Morgunblaðið - 26.03.1992, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992
15
Hér er örstutt saga af sóknar-
þunganum í mínu nágrenni. Reykja-
nes og Eldeyjarsvæði eru nálega
aldrei togskipalaus. Seinni hluta
vetrar koma skip úr öllum landshlut-
um á þetta svæði vegna göngu stórs
hrygningarfísks sem er úttroðinn
af hrognum og sviljum. Sleppi eitt-
hvað innfyrir landhelgislínuna fá
þeir fiskar varmar viðtökur hjá
snurvoðabátum og netabátum alveg
upp að fjöruborði. Framtíð landsins
(sem það vonandi á) er síðan flutt
úr landi sem söltuð þorskhrogn. Mál
er að linni.
| Er það furða að fjölmargir spyrni
við fótum og spyiji hvert stefni í
aðalatvinnuvegi þjóðarinnar. Menn
eru í auknum mæli að átta sig á
því að málstaður félaganna Krist-
jáns og Sveins Hjartar er að koma
þjóðinni í ógöngur. Ef fram fer sem
horfir er þorsk- eða fiskveiðibann
innan örfárra ára alls ekki óhugs-
andi.
Smábáturinn er skynsamlegasti
kosturinn í íslenskum útvegi. Við
skulum því bera gæfu til að láta
litlu bátana í friði með krókana sína.
Umræðan í heiminum er í auknum
mæli farin að fjalla um allt sem er
vistvænt. Leggjum því áherslu á
þann veiðiskap sem skaðar ekki á
nokkum hátt vistkerfið í hafinu,
getur aldrei gengið af nokkrum
fiskistofni dauðum og leggur til
ferskasta hráefni sem völ er á dag-
lega, landi og þjóð til heilla.
. Föllum ekki í sömu gryfju og
" Hrólfur og félagi hans eru dottnir
í, að láta frystiskipagróðann og
skammtímasjónarmið ráða ferðinni.
Þá er vel.
Höfundur er formaður
Smábátafélagsins Reykjaness ogí
stjórn Landssambands
smábátaeigenda.
Bjamason, um það, hvernig hann
gæti boðið lægra vöruverð en aðrar
hverfisverslanir. Hann var ekki lengi
að svara því. Hann sagðist geta
það, vegna þess að hann fengi and-
virði vörunnar strax, en þyrfti ekki
að bíða eftir því á annan mánuð, en
þá skila kortin sér loks. Vegna stað-
greiðslunnar gæti hann gert hag-
! stæðari innkaup frá heildsöluaðilan-
um. Þessa léti hann viðskiptamenn
njóta. Þetta er svo auðskilið, að vart
) þarf orðum að því að eyða.
Þar sem staðgreiðsla og kortavið-
skipti tíðkast í sömu versluninni,
njóta þeir sem greiða með peningum
í engu betri kjara en hinir, sem veifa
plastkortinu. Sá sem greiðir með
greiðslukorti fær neyslulán og.nýtur
þar með meiri réttar en sá sem telur
fram seðlana úr veski sínu. Slíkt er
óþolandi, og verður að lagfæra fyrr
en seinna. Þeir sem staðgreiða ættu
að fá afslátt, svo að marktækt væri.
Að vísu eiga þeir sem skulda
kortaviðskipti, eða fara yfir á kort-
um sínum, að greiða háa vexti, víst
yfir 20%. Þeim er óþarft að vor-
kenna. Sérhver á að gæta hófs í
útgjöldum. Kortanotkun stuðlar
greinilega ekki að því. Eru greiðslu-
kort kannski komin til að vera, em
þau orðin ómissandi þáttur í daglegu
lífi fólks? Illt, ef satt reynist.
Höfundur er fyrrverandi
skólastjóri og kennari og sinnir
nú ritstörfum.
Þú færð ríflegcm skattafslátt
og ríkulega raunávöxtun
á Sparileið 5
Reglubundinn sparnaöur meö þríþœtt hlutverk
Sparileiö 5 er tvímælalaust ein arbvœnlegasta spamaöarleiöin á fjármagnsmarkaönum.
