Morgunblaðið - 26.03.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992
39
uðust trúnaðarstörf í eins ríkum
mæli og raun ber vitni og hversu
traust hún reyndist í öllu sem hún
tók sér fyrir hendur. Og þegar ég
lít til baka minnist ég þess ekki að
hafa heyrt hana sækjast eftir frama
eða vegtyllum fyrir sjálfa sig, en þar
sem henni var falið að sækja fram
lagði hún sig í líma að gera sem
best og vinna mest.
í skjóli tignarlegra íjalla í at-
hafnabænum Siglufirði ólst hún upp,
og á Siglufirði skaut rótum og fékk
síðan styrkan stofn hugsjónakonan
og jafnaðarmaðurinn góði, Helga
Kristín Möller. Ríka réttlætiskennd
og viljann til að beijast fyrir betra
þjóðfélagi hlaut hún í arf frá foreldr-
unum Helenu Sigtryggsdóttur og
Jóhanni G. Möller. Hann var verk-
stjóri hjá Síldarverksmiðjum ríkisins
og jafnframt bæjarfulltrúi, mikill
verkalýðssinni og baráttumaður,
bæði ákaflyndur og flugmælskur.
Gegnheill alþýðuflokksmaður sem
ávallt lét til sín taka á fiokksþingum
og samkomum flokksins. Börn He-
lenu og Jóhanns hafa iátið félags-
mál tii sín taka og tvö þeirra urðu
bæjarfulltrúar í sínu bæjarfélagi,
Kristján Möller á Siglufírði og Helga
Kristín Möller í Garðabæ. Systur
Helgu eru Ingibjörg, Alda, Jóna og
Alma.
Þau systkini hafa farið með gott
veganesti út í lífið svo farsællega
sem þau hafa tekist á við sín verk-
efni og víst er að Helgu fylgdi ávallt
hress norðlenskur blær. Hún talaði
einstaklega fallegt mái og þrátt fyr-
ir öll árin fyrir sunnan viku norð-
lensku áherslurnar hvergi. Mikil
samheldni og gagnkvæmt traust ein-
kenndi samskipti systkinanna og ber
vott um sterkan streng úr foreldra-
húsum.
Ég kynntist Helgu í Alþýðu-
flokknum. Við deildum herbergi á
Laugarvatni í eina viku árið 1979
þegar við vorum forsetar á náms-
stefnu norrænna kratakvenna. Þá
lærðist mér hve árrisul og athafna-
söm Helga var og hve vel hún skipu-
lagði sín verk. Það er líka ótrúlegt
hvað hún skilur mikið eftir sig og
hversu víðtæka starfsævi hún á að
baki miðað við að vera kölluð á brott
svo fljótt.
Alla tíð höfum við verið góðir
félagar og miklir mátar en hlýjustu
böndin hnýttust milli okkar eftir að
hún var orðin veik og þá lærðist
mér best hvers virði var að þekkja
hana og hve sterk hún var að miðla
öðrum, líka þá.
í nær aldarfjórðung var hún kenn-
ari við Digranesskóla og þar átti hún
náið samstarf við tengdaföður minn,
Jón H. Guðmundsson, fyrrverandi
skólastjóra sem lést á sl. sumri.
Hann mat hana og vináttu hennar
ákaflega mikiis enda voru þau sömu
gerðar bæði sem skólamenn og sem
kratar af lífshugsjón. Þau vinatengsl
náðu einnig til tengdamóður minnar,
Sigríðar, og barna þeirra og biður
fjölskyldan öll fyrir kveðjur til ást-
vina Helgu á þessari sorgarstund.
Helga Kristín var valin til ijöl-
þættra trúnaðarstarfa á vegum Al-
þýðuflokksins og þar sem ég veit
að aðrir gera þeim verkefnum henn-
ar skil vil ég staldra við þátt hennar
í kvennahreyfingu flokksins. Hún
átti sæti í stjórn Sambands alþýðu-
flokkskvenna frá stofnun sambands-
ins eða í 20 ár og var óþreytandi
að leggja þeim málefnum lið sem
sambandið lét til sín taka. Á þessum
tíma voru unnar á vegum sambands-
ins stefnuskrár í málefnum fjölskyld-
unnar sem síðar urðu hluti af stefnu
flokksins. Mér finnst að Helga Möll-
er hafi gert sér góða grein fyrir
mikilvægi þess að konurnar í flokkn-
um stæðu saman og styddu hver
aðra og hún lét aldrei á sér standa
ef eftir stuðningi hennar eða sam-
vinnu var leitað. Kvennahreyfingin
í Alþýðuflokknum á henni mikið að
þakka.
En það var í Garðabæ sem hún
var leiðtoginn meðal samheija sinna.
