Morgunblaðið - 26.03.1992, Side 24
24
Bandaríkin
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992
Sjö falla
í Króatíu
SJÖ féllu í hörðum bardögum
milli Króata og Serba á landa-
mærum Króatíu og Bosníu-
Herzegóvínu aðfaranótt mið-
vikudagsins. Alls hafa 28 fall-
ið síðan bardagar blossuðu
upp að nýju á sunnudag
skömmu eftir að fyrstu friðar-
gæsluliðar Sameinuðu þjóð-
anna komu til Króatíu. Eru
þetta hörðustu átökin í ríkinu
það sem af er þessu ári. Sat-
ish Nambiar, yfirmaður
friðargæslusveita SÞ, sagði
að ef skærurnar héldu áfram
gæti það orðið til þess að teíja
fyrir komu friðargæslulið-
anna. Áformað er að þeir byrjí
að streyma til Króatíu þann
fimmta apríl og verði alls
ijórtán þúsund.
Ráðist á búðir
Kúrda í Irak
Agreiningur
um útgjöld til
varnarmála
Washington. Reuter.
SAM NUNN, formaður hermála-
nefndar öldungadeildar Banda-
ríkjaþings, sagði í gær að hann
myndi mæla með því að útgjöld
til varnarmála yrðu dregin saman
um 80-85 milljarða dollara á næstu
fimm árum. Er þetta mun hærri
upphæð en George Bush Banda-
ríkjaforseti hefur lagt til. Forset-
inn hefur lagt til 50 milljarða doll-
ara samdrátt á fimm ára tímabili.
Nunn, sem er demókrati frá
Georgíu-ríki, vill m.a. ná fram sparn-
aði með mikilli fækkun bandarískra
hermanna í Evrópu. Bush hefur lagt
til að þeim verði fækkað í 150 þús-
und en Nunn telur hægt að fækka
hermönnum í Evrópu í 75-100 þús-
und á fimm ára tímabili. Tillögur
Nunns er mun nær tillögum Lee
Aspins, formanns hermálanefndar
fulltrúadeildarinnar. Aspin vill draga
saman útgjöid til varnaiTnála um 91
milljarð dollara og fækka hermönn-
um í Evrópu niður í allt að 70 þúsund.
Keuter
Sljórnarandstæðingar fagna
Roh Tae-Woo, forseti Suður-Kóreu, og Fijálslyndi lýðræðisflokkurinn misstu verulegt fylgi í þingkosriingum
á þriðjudag. Endanleg kosningaúrslit munu ekki liggja fyrir fyrr en í dag en ljóst er að flokkurinn fær
ekki meira en 149 þingmenn sem er einum minna en þarf til að ná þingmeirihluta. Eru úrslitin túlkuð sem
mikil niðurlæging fyrir ríkisstjórnina. Á myndinni má sjá Chung Ju-yung (fyrir miðju), stofnanda Hyundai-
samsteypunnar og leiðtoga eins af stjórnarandstöðuflokkunum, fagna ásamt félögum sínum er ljóst var
að hann hefði náð kjöri.
TYRKNESKAR herþotur réð-
ust í gær á búðir kúrdískra
skæruliða i norðurhluta íraks.
Heimildir innan hersins
hermdu að tvær búðir Kúr-
díska verkamannaflokksins
(PKK) hefðu verið eyðilagðar.
Starfsmenn hjálparstofnana á
svæðinu sögðu að sprengjum
hefði verið varpað á þijú þorp
en að enginn hefði látið lífið.
Sjötíu manns hafa fallið í
átökum milli Tyrkja og Kúrda
í suðausturhluta Tyrklands
síðustu daga og hafði stjórn
Tyrklands strengt þess heit
að grípa til aðgerða gegn
PKK. Flokkurinn, sem berst
fyrir sjálfstæðu ríki Kúrda,
er bannaður í Tyrklandi.
