Morgunblaðið - 02.06.1992, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JUNI 1992
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
STEFANÍA EIRÍKSDÓTTIR
frá Þingdal,
Víðivöllum 2, Selfossi,
lést aðfaranótt 1. júní í sjúkrahúsinu á Selfossi.
Eyrún Samúelsdóttir,
Jón Samúelsson,
Loftur Jónsson,
Jóhanna Reginbaldsdóttir.
t
Ástkær eiginkona mín,
FJÓLA SIGURJÓNSDÓTTIR,
lést þann 30. maí í Borgarspítalanum.
Ólafur Guðmundsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUNNAR MARTEINSSON,
Miðtúni 56,
Reykjavik,
andaðist þann 31. maí sl.
Sesselja Einarsdóttir,
Edda Sigrún Gunnarsdóttir, Þórður Sigurðsson,
Guðrún Gunnarsdóttir, Sigurjón Sigurðsson,
Marteinn Gunnarsson, Ingunn Steinþórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn,
MARÍS KRISTINN ARASON
fyrrverandi vaktmaður
Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
lést 31. maí.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðrún Guðbjartsdóttir.
t
Móðir mín og amma,
eli'n e. SIGURÐARDÓTTIR,
áður búsett á Tómasarhaga 29,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þann 29. maí sl.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Kristín Pálmadóttir,
Pólmi Guðmundsson.
t
Ástkær sonur okkar, fóstursonur, bróð-
ir og dóttursonur,
ERLENDUR KRISTÓFERSSON,
Kolbeinsmýri 4,
sem lést fimmtudaginn 28. maí, verður
jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju
fimmtudaginn 4. júní kl. 13.30.
Jarðsett verður í kirkjugarðinum í Gufu-
nesi.
Ingibjörg J. Erlendsdóttir,
Kristófer Einarsson,
Einar Óli Kristófersson,
Elísabet Inga Kristófersdóttir,
Sigurður Árni Kristjánsson,
Kristján T. Sigurösson,
Guðrún B. Ketilsdóttir,
Erlendur Ahrens,
Sigríöur Bjarnadóttir.
Kristinn Guðmundsson,
Miðengi - Minning
Fæddur 19. maí 1916
Dáinn 7. apríl 1992
Luktum augum
horfir þú á grasið,
sem vex yfír sporin þín
gengin í bemsku.
Og söknuðurinn
og minningin
koma gangandi
og opna þau
(Friðrik Guðni Þorleifsson,
„Mitt heiðbláa tjald“.)
Þriðjudaginn 14. apríl síðastlið-
inn fór fram útför Kristins Guð-
mundssonar, bónda að Miðengi í
Grímsnesi, að viðstöddu miklu fjöl-
menni í yndislegu veðri, eins og það
getur fegurst orðið í byijun gró-
anda.
Góður maður er genginn, sem
Jjúft er að minnast og skylt er að
þakka, þakka þó seint sé liðna tíma
og vináttu, ekki síst við föður minn
heitinn, sem var nágranni Kristins,
og ég held mér sé óhætt að full-
yrða, vinur einn af þeim fáu sem
hann átti, þó aldursmunur milli
þeirra hafi verið töluverður. Þeim
fækkar nú óðúm þessum gömlu
bændum, sem byggðu lífsafkomu
sína á vinnu eigin handa í traustri
samvinnu við þann er sólina skóp.
í þau tæpu 50 ár sem Kristinn
háði sína lífsbaráttu sem bóndi,
mátti hann horfa upp á marga sigra
mannsandans í tækni og vísindum,
en einnig marga ósigra mannlegrar
breytni og siðmenningar — gömlu
gildin — trúmennska, iðni og spar-
semi fótum troðin sum miður lögð
með lagaboði svo illt er að spyrna
viðfótum.
Ég minnist með trega þessara
daga æsku minnar, þegar lífið var
samtvinnað veðri og árstíðum, ég
sé fyrir mér karlana hressa og káta
í smalamennsku og í réttum, við
heyskap og gengningar, vitandi
vissu sína um hvar peningar urðu
Bróðir okkar, t SIGFÚS PÉTURSSON
frá Húsavík,
andaðist á heimili sínu í Boulder, Colorado, fimmtudaginn 28. maí.
