Morgunblaðið - 02.06.1992, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992
Hvemig heiður og
lýðræði hafast við
eftir Davíð
Erlingsson
Þessum nöfnum eru nefndar
tvær andlegar skepnur sem orðið
hafa til og eiga heimili í hugar-
heimi mannsins. Þær urðu þar til
í gerjun viðskiptanna við aðra
menn, umhverfíð, og þær eru hvor
á sinn hátt meðal undirstaðna í
því neti mannlegra viðskipta sem
við köllum samfélag; að vísu í
mismunandi mæli og á mismun-
andi vegu eftir því hver samfélags-
gerðin er í þeirri mannabyggð, sem
til athugunar er. Þessar báðar and-
legu skepnur eru hugmyndir sem
verða þáttur í raunveruleika okkar
í þeirri svipan þegar við vörpum
þeim fram úr huga okkar út í
umhverfið, raunheiminn, til þess
að hafa á honum nauðsynlegan
skilning, yfirsýn, því að nokkurt
safn slíkra miðunarhugtaka, sem
eru siðræns eðlis að hluta, myndar
eins konar afstöðumælingarkerfi
(líkt og net af lengdar- og breidd-
argráðum á landabréf) — og að
lokum stjóm.
Hveijum manni er annt um heið-
ur sinn, nema hann hafí sig ekki
sjálfur í neinum heiðri, skorti
gírmótorar
rafmótorar
Þýsk gæðavara á góðu verði.
Einkaumboð á íslandi.
GÍRAMÓTORAR
verö m/VSK
0.37KW 40SN Kr. 22.993.-
0.75KW40SN - 28.894.-
1.50KW63SN - 29.776.-
2.20KW63SN - 38.897.-
4.00KW63SN - 50.700.-
5.50KW 63SN - 73.693.-
7.50KW 100SN - 83.772.-
RAFMÓTORAR
verð mA/SK
0.37KW 1500SN Kr. 6.820.-
0.75KW 1500SN - 8.380.-
1.50KW 1500SN - 12.220.-
2.20KW 1500SN - 15.110.-
4.00KW 1500SN - 22.360.-
5.50KW 1500SN - 28.800.-
7.50KW 1500SN - 36.410.-
Ef mótorinn er ekki til á lager
okkar þá útvegum viö hann á
skömmum tíma.
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURIANOSBRAUT 8, SÍMI 814Ó70
sjálfsvirðingu. Sá sem er sjálfs-
virðingarlaus mun ekki heldur
eignast virðingu, heiður í áliti ann-
arra manna nema þeir séu duldir
þessa, þekki hann alls ekki. Slíkt
kemur vissulega fyrir. Virðingin
sem umhverfið leggur á mann er
heiður hans og sæmd hans; hún
er einnig gæfa hans, og ekki sakar
að minna á að hún er líka metin
til fjár; hún er að þessu leyti eign
mannsins og um leið tími hans, en
tími manns (hvort heldur sá sem
mælist í dögum og stundum eða
sá sem gerir það ekki) er takmörk-
uð -eða endalaus auðlind/eign og
lík'a ígildi peninga. Sá sem tekur
peningalán í banka er í rauninni
að selja framtíðartíma sinn (með
einhveijum afföllum, ef til vill)
fyrir nútíðartíma, handbæra pen-
inga, til þess að geta notað hann
núna. Því er líka rétt að tala um
skefjalausa oftöku samtíðarinnar
af (sumpart endanlegum) auðlind-
um jarðarinnar sem skuld við fram-
tíðina af því tagi sem ógemingur
geti orðið að bæta. Það er því ekki
furða að maður, sem sér útlit til
þess að heiður hans skerðist, snú-
ist af öllum mætti til vamar þess-
ari (takmörkuðu) eign sinni. Ekk-
ert er á móti því að þessi maður
ræði um að gæta heiðurs síns eða
veija hann. En á þessari andlegu
„Hverjum manni er
annt um heiður sinn,
nema hann hafi sig ekki
sjálfur í neinum heiðri,
skorti sjálfsvirðingu."
skepnu er sú hlið þar sem á hana
leggst í tungumálinu bann, tak-
mörkun þess sem maður með
sjálfsvirðingu og óbrenglaða til-
finningu fyrir merkingarbrigðum
tungumálsins getur sagt. Hann
getur ekki (nema í spaugi) sagt:
Eg er heiðursmaður — af því að
hann er ekki dómari í þeirri sök.
Hin andlega skepnan, lýðræði,
er annars eðlis, varðar ekki ein-
staklinginn á sama nærgöngula
hátt og hún, fer varla inn á svið
mannhelginnar þar sem bannhelgi
gerir vart við sig. Orðið lýðræði
er ekki fornt eins og heiður, sæmd
o.s.frv. En hugmyndin er eigi að
síður fom: að hver maður í samfé-
lagi sem á annað borð er mætur
(til manns metandi) skuli eiga þátt
í, leggja til forsjár og stjómar sam-
félagsins að sínum hluta. Reynt
er að ná sem næst þessu marki
með kjöri fulltrúa til þess að fara
með stjórn samfélagsins. Andstað-
an er, eins og allir vita, einræði.
