Morgunblaðið - 27.02.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.02.1992, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRUAR 1992 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1992 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið. Lághiti - ofkæling Landið okkar er stundum nefnt land elds og ísa, vegna hnattstöðu þess og eld- virkni. Sú staðhæfing er og heyrinkunn, að við þreyjum þorrann og góuna á mörkum hins byggilega heims. Um þá fullyrðingu má að vísu deila. En staðreynd er að fólk í land- búnaði og sjávarútvegi er háð- ara ýmsum umhverfisþáttum, eins og_ hita og veðurfari, en aðrir. íslendingum hefur og lærzt að nauðsynlegt er að umgangast náttúru landsins, haf og hálendi, með mikilli varfærni. Yeðurfar hafði og hefur af- gerandi áhrif á lífskjör þjóðar- innar, bæði til lands og sjávar. Ef meðalhiti féll, þó ekki væri uema um eina til tvær gráður eitthvert árabil, hafði það nei- kvæð áhrif á gróðurríkið og landbúnaðinn. Gæftir og ár- ferði í lífríki sjávar réðu og mestu um hagi fólks við sjávar- síðuna. Á kuldaskeiðum fyrri tíðar féll búpeningur, fólk flosnaði upp og íbúatala lands- ins skrapp saman. Sambýli þjóðarinnar við erf- itt umhverfi og óblíða náttúru leiddi oft til slysa og dauða, bæði á sjó og landi. Síðari tíma kannanir sýna að lágt hitastig lofts og/eða lagar réð því oftar en ekki, hvem veg fór. í sjó- slysum, sem leitt hafa til dauða, er dánarorsök oftlega ofkæling. Og sama gildir raun- ar um mörg slysatilfellin á hálendi og berangri landsins. Jóhann Axelsson, prófessor, forstöðumaður_ Rannsóknar- stofu Háskóla íslands í lífeðlis- fræði, hefur staðið fyrir lær- dómsríkum rannsóknum á kuldaþoli fólks, m.a. með hlið- sjón af íslenzkum aðstæðum og slysatilfellum hér á landi. í viðtali við Morgunblaðið árið 1990 segir hann, efnislega eft- ir haft, að hiti vatna og sjávar hér á landi sé lífshættulega lágur allt árið. Líkur standi því til þess að illa varinn maður örmagnist í vötnum eða sjó á tiltölulega skömmum tíma, ekki sízt að vetrarlagi. Það varðar því miklu, að allir, sem leið eiga um vötn, sjó eða ber- angur landsins búi sig vel til farar að því er varðar farkost, klæðnað og búnað, þ.á m. fjar- skipti við byggðir. Gamalt orð- tak, „enginn kann sig í góðu veðri heiman að búa“, lýsir vel íslenzkum veruleika að þessu leyti. Helztu áhættuhópar ofkæl- ingar eru fjþrir, að mati pró- fessorsins. í fyrsta lagi sjó- menn, fjallgöngumenn, veiði- menn ýmiss konar og aðrir þeir, sem leggja leið sína úr byggð vegna atvinnu eða áhugamála. í annan stað ný- burar og fyrirburar. í þriðja lagi gamalt fólk. Og loks utan- garðsfólk, svokallað, drykkju- sjúklingar og lyfjafíklar. Nýburar eru nefndir til sög- unnar vegna þess að varma- myndun er í réttu hlutfalli við líkamsmassa eða þunga og varmatap í hlutfalli við líkams- yfirborð. Þess vegna er kuldi meira álag á smáfólk en hina stærri. Minnkaður efnaskipta- hraði og skert skjálftaviðbrögð draga úr varmamyndun hjá öldruðum. Minnkuð viðbrögð æða við kulda og aukin varma- leiðni torvelda og varmavarð- veizlu. Sums staðar erlendis eru mörg dauðsföll gamal- menna í heimahúsum rakin til ofkælingar. Prófessorinn hefur ítrekað áréttað, að það megi aldrei telja kalda manneskju látna, þótt ekkert lífsmark sé með henni, engin öndun, enginn hjartsláttur, engin sjáaldurs- viðbrögð og hendur og fætur jafnvel frosnir að hluta. Hann segir