Morgunblaðið - 26.03.1992, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992
Foreldrasamtökin kanna dagvistarþörf:
97% telja fæðing-
arorlofið of stutt
eldra ungra barna og þá með hags-
muni barnanna í huga,“ sagði Sif
Einarsdóttir, sem hafði yfirumsjón
með könnuninni. „Fram kemur
verulegt ósamræmi milli þess, sem
í boði er í dagvistarmálum í Reykja-
vík og óska foreldra og eins er
ósamræmi milli leikskólalaganna
og raunveruleikans.“ Af 436 þátt-
takendum töldu 60% sig þurfa á
dagvistun að halda að loknu fæð-
ingarorlofi en rúmur helmingur
barnanna sem könnunin náði til er
ekki í dagvist, enda eru þau á aldr-
inum 3 til 14 mánaða. Áberandi
munur er á þörf fólks fyrir dagvist
að loknu fæðingarorlofí og virðist
menntun foreldra ráða þar miklu,
þörfm er þeim mun brýnni sem
menntunin er meiri.
Meirihluti foreldra kýs leikskóla
en 70% þeirra bama sem könnunin
náði til og em í gæslu dvelja hjá
dagmóður. 21% telja sig þurfa dag-
vist frá því bamið er 6 mánaða en
90% foreldra nefna dagvist frá 1
árs eða yngra og 96% 18,mánaða
eða yngra. Meðaltími fyrir dag\’ist
á dag er tæpar 6 klukkustundir en
nokkur munur er á þörfum ein-
stæðra og giftra. Spurt er um
ástæðu fyrir dagvistun barnanna
og nefna rúm 60% að þörf sé fyrir
tvær fyrirvinnur fyrir heimili.
65% þátttakenda telja að fæð-
ingarorlofið ætti að vera eitt ár og
flestir foreldrar vilja fá að ráða
skiptingu orlofsins sín á milli. Spurt
var um afstöðuna til hugmyndar-
innar um greiðslu til foreldra fyrir
að vera heima með bömin sín og
em 83% foreldra hlynnt þeirri hug-
mynd. Að meðaltali vildu foreldrar
/á greiðslur þar til börnin næðu
2ja til 3ja ára aldri. Spurt var hvað
greiðslumar þyrftu að vera háar
og nefndu flestir 50 þúsund á mán-
uði en einstæðir foreldrar nefndu
60 þúsund að meðaltali. Flestir
foreldrar telja að miða eigi heima-
greiðslu við fjölda barna en næst
í röðinni eru nefndar tekjur fjöl-
skyldunnar.
KÖNNUN Foreldrasamtakanna á dagvistarþörf og viðhorfum reyk-
vískra foreldra með ung börn til heimagreiðslna og fæðingaror-
lofs leiðir í ljós að 97% þátttakenda telja 6 mánaða fæðingarorlof
of stuttan tíma með barninu. Könnunin nær til 533 foreldra af
1.127 sem eignuðust barn á árinu 1990. Meðalaldur barnanna er
10 mánuðir og eru um 87% foreldranna gift eða í sambúð en 13%
teljast einstæð.
„Þessi könnun er gerð til að
komast eftir hverjar eru þarfir for-
Einleikarinn Márta Fábián með
simbalon-hljóðfærið.
Leikið á sim-
balon með
Sinfóníunni
TÓNLEIKAR verða í grænni
tónleikaröð Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands í kvöld, fimmtudag.
Leikin verður létt og skemmti-
leg tónlist, sem hæfir grænni tón-
leikaröð og er flestum hugleikin,
segir í frétt frá Sinfóníunni. Meðal
hljóðfæra sem leikið verður á er
simablon, en ekki mun áður hafa
verið leikið á slíkt hljóðfæri hér-
lendis.
-----*—♦—«----
140 meina-
tæknar á
ráðstefnu
í TILEFNI af tuttugu og fimm
ára afmæli Meinatæknafélags
íslands nú í vor stóð félagið sl.
föstudag fyrir ráðstefnu með
yfirskriftinni Yngstu skjólstæð-
ingar meinatækna, fóstur - ný-
burar. Þar var fjallað um meina-
tæknirannsóknir sem gerðar eru
vegna yngstu skjólstæðinga
meinatækna, en þeir eru fóstur
í móðurkviði og nýfædd börn.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni voru
Aldís B. Amarsdóttir, meiriatæknir,
Atli Dagbjartsson, barnalæknir,
Elín Guðmundsdóttir, meinatæknir,
Hörður Bergsteinsson, barnalækn-
ir, Lilja Eiríksdóttir, meinatæknir,
Olga B. Pétursdóttir, meinatæknir,
Pétur Lúðvíksson, barnalæknir og
Sigurborg Billich, meinatæknir.
Meinatæknar fjölmenntu á ráð-
stefnuna, en þar mættu 140 meina-
tæknar. í félaginu eru alls 352 fé-
lagar víðsvegar um landið. Núver-
andi formaður félagsins er Martha
Á. Hjálmarsdóttir.
-----» » 4----
Útför Ólafs
Halldórs-
sonar í dag
Vegna mistaka birtust minning-
argreinar um Ólaf Halldórsson,
fyrrum skrifstofustjóra Gjaldheimt-
unnar, í Morgunblaðinu í gær. Út-
för hans fer hins vegar fram frá
Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Kvóti Djúpavogs nær
óbreyttur frá 1984
FRÉTT Morgunblaðsins í gær-
dag um flutning á botnfiskkvót-
um milli landshluta frá árinu
1984 er röng að því er varðar
missi Djúpavogs og Austurlands
í heild á botnfiskkvóta 1984-
1992. I plöggum frá sjávarút-
vegsráðuneytinu, sem fréttin
byggðist á, hafði kvóti skipa,
sem óvissa var um heimahöfn
1984, allur verið settur á Djúpa-
vog sem þannig var skráður með
22.739 tonna kvóta árið 1984.
