Morgunblaðið - 10.03.1992, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1992
45
stjórn Kaupfélags Siglufjarðar.
Hann var virkur félagi í Alþýðu-
flokksfélagi Sigluijarðar og sat þar
í bæjarstjórn fyrir Alþýðuflokkinn.
Árið 1962 fluttu Haraldur og
Guðný í Kópavog. Guðný lést árið
1977 og hélt Haraldur þá heimili
með mér, Herdísi, þar til hann flutt-
ist í hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð.
Haraldur hafði sterka hvöt til að
vernda og veija þá sem honum
fannst standa höllum fæti í lífsbar-
áttunni. Kom þetta hvað ljósast
fram í framkomu hans við yngsta
barnið sitt, hana Dísu „litlu“, sem
hafði orðið fyrir þungu áfalli í blóma
lífsins. Brá hann ósjaldan fyrir hana
skildi, ef eitthvað bjátaði á.
Bömum mínum var hann góður
og umhyggjusamur afi og reyndist
þeim traustur vinur og hjálparhella.
Börnum þeirra var hann ljúfur og
blíður langafi.
Nú er komið að leiðarlokum. Guð
blessi mætan föður, afa og langafa.
Hlýr hugur og góðar óskir fylgja
honum yfir móðuna miklu.
Dísa.
Nú þegar Haraldur Gunnlaugs-
son afi minn hefur kvatt þennan
heim langar mig til að kveðja hann
með fáeinum orðum.
Ég bjó hjá afa og ömmu, ásamt
móður minni, frá bernsku og segja
má að hann hafi gengið mér í föður-
stað. Alltaf var hann tilbúinn að
koma til hjálpar ef eitthvað bjátaði
á og ófá verkefni voru þau sem
hann gat ekki leyst. Þessi skap-
mikli og staðfasti maður sem marg-
ir kölluðu þijóskan, lét þó auðveld-
lega undan ef rétt var að honum
farið og hann fann að hans rök
voru léttvægari en mín.
Afi var hagleikssmiður og gat
dundað sér tímunum saman við
smíðar og viðgerðir og var aldrei
ánægður fyrr en verki var lokið.
Þegar ég bytjaði að búa, stofnaði
fjölskyldu og keypti fyrsta hús-
næðið, fylgðist afi grannt með, var
aldrei langt undan, stundum dálítið
afskiptasamur, en vildi vel og var
fljótur til aðstoðar ef hann sá að
hjálpar var þörf.
Þó að mikill aldursmunur væri á
okkur vorum við mjög góðir vinir
og höfðum náið samband hin síðari
ár og fannst honum ekkert skemmt-
ilegra en að fá heimsókn okkar
Helgu með börnin og vildi helst
alltaf Jiafa okkur hjá sér.
Ég vil þakka elsku afa fyrir sam-
verustundirnar, ég sakna hans,
hann v_ar allt í senn, afi, faðir og
vinur. Ég veit að samverustundirn-
ar eiga eftir að verða fleiri og víst
er að þá verða fagnaðarfundir.
Róbert, Helga og dætur.
. , Einkaumboð á íslandi:
Þ. Þ0RGRÍMSS0N & C0
Ármúla 29 • Reykjavík • Sími 38640
Aðrar korkvörutegundir á lager:
Undirlagskork í þremur þykktum
Korkvólapakkningar í tveimur þykktum
Gutubaðstofukork
Veggtöflu-korkplötur f þremur þykktum
Kork-parkett venjulegt, í tvoimur þykktum
Kork*o*Plast
Sænsk gæðavara
KORK-gólfflísar
með vinyl-plast-áferð
Kork-O'Plast:
í 10 gerðum
Veggkork
í 8 gerðum.
Ávallt til
á lager
+
Ástkær eiginkona mín, móðir, systir, tengdamóðir, mágkona og
amma,
JÓHANNA ELÍSA SVENDSEN,
Löngubrekku 29,
Kópavogi,
andaðist í Landakotsspítala 6. mars.
Jarðarförin auglýst sfðar.
Björn S. Jónsson,
synir, systkini, tengdadætur, mágkona
og barnabörn.
t
Elskulegur sambýlismaður minnr sonur minn, faðir okkar og bróðir,
VALGEIR HÖRÐUR GUÐMUNDSSON
frá Akureyri,
Hafnarbraut 23,
Kópavogi,
lést föstudaginn 6. mars.
Linda Dröfn Jóhannesdóttir,
Sigurbjörg Ormsdóttir,
Egill Þór Valgeirsson, Ari Valgeirsson
og systkini hins látna.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KARL SIGTRYGGUR SIGTRYGGSSON,
Njarövíkurbraut 14,
Njarðvík,
lést í sjúkrahúsi Keflavíkur sunnudaginn 8. mars.
