Morgunblaðið - 05.04.1992, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
UKIAJll/i'JíJýlOÍí
MINNINGAR sunnudagúr 5. apríl 1992
25
Guðmundur Krist-
jánsson, Arnarbæli
Guðmundur var fæddur 5. mars
1903 að Suðurkoti við Öndverðar-
nes. Foreldrar hans voru Guðrún
Jónsdóttir og Kristján Sigurðsson.
Bæði voru þau hjón hagsýn og dug-
leg. Báða þessa eiginleika fékk
Guðmundur í arf. Þá vandist hann
á iðjusemi í uppeldi sínu á heimili
þeirra, sem fylgdi honum þar til
vinnuþrek hans bilaði á síðustu
æviárum hans.
Ársgamall fluttist Guðmundur
með foreldrum sínum að Eyvík og
fimm árum síðar fluttu þau svo að
Arnarbæli. Tvíbýli var í Arnarbæli
og fóru þau á vesturpart jarðarinn-
ar. Allar eru jarðir þessar í Gríms-
nesi. í Arnarbæli átti Guðmundur
síðan heimili alla sína ævi, fyrst á
heimili foreldra sinna og síðan sem
sjálfstæður bóndi í nærfellt sextíu
ár, enda alltaf kenndur við bæinn.
Ungur fór Guðmundur í vinnu
til annarra. Skömmu eftir fermingu
var hann vetrarpart hjá fjárríkum
bónda í næstu sveit. Þar kynntist
hann óvenju miklu heyleysi. Bónd-
inn átti marga sauði, sem ekkert
höfðu til að lifa á nema snapir, sem
stóðu upp úr klakanum. Um miðjan
vetur var heybirgðum fjóssins þann-
ig komið að bóndinn gafst upp á
að skammta þær, en þá tók húsmóð-
irin við. Henni auðnaðist að halda
lífi í gripunum á þann hátt, að
ganga ekki um fjósið nema einu
sinni á dag og enga mjólk bar hún
úr því. Ef eitthvað kom úr kúnum
gaf hún þeim það aftur. Ekki þarf
að taka það fram að á þessum tíma
voru möguleikar á aðkeyptu fóðri
engir.
Þessi vetrardvöl varð Guðmundi
minnisstæð og mun hafa ráðið
miklu um það, að hann lét aldrei
vanta hey né önnur vistföng í eigið
bú.
Lengi sótti Guðmundur sjóvinnu-
störf á vetrum eða yfir tuttugu
vertíðir á ýmsum stöðum á Suður-
nesjum. Hann eignaðist hlut í bát
ásamt þrem öðrum. Útgerð bátsins
gekk vel enda fór kunnur aflamað-
ur með formennsku hans. Mun út-
gerðin hafa skilað hagnaði, enda
eigendur samvaldir að dugnaði og
hyggindum. Guðmundur vann þó
alltaf heima "utan vertíðar, fyrst á
búi foreldra sinna og síðar eigin búi.
Guðmundur tók við búsforráðum
í Arnarbæli 1932 og hafði þau í
hartnær sextíu ár, eða meðan heils-
an og kraftar leyfðu. Síðustu bú-
skaparár sín átti hann þó erfitt um
vik vegna sjóndepru af völdum
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna.
gláku. Hirti þó nokkrar kýr, fyrst
og fremst sér til afþreyingar því
vinnulaus gat hann ekki verið með-
an hann hafði eitthvert vinnuþrek.
Vel gekk búrekstur Guðmundar.
Gripir allir afurðasamir enda vel
fóðraðir og alltaf nóg til að gefa.
Voru þeir feðgar báðir miklir hey-
fangamenn.
Mikill fjöldi barna og unglinga
dvaldi um lengri eða skemmri tíma
í Arnarbæli meðan Guðmundur
hafði búsforráð. Mátti segja að öll
yrðu vinir hans og héldu við hann
kunningsskap svo lengi sem hann
lifði. Þó var Guðmundur ekki mjúk-
máll maður og nutu þau af því
orðavali hans eins og aðrir, en rétt-
sýni hans og hreinskiptni eyddu
öllum áhrifum stóryrða. Skýr og
glögg voru fyrirmæli hans er hann
sagði fyrir verkum enda var verk-
þekking hans fjölþætt. Sjálfur lærði
hann öll verk til hlítar sem hann
taldi sig þurfa að kunna. Það sýnir
hversu verkhagur Guðmundur var,
að rúmliggjandi í erfiðu fótbroti,
var hann sífellt með handavinnu
og vann þá pijónles og annað sem
heimilið þarfnaðist.
