Keflvíkingar bættu enn ein-
um sigrinum við þó forysta þeirra
yrði aldrei afgerandi. En norðanmenn
léku skynsamlega, hægðu leikinn nið-
ur og slepptu Keflvíkingum aldrei
langt frá sér. Undir lok leiksins tókst
þeim að snúa við taflinu og tryggja
sér sigur. Keflvíkingar fengu samt sín
tækifæri en heilladísinrar voru ekki
hliðhollar að þessu sinni.
Bestir hjá ÍBK voru Hjörtur Harðar-
son og Nökkvi Már Jónsson en hjá
Tindastóli þeir Ivan Jonas, Valur Ingi-
mundarson, Pétur Guðmundsson og
Einar Einarsson.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Vorum klaufar
að bæta ekki vid
- sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari, eftir
jafntefli gegn ólympíuliði Norðmanna
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu gerði 2:2 jafntefli við
ólympíulið Norðmanna ífyrsta
leik sínum á þriggja þjóða æf-
ingamótinu á Möltu í gær. Atli
Einarsson og Rúnar Kristins-
son gerðu mörk íslands í byrj-
un seinni hálfleiks, en Norð-
menn jöfnuðu undir lokin.
M
Asgeir Elíasson, landsliðsþjálf-
ari, sagði að leikurinn hefði
verið slakur í fyrri hálfleik og ís-
lenska liðinu hefði gengið illa að
skapa sér færi. Það eina markverða
hefði verið, þegar brotið var á
Baldri Bjamasyni og dæmd víta-
spyrna, en markvörður Norðmanna
varði frá Rúnari Kristinssyni.
Atli Einarsson kom íslendingum
á bragðið, skoraði með skalla eftir
fyrirgjöf frá Herði Magnússyni.
Skömmu síðar skoraði Rúnar úr
þröngri stöðu inní teig eftir ágætt
spil.
„Við vorum klaufar að bæta ekki
við og sigra,“ sagði Ásgeir. „En
þess í stað töpuðum við boltanum
og Norðmenn skoruðu eftir hraða-
upphlaup, þegar tíminn var að
renna út.“ Hann kenndi einbeiting-
arleysi um, en sagðist að öðru leyti
vera ánægður, því strákarnir hefðu
gert margt gott i seinni hálfleik.
Norðmennimir hefðu spilað skyn-
samlega og varist vel og því hefði
verið erfitt að sækja á þá í fyrri
hálfleik, en það hefði gengið betur
eftir hlé, þó kappið hefði oft verið
meira en forsjáin.
Noregur og Malta leika í mótinu
á laugardag, en.á sama tíma mæt-
ir ísland þýska liðinu Blau-Weiss
Berlín.
Lið íslands: Friðrik Friðriksson;
Sævar Jónsson, Kristján Jónsson,
Ólafur Kristjánsson; Rúnar Krist-
insson (Hlynur Stefánsson vm.
miðjan s.h.), Kristinn R. Jónsson,
Andri Marteinsson (Atli Helgason
vm. miðjan s.h.), Arnar Grétarsson,
Baldur Bjarnason (Haraldur Ing-
ólfsson vm. miðjan s.h.), Hörður
Magnússon, Atli Einarsson.
Stefán
Stefánsson
skrífar
Haukar höfðu það af
Hrikalegur varnarleikur var alsráð-
andi á Strandgötunni í gær-
kvöldi, þegar Haukar unnu Skallagrim
113:101.
Hafnfirðingar tóku
því rólega í byijun og
Borgnesingar gáfu
þeim ekkert eftir og
komust yfir um miðjan hálfleik. í leik-
hléi skildi aðeins eitt stig. Eftir hlé
náðu Haukar forystu sem dugði þeim
út leikinn þrátt fyrir ágæta tilburði
Skallagríms.
Það var eins og Haukarnir tækju
leikinn ekki nógu alvarlega. Vörnin
var steinsofandi en skárri í síðari hálf-
leik. John Rhodes var yfirburðarmað-
ur, skoraði grimmt, tróð nokkrum
sinnum, átti skemmtilegar stoðsend-
ingar og tók 21 frákast. Litríkur leik-
maður. Jón Arnar brást ekki og ívar
byijaði vel.
Lið Skallagríms átti ágætan leik og
það er of gott til að hægt sé að ieika
sér gegn þeim. Birgir stóð sig sériega
vel ásamt Sigurði Elfari en Maxiin
Krúpatsjev hvarf í skugga John Rho-
des.
Pressuvörn UMFN setti
Þór út af laginu
Islandsmeistarar Njarðvíkinga sigr-
uðu Þór örugglega á Akureyri í
gærkvöldi, 115:94, og hafa gott sem
ggm tryggt sér sæti í fjög-
Anton urra liða úrslitum.
