Morgunblaðið - 26.03.1992, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992
Mikill fagnaður var þegar úrslitin voru tilkynnt. Frá vinstri Sólveig
Jónsdóttir, sem varð í þriðja sæti, Bryndís Bjarnadóttir, sem sigraði
í keppninni, Linda Sigurjónsdóttir, sem varð í öðru sæti og var jafn-
framt kjörin ljósmyndafyrirsæta, og Hrafnhildur Sigurðardóttir, sem
einnig varð í þriðja sæti.
Morgunblaðið/Þorkell
Stúlkurnar, sem tóku þátt í
keppninni, sýndu tískufatnað.
FYRIRSÆTUR
Verð frá: 1.184.000,-
Greiðslukjör við allra hæfi
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24
virka daga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 - 15:00.
Nánari upplýsingar í sima 68 99 00
H) |
Elite-fyrirsætu-
• •
keppni á Ommu Lú
Elite-fyrirsætukeppnin var ný-
lega haldin á veitingastaðn-
um Ömmu Lú og þar var
fjöldi fólks saman kominn til að
fylgjast með því hvaða stúlka
Unyndi hreppa hnossið í ár. Tíu
stúlkur tóku þátt í keppninni og
það var Bryndís Bjarnadóttir sem
bar sigur úr býtum. í öðru sæti
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
varð Linda Siguijónsdóttir, sem
jafnframt var kjörin ljósmyndafyr-
irsæta, og í þriðja sæti urðu Hrafn-
hildur Sigurðardóttir og Sólveig
Jónsdóttir. Bryndís fer því til New
York í ágústmánuði næstkomandi
til að taka þátt í aðalkeppni Elite.
Auk þess fékk hún ýmsar gjafir
svo sem skartgripi, fataúttektir,
snyrtivörur og margt fleira. Kynn-
ir kvöldsins var Páll Hjálmtýsson
og söng hánn einnig nokkur lög
við góðar undirtektir. Pierre
Champaux, frá skrifstofu Elite í
París, kynnti sigurvegarann, en
tímaritið Nýtt líf og Icelandic
models stóðu fyrir keppninni.
HEST AMENN SKA
„Ungur nemur,
gamall temur“
Fréttaritari var nýlega staddur í
Dalsmynni í Eyjahreppi í
heimsókn hjá Guðmundi
Guðmundssyni og Margréti Guð-
jónsdóttur, sveitarskáldi Snæfell-
inga.
Það var ánægjuleg stund að ræða
við þessi heiðurshjón. Það er ekki
algeng sjón að sjá öldung sem verð-
ur 90 ára á þessu ári, hressan og
glaðan og beinan í baki, að vera
að temja ungan fola. Á hverjum
degi þegar gott er veður, fær Guð-
mundur í Dalsmynni sér góðan
sprett á folanum Blesa sem verður
fimm vetra í vor. Með honum er
ævinlega sonardóttir hans Iðunn
sem er 11 ára. Hugur og hönd gjör-
ir þessa útivist að heilsugöngu fyrir
þá sem hennar njóta. Þegar Blesi
var folald þá var Iðunn sex ára.
Fljótlega tókst vinátta milli hennar
og Blesa.
- Páll
Morgunblaðið/Páll Pálsson
Iðunn og Guðmundur í sínum daglega reiðtúr.
COSPER
COSPER
— Stína og Bragi ætla að giftast í dag. Þú nærð því
að mæta í silfurbrúðkaupið.
Aðalfundur Marel hf. verður haldinn fimmtudaginn 2. apríl
1992 í húsnæði félagsins að Hðfðabakka 9, Reykjavík
og hefst fundurinn kl. 16.00.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðaifundarstörf samkvæmt
4.gr, samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild tíl að auka hlutafé
félagsins um 20 millj. kr. samkvæmt
nánari ákvörðun stjórnar.
3. Önnur mál.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins
liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis,
K viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á skrifstofu
félagsins, Höfðabakka 9, 2. hæð, frá og með 30. mars,
fram að hádegi fundardags.
Stjórn Marel hf.