Morgunblaðið - 27.02.1992, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1992
11
Alltaf jafn gam-
an að syngja
fyrir Islendinga
I - segir Rannveig Bragadóttir óperu-
söngkona sem syngur með Kammersveit
Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum í kvöid
RANNVEIG Bragadóttir, óperusöngkona, syngur einsöng með
Kammersveit Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum í dag, fimmtudaginn
27. febrúar, eftir 2 ára tónleikahlé á Islandi. Söngkonan hefur nýlok-
ið 4 ára samningi við Vínaróperuna og stefnir að því að halda fleiri
tónleika hér á landi næsta vetur. Hún er búsett í Vínarborg ásamt
austurrískum eiginmanni sínum og ungum syni þeirra.
Samningur Rannveigar við Vín-
aróperuna tók gildi árið 1987 og
rann út síðasta haust. „Síðan þá
hef ég lítið sungið. Hef verið í
barnsburðarleyfi og á núna 4 mán-
aða strák,“ sagði Rannveig þegar
hún var innt eftir því hvað hefði
tekið við eftir samninginn við óper-
una. „Tónleikarnir núna eru eigin-
lega fyrsta verkefni í langan tíma
en eftir þá fer ég til Vínarborgar
og þaðan til Salzburgar þar sem
> ---------------------------------------
ég mun taka þátt í uppfærslu á
óperunni Frau ohne Schatten eftir
Richard Strauss daginn fyrir pálm-
asunnudag og á annan í páskum.
Stjórnandi verður sir George Solti.
í vor reikna ég með að taka lífinu
rólega og njóta þess að vera með
lítið barn en í sumar tekur við upp-
færsla óperunnar Salome og áfram-
haldandi sýningar á Frau ohne
Schatten á Salzburgarhátíð."
Rannveig segir að ýmislegt sé í
Grunnskólahátíð
í Hafnarfirði
ÆSKULÝÐS- og tómstundaráð
Hafnarfjarðar og grunnskólarn-
ir standa fyrir árlegri Grunn-
skólahátíð þann 27. febrúar.
Hátíðin mun hefjast með leiksýn-
ingum í Bæjarbíói. Sú fyrsta verður
klukkan 13.00 sú næsta-klukkan
15.00 lokasýning verður klukkan
17.00. Sýningin tekur um rúma
klukkustund og samanstendur af
atriðum frá grunnskólunum en þeir
eru Víðstaðaskóli, Setbergsskóli,
Lækjarskóli og Öldutúnsskóli.
Um kvöldið klukkan 21.00 hefst
dansleikur í íþróttahúsi Víðstaða-
skóla þar mun hljómsveitin Loðin
rotta leika fyrir dansi til klukkan
01.00. (Úr Frcttatilkyniiinfru)
Morgunblaöiö/bverrir
Rannveig Bragadóttir.
deiglunni næsta vetur en vill lítið
láta uppi að svo komnu máli. „Eg
er hins vegar ákveðin í að festa
mig ekki í óperuhúsi meðan barnið
er svona lítið. Vil geta ráðið mínum
tíma meira_ sjálf og komið oftar
hingað til íslands og haldið tón-
leika. Það hef ég ekki getað gert
vegna þess að ég hef verið upptek-
in af því að eignast barn en mér
finnst alltaf jafn gaman að syngja
fyrir þá sem koma að hlusta á mig
hérna. íslendingar eru svo góðir
áheyrendur."
A tónleikunum á Kjarvalsstöðum
í kvöld, sem hefjast klukkan 20.30,
syngur Rannveig verkið Morgen
eftir Pál P. Pálsson sem hún segir
í senn fallegt og dramatískt. Þá
syngur hún 11 þjóðlög í útsetningu
L. Berio. „Lögin eru blæbrigðarík
og gera töluvert miklar kröfur til
söngvarans," segir Rannveig og
nefnir að þau séu frá jafn ólíkum
menningarsvæðum og Ameríku,
Sikiley, Frakklandi og Armeníu svo
dæmi séu tekin. Rannveig hefur
sungið stærri uppsetningu af verk-
inu í balletuppfærslu í Vínaróper-
unni.