Alþingi hafa komið til móts við þetta sjónarmið á síð- asta ári með nýrri skilgrein- ingu á dauða. Áherzlur hafi verið færðar frá hjartastarf- semi til heila. Maður er látinn eða skilinn við ef öll heilastarf- semi er horfin og enginn mögu- leiki á að endurvekja hana - og því aðeins að svo sé. Það sé fjarri að svo sé alltaf komið fyrir fórnarlömbum ofkælingar þótt hjartað hafi stöðvast. Fólk sem þannig sé komið fyrir megi á stundum lífga sé réttum aðferðum beitt, en það út- heimti staðgóða þekkingu á því sem gerist í líkamanum þegar hann kólnar. Hann nefnir til ungan mann, sem „dó hjarta- dauða“ á fjalli, án þess að skilja við, vaknaði til lífsins á Landspítala og sinni nú við- fangsefnum sínum heill heilsu. Störf Jóhanns Axelssonar, prófessors, eru dæmi um rann- sóknir og vísindi, sem þjóna mikilvægu hlutverki fyrir ein- staklinga og heild, samtíð og framtíð. Þau stuðla í senn að fyrirbyggjandi aðgerðum til að forða vá og réttum viðbrögðum ef henni verður ekki forðað. Svipuðu máli gegnir raunar um mörg þau vísindi, sem að er unnið hér á landi, þótt „arð- semi“ þeirra liggi ekki alltaf í augum uppi. Starfsemi af slíku tagi verðskuldar vökulan stuðning almennings. Engan sakaði er nýrri Fokker 50 flugvél Flugleiða var nauðlent með 43 farþega á Keflavíkurflugvelli: Mikil reynsla þótt ekk- ert hafi komið fyrir - sagði Bára Sigurðardóttir, einn farþeganna Morgunblaðið/Júlíus Gréta Önundardóttir flugfreyja á tali við Sigurð Helgason, forstjóra Flugleiða, skömmu eftir lendinguna. ENGAN sakaði þegar Ásdísi, hinni nýju Fokker 50 flugvél Flugleiða, var nauðlent á Kefla- víkurflugvelli um klukkan 10 í gærmorgun með 48 farþega auk áhafnar, vegna bilunar í hjóla- búnaði. Nefhjól vélarinnar, sem verið hafði í notkun í 11 daga og átti að baki 98 lendingar og 60 tíma í áætlunarflugi, kom ekki niður fyrir lendingu á Akur- eyri og var því afráðið að fljúga til Keflavíkur og nauðlenda vél- inni þar. Auk hefðbundins við- búnaðar á Keflavíkurflugvelli höfðu Almannavarnir ríkisins gert ráðstafanir til að hafa lækna og björgunarlið tiltækt ef á þyrfti að halda en það var sam- dóma álit farþega sem Morgun- blaðið ræddi við strax eftir lendinguna að hún hefði verið ótrúlega vel heppnuð og mjúk enda skemmdist vélin lítið. Luku farþegar einróma lofsorði á framgöngu áhafnarinnar, þeirra Páls Stefánssonar flugsljóra, Ottós Tynes flugmanns og Grétu Önundardóttur flugfreyju, en að auki var í flugstjórnarklefanum eftirlitsflugsljóri frá Fokker- verksmiðjunum í Hollandi, Jens Petter Knudsen. „Þetta var mik- il reynsla, þótt ekkert hafi kom- ið fyrir. Bara tilfinningin var svakaleg," sagði Bára Sigurðar- dóttir, einn farþeganna." Bára var ásamt Margréti Sigur- jónsdóttur á leið norður að heim- sækja barnabörnin sín. „Við vorum búnar að bíða í tvo daga eftir flugi og það var traustvekjandi að sjá að við áttum að fljúga með þessari nýju Ásdísi,“ sagði Bára. „Við vor- um svo yfir Hjalteyri þegar við tók- um eftir því að flugstjórinn var alltaf að setja vænghjólin upp og niður og héldum fyrst að þetta væri einhver æfing en svo tilkynnti hann að það hefði komið ljós í mælaborðið sem gæfi til kynna að hjólið færi ekki niður en hann sagð- ist jafnvel halda að þetta væri bara bilun í tölvunni. Það sást víst frá jörðu að hjólið kom ekki niður og þegar við vorum að fljúga yfir Hörgárdalinn var tilkynnt að við yrðum að fara til Keflavíkur og lenda þar, sennilega á maganum,“ sagði Bára. „Það var mjög skrýtin tilfinning að fá þær fréttir," sagði Margrét. „Maður vissi ekki al- mennilega hvað þetta væri alvar- legt.