Morgunblaðið - 27.02.1992, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1992
SPENNANW í
-efþú áttmiða!
Salmson
Miðstöðvardœlur
Þróuð. -
framieiðsla.
Hagstœtt verð.
LANDSSMIÐJAN HF,
Verslun: Sölvhólsgötu 13
SlMI (91) 20680 • FAX (91) 19199
STARFSLOK
Upplýsinga- og fræðslufundur fyrir fólk frá 60
ára aldri verður haldinn laugardaginn 29. febrúar
frá kl. 13-17.30 á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18,
Reykjavík.
Fjallað verður um breytingar sem fylgja þessu
æviskeiði, húsnæðismál, þjónustuíbúðir,
tryggingamál, fjármál, heilsuna o.fl. Leiðbein-
andi er Þórir S. Guðbergsson, félagsráðgjafi.
Þátttökugjald er 1000 kr., kaffi og gögn innifalin.
Skráning á skrifstofu Rauða krossins í síma
91-26722 til hádegis föstudaginn 28. febrúar.
/qa
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Rauðarárstíg 18 - Rcykjavík - sími: 91-26722
HRESSIR OG KATIR
á Hard Rock Café
HARD ROCIi CAFE - S. 689888
L J
fclk f
fréttum
SKÓLASKÁK
Grunnskólanemar eigast við
Allöng hefð er nú komin á skóla-
skákmót þau sem Kiwanis-
klúbburinn Drangey á Sauðárkróki
hefur staðið fyrir meðal grunnskól-
anema í Skagafirði. Um síðustu
helgi hittust tæplega 30 grunnskól-
anemar frá flestum skólum í Skaga-
firði og öttu saman hvítu og svörtu
liðsmönnum á taflborðinu, í Gagn-
fræðaskólanum á Sauðárkróki.
Teflt var í tveimur flokkum ellefu
ára og yngri og tólf ára og eldri.
Skákstjóri var Haraldur Hermanns-
son.
í yngri flokki varð sigurvegari
Sverrir Kári Karlsson með 6 vinn-
inga, í öðru sæti varð Eðvarð Frið-
riksson með 5 vinninga og í þriðja
sæti varð Jón Kr. Jóhannsson einn-
ig með 5 vinninga en lægri stig.
í eldri flokki sigraði örugglega
Bjöm Margeirsson með 7 vinninga
af 7 mögulegum en Björn hefur
verið nánast ósigrandi í sínum
flokki undanfarin ár. í öðru sæti
varð Guðmundur Ó. Einarsson með
6 vinninga og Davíð Harðarson í
þriðja sæti með 5 vinninga.
Þrír efstu í hvorum flokki fengu
verðlaunapeninga en þeir Sverrir
Kári og Bjöm fengu til varðveislu
farandbikara sem skólar þeirra
varðveita til næstu keppni að ári.
Að lokinni keppninni þakkaði Har-
aldur Hermannson skákstjóri kepp-
endunum góða og drengilega leiki
og hvatti þá til þess að halda vel á
spöðunum til næsta árs og gera
þannig veg skáklistarinnar í Skaga-
firði ennþá betri og meiri. Sigurvegarar í yngri og eldri flokki þeir Sverrir Kári Karlsson og
- BB. Björn Margeirsson.
MYNDIR
Hveijir eru
ámyndinni?
Þessi mynd var tekin árið
1930 á Laufásvegi 7 í
Reykjavík. Börnin á myndinni
voru í tímakennslu hjá Þór-
hildi Helgason. Þeir sem
þekkja sjálfa sig á myndinni
eru vinsamlegast beðnir að
hafa samband við Eddu Guð-
mundsdóttur í síma 23464 eða
við Ingu Thorsteinsson í síma
79895.
Stórglæsilegar dragtir,
kkar, kápur, pils, buxur,
blússur, peysur...
Verið velkomin,
* ^ TIZKAN
LAUGAVEGI 71 • 2. HÆÐ
SÍMI 10770