Píanótónleikar
_________Tónlist
Jón Ásgeirsson
Lára Rafnsdóttir hélt sína
fyrstu sjálfstæðu tónleika í ís-
lensku óperunni sl. þriðjudag og
lék verk eftir Soler, Mompou,
Grieg, Prokofiev og Chopin. Lára
hefur skilað löngum starfsdegi
sem píanóleikari en að mestu í
samspili með öðrum og eru þetta
því eiginlegir „debut“-tónleikar
hennar.
Tónleikarnir hófust á tveimur
sónötum eftir Antonio Soler
(1729—1793), skemmtilegum og
gagnsæjum sembalverkum. Tón-
verk eftir Soler standa bæði hvað
snertir tónferli og formgerð í
flokki með verkum eftir Dominico
Scarlatti, sem eru mjög krefjandi
varðandi nákvæmni í áslætti á
píanó. Lára lék Soler-sónöturnar
í heild ágætlega þó nokkuð gætti
óstyrks í þeirri fyrri.
Þrír þættir úr „Suburbis", eftir
Federico Mompou (1893—1988),
voru fallega leiknir og þar kom
fram helsta leikeinkenni Láru, að
leika með blæbrigði á sérlega
músíkalskan máta. Vel mótaðar
tónhendingar, bæði í styrk og blæ-
mótun. Einkenndi einnig túlkun
Láru á e-moll
sónötunni
eftir Edward
Grieg. Sér-
staklega ber
að geta túlk-
un hennar á
öðrum þætti
verksins.
Lokakaflinn
hefði mátt
vera nokkuð hraðari en að öðru
leyti var góður heildarsvipur á
verkinu.
Visions Fugitives, eftir Prokofi-
ev, er skáldlegt verk, tuttugu
skissur, sem útheimta sterka til-
finningu fyrir blæbrigðum og þar
lék Lára sér að ýmsu fallegu, sem
píanóið gefur þeim, er kann að
ræða við sitt hljóðfæri. Til að
nefna sérstaklega eitt dæmi, var
útfærsla Láru á sextándu skiss-
unni sérlega falleg.
í g-moll ballöðunni eftir Fred-
éric Chopin sýndi Lára mestu til-
þrifin og skilaði henni á köflum
mjög vel, bæði músíkalskt og með
töluverðum krafti. í heild voru
þetta vel unnir tónleikar og það
sem mest er um vert, bornir upp
af sterkri tilfinningu fyrir inni-
haldi tónverkanna.
Tölvuvöruverslun
Til sölu lítil verslun sem verslar með tölvur og vörur
fyrir tölvur og því tilheyrandi. Verslunin er vel staðsett
í björtu og góðu húsnæði með stórum sýningagluggum.
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA"
Borgartúni 31. Lögfr. Pétur Þ. Sigurðsson hdl.
62-42-50
Orímur Grfmsson
framkvœmdarstjórl
Velkominn í Enskuskólann
Verið velkomin að líta inn í Enskuskólann
í spjall og kaffi.
Yið bjóðum upp á 11 námsstig í ensku.
Við metum kunnáttu þína og í framhaldi
af því ráðleggjum við þér hvaða námskeið
hentar þér og þínum óskum hest.
Komdu í heimsókn eða hringdu - því fylgja
engar skuldbindingar.
INNRITUN STENDUR yFIR
HRINGDUISIMA 25330 EDA 25900 OG FAÐU FREKARIUPPLYSINGAR
KENNSLA HEFST 4. MARS
F'yrir fullorðna:
Almenn enska
(Áhersla lögð á talmál)
Enskar bókmenntlr
Rituö enska
Viðskiptaenska
Umræðuhópar
TOEFL-G MAT-GRE Námskeið
Undirbúningsnámskeiö fyrir
prðf sem kraflst er við flesta
skóla i enskumælandi löndum
Verslunarmannafélag Reykjavíkur og
flest önnur stéttarfélög taka þátt í
ná'mskostnaði sinna félagsmanna
Ný bamanásmkeið hefjast
í maí og júní
Einkatímar
Hægt að fá einkatíma eftir vali
ÞÚ FINNUR ÖRUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ ÞITT HÆFI HJÁ OKKUR - VELKOMIN í HÓPINN...
skólinn
TÚNGOTU 5 101 REYKJAVIK