Benjaminsson Njarðvíkingar hófu
skrífar leikinn með pressu-
vörn og eftir tiltölu-
lega jafna byijun fóru þeir að „stela“
boltanum grimmt af Þórsurum og
náðu öruggu forskoti. Heimamenn
áttu ekki svar við vörn mótheijanna
og þá var sóknarleikuririn ekki nógu
markviss.
I síðari hálfieik virtist kæruleysi
vera ríkjandi hjá gestunum og eiga
þeir að geta sýnt mun meira, og fyrir
bragðið var leikurinn slakur og fór
að miklu leyti fram á vítalínunum. Það
má þó segja heimamönnum til hróss
að þeir gáfust ekki upp og börðust
vel allan leikinn.
Teitur og Rondey voru aðalmenn-
imir hjá UMFN og skoruðu grimmt,
en áttu ekki stórleik. Hjá Þór ríkti
jafnræði, en liðið getur betur.
Atli Stefán Einarsson gerði fyrra
mark íslands.
íH&mR.
FOLK
■ SIGURÐUR Lárusson, þjálfari
1. deildarliðs Þórs frá Akureyri,
er á förum til Belgíu til að kynna
sér þjálfun hjá Lokeren í vikutíma.
Með honum fara einnig Lárus Orri
Sigurðsson og Þórður Áskelsson,
en þeir munu æfa hjá félaginu í
hálfan mánuð. Þeir fara út í næstu
viku.
■ TONY Cascarino var í gær
seldur frá Glasgow Celtic til
Chelsea fyrir 750 þúsund pund, eða
um 80 milljónir ÍSK. Cascarino var
seldur frá Aston Villa til Celtic á
1,2 milljónir punda fyrir 8 mánuð-
um. Hann hefur 'ekki staðið sig vel
í Skotlandi og aðeins náð að skora
4 mörk.
■ JIM Leighton, varamarkvörður
Manchester United, var í gær
seldur til Dundee í Skotlandi fyrir
200 þúsund pund, eða um 22 millj-
ónir ÍSK. Leighton er 33 ára og
lék áður með Aberdeen í Skot-
landi.
BADMINTON
Broddiog
ÁmiÞórí
16 manna
úrslit
BRODDI Kristjánsson og
Árni Þór Hallgrímsson sigr-
uðu í fyrstu tveimur umferð-
um á Opna svissneska mót-
inu í badminton i Basel í gær
og leika í 16 manna úrslitum
í dag.
Broddi vann Laurent Jaquen
frá Sviss í fyrstu umferð,
15-8 og 15-5, og Parcaul, landa
hans, 11-15, 15-9 og 15-5 $ 2.
umferð. Hann mætir Hollands-
meistaranum í dag.
Árni Þór vann Þjóðveijann
Kai Mitteldorf 15-5, 13-15 og
15-12 og síðan Danan Morten
Bundgard 15-12, 4-15 og 15-5.
Hann leikur gegn Chris Bruil
frá Hollandi í dag.
í tvíliðaleik sigruðu þeir Ke-
vin Scott, Skotlandi, og Bundg-
ard 15-8 og 15-5 og mæta þjóð-
veijum í 16 liða úrslitutn í dag. .
Landsliðið valið
Mike Brown, landsliðsþjálfari
íslands í badminton, valdi í gær
landslið íslands sem keppir á
heimsmeistaramóti landsliða í
Hollandi um aðra helgi. Liðs-
menn eru allir úr TBR.
Karlaliðið er skipað eftirtöld-
um: Broddi Kristjánsson, Árni
Þór Hallgrímsson, Þorsteinn
Páll Hængsson, Jón P. Zimsen
og Óli B. Zimsen. Varamaður.
verður Tryggvi Nielsen.
Kvennaliðið er skipað eftirt-
öldum: Elsa Nielsen, Þórdís Ed-
wald, Birna Petersen, Ása Páls-
dóttir og Guðrún Júlíusdóttir.
Til vara: Kristín Magnúsdóttir.
Keppnin hefst í Hollandi 16.
febrúar og lýkur 23. febrúar.
X-
UNGLINGAÞJALFUN 1
KSÍ heldur hjálfaranámskeið -
UNGLINGAÞJÁLFUN 1 - í íþróttamiðstöðinni, Laug-
ardal, 14.-16. febrúar nk. Inntökuskilyrði: B-stig KSÍ.
Verð kr. 8.000,-
Skráning og nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu KSÍ, sími 814444.
GÓÐ ÞJÁLFUN
BETRI KNATTSPYRNA
FRÆÐSLUNEFND.