Systkini hins látna.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma,
MARGRÉT DÓROTHEA ODDSDÓTTIR,
Blöndubakka 3,
Reykjavík,
sem lést í Borgarspítalanum 26 maí sl., verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju miðvikudaginn 3. júní kl. 13.30.
Haraldur Harvey,
Ragnheiður Harvey,
Magdalena M. Oddsdóttir
og barnabörn
Þóra Geirs,
Ole Bjern Salvesen,
Maðurinn minn, t
JÓN SIGURÐSSON,
(Kristófer kadett),
andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, að kvöldi 29. maí.
Guörún Karlsdóttir.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
tengdadóttir og systir,
ANNA MARÝ SNORRADÓTTIR,
Syðra-Langholti,
Hrunamannahreppi
sem lést í London þann 30. maí sl.,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju
föstudaginn 5. júní nk. kl. 14.00.
Sigmundur Jóhannesson,
Tinna Björk Sigmundsdóttir, Arna Þöll Sigmundsdóttir,
Snorri Ólafsson,
Jóhannes Sigmundsson, Hrafnhildur S. Jónsdóttir,
Nikolfna Th. Snorradóttir, Sigurvin Ó. Snorrason,
Jón Freyr Snorrason, Þorbjörg Snorradóttir.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTJÓN Þ. ÍSAKSSON
prentari,
Beykihlíð 21,
andaðist í Landakotsspítala 29. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þórunn Kristjónsdóttir, Bjarni Ingólfsson,
Olgeir Kristjónsson, Rut Þorsteinsdóttir
og barnabörn.
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR GUÐMUNDSSON,
Vfðigrund 25,
Kópavogi,
lést í Borgarspítalanum að kvöldi laugardagsins 30. maí.
Dagmar Clausen,
Guðmundur Þórðarson, Margrét Linda Þórisdóttir,
Þórður Þórðarson, Linda Leifsdóttir,
Anna María Þórðardóttir, Ragnar Jóhann Jónsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
til, og hver var undirstaða allra
verðmæta, og vegna uppruna og
uppeldis Kristins austur á Norðfirði
þekkti hann einnig lífsbaráttu fólks-
ins við sjávarsíðuna, þar sem glímt
var við höfuðskepnurnar og gullið
sótt í greipar Ægis, með tilheyr-
andi mannfórnum, hversu fjarri var
þá glys hinna nýju tíma. Þar sem
áður reikaði fijáls búsmali fólks rís
nú óðfluga ný gervisveitamenning
þar sem eimyija gills og skálglamur
hégómans svífur yfir vötnum, og
flest greitt með plasti eða lánsfé.
Kristinn kvæntist konu sinni, Helgu
Benediktsdóttur, á samri stundu og
lýðveldi var stofnað á íslandi, það
var stór stund í lífi einstaklinga og
þjóðarinnar allrar. Glæstar vonir
og'stórir dagdraumar fóru um þjóð-
lífið allt, þau hjón létu drauminn
rætast í eigin lífi, bættu jörðina
sína, húsakosti og ræktun, ólu upp
dætur sínar fjórar í anda þess besta
úr samtíð og fortíð, og nú hagar
svo til í Aliðengi að hver kynslóð
tekur við af annarri og í bróðemi
hjálpast þrír ættliðir að. Undan-
fama áratugi hafa Kristinn og
Helga verið ein af þeim tengiliðum
sem batt mig við æskustöðvarnar,
traust og hlýtt handtak hans og
glettni úr augum yljaði mér um
hjartarætur er rifjaðir vom upp
gamlir dagar og atburðir, það var
svo gott að vita af honum handan
vegar þegar við farfuglar fórum að
hreiðra um okkur í hrauninu og
birkið tók að anga. Hann fór of fljótt
en eigi má sköpum renna. Fyrir
hönd okkar systkina sendi ég öllum
ástvinum innilegar samúðarkveðj-
ur.
Blessuð sé minning góðs drengs.
Rósa Sveinbjarnardóttir.
4Áteyti*Kp<zn,
ýýafazva'ui.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
! í
i