Morgunblaðið - 26.03.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992
25
Breski íhaldsflokkurinn:
Andstæðingamir sakað-
ir um nasistaaðferðir
London. Reuter, The Daily Telegraph.
SÍÐUSTU skoðanakannanir í Bretlandi benda til að Verkamannaflokk-
urinn hafi enn örlítið forskot á íhaldsflokkinn. Verkamannaflokkurinn
hefur reynt að láta kosningabaráttuna snúast sem mest um heilbrigðis-
mál en svo virðist sem harðar árásir íhaldsmanna á skattastefnu Verka-
mannaflokksins séu farnar að skila árangri og bilið miUi flokkanna
fari minnkandi. Telja breskir fréttaskýrendur æ líklegra að enginn
einn flokkur nái meirihluta í kosningunum þann 9. apríl nk.
Þijár skoðanakannanir voru birtar
í Bretlandi í gær og samkvæmt þeim
er forskot Verkamannaflokksins á
bilinu eitt til fjögur prósent. Þetta
olli íhaldsmönnum nokkrum von-
brigðum en þeir sögðust hugga sig
við að fylgismunur flokkanna færi
minnkandi. Skipuleggjendur
kosningabaráttu íhaldsmanna segja
að úrslit kosninganna muni ráðast
á síðustu tíu dögum baráttunnar.
Forystumenn Verkamannaflokks-
ins segjast hins vegar einnig vera
sigurvissir og mun það ráða úrslitum
að þeirra mati að flokkurinn ætlar
á næstunni að einbeita sér að ýmsum
„mjúkum“ málum s.s. heilbrigðis-
og menntamálum. Flokkurinn þykir
hins vegar sýna meiri hörku við
kynningu á þessum „mjúku“ málum
en áður hefur þekkst í breskri
kosningabaráttu.
I nýrri sjónvarpsauglýsingaher-
ferð er reynt að höfða til tilfinninga
fólks með því t.d. að sýna raunveru-
legt dæmi um unga stúlku sem þurfti
að bíða í níu mánuði eftir eyrnaað-
gerð á ríkisspítala og líða miklar
þjáningar á meðan. Onnur stúlka,
hvers foreldrar höfðu efni á að senda
hana á einkaspítala, komst undir
læknishendur þegar í stað. Síðan
má sjá Neil Kinnock, formann
Verkamannaflokksins, saka íhalds-
menn um að hafa sett heilbrigði-
skerfið í fjársvelti þau þrettán ár sem
þeir hafa verið við völd. Verkamann-
aflokkurinn lofaði því í gær að auka
fjárveitingar til heilbrigðismála um
sem svarar hundrað milljörðum ís-
lenskra króna.
William Waldegrave, heilbrigðis-
ráðherra, sagði þessar staðhæfingar
órökstuddar með öllu og sakaði
Verkamannaflokkinn um að nota
áróðursaðferðir sem „hefðu verið vel
við liæfi í Þýskalandi fyrir stríð".
Bætti Waldegrave því við að ef
flokkur kæmist einhvern tímann til
valda í Bretlandi með því að nota
aðferðir af þessu tagi væri það veru-
legt áfall fyrir lýðræðið.
Móðir stúlkunnar sem kemur fram
í auglýsingu Verkamannaflokksins
sagði í viðtali við BBC að ekki væri
réttilega sagt frá tilviki dóttur sinn-
ar í auglýsingunni. Sagði móðirin
að dóttir sín hefði af misgáningi
verið sett á rangan biðlista. Það, en
ekki fjárskortur, hefði tafið eyrnaað-
gerð hennar. Faðir stúlkunnar and-
mælti þessu og sagðist styðja Verka-
mannaflokkinn.
----♦ ♦ ♦---
*
Irak:
Umdeildur
búnaður
eyðilagður
Bagdad. Reuter.
DEREK Boothby, fulltrúi Samein-
uðu þjóðanna (SÞ), sagðist í gær
hafa fylgst með því er eyðilögð
voru tæki og búnaður til að fram-
leiða og endurnýja kjarnorku-
vopn.
Boothby er formaður sérfræðinga-
nefndar sem hefur eftirlit með því
að írakar uppfylli ákvæði samkomu-
lags um vopnahlé í Persaflóastríðinu.