Sumir menn eru ráðríkir og girn-
ast völd, aðrir ef til vill sinnulitlir,
og af því sprettur að lýðræði í
framkvæmd er ákaflega viðkvæm-
ur hlutur og vandmeðfarinn. ís-
lendingum hefur verið innrætt, að
lýðræði sé æskilegast stjórnar-
form, en eigi að síður verður þess
vart að sumt fólk óski eftir „sterk-
um mönnum" til stjórnar málum
sínum. En lýðræðisþjóð á einmitt
velferð sína sem slíkrar undir því
að styrk af því tagi fylgi einnig
sá styrkur að vera annt um að
græða lýðræðið, svo að samfélagið
megi njóta kosta almannaþátttö-
kunnar í stjórn sinni. Beri lýðræð-
isþjóð gæfu til að eignast forystu-
menn sem einnig eiga þennan
styrk, þá hljóta þeir mikinn heiður
af. í slíkum mönnum fer þetta
tvennt saman; heiður og lýðræðis-
styrkur. Það er lán fyrir þjóð að
eignast slíka forystumenn.
Nú er liðið á annað ár síðan
formenn tveggja íslenzkra stjórn-
málaflokka voru úti í Viðey að
bræða með sér myndun ríkisstjórn-
ar handa þjóðinni. Síðan kom bátur
með þá að landi; hvít hafa efalaust
verið seglin á fleyinu, og spurt
var: Eruð þið búnir að ná samkom-
ulagi um málefnagrunn fyrir ríkis-
stjórn. Svar: Já. Megum við fá að
sjá það? Svar: Nei, það liggur ekki
á þann hátt fyrir. Við höfum gert
með okkur heiðursmannasam-
komulag ... (Sagan vitnuð eftir
minni af fréttum í sjónvarpi.) Og
núna um daginn, rétt áður en slíta
eða fresta átti alþingisstörfum um
sinn, og sjónvarpað var eldhús-
dagsumræðum þaðan, álasaði hinn
flokksformaðurinn af Viðeyjar-
bátnum mörgum þingmönnum
stjórnarandstöðunnar fyrir óþol-
andi málæði sem tafið hefði þing-
störfin til mikils baga: Þeir vita
það, þessir menn, að við höfum
meirihluta, og niðurstaðan í málun-
um er ákveðin fyrirfram. Þetta
þýðir því ekkert, er ekki nema til
meins ... (sama-heimild og áður).
Lokaorð þessarar lexíu geta
ekki orðið önnur en það sem þegar
er sagt, að það er gæfa fyrir þjóð,
sem hefur skipan fulltrúalýðræðis
á stjórnarfari sínu, að leiðtogar
hennar beri næmt skyn á og sé
annt um báðar þessar vandmeðf-
örnu andlegu skepnur, heiður og
lýðræði.
Höfundur er kennari og
áhugamaöur um andleg
velferðarmál.
-----*—*—*---
Ferðamálaráð
*
Islands:
Lýsir áhyggj-
um vegna
slæmrar fjár-
hagsstöðu
Náttúru-
verndarráðs
Á FUNDI stjórnar Ferðamála-
ráðs fyrir skömmu var samþykkt
eftirfarandi:
„Stjórn Ferðamálaráðs lýsir
áhyggjum sínum yfir slæmri fjár-
hagsstöðu Náttúruverndarráðs og
varar eindregið við afleiðingum þess
ef Náttúruverndarráði er ekki gert
kleift að gegna hlutverki sínu og
skyldum. Stjóm Ferðamálaráðs lit-
ur það alvarlegum augum ef fjár-
skortur kemur í veg fyrir að Nátt-
úruvemdarráð geti sinnt land-
vörslu, a.m.k. á sama hátt og verið
hefur og telur að fremur beri að
auka landvörslu á hálendinu og í
þjóðgörðum. íslensk ferðaþjónusta
byggir fyrst og fremst á sérstæðri
náttúru landsins, sem okkur ber að
varðveita og umgangast af tillits-
semi og varúð. Stjórn Ferðamála-
ráðs skorar því á ríkisstjórnina að
tryggja Náttúruverndarráði fjár-
magn til nauðsynlegrar landvörslu.“
-----♦ ♦ ♦---
Borgarráð:
Lokað útboð
á dælum í
skólpstöðvar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að tillögu Innkaupastofnunar, að
taka 13.362.728 milljón króna til-
boði lægstbjóðanda, Flygt, um-
boðsmaður Héðinn hf., í dælur
og búnað í fjórar skólpdælu-
stöðvar, samkvæmt lokuðu út-
boði.
Fimm tilboð bárust og átti Sarl-
in, umboðsmaður Yltækni, næst
lægsta boð rúmar 17,4 millj., ABS,
umboðsmaður Fálkinn bauð rúmar
18,5 millj. auk 18,9 millj. frávikstil-
boðs. Loks bauð Hidrostal, umboðs-
maður Varmaverk rúmar 28,6 millj.
NIÐURHENGD LOFT
■ CMC kerfl fyrlr nlflurhengd loft, er úr
galvaníseruðum málmi og eldþolið.
■ CMC kerfi er auðvelt f uppeetnlngu og mjög sterkt.
■ CMC kerfi er fest meö stillanlegum upphengjum
sem þola allt afl 50 kg þunga.
■ CMC kerfi fasst I mörgum gerflum baefli sýnilegt og
falifl og verfllfl er ótrúlega lógt
^ EINKAUMBOÐ
cB Þ.Þ0RGRÍMSS0N & C0
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640