Nýr forsætis-
ráðherra í
Tælandi
FIMM tælenskir stjómmála-
flokkar, hliðhollir hernum,
skýrðu í gær
frá því að
þeir hefðu
náð sam-
komulagi um
myndun sam-
steypustjóm-
ar. Forsætis-
ráðherra í
stjóminni
verður Nar-
ong Wongw-
an, auðjöfur og gamalreyndur
stjómmálamaður. Síðasta
sunnudag vom haldnar ófull-
komnar kosningar í Tælandi,
þær fyrstu síðan herinn
steypti lýðræðislega kjörinni
stjórn landsins af stóli í febr-
úar í fyrra. Talið er að herinn
hafi viljað yfinnann herafl-
ans, Suchinda Kraprayoon
hershöfðingja sem forsætis-
ráðherra, en látið af þeirri
kröfu eftir að ljóst varð að
slíkt myndi kalla á hörð mót-
mæli almennings.
Narong
WongAvan
Forkosningar í Connecticut:
Jerry Brown vinnur óvænt
nauman signr á Bill Clinton
Boston. Frá Karli Biöndal, fréttaritara Morgunbladsins.
JERRY Brown, fyrrum ríkisstjóri í Kaliforníu, vann óvæntan en naum-
an sigur á William Clinton, ríkisstjóra Arkansas, í forkosningum demó-
krata um forsetaefni í Coiinecticut í norðausturhluta Bandaríkjanna á
þriðjudag. George Bush Bandaríkjaforseti bar sigurorð af Patrick
Buchanan í forkosningum repúblikana þar.
Bush hefur sigrað í öllum forkosn- að greiða honum atkvæði sitt og
ingum repúblikana til þessa, sautján ráku kosnignabaráttu þótt hann
að tölu. Hvorki Bush né Buchanan
háðu mikla kosningabaráttu í
Connecticut. Bush fékk 67% atkvæða
og Buchanan 22%, en hann hefur
að jafnaði fengið um þriðjung at-
kvæða.
Brown sagði í kappræðu við Clint-
on á sjónvarpsstöðinni ABC á þriðju-
dagskvöld að sér hefði tekist að yfir-
vinna skort á athygli fjölmiðla og
koma stefnu sinni til skila. Brown
vitnaði í orð Jeffersons um að bylt-
ingar væri þörf á 20 ára fresti og
bætti við: „Hér höfum við ekki feng-
ið byltingu í 200 ár.“
Brown fékk 37% atkvæða á móti
36% Clintons og fengu þeir jafn-
marga kjörmenn og því ekki hægt
að segja að hann hafi sigrað með
yfirburðum. Hins vegar er aðeins
vika liðin frá því að Clinton vann
stóra sigra í Illinois og Michigan.
Tveimur dögum síðar heltist Paul
Tsongas, fyrrum þingmaðnr frá
Massachusetts og þá talinn helsti
keppinautur Clintons, úr lestinni.
Samkvæmt fjölmiðlum voru línur nú
ljósar: Clinton myndi kljást við Bush
í forsetakosningunum í haust. Andlit
Clintons var á forsíðum vikuritanna
Newsweek og Economist og eftir-
standandi forkosningar aðeins
formsatriði.
Clinton sagði á þriðjudag að hann
hefði aldrei þóst öruggur með útnefn-
ingu demókrata. Hann benti á Jimmy
Carter, sem stóð af sér öflugar loka-
hrinur andstæðinga sinna bæði 1976
og 1980, og sagði að kjósendur hefðu
valdið og þeir þyrftu ekki að láta það
á sig fá þótt fjölmiðlar tækju sér það
Bersaleyfi að útnefna sigurvegara
þegar orrustan væri aðeins hálfnuð.
Brown sagði að nú hefði banda-
ríska þjóðin tekið við sér og hann
hefði byr til að sigla þöndum seglum
til útnefningar. Næsti prófsteinninn
er New York-ríki. Clinton hefur það
mikið forskot á Brown, bæði hvað
varðar kjörmenn og kosningasjóði
að hann hlýtur að eiga útnefningu
vísa. Standi Brown sig hins vegar
vel í New York mun hann geta gert
Clinton lífið leitt.
Athygli vakti að Tsongas fékk 20%
atkvæða í Connecticut. Stuðnings-
menn Tsongas skoruðu á kjósendur
hefði sjálfur slegið framboði sínu á
frest. Skoðanakönnun, sem tekin var
er kjósendur komu af kjörstað, benti
til þess að Tsongas hefði unnið hefði
hann verið í framboði, Clinton orðið
annar og Brown þriðji.
