Morgunblaðið - 26.03.1992, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992
11
Kirkjuritið í nýjum búningi
Hvammstanga.
KIRKJURITIÐ hefur nú komið út í nýjum búningi í upphafi 58.
árgangs. Er þetta fyrsta hefti nýráðins ritstjóra, sr. Kristjáns
Björnssonar sóknarprests á Hvammstanga. Sr. Kristján var vígð-
ur til Breiðabólsstaðarprestakalls í júlí 1989 en fluttist til
Hvammstanga á síðasta ári, er Hvammstangasókn færðist með
lögum í Breiðabólsstaðarprestakall. Hefð er fyrir, að ráða rit-
stjórann í þrjú ár í senn og er sr. Kristján ráðinn frá síðustu
áramótum. Má segja að ráðning hans sé tímamót hjá Kirkjurit-
inu, þar sem hann er fyrsti ritstjóri þess úr Hólastifti hinu forna.
Til gamans má benda á, að í prestakalli hans var fyrsta prent-
smiðja starfrækt á Islandi og þar voru einnig lög fyrst færð í
letur.
Sr. Kristján var inntur frétta
á þessum tímamótum.
- Kirkjuritið kemur nú út í
breyttu útliti, hvað um innihald-
ið?
„Kirkjuritið kemur út ársfjórð-
ungslega. Með þessum nýja ár-
gangi var ákveðið að breyta út-
liti ritsins og stækka það.
Kannski meðal annars til að und-
irstrika breyttar áherslur í útgáf-
unni. í seinni tíð hefur ritið
byggst upp á efnismiklum grein-
um um afmarkað efni í hverju
riti, þar sem því málefni voru
gerð endanleg skil. Nú eru ritað-
ar 2-3 ítarlegar greinar fyrir rit-
ið og ýmsum málefnum velt upp.
Síðan verður ritið opið til skoð-
anaskipta í næstu tölublöðum.
Gerðar verða kröfur um vandað-
an málflutning og gagnorða
framsetningu. Þannig hyggst ég
gera ritið opnara og áhugaverð-
ara fyrir fleiri, en ekki þungt,
faglegt rit, sem höfðar til fárra
fræðimanna. Þá lýsi ég eftir
fréttum og myndum úr daglegu
lífi kirkjunnar og safnaðarins,
vítt og breitt um landið.“
- Hvaða áherslur eru í þessu
fyrsta tölublaði, sem þú ritstýrir?
„Umræða um safnaðarupp-
byggingu hófst í síðasta tölublaði
Kirkjuritsins og eru því málefni
nú gerð ítarlegri skil, með grein-
um eftir sr. Órn Bárð Jónsson
og sr. Bjarna Karlsson. Þá eru
greinar um messusönginn, ritað-
ar af Jóni Stefánssyni organista,
sr. Jóni Helga Þórarinssyni og
sr. Gunnari Björnssyni. Eru þar
settar fram skoðanir, sem líkleg-
ar eru til að verða til snarpra
skoðanaskipta. í ritinu er einnig
kynning á sálmabókinni Sálmar
1991.“
- Hvað verður tekið tii um-
Qöllunar í næsta tölublaði?
„Þá verður reynt að fjalla um
dulúðina í kirkjunni og sérstöðu
kristinnar dulúðar gagnvart öðr-
um trúarbrögðum. Einnig verður
velt upp samvinnu kirkju og skóla
um kristinfræðslu."
- Verður einhver stefnubreyt-
ing hjá Kirkjuritinu, undir rit-
stjórn þinni?
„Framtíðarsýn mín er, að sam-
vinna verði milli presta og organ-
ista kirkna, en Prestafélag ís-
lands gefur Kirkjuritið út og
organistar sérstakt blað, Organ-
istablaðið. Til að mynda er afar
erfitt að taka upp umræður í
Kirkjuritinu um söngmál í kirkj-
um, án þess að organistar eigi
þar beinan þátt í umræðunni.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Sr. Krislján Björnsson ritstjóri
Kirkjuritsins.
Þá má segja að í þessu presta-
kalli sé gömul hefð fyrir ritun
fræða og bókaútgáfu. Vissulega
kemur til greina að bijóta um
og prenta Kirkjuritið alfarið í
þessu héraði, því öll aðstaða er
hér til staðar.“
- Nú ert þú fyrsti ritstjóri
Kirkjuritsins í Hólastifti, hvað
um útgáfumál norðlenskra
presta?