“ Flugfreyjan yfirveguð og yndisleg „Hjartað í mér hætti að slá,“ sagði Bára, „en flugfreyjan var afskaplega yndisleg og yfirveguð. Það hafði mikið að segja enda held ég að það hafi enginn verið virki- lega hræddur. Þegar við nálguðumst Keflavík- urflugvöll voru allir komnir í við- bragðsstöðu fyrir brotlendingu og þá hélt ég niðri í mér andanum þangað til ég var komin út úr vél- inni,“ sagði Bára. „Þetta var stórkostleg lending og hann á ábyggilega heiður skil- inn, þessi flugstjóri. Vélin var eig- inlega alveg stöðvuð áður en hann missti nefið á henni niður á flug- brautina,“ sagði Margrét. Þær sögðust báðar ákveðnar í að fara norður með vélinni sem send var til Keflavíkur að sækja farþegana. „Maður getur varla lent í þessu tvisvar sama daginn," sagði Bára. Sinnti mínu starfi Gréta Önundardóttir sem var Margrét Siguijónsdóttir flugfreyja um borð í þessari ferð vildi lítið ræða um þennan atburð við fjölmiðla og gerði lítið úr framgöngu sinni sem þó hlaut ein- róma lof farþeg- anna. „Ég sinnti mínu starfi og ekkert annað enda voru farþeg- arnir sallaróleg- • ir,“ sagði Gréta. Hún kvaðst tvisvar áður hafa Ient í því í sínu starfi að nefhjól hefði ekki lagst niður fyrir lendingu en farþegarnir sögðu að frásögn hennar af þeirri reynslu og nákvæmur undirbúningur henn- ar fyrir það sem í vændum var hefði haft mikið að segja um það að allir héldu ró sinni. „Ég var ánægð með þennan dag þegar ég mætti í morgun í fyrsta flugið mitt á þessari splunkunýju flugvél og mér finnst hræðilegt að horfa á hana núna með nefið í brautinni," sagði Gréta Önundardóttir. Jakob Bjarnason, Hulda Krisffn Magnúsdóttir og Jakobína Jóns- dóttir voru meðal farþeganna og þau sögðust aldrei hafa verið hrædd um að illa færi. Einnig þeim var framganga Grétu Öndundardóttur ofarlega í huga. „Hún sagðist hafa lent í þessu sama tvisvar áður, sagði okkur nákvæmlega hvað mundi gerast og lét okkur æfa á leiðinni hvað við ættum að gera,“ sagði Hulda. „Lendingin tókst mjög vel,“ sagði Jakob. „Vélin kom mjög hægt inn og seig rólega niður á brautina.“ Hann sagði að eftir lendinguna hefðu farþegarnir klappað fyrir flugstjóranum. Lendingin var 100% „Lendingin var alveg 100%, við urðum varla vör við það þegar nef- ið datt niður,“ sagði Jón Guðmar Hauksson farþegi, sem kvaðst fljúga nokkuð oft á þessari leið. Hann kvaðst aldrei hafa talið að hætta væri á ferðum og kvaðst telja líklegt að ís- ing á brautinni hefði átt þátt í því að vélin skreið ekkert til heldur hélst á brautinni miðri í lending- unni. „Flugfreyj- an var stöðugt á ferð á milli okk'ar og talaði við alla sem þurftu út- skýringa við. Hún sagði okkur að þetta væri í þriðja skipti sem hún væri í sömu aðstöðu og það var virkilega róandi.“ Helga Ragnarsdóttir, nemandi í Verkmenntaskólanum á Akureyri, sagðist í samtali við Morgunblaðið vera frekar flughrædd og eins og stundum áður í flugi hefði sér orð- ið illt en hún sagðist þó ekki hafa óttast að illa færi. „Mér fannst allt- af að þetta hlyti að bjargast og flugfreyjan róaði okkur niður og talaði eins og ekkert væri að,“ sagði Helga. Vönduð vél og þægileg Sigurður Aðalsteinsson, flug- maður og framkvæmdastjóri Flug- félags Norðurlands, var einn far- þeganna í Fokker-vélinni. Hann sagðist