Árið 1985 hafði þetta verið leið-
rétt og kvóti Djúpavogs það ár
skráður 2.707 tonn. Sem hlutfall
af heildarkvótanum er kvóti
Djúpavogs nær óbreyttur á milli
áranna 1984 og 1992.
Þessi tilfærsla á kvóta skipa án
heimahafnar árið 1984 gerði það
einnig að verkum að hlutdeild
Fomgripur
í ferjuflugi
GÖMUL flugvél af gerðinni
Beechcraft D.17S Staggerwing
í ferjuflugi frá Bandaríkjunum
til Þýskalands hafði næturdvöl
á Reykjavíkurflugvelli fyrir
nokkru. Meðal flugáhuga-
manna um víða veröld hafa
flugvélar af þessari gerð löng-
um verið taldar í sérflokki.
Beech 17 Staggerwing-flugvél-
ar voru framleiddar á árunum
1934 ti! 1945 og voru fyrstu al-
vöru „forstjóraflugvélarnar“. Þeg-
ar þær komu fyrst fram voru þess-
ar fjögurra sæta flugvélar taldar
hraðfleygari en gengur og gerist
enda knúnar stórum og miklum
450 ha stjömuhreyfli, sem þarf
sinn skammt af eldsneyti, eða um
90 lítra á klukkustund. Farþega-
þægindi þessara flugvéla voru
mun meiri en áður þekktust og
urðu þær brátt vinsælar meðal
efnamanna og viðskiptajöfra vest-
an hafs á fjórða tug aldarinnar.
Þrátt fyrir háan aldur eru þess-
ar gömlu tvíþekjur afar eftirsóttar
af flugáhugamönnum og er verð
á þeim samkvæmt því. Nú á dög-
um bjóða fjölmargar tegundir
hraðfleygra einkaflugvéla upp á
Morgunblaðið/PPJ
Gamlar flugvélar eins og þessi Beechcraft D17 Staggerwing sem
átti leið um Reykjavíkurflugvöll nú í vikunni vekja ávallt at-
hygli. Það er eins með gamlar flugvélar og með gamla bíla,
mönnum finnst þær vera betri en það sem framleitt er í dag.
sömu þægindi og Beech 17 og eru
mun hagkvæmari í rekstri, en það
er eins með gamlar flugvélar og
fornbílana, þær þykja betri.
Áhugasamir kaupendur fylgjast
vel með öllum flugvélum af þess-
ari gerð og eru fljótir að komast
að því þegar einhver þeirra er
boðin til sölu. Söluverð vélar eins
og þeirrar sem hér var á ferð er
nú um tvö hundruð tuttugu og
fimm þúsund Bandaríkjadalir eða
ríflega þrettán milljónir íslenskar
krónur, og hefur verðlag þeirra
nánast tvöfaldast á sl. fimm árum
sökum mikillar eftirspurnar.
Austurlands í botnfiskkvótanum
1984 var skráð 18,48% en ekki
13,36% sem síðan er leiðrétt í
skráningunni 1985. Því er rangt
að Austurland hafi misst þriðjung
af kvóta sínum á tímabilinu 1984
til 1992. Kjördæmið hefur misst
tæpt 1% af kvóta sínum á þessu
tímabili.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum og endurbirtir
til frekari glöggvunar kort sem
birt var yfir þessar hreyfmgar.
. ------» ♦ ♦-------
Fulltrúa-
ráðsfundur
Prestafé-
lagsins
Fulltrúaráðsfundur Prestafé-
lags íslands verður haldinn í Víð-
istaðakirkju í dag, fimmtudaginn
26. mars.
Fjallað verður um meðferð fjöl-
miðla á viðkvæmum málefnum.
Formaður Blaðamannafélags Is-
lands, Lúðvík Geirsson, og formað-
ur siðanefndar Blaðamannafélags-
ins, Vilhelm G. Kristinsson, flytja
erindi um ofangreint málefni.
Fundurinn hefst kl. 9.00 en þá
verða kynnt drög að nýjum lögum
Prestafélags íslands og nýjum siða-
reglum. Þennan sama dag stendur
Prestafélag íslands fyrir fundi um
kristindómsfræðslu í grunnskólan-
um. Fundurinn er háldinn í ráð-
stefnu- og fundarsal Ríkisstofnana
(Rúgbrauðsgerðinni). Hefst hann
með ávarpi menntamálaráðherra,
Ólafs G. Einarssonar, kl. 17.30.
Fundurinn er öllum opinn en kenn-
arar og prestar er sérstaklega
hvattir til þátttöku.
Botnfiskaflamark
10 brl. og stærri 1984 og 1991/92
(tonn og hlutfall af aflamarkí)
51.621
PÚS.
tonn
Meinleg villa í botnfiskkvótafrétt:
fiskiskipa
..jp'.
co 41.505
§
oa \
J
1984 91/92
Árið 1984 voru
5.476 tonn óstað-
settikjoidæmi,—
VESTMANNAEYJAR
—REYKJAYÍK------
---AKUREYRI
eða 1,42%
-35aéHrstaéir-
með minna en
1% 1991/92 ■
Q a “T> ll QC 2 *o oc C3 .5C cc
«o ll. U- co LU cn cc ■o -j o Q QC -OC- o Q V
s: a: u. ;o ■o |J 1
/ "or ^ **• 9 co u. LL CD co Ll
CO
£ 5 S
1984 samtals: 386.582 tonn
1991/92 samtals: 328.228 tonn
4fr-
þús.
tonn
40—
•ff
60.359