Jarðarförin fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn
13. mars kl. 14.00.
Heiðbjört Jóhannesdóttir,
Karl Karlsson, Óskar Karlsson,
Álfheiður Karlsdóttir, Sigþrúður Karlsdóttir,
Helga Karlsdóttir,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn.
+
Sambýliskona, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
GUÐLAUG SIGRÍÐUR KARLSDÓTTIR,
Hátúni 10,
lést í Borgarspítalanum 1. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Krabbameinsfélag íslands.
Einar Þorsteinsson,
Helga Guðmundsdóttir, Þorsteinn Kúld Björnsson,
Áslaug Elísa Guðmundsdóttir,
Birna Armey Þorsteinsdóttir,
Lilý Karlsdóttir,
Runólfur Ómar Karlsson.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og dóttir,
KRISTÍN SÓLVEIG
SVEINBJÖRNSDÓTTIR,
Lálandi 23,
Reykjavík,
lést í Borgarspftalanum þann 8. mars.
Grétar Haraldsson,
Margrét Grétarsdóttir, Gunnar Halldórsson,
Jóna Björk Grétarsdóttir, Andri Már Ingólfsson,
Sveinbjörn Snorri Grétarsson,
barnabörn,
Margrét Jóhannesdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður
okkar og afa,
HLÖÐVERS JÓNSSONAR,
Eskifirði.
Börn og barnabörn.
+
Okkar innilegustu þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð, vin-
áttu og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
RAGNHILDAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Kleppsvegi 124.
Lára Friðbertsdóttir, Bára Friðbertsdóttir,
Ingibjörg Friðbertsdóttir, Guðmundur Sörlason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, systir, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT JAKOBSDÓTTIR,
Garðaflöt 37,
Garðabæ,
verður jarðsungin frá Garðakirkju á Álftanesi miðvikudaginn
11. mars kl. 13.30.
Steinunn Gísladóttir, Jón Vilhelmsson,
ingibjörg Gísladóttir, Sverrir Þóroddsson,
Páll Gíslason, Elín Markúsdóttir,
Bjarni Jakobsson,
Albert Albertsson
og barnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MAGNHILD HOPEN SNÆHÓLM,
Mánabraut 13,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju á morgun, miðvikudaginn
11. mars, kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlega bent á að láta
Hjartavernd njóta þess.
Njörður Snæhólm,
Harald Snæhólm, Þórunn Hafstein,
Vera Snæhólm, Gylfi Hjálmarsson
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN PÉTURSSON
frá Bót,
til heimilis á Dalbraut 21,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðjudaginn 10. mars
kl. 15.00.
Laufey Valdimarsdóttir Snævarr,
Birna H. Stefánsdóttir, Jón Bergsteinsson,
Pétur Stefánsson, Hlíf Samúelsdóttir,
Stefanía V. Stefánsdóttir, Skúli G. Johnsen,
Gunnsteinn Stefánsson, Helga Snæbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SVEINBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR
frá Sauðholti,
Hólmgarði 18,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 12. mars
kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minn-
ast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir.
Reynir Þórðarson,
Halldór Þórðarson,
Þórir Þórðarson,
Kristjóna Þórðardóttir,
Magnús Þórðarson,
barnabörn og
Bára Sigurðardóttir,
Jóhanna Eðvaldsdóttir,
Ingibjörg Einarsdóttir,
Björn G. Jónsson,
Elínborg Ingólfsdóttir
barnabarnabörn.
+
Þakka auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður
minnar,
HRAFNHILDAR ÞORBERGSDÓTTUR.
Hörður Garðarsson.
+
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
FANNEYJAR MAGNÚSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á elli- og hjúkrunarheimil-
inu Grund.
Steinunn Ósk Magnúsdóttir, Björn Ásgeirsson,
Guðbjörg Jóna Magnúsdóttir, Gunnar Asbjörnsson,
Þórunn Magnúsdóttir, Guðmundur Guðbjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir þann hlýhug og samúð, sem okkur var sýnd,
við fráfall og útför elskulegrar eiginkonu minnar, möður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GYÐU ÞÓRDÍSAR ÞÓRARINSDÓTTUR,
Norðurbrún 24,
Reykjavík.
Kristinn Guðbrandsson,
Þórarinn Kristinsson, Guðrún Sveinsdóttir,
Kristinn Kristinsson, Sigrfður Gunnarsdóttir,
Sigurður Kristjánsson, Ágústa Lárusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.