ekki telja að raunveruleg hætta hafi verið á ferðum og við- brögð áhafnarinnar og farþeganna hefðu verið eins og best gæti orðið. Hann kvaðst ekki telja að smábilun í nýrri flugvél þyrfti að kasta neinni rýrð á Fokker-vélarnar. „Þetta er vönduð vél og þægileg að fljúga í,“ sagði Sigurður Aðalsteinsson. Að- spurður hvers vegna framkvæmda- stjóri Flugfélags Norðurlands flygi á milli með Flugleiðum sagði Sigurður að eins og hver annar Akureyringur væri hann tíður gest- ur í flugvélum Flugleiða ef hann ætti erindi til Reykjavíkur. FN flygi aðeins milli Keflavíkur og Akur- eyrar en hins vegar frá Húsavík til Reykjavíkur. Helga Ragnarsdóttir Jakob Bjarnason Sigurður Aðal- steinsson. Slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli við störf skömmu eftir nauðlendinguna. Morgunbiaðið/Bjorn Biondai A Orsakir bilunarinnar í Asdísi: Talið að skemmdri grjóthlíf á nefhjóli sé um að kenna TÆKNIMENN Flugleiða telja að skemmd grjótlilíf á nefhjóli Fokk- er-vélarinnar Ásdísar hafi valdið því að nefhjólið náðist ekki niður í aðflugi að Akureyrarflugvelli. Flugvélin er sögð hafa skemmst lítið en talið er að viðgerð taki 10 daga. Hér á landi er staddur sérfræðingur Fokker-verksmiðj- anna en það er liður í þjónustu flugvélaverksmiðja við kaupendur nýrra véla. Sá hefur umsjón með viðgerðinni en fleiri sérfræðingar verða kvaddir til gerist þess þörf. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, segir að þessar gijóthlífar séu aukabúnaður en ekki örygg- isbúnaður og hafi fyrirtækið mælt svo fyrir að þær verði ekki í þeim vélum sem fyrirtækinu verða afhent- ar á næstu vikum. Eftir að gijóthlífin hafði verið tek- in af nefhjóli Ásdísar á Keflavík- urflugvelli í gær var vélinni flogið til Reykjavíkur þar sem viðgerðin fer fram. Allur hjólabúnaðurinn reyndist vel í þeirri ferð, að sögn Einars Sigurðssonar. Einar sagði óljóst hver viðgerðarkostnaðurinn yrði og hver þyrfti að bera hann en sagði að félag- ið mundi fara þess á leit að Fokker- Morgunblaðið/Rax Þegar flogið var yfir Keflavíkurflugvöll örfáum mínútum eftir nauð- lendinguna voru slökkviliðs- og tæknimenn búnir að hífa vélina upp og koma undir hana nefhjólinu. verksmiðjumar greiddu kostnaðinn. Vegna atviks þessa hefur því ver- ið frestað að senda eina af gömlu Fokker Friendship vélunum úr landi nú um helgina. Fokker-vélin Ásdís TF-FIR kom til landsins 15. þessa mánaðar og er fyrsta vélin af íjórum sömu teg- undar sem Flugleiðir fá á kaupleigu- samningi frá Fokker-verksmiðjun- um. Vélin hóf áætlunarflug 17. þessa mánaðar og fyrir óhappið átti hún að baki 60 flugtíma í áætlunarflugi og 98 lendingar. Páll Stefánsson flugstjóri: Gerði mér grein fyrir að engin hætta væri á ferðum PÁLL Stefánsson, flugstjóri í flugi Ásdísar til Akureyrar þegar bilun varð í nefhjóli vélarinnar í gærmorgun, sagði að sér hefði í fyrstu orðið bilt við þegar hann varð bilunarinnar var, en hann hafi þó strax gert sér grein fyrir að engin hætta væri á ferðum. „Ég útskýrði eftir bestu getu fyrir farþegum mínum hvernig staðan væri í málinu, og sagði þeim að þeir þyrftu ekkert að óttast eins og reyndar kom á dag- mn. Mér líður mjög vel í dag eftir vitni,“ sagði hann Páll sagði í samtali við Morgun- blaðið að ferðin til Akureyrar hefði í alla staði gengið fullkomlega eðli- lega fyrir sig þangað til rétt fyrir lendingu að vart varð við að ekki kviknuðu tvö græn ljós sem gefa flugmönnum vélarinnar