„Prestafélag Hólástiftis hins
forna hefur um árabil gefið út
rit, Tíðindi. Munu þeir ekki hafa
unað því að vera settir hjá í að
hafa bein afskipti af útgáfu rita
um sér hugleikin mál. Fyrsta
tölublað Tíðinda kom út að hausti
1899 en síðan ekki fyrr en afi
minn, sr. Sigurður Stefánsson á
Möðruvöllum, endurvakti það
árið 1959.“
- Viðtal: Karl Sigurgeirsson
___________Brids_____________
Umsjón Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Siglufjarðar
Fyrir skömmu lauk firmakeppni
Bridsfélags Siglufjarðar. Spilaður var
þriggja kvölda tvímenningur og spil-
uðu því þrjú pör fyrir hvert fyrirtæki.
Röð efstu fyrirtækja varð þessi:
Þormóður Eyjólfsson hf. 430
Berghf. 425
Stálvík Sl. 1 421
Kranaleiga Þorsteins 420
L.V.N.V. 416
Þátttökugjald er kr. 6.000 á par og
er innifalið í þeirri upphæð kaffi og
glæsilegaur kvöldverður í Hótel Egils-
búð.
Að vanda verða glæsileg verðlaun
í boði fyrir þijú efstu pörin. Spilað
verður um silfurstig.
Þátttaka tilkynnist til Heimis í síma
71461/71507, Elmu 71532/71750 eða
Jóhönnu í síma 71612/71776 fyrir 13.
apríl. Allar nánari upplýsingar eru
veittar í þessum símum.
Páskamót BN hafa frá upphafi ver-
ið eindæma vel sótt og jafnan færri
komist að en viljað hafa.
Bridsfélag Sauðárkróks
Nú er lokið parakeppni félagsins
og var keppnin mjög jöfn og úrslit
réðust ekki fyrr en á síðasta spili.
Efstu pör urðu:
Agústa Jónsdóttir - Kristján Blöndal 240
Anna Bjarnadóttir - Jónas Birgisson 239
Sólrún Júlíusdóttir - Ólafur Jónsson 226
Sigrún Angantýsd. - Sigurgeir Angantýsson 225
Þórdís Þormóðsdóttir - Jón Ö. Berndsen 223
Svanhildur Hall - Sveinbjörn Eyjólfsson 219
Ekki verður spilað næsta mánudag
vegna sæluviku Skagfirðinga. Mánu-
daginn 6. apríl verður spilaður eins
kvölds tvímenningur.
51500
Hafnarfjörður
Álfaskeið
Góð 4ra herb. rúml. 100 fm íb.
á 3. hæð auk bílsk. Áhv. ca 2,5
millj. Verð 7,6 millj.
Breiðvangur
Góð 4ra-5 herb. íb. á 3. hæð.
Gott útsýni.
Blómvangur
Giæsil. efri sérh. í tvíbhúsi
ásamt bílsk.
Smyrlahraun
Gott eldra timbureinbh. ca 170
fm kj., hæð og ris. Verð 9,0 millj.
Hjallabraut
Góð 4ra-5 herb-. ca 110 fm íb.
á 1. hæð.
Drangahraun
Höfum fengið til sölu gott iðn.-
og/eða versl.-/skrifsthúsn.,
382,5 fm. Fokhelt.
Einbýlishús óskast
í Hafnarfirði í skiptum fyrir efri
sérh. ásamt risi ca 140 fm.
Atvinnuhúsnæði
Vantar atvhúsnæði ca 1000-
1500 fm. Helmingur lagerpláss.
Vantar - vantar
Höfum kaupendur að 2ja, 3ja
og 4ra herb. íb. í Hafnarfirði.
Kópavogur - Álfabrekka
Gott einbhús á góðum stað á
tveimur hæðum ca 270 fm
þ.m.t. bílsk.
j Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hafn.,
símar 51500 og 51501.
VITASTÍG I3
26020-26065
Skúlagata. 2ja herb. íb. á 1. hæð. 51 fm suðursvalir. Laus fljótl.
Æsufell. 2ja herb. íb. ca 55 fm auk bílsk. Góð lán áhv.
Hverafold. 2ja herb. falleg íb. á 1. hæð 56 fm. Sérþvottah. í fb. Húsnlán éhv. Parket. Sér- garður.