í könnuninni kvaðst helmingur
þeirra, sem kusu Brown, vilja geta
valið um aðra frambjóðendur en í
boði væru og um þriðjungur kjósenda
Clintons tók í sama streng. Um helm-
íngur kjósenda bæði demókrata og
repúblikana kvaðst óska þess að ein-
hver annar væri í framboði.
Nú er því spurt hvort Bandaríkja-
menn líti svo á að enn einu sinni
hafi þeir tvo kosti í forkosningum,
hvorugan góðan og þurfi að velja
þann skárri. Eða kjósa alls ekki.
Kosningaþátttaka var mjög lítil í
Connecticut og á einni útvarpsstöð
gáfu kjósendur, sem teknir voru tali,
Reuter.
Clinton og Brown skömmu áður en þeir komu fram í þætti hjá
ylfíC-sjónvarpsstöðinni stuttu eftir að úrslitin í Connecticut lágu fyrir.
þá ástæðu helsta fyrir að sitja heima
að þeir sæju hagsmunum sínum ekki
borgið hjá þessum frambjóðendum.
Eftir forkosningarnar í Connectic-
ut er staðan hjá demókrötum þannig
að Clinton er kominn með 986 kjör-
menn og Brown 151 kjörmann. 2.154
kjörmenn þarf til að tryggja sér út-
nefningu demókrata. Bush er nú
kominn með 746 kjörmenn en Buch-
anan aðeins 46. Frambjóðandi repú-
blikana þarf að tryggja sér atkvæði
1.105 kjörmanna til að verða út-
nefndur.
Lögfræðingur í norska utanríkisráðuneytinu:
„EES-sammngar íslendinga
miklu betri en þeir norsku“
Segir sjávarútveg og fiskvinnslu galopin fyrir fjárfestíngum útlendinga
Ósló. Frá fréttaritara Morgunblaösins, Jan Gunnar Furuly.
„ÍSLENDINGAR náðu miklu meiri árangri en Norðmenn í samningun-
um um Evrópska efnahagssvæðið." Kemur þetta fram í nótu frá fyrr-
um varaformanni norsku sendinefndarinnar hjá EFTA, Fríverslunar-
bandalagi Evrópu, í Genf og er þar að finna afar harða gagnrýni á
sjávarútvegskafíann í EES-samningunum.
Það var Dagbladet, sem birti skjal- rekin úr starfi fyrir að hafa brugðist
ið, en þar segir höfundur þess, trúnaði en yfirlýsingar hennar hafa
Synnöve Fjellbakk Taftö, lögfræð-
ingur og starfsmaður utanríkisráðu-
neytisins, að EES-samningarnir opni
útlendum fyrirtækjum greiða leið inn
í norskan sjávarútveg, vinnslu eða
veiðar, og þar með að kvótanum.
Genguivþetta álit þvert á yfirlýsingar
norskra ráðherra, sem fullyrða, að
girt hafi verið fyrir ítök útlendinga
í sjávarútvegi.
Synnöve á nú á hættu að vera
fallið eins og sprengja í Noregi.
Hafa talsmenn flestra flokka krafist
þess, að ríkisstjórnin geri nánari
grein fyrir lögfræðilegum hliðum
EES-samninganna.
„Yegna sjávarútvegskaflans eru
EES-samningarnir verri en full aðild
að Evrópubandalaginu. Þeir eru það
versta af öllu vondu,“ segir Synnöve
meðal annars og líkir samningunum
við „fíkjublað, sem er ætlað að friða
norskan almenning". Segir hún, að
samviskuástæður hafi valdið því, að
hún ákvað að bijóta trúnaðareiðinn,
þá skyldu starfsmanna utanríkis-
ráðuneytisins að tjá sig ekki um póli-
tísk málefni.
„Ég er sjálf frá Norður-Noregi,“
segir hún, „en meðan á samningun-
um stóð mátti ég oft sitja á blaða-
mannafundum og hlusta á ráðherra
vera með yfirlýsingar, sem við starfs-
mennirnir vissum, að voru rangar."
Synnöve nefnir einnig, að í samn-
ingunum við Evrópubandalagið hafi
íslenska sendinefndin staðið miklu
fastara á sínum kröfum en sú norska
og með þeim árangri, að Islendingar
hafi náð miklu betri samningi en