Góður var Guðmundur heim að
sækja. Hann hafði skýran málróm
og skipulega framsögn sem hafði
þau áhrif að þeir sem á hlýddu
gleymdu seint frásögn hans. Fyrir
því hef ég margra orð. Guðmundur
hafði á yngri árum óvenju góða
sjón, sem kom honum til nytja því
á tímabili stundaði hann skotveiðar
og gekk það vel eins og annað það
sem hann tók sér fyrir hendur. En
á efri árum missti hann sjón, svo
að á síðustu árum varð hann al-
blindur. Varð það honum mikil raun
að geta ekki lengur haft afþreyingu
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Tl blómaverkstæði
JEiINNA^’
Skólavörðustíg 12
á horni Bergstaðastrætis
sími 19090
af lestri eða spilamennsku, en hann
var snjall spilamaður.
Guðmundur tók nokkurn þátt í
félagsmálum. M.a. _sat hann lengi
í stjórn Veiðifélags Árnesinga. Þess
hefur verið minnst annars staðar
og verður því ekki gert hér. Ég vil
þó aðeins minnast þess að um ára-
bil sá hann um klakveiði og hrogna-
töku fyrir félagið. Ég hef orð að-
stoðarmanna hans fyrir því að áber-
andi hafði verið hversu fagmann-
lega og á hagfelldan hátt hann
framkvæmdi þetta fyrir félagið og
vann sjálfum sér það létt á allan
máta.
Guðmundur lést háaldraður þ.
15. júní 1991. Síðasti dvalarstaður
hans var á Sjúkrahúsinu á Selfossi,
orðinn algerlega ósjálfbjarga. Var
það honum þung raun því að hann
hafði jafnan sett metnað sinn í það
að þurfa sem miftnst til annarra
að sækja. Það eru ekki bein sorgar-
tíðindi þótt aldraður maður þreyttur
og þjáður, eins og Guðmundur var,
andist. Þó bar hann lengst af þann
persónuleika, sem lýsa má í fáum
orðum svo „bæði af honum gustur
geðs og gerðarþokki stóð“ J.Þ. Vin-
um hans og vandafólki mun finnast
vandfyllt það skarð sem varð við
fráfall hans, enda var Guðmundur
vinfastur og ræktarlegur við það
fólk sem hann gerði sér að vinum.
Fyrstu búskaparár sín bjó Guð-
mundur með systrum sínum. En
haustið 1941 gekk hann að eiga
Sigríði Árnadóttur frá Oddgeirshól-
um og lifir hún mann sinn. Studdi
hún hann eftir getu síðustu árin
þótt sjálf væri hún böguð vegna
kölkunar. Börn áttu þau fjögur og
tvö barnabörn. Sigríði og börnum
hennar óska ég gæfu og gengis um
ókomin ár.
Ólafur Árnason.
BLÓM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. ý-22.
Sími 689070.
Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og raðgjöf um gerð og val legsteina.
| S.HELGAS0N HF ISTEINSMIÐJA ■ SKEMMUVB3I 4S SlMt 70677
LEG M< Hamarsl rSTEIN AR ■ 81960
DSAIK H.l löfða 4 — sími 6
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTJÖNU GUÐFINNSDÓTTUR,
Ásvallagötu 61.
Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunardeildar Landspítalans,
Hátúni 10B.
Haukur Hafliðason, Guðrún Friðbjörnsdóttir,
Ómar Hafliðason, Ingibjörg Jakobsdóttir,
Ingibjörg Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
AGNESAR JÓNÍNU ÁRNADÓTTUR,
Staðarhrauni 2,
Grindavík.
Haukur Guðjónsson,
Guðrún Helga Pálsdóttir,
Árni Bergmann Hauksson,
Guðjón Hauksson, Þórný Harðardóttir,
Pétur Rúnar Hauksson, Dóróthea Jónsdóttir,
Bryndís Hauksdóttir, Skúli E. Harðarson
og barnabörn.
og létiLir
bráðlaus sími frá
.rt* 11J J 21 £3 D J J J Lí
HEKLA
LAUGAVEGI174
S 695500/695550
Pana Pocket kx - 9000
■ Tónval
■ 900 MHz, 40 rásir
■ 10 skammvalsminni (20 tölustafir)
■ Langdrægni 400 m. utanhúss
■ Langdrægni 200 m. innanhúss
■ Handtæki vegur 390 gr.
■ Móðurstöð vegur 500 gr.
■ Samþykktur af Fj arskiptaefti rlitinu
Verð kr. 32. 903 stgr.
Isveisla fiðlshuldunnar