Hún endurheimti sæti Alþýðuflokks-
ins í bæjarstjórn Garðabæjar þegar
hún skipaði efsta sæti listans í bæj-
arstjórnarkosningunum 1986 og
þann kosningasigur varði hún glæsi-
lega að nýju vorið 1990. Engan sem
með henni vann á því vori hefði grun-
að, að sá sjúkdómur sem hún vonað-
ist til að hafa unnið bug á, hefði
lagt til atlögu á ný. Þegar kallið kom
hinn 15. mars sl. var það öllum sem
þekktu hana harmafregp en sárastur
er missirinn hjá Karli og dætrunum
þeirra tveimur.
Helga Kristín giftist Karli Harrý
Sigurðssyni 12. september 1964.
Þau eignuðustu tvær dætur, Helenu
Þuríði, fædd 27. ágúst 1967, sem
stundar laganám við Háskóla ís-
lands, og Hönnu Lilly, fædd 26. feb-
rúar 1980. Frá 1979 bjuggu Helga
og Kaili í Hlíðarbyggð 44 í Garðabæ
og bjuggu sér þar yndislegt heimili.
Þetta heimili var aðalsmerki Helgu
og ber merki um vinnusemi hennar
og ekki síst listrænt handbragð.
Engin orð fá sefað söknuðinn þar
nú, en minning hennar verður sterk
og góð. Ég votta ástvinum hennar,
sérstaklega Kalla, Helenu og Hönnu
Lilly, innilega hluttekningu okkar
hjónanna um leið og ég þakka þeim
fyrir að gefa mér tækifæri til að
eiga með þeim kveðjustund. Hetja
er fallin í valinn.
En við áttum öll saman rauða rós
og ljúf minning um baráttukonu sem
leitaði á brattann en sat ekki hlut-
laus hjá mun lifa í hugum okkar
allra.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Og þar eru íjöllin svo hátignar há,
svo hljómfagurt lækirnir niða.
Og þar eru útmiðin blikandi blá
með bjargráð — og öldurnar kliða.
Þar hef ég lifað og leikið mér dátt
með lífsglöðum vinum á kveldin.
Við trúðum á sjálfra’ okkar megin
og mátt.
Ég man, það var leikið með eldinn.
Og hvert sem fleyið mitt flækist
um mar,
þótt fram undan engin sé ströndin,
ég varðveitti allt, sem ég eignað-
ist þar,
meðan eygði í draumsjóna-löndin.
Og þegar leiðin mín loksins er öll
og leystur úr íjötrum er andinn,
þá bergmálið yfir mér, bláskyggðu
fjöll,
og bárur, gjálpið við sandinn.
(Geislabrot).
Þessi erindi úr ljóðinu Sigluíjörður
eftir Signýju Hjálmarsdóttur koma
mér í huga-nú, þegar mig sjálfa
skortir orð til að minnast fyrir hönd
árgangs 1942 frá Siglufirði jafn-
öldru, skólafélaga og vinar, Helgu
Kristínar Möller, sem lést hinn 15.
marz sl.
í skólabókina mína frá Gagn-
fræðaskóla Siglufjarðar skrifaði
Helga þessa vísu.
Þó að fundum fækki
er fortíð ekki gleymd.
í mínum hug og hjarta
þín minning v'erður geymd.
Ekki getur hún höfundar enda
skiptir hann ekki máli, en-reyndin
varð sú að fundir okkar urðu fáir
og stopulir eftir að leiðir skildu um
tvítugsaldurinn. Helga fór suður, ég
fór austur, en Helga gleymdi ekki
og hún mundi, það sannaði hún þá
sjaldan að við hittumst.
Sumarið 1987 eyddi árgangur
1942 saman einni helgi „heima“ á
Siglufirði og mikið lifandi skelfing
var gaman. Á komandi sumri er
stefnt að því að hittast aftur en þá
vantar Helgu Möller, hún syngur
ekki með okkur af hjartans lyst vís-
urnar um hann Gústa guðsmann.
Og þó .. . auðvitað verður hún með
okkur þó hún sé horfin um stund.
Minningin um Helgu er björt eins
og siglfirsk vornótt.
Skrítið .. . var aldrei þoka eða
rigning eða stórhríð þegar við vorum
ungar?
Við fórum í hjólatúra í glaðasól-
skini á suinrin og skólagöngutúra i
tindrandi hvítri birtu á veturna.
Seinna gengum við í blóðrauðu sól-
arlagi um bryggjurnar á vorin og
það var áreiðanlega alltaf tunglskin
og dansandi norðurljós þegar við
skruppum yfir á Ás á vetrarkvöldum.
Já, það var alltaf bjart.