til kynna að nefhjólið sé niðri og í læstri stöðu. „Þá reyndum við að setja hjólin niður í annað sinn, sem er viðtekin regla í tilfelli sem þessu. Þegar það dugði ekki þá reyndum við neyðarað- ferð til að ná hjólunum niður og það dugði ekki heldur. Það logaði því varnaðarljós fyrir nefhjólið, og í fyrstu reiknuðum við með að það gætu verið óhreinindi og vatn sem hindruðu rafmagnstengingar sem eru frammi í nefhjólshúsinu og gefa eiga merki upp í stjórnklefann um að þetta fór eins vel og raun ber að allt sé eðlilegt, en það hefur stund- um komið fyrir á F-27 vélunum. Við flugum þess vegna lágt yfir brautina á Akureyrarflugvelli og þar kíktu starfsmenn upp undir vélina og sáu að hjólið var uppi í hjólahúsinu en dyrnar opnar. Éftir það fengum við flugheimild til Keflavíkur, en á Kefla- víkurflugvelli eru allar aðstæður þær bestu sem völ er á hér á landi, og þaT“sem ekki var um neina alvarlega bilun að ræða ákváðum við að fara þangað," sagði Páll. Hann sagði að með aðstoð flug- freyjunnar, Grétu Önundardóttur, hefðu farþegarnir verið undirbúnir undir nauðlendingu, og sagðist hann ekki hafa orðið þess var að þeir væru neitt órólegir. Síðan hefði allt gengið mjög vel fyrir sig og einnig lendingin. Þar hefði skilað sér góð þjálfun sem flugmennirnir hefðu not- ið hjá Fokker-verksmiðjunum, og einnig frábærir flugeiginleikar vélar- innar. Með í ferðinni til Akureyrar var Peter Knudsen, norskur flugstjóri, sem er um þessar mundir þjálfunar- flugstjóri fyrir Fokker-verksmiðjurn- ar. „Hann sat á milli okkar Ottós Tynes, sem var aðstoðarflugmaður, og nutum við aðstoðar hans. Þessi ferð, ásamt annarri sem áætluð var síðar um daginn, átti að vera loka- þáttur í þjálfun okkar, en að þessu loknu tilkynnti hann okkur að hann sæi ekki frekari þjálfunar þörf og óskaði okkur til hamingju með frammistöðuna. Ég vil taka það skýrt fram að við erum mjög ánægðir með þessa flugvél, og þá ákvörðun um að endurnýja innanlandsflota Flug- leiða með þessari gerð flugvéla. Vél- in er mjög góður arftaki bæði DC-3 vélanna og F-27 sem búnar eru að þjóna okkur síðastliðin 27 ár,“ sagði Páll Stefánsson. Hélt sér í stýrið meðan bílliim valt VÖRUFLUTNINGABÍLL með tengivagn fór út af veginum og valt í Svínahrauni, nokkuð austan við Draugahlíð ofan Litlu kaffistofunnar við Suðurlandsveg um kl. 14 í gær. Á tengivagninum var gámur með um 22 tonn af fiski. Bílstjórinn, Hannes Björgvinsson, slapp ómeiddur. Hannes hefur ekið þessa leið margoft en hann hefur starfað hjá Eimskipafélaginu í 17 ár. Hann var að koma frá Þorlákshöfn með fisk á pöllum og sagði að það hefði verið mjög blint og hvasst þegar þetta gerðist. Á milli hryðja varð hann skyndilega var við að tveir bílar höfðu stöðvað á veginum en þeir höfðu lent í lítils háttar árekstri. Hann steig á hemlana og þegar bíll- inn v.ar að stöðvast um 10-15 metr- um frá bílunum rann hann út í kant- inn og valt síðan á hliðina. Hannes náði að halda sér í stýri bílsins og slasaðist ekki. „Ég fór svo hægt yfir og náði að hanga í stýrinu. Mér brá nú svona frekar við þetta," sagði Hannes. Tjónið á bílnum nemur nokkrum hundruðum þúsunda króna. Lögreglan á Selfossi og björgun- arsveitarmenn aðstoðuðu við að ná bílnum og tengivagninum á réttan kjöl en til þess þurfti tvo stóra krana- bíla. Fljúgandi hálka var á slysstað og hávaðarok svo ástæða var talin til að loka veginum um tíma, þar sem óttast var að bílar ækju