Segja má aö Sparileiö 5 gegni þríþœttu hlutverki.
Leiö aö eigin húsnœöi
í fyrsta lagi sameinar Sparileíö 5 spamaöarkosti fyrirþá sem hyggja á kaup, endurbœtur eöa
byggingu eigin húsnæöis.
Leiö aö eigin varasjóöi
í ööru lagi er Sparileiö 5 sniöin fyrirþá sem vilja byggja markvisst upp eigin varasjóö fyrir
seinni tíma. Þá er einnig vel til fundiö aö sameina fyrirhyggju og skatthagræöingu meö því aö
leggja til hliöar reglulega upphæö sem þú getur látiö bömin þín eöa bamaböm njóta góös afsíÖar.
Leiö til lcekkunar á sköttum
í þriöja lagi gefur spamaöur á Sparileiö 5 möguleika á rfflegum skattafslœtti sem pemur fjórö-
ungi áriegs innleggs á reikninginn. Viö álagningu skatta kemur afslátturinn til lækkunar á
tekju- og eignarskatti álagningarársins.
Raunávöxtun, lánsréttur og binditími
Vextir á Sparileiö 5 eru verötryggöir og miöast viö aö vera hagstœöasta innlánsform
bankans hverju sinni, sem tryggir stööuga og ríkulega raunávöxtun.
Sparileiö 5 erþægileg leib til lántöku til langs tíma, því í lok binditíma öölast
reikningseigandi sjálfkrafa rétt á láni frá íslandsbanka. Lánsupphœö og endur-
greiöslutími (lánstími) tekur miö aflengd spamaöartíma svo og upphæö spamaö-
ar. Sparileiö 5 er bundin til þriggja, fimm eöa tíu ára samkvœmt ákveönum reglum.
Dœmi um sparnaö og ávöxtun á Sparileiö 5:
Þú rœöur spamaöampphæöinni sem þú leggur fyrir, innan vissra marka,
en í dœminu hér aö neöan ergert ráö fyrir aö kr. 10.000 séu lagöar inn mánaöariega.
Verötryggöir vextir eru 7%, þeir reiknast mánaöarlega og eru lagöir viö höfuöstól í árs-
lok. Skattafsláttur er 25% og reiknast af heildarinnleggi hvers árs.
Sparnabartími 3 ár S ár 10 ár
Samtals innlagt 360.000 600.000 1.200.000
Vextir alls 38.16S 112.229 511.167
Skattafsláttur 90.000 150.000 300.000
Samtals vextir og skattafsláttur 128.165 262.229 811.167
Uppsöfnuö raunávöxtun 22,83% 15,97% 10,94%
Lokastaba meö vöxtum 398.165 712.229 1.711.167
Lánsréttur 1.000.000 2.000.000 2.000.000
Lánstími 6 ár 10 ár 10 ár
Samtals til rábstöfunar ab sparnabartíma loknum: 1.398.165 2.712.229 3.711.167
Fonendur: Allar tölur eru á föstu verblagi og ávallt er miöaö viö aö lagt sé inn í lok hvers mánaöar.
Meö tilliti til skattafsláttar, verötryggingar og ávöxtunarkjara má
því hiklaust fullyröa aö Sparileiö 5 sé ein arövænlegasta spamaöarieiöin
á fjármagnsmarkaönum. Allar nánari upplýsingar ásamt leiöarvísi
fœröu hjá starfsfólki íslandsbanka.
Hagstffitt verð ó Storno farsímum
s*°rf®
\ítö cr miðað við
gengi 27. jan. 1992.
Vegna mikillar sölu á síðasta ári náðum við mjög
hagstæðum samningum við framleiðendur og getum
nú boðið Storno farsíma á hreint ótrúlega lágu verði.
Storno bílasími kr. 79.580 stgr. með vsk.
Storno burðarsími kr. 84.280 stgr. með vsk.
Burðarsíma fylgir 4 Ah rafhlaða.
POSTUR OG SÍMI
Söludeildir í Ármúla 27, Kirkjustraeti, Kringlunni
og á póst- og símstöðvum um land allt