Við í árgangi 1942 frá Siglufirði
kveðjum vin og félaga. Við sendum
eiginmanni Helgu, Karli Harry Sig-
urðssyni,og dætrum þeirra, foreldr-
um hennar, Helenu og Jóhanni,
systkinum hennar og ástvinum, inni-
legar samúðarkveðjur og biðjum
góðan Guð að styrkja þau í þeirra
miklu sorg.
Guð blessi minningu Helgu Krist-
ínar Möller.
F.h. félaga úr árgangi 1942
frá Siglufirði.
Dúrra.
Fleirí greinar um Helgú K.
Möller bíða birtingar og
munu birtast næstu daga.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐLAUGURJÓNSSON,
Nönnustíg 14,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Vfðistaðakirkju
föstudaginn 27. mars
kl. 13.30.
Sverrir Guðlaugsson, Hrafnhildur Steindórsdóttir,
Eysteinn Guðlaugsson, Ólöf Gunnarsdóttir,
Sigrún Ásta Guðlaugsdóttir, Einar Ólafsson,
Margrét Guðlaugsdóttir, Unnþór Stefánsson,
og barnabörn.
t
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
áður Kleppsvegi 52,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 27. mars
kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er vinsamlega bent á Sjúkra-
hús Akraness eða dvalarheimilið Höfða.
Aðstandendur.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR G. HALLDÓRSSON
fyrrv. skrifstofustjóri,
Tjarnargötu 10c,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, fimmtudag-
inn 26. mars, kl. 13.30.
Blóm afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent
á Öryrkjabandalagiö eða aðrar líknarstofnanir.
Guðrún Halldórsson,
Hildur Ólafsdóttir, Pétur M. Gestsson,
Guðrún Ólafsdóttir, Björn Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
AGNES JÓNÍNA ÁRNADÓTTIR,
Staðarhrauni 2,
Grindavík,
verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 28. mars
kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Fyrir hönd aðstandenda, ,
Haukur Guðjónsson
og fjölskylda.
+
Minningarathöfn um
GÍSLA ÁRNASON,
HANS GUÐNA FRIÐJÓNSSON og
SIGMUND MAGNÚS ELÍASSON,
sem fórust þegar togarinn Krossnes sökk á Halamiðum þann
23. febrúar sl., fer fram í Grundarfjarðarkirkju laugardaginn
28. mars kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Svandfs Jeremíasdóttir,
Ingibjörg Hansdóttir,
Eva Margrét Jónsdóttir.
+
Þökkum af alhug auðsýnda samúð, vin-
áttu og hlýhug við andlát og útför eigin-
konu, móður, tengdamóður, ömmu,
dóttur, tengdadóttur, systur og mág-
konu,
KRISTÍNAR SÓLVEIGAR
SVEINBJÖRNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við sr. Pálma
Matthíassyni.
Guð blessi ykkur öll.
Grétar Haraldsson,
Margrét Grétarsdóttir, Gunnar Halldórsson,
Jóna Björk Grétarsdóttir, Andri Már Ingólfsson,
Sveinbjörn Snorri Grétarsson,
barnabörn,
Margrét Jóhannesdóttir, Jóna Ólafsdóttir,
Kristján Benjamínsson, Huida Guðmundsdóttir,
Haukur Sveinbjörnsson, Ingibjörg S. Jónsdóttir,
Björk Halldórsdóttir,
Jóhannes Sveinbjörnsson,
Helga S. Sveinbjörnsdóttir, Indriði M. Albertsson,
Elísabet J. Sveinbjörnsdóttir, Baldur Gíslason.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
RAGNHILDAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Stafafelli í Lóni.
Innilegar þakkir sendum við í Hátún, Reykjavík, og Skjólgarð,
Höfn, fyrir alla hjálp og umönnun hennar síðustu ár.
Vandamenn.
I
Tölvudisklingar
á heildsöluverði
í Ijósi nokkuö hárrar smásöluálagningar á tölvudisk-
lingum almennt á íslandi, þá höfum við ákveðið að selja
aðeins beint til notenda á HEILDSÖLUVERÐI, í verslun
okkar að Skipholti 31, Reykjavík. Notendur á lands-
byggðinni geta pantað án póstkröfukostnaðar
... . ísíma 91-680450.
Okkarverðer
semhérsegir: MeðVSK Venjul.smásala
MD2D 5 1/4” kr. 56,- stk. 86,- stk.
MD2HD 5 1/4” kr. 88,- stk. 136,- stk.
MF2DD 3 1/2” kr. 89,- stk. 139,- stk.
MF2HD 3 1/2” kr. 149,- stk. 233,- stk.
FUJI tölvudisklingar er hágæðavara, sem býðst nú á
miklu betra verði, en disklingar í lægri gæðaflokkum.
Nýttu þér HEILDSÖLUVERÐ okkar!
Skipholti 31 Fax: 91-680455