Vindás. 3ja herb. falleg íb. 86 fm á 2. hæð. Bílskýli. Fallegar innr. Góð lán áhv.
Vesturberg. 3ja harb. fb. á 1. hæð 74 fm. Fallegar innr. Vestursv. Verð S.7 mlllj.
Týsgata. 4ra herb. íb. á 1. hæð 80 fm. Laus.
Eskihlið. 4ra herb. endalb. 90 fm. Parket. Vestursv. Verð 7,3 millj.
Bólstaðarhlíö. Sérlega falleg 4ra-5 herb. íb. 113 fm á 1. hæð. Sérinng. Suðursv. Bílskréttur. Nýjar innr.
Gunnar Gunnarsson,
lögg. fasteignasali, hs. 77410.
Hjartanlegar þakkir séndi ég öllum þeim, sem
glöddu mig og sýndu mér vinarhug á áttrœöis-
afmœli minu 13. mars.
Guð blessi ykkur öll.
Málfríður Larsdóttir,
Hríngbraut 87,
Keflavík.
Gódan daginn!
Efstu pörin eftir þessi þijú kvöld
yoru þessi:
Ásgrímur Sigurbjömss. - Jón Sigurbjömsson 469
Reynir Pálsson - Stefán Benediktsson 428
Birgir B. - Gottskálk R. - Þorsteinn J. 405
Jónas Stefánsson - Þórleifur Haraldsson 395
Sigfús Steingrímsson - Sigurður Hafliðason 394
Nú stendur yfir aðalsveitakeppnin
og taka 12 sveitir þátt í henni. Lokið
er 7 umferðum af 11 og er staðan á
toppnum þannig:
Björk Jónsdóttir 157
Þorsteinn Jóhannsson, biðleikur 132
íslandsbanki, biðleikur 124
Níels Friðbjarnarson 121
Stefán Benediktsson 115
Ánægjulegustu tíðindin eru að aðal
bridsgarpar Sigifirðing af yngri kyn-
slóðinni, þeir Olafur og Steinar Jóns-
synir, urðu Islandsmeistarar yngri
spilara nýlega. Þeir spiluðu í sveit
Videóhallarinnar ásamt þeim Hrannari
Erlingssyni og Sveini R. Eiríkssyni.
Bridsfélag Hornafjarðar
Hafið er þriggja kvölda svokallað
Vélsmiðjumót og er spilaður barómet-
er.
Efstu pör eftir fyrsta kvöldið:
Gísli Gunnarsson — Ingvar Þórðarson 50
Björn Júlíusson — Vífill Karlsson 39
Birgir Bjömsson - Stefán Arngrímsson 39
Jón G. GunnarssonJón Guðmundsson 38
Þorsteinn Siguijónsson - Einar V. Jensson 38
Örn Raparsson - Kolbeinn Þorgeirsson 29
Ólafur Jónsson — Kristjón Elvarsson 25
JónAxelsson-GuðmundurSkúlason 16
Páskamót á Norðfirði
Hið árlega páskamót Bridsfélags
Norðfjarðar verður haldið í Egilsbúð
laugardaginn 18. apríl nk. og hefst
kl. 12.30. Stefnt er að þátttöku 34
para.
MEISTARINN FRÁ MONT BLANC
MEISTERSTÚCK
MONT°
BLANC
HAFNARFJÖRÐUR:
BÓKABÚÐ
OLIVERS STEINS
KEFLAVÍK:
BÓKABÚÐ KEFLAVlKUR
AKRANES:
BÓKASKEMMAN
MONT BLANC VERSLANIR
REYKJAVÍK:
LEONARD BORGARKRINGLUNNI
MÁL OG MENNING SlÐUMÚLA 7-9
MÁL OG MENNING LAUGAVEGI 18
PENNINN KRINGLUNNl
PENNINN HALLARMÚLA
PENNINN AUSTURSTRÆTI
SKÁKHÚSIÐ LAUGAVEGI 116
ÍSAFJÖRÐUR:
BÓKHLAÐAN
SAUÐÁRKRÓKUR:
BÓKABÚÐ BRYNJARS
AKUREYRl:
TÖLVUTÆKI-BÓKVAL
VESTMANNAEYJAR:
BÓKABÚÐIN HEIÐARVEGI 9