Ilann sagði að meðal annars hefði
verið eyðilagður búnaður til að
blanda og framleiða sprengiefni, sem
knýr áfram eldflaugar, og tæki sem
notuð voru við framleiðslu Scud-
flauga en írakar skutu þeim í tuga-
tali í átt til ísraels og Saudi-Arabíu
meðan á Persaflóastríðinu stóð. Tæki
sem voru eyðilögð í gær voru stað-
sett í verksmiðjum og iðnverum vest-
ur og suður af Bagdad, höfuðborg
íraks.
Lockerbie-málið:
Gaddafi fellur frá
tilboði um framsal
Kairó. Reuter.
YFIRLÝSING Líbýumanna frá
í fyrradag þess efnis, að leyni-
Norðmenn.
„Strax þegar samningarnir við
Evrópubandalagið hófust árið 1989
tóku íslendingar skýrt fram, að þeir
semdu ekki um annað en fyrirvara-
laust undanþáguákvæði hvað varðaði
fjárfestingar útlendinga í sjávarút-
vegi, veiðum sem vinnslu. Við Norð-
menn aftur á móti nefndum ekki slíka
undanþágu á nafn. Þegar svo samn-
ingsniðurst'aðan í vinnuhópi II (fjár-
magn og þjónusta) lá fyrir fóru menn
að spyija sig hvaða áhrif hún hefði
á fjárfestingar útlendinga í norskri
útgerð, hvort fyrirtæki í Evrópu-
bandalaginu, EB, gætu tryggt sér
norskan kvóta. Engin hætta, sögðu
norsku samningamennimir en ruku
til í örvæntingu og báðu EB um „ís-
lensku" skilmálana. Þeir fengu að
sjáifsögðu þvert nei,“ segir Synnöve.
Það er á öðrum sviðum einnig, sem
Norðmenn sömdu af sér í samning-
unum við EB að dómi Synnöve. „Að
halda, að EB sætti sig við það mark-
aðsfyrirkomulag, sem hér er varð-
andi óunninn fisk, er skelfilegur
barnaskapur," segir hún og heldur
því fram, að EB hafi áskilið sér rétt
til að beita Norðmenn refsiaðgerðum
láti þeir ekki undan kröfum banda-
lagsins.
þjónustumennirnir tveir, sem
sakaðir eru um hryðjuverkið
yfir Lockerbie, verði afhentir
Arababandalaginu, hefur í raun
verið dregin til baka. Sagði
Muammar Gaddáfi Líbýuleið-
togi á fundi með sendinefnd frá
bandalaginu í gær, að ekki hefði
réttilega verið skýrt frá tilboð-
inu, sem væri háð ströngum
skilyrðum.
Það var sendiherra Líbýu hjá
Sameinuðu þjóðunum, sem gaf út
yfirlýsinguna fyrir hönd stjórnar
sinnar, en Gaddafi sagði, að hon-
um hefði ekki sagst rétt frá. Til-
boðið um afhendingu mannanna
hefði verið háð ströngum skilyrð-
um. Að sögn sendinefndar Araba-
bandalagsins jafngilda þau því, að
mennirnir verði ekki aflientir
Bandaríkjamönnum eða Bretum.
Líbýustjórn hefur skotið þessu
máli til Alþjóðadómstólsins í Haag
og vill, að hann skeri úr um hvar
réttað skuli yfir mönnunum tveim-
ur. Ennfremur krefst hún þess,
að Bandaríkjamenn og Bretar
dragi framsalskröfuna til baka
meðan um málið er fjallað en þeir
segja, að mennina verði að fram-
selja strax í samræmi við ályktun
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
númer 731.
- á jjóðu verði
Skemmtilegt sýningarsvædi gefur þér kost á ad
skoða uppsettar innréttingar í mörgum gerðum.
Skoðaðu það nýjasta í
eldhúsinnréttingum,
fataskápum og
baðinnréttingum.
Líttu við því sjón
er sögu ríkari.
J
METRÓ
MÖGNUÐ VERSLUN í MJÓDD
Álfabakka ló @670050
Allar spónlagdar hurdir eru
byggdar upp úr 16 mm
spónarplötu sem er kantlímd
meo 8 mm gegnheilum vidarkanti.
INNRÉTTINGAR
wMío
| -þvílíkt lán í 3 ár
l___
* -