saman í blindunni. Um svipað leyti og fiskflutninga- bíllinn fór út af var vörubíl ekið aft- an á fólksbíl, nokkru vestar á Suður- landsvegi. Ökumaður fólksbílsins hægði ferðina og ökumaður vörubíls- ins hemlaði til að koma í veg fyrir árekstur. Það tókst ekki, en eftir áreksturinn hélt vörubíllinn áfram út fyrir veg. Engin meiðsli urðu á mönnum, en fólksbíllinn mun nokkuð skemmdur. Morgunblaðið/Þorkell Stórvirkir kranar lyftu tengivagninum upp á veginn. Islendingar og Græn- lendingar hefja sam- starf um björgunarmál TVEIR Islendingar sóttu björgunarráðstefnu á Grænlandi fyrir nokkru, þeir Magnús Hallgrímsson verkfræðingur og Bjarni Axels- son tæknifræðingur. För þeirra var liður í samstarfi Landsbjarg- ar, landssambands björgunarsveita, og Grænlendinga á sviði björg- unarmála. Lögreglustjórinn á Grænlandi, Jens Wacker, kom til íslands sl. haust í boði Landsbjargar og kynnti sér íslensk björgunarmálefni. Heim- sótti hann nokkrar björgunarsveitir, m.a. á Akureyri, skoðaði búnað þeirra og kynnti sér þjálfunarmál. Var þá rætt um að koma á sam- starfi milli Landsbjargar og Græn- lendinga á þessu sviði, m.a. um þjálf- un björgunarliðs. í framhaldi af þessu barst Lands- björgu boð frá grænlenskum yfir- völdum um að sækja ráðstefnu í lok janúar um björgunarmál í Græn- landi. Ráðstefnan var haldin í Nuuk, höfuðstað Grænlands. Til hennar var boðið til að endurmeta stefnuna í grænlenskum björgunarmálum og yfirfara áætlanir sem gerðar hafa verið. Þátttakendur komu frá dönsk- um og grænlenskum flugmálayfir- völdum, hernum og lögreglunni. Þar af-voru fjórtán manns sem komu frá Danmörku og höfðu viðkomu á Is- landi. Skoðuðu þeir m.a. bækistöðvar Hjálparsveitar skáta í Njarðvík og Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykja- vík. Þeir Magnús Hallgrímsson og Bjarni Axelsson bættust í hóp ráð- stefnugesta hér á landi, en Ilercules- flugvél frá danska flughernum flaug héðan með fulltrúana til Nuuk. Ráðstefnan stóð í tvo daga og sögðu íslendingarnir frá því hvernig staðið er að málum hér á landi. Kynntu þeir starfsemi björgunar- sveita Landsbjargar, sem allar eru byggðar upp af sjálfboðaliðum, þjálfunarkerfi þeirra og útbúnað. Sýndu grænlensk yfirvöld því áhuga að koma upp svipuðum sveitum þar á landi. Reyndar var nýlega stofnuð í Syðra-Straumfirði slík björgunar- sveit áhugamanna, sú fyrsta þar í landi. Ráðstefnufulltrúar skoðuðu m.a. nýtt björgunarskip lögreglunn- ar og Beskytteren, skip dönsku strandgæslunnar. Eitt af verkefnum ráðstefnunnar var að ákveða hvaða búnaður eigi að vera í pökkum semw varpað er úr flugvélum til nauð- staddra á Grænlandsjökli eða veiði- manna á hafísnum. Þá var kynntur búnaður og gúmbátar sem hægt er að varpa úr flugvélum niður til skip- brotsmanna. Ennfremur voru endur- skoðaðar reglur um leiðangra sem fara vilja um grænlenskt landsvæði. Að ráðstefnunni lokinni var höfð viðdvöl í Syðra-Straumfirði, þar sem Islendingarnir ræddu við félaga úr nýstofnaðri björgunarsveit. Ákveðið var að félagar úr henni kæmu fljót- lega til íslands til að sækja nám- skeið björgunarskóla Landsbjargar í fjallamennsku. Er vonast til að skólinn geti í framtíðinni aðstoðað við þjálfun björgunarmanna á Græn- landi. Þá var ákveðið að tveir fulltrú- ar frá Grænlandi kæmu á næstunni til Islands, m.a. til að kynna sér starfsemi björgunarsveita Lands- bjargar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.