Morgunblaðið - 02.06.1992, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992
26
Samið
hjá SAS
FYRIRHUGUÐU sólarhrings-
verkfalli flugmanna SAS hef-
ur verið aflýst. Samningar
tókust um helgina um 3,3 %
launahækkun næstu tvö ár,
gegn því að flugmennirnir
tækju þátt í aðhaldsaðgerðum
sem auka eiga framleiðni flug-
félagsins. Með samningunum
lýkur eins og hálfs árs löngum
launadeilum flugmanna SAS.
Leiðtog*i ETA
handtekinn
FRANSKA lögreglan hefur
handtekið mann, sem grunað-
ur er um að vera leiðtogi ETA,
aðskilnaðarsamtaka Baska á
Spáni, að sögn sjónvarps-
stöðvarinnar Antenne 2. Stöð-
in sagði að maðurinn, Inaki
Bilbao, hefði verið í hópi ETA-
manna sem handteknir voru í
borginni Bayonne, en lögregl-
an hefur ekki viljað staðfesta
það. Franska lögreglan handt-
ók forvera Bilbaos, Francisco
Mugica Garmendia, í mars síð-
astliðnum. ETA hefur myrt
yfir 700 manns í 23 ára bar-
áttu sinni fyrir aðskilnaði
Baskahéraðanna.
Bjartsýnir á
frið í Nag-
orno-Karabak
RÁÐSTEFNA til að koma á
friði á milli Armena og Azera
í Nagorno-Karabak hófst í
Róm í gær. ítalskur sáttasemj-
ari lýsti yfir bjartsýni á árang-
ur og sagði að greinilegur
sáttavilji væri fyrir hendi, þó
að nokkuð bæri á milli. Það
varpaði þó skugga á ráðstefn-
una að sendinefnd Armena,
sem búa í hinu umdeilda hér-
aði, mætti ekki fyrsta daginn.
Talsmenn ráðstefnunnar
sögðust ekki vita ástæðuna,
en getum var að því leitt að
sendinefndin vildi vera talin
fulltrúi sjálfstæðs ríkis, en
Nagorno-Karabak er innan
Azerbajdzhan.
Langlíf ljósa-
perafundin
upp
FYRIRTÆKI í Kaliforníu seg-
ist hafa hannað ljósaperu sem
geti enst í yfír 18 ár, miðað
við að hún sé látin loga í þijár
stundir á dag. Peran á að
koma á markað snemma á
næsta_ ári og kosta þá 600 til
1200 ÍSK. Endingin mun vera
þrettánföld á við venjulegar
ljósaperur, en ekki fylgir frétt-
inni hve lengi prófanir hafa
staðið yfir.
Tilraunastöð *
Iraka eyði-
lögð
EFTIRLITSMENN Samein-
uðu Þjóðanna sprengdu í gær
það sem eftir var af Al-Atheer
tilraunastöðinni, sem var hluti
af kjarnorkuáætlun íraka.
Grikkinn Dimitri Perricos, sem
hefur umsjón með eftirlits-
Sveitinni, sagði að hún myndi
nú snúa sér að tveimur öðrum
stöðvum, en þar sem þær
væru í nágrenni við aðrar
byggingar þyrfti hugsanlega
að brjóta þær niður með
sleggjum en ekki sprengiefni.
De Klerk í Moskvu:
„Aðskilnaðar-
stefnan dauð“
Moskvu. Reuter.
F.W. DE Klerk, forseti Suður-
Afríku, gekk í gær um Rauða
torgið í Moskvu og lýsti því yfir
að aðskilnaðarstefnan í heima-
landi hans væri steindauð eins
og kommúnisminn í Rússlandi.
De Klerk sagði þó að marxistar
hefðu enn mikil áhrif innan stjórn-
arandstöðuhreyfinga í Suður-Afr-
íku og þeirra á meðal væri Afríska
þjóðarráðið (ANC). „Við eigum
enn í baráttu við kommúnisma í
Suður-Afríku, en við erum sann-
færð um að við förum með sigur
af hólmi,“ sagði hann.
Sovétmenn lýstu oft Suður-Afr-
íku sem „verkfæri heimsvalda-
stefnunnar" og studdu baráttu
Afríska þjóðarráðsins gegn stjórn
hvíta minnihlutans. Heimsókn for-
seta Suður-Afríku hefði verið
óhugsandi fyrir nokkrum árum.
De Klerk ræddi í tæpar tvær
klukkustundir við Borís Jeltsín,
forseta Rússlands, sem er sjálfur
fyrrverandi kommúnisti. Jeltsín
þáði boð um að heimsækja Suður-
Afríku.
Flóð í París
Miklar rigningar hafa verið í París og valdið þar nokkrum hverfum. Myndin var tekin af bílstjórum
flóðum. Ókumenn komust ekki leiðar sinnar í gær sem þurftu að bíða tímunum saman eftir því að
vegna vatnsflaumsins og rafmagnslaust varð í vatnið sjatnaði.
Umhverfisverndarráðstefnan í Rio:
Samningar í hættu vegna
afstöðu Bandaríkjastjómar
Rio de Janeiro. The Daily Telegraph.
STJÓRN George Bush Bandaríkjaforseta hefur hafnað mikilvægum
samningi um verndun villtra dýra og lífvera og þykir afstaða henn-
ar draga mjög úr líkunum á að alþjóðlega umhverfisverndarráðstefn-
an í Rio de Janeiro skili verulegum árangri. Breska stjórnin lýsti
því einnig yfir að meinbugir væru á samningnum og ekki er víst
að hún undirriti hann.
Fulltrúar 98 ríkja gengu frá
samningnum til undirritunar í
Nairobi fyrir tveimur vikum.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
segir að í samningnum séu „ýmsir
alvarlegir gallar“ og helsta athuga-
semd þess er að þróunarríkin ráði
of miklu um ákvarðanir varðandi
fjármögnun vemdunarinnar. Samn-
ingnum er meðal annars ætlað að
samræma náttúmvemd og efna-
hagslega uppbyggingu í þriðja
heiminum.
Breskir embættismenn hafa
einnig gagnrýnt þetta atriði. Mich-
ael Howard, umhverfisráðherra
Bretlands, sagði á sunnudag að
breska stjórnin væri að íhuga hvaða
afstöðu hún myndi taka til ljár-
mögnunarhliðar samningsins. How-
ard sagði að Bretar kynnu að þurfa
að veita fjármagn án þess að ráða
nokkru um hvernig því yrði varið.
Breska sendinefndin, sem fer til
Rio, hafði nokkrum dögum áður
Arafat gengst
undir heila-
skurðaðgerð
Amman. Reuter.
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínu (PLO), gekkst
í gær undir skurðaðgerð vegna
blóðkekkjunar í heila, sem rakin
er til flugslyssins sem hann lenti
í fyrir tæpum tveimur mánuðum.
Yfirmaður Læknamiðstöðvar
Husseins konungs í Jórdaníu, þar
sem Arafat var skorinn upp, sagði
að líðan PLO-leiðtogans væri góð
eftir uppskurðinn, sem tók um 90
mínútur. Arafat hafði kvartað yfir
miklum höfuðverk.
„Hann þjáðist af blóðkúlu, stað-
bundinni uppsöfnun blóðs undir
heilahimnunni," sagði yfirmaðurinn
og bætti við að rekja mætti þetta
til flugslyssins í eyðimörk Líbýu í
apríl. Hann kvað Árafat ekki hafa
verið í lífshættu.
sagt að John Major, forsætisráð-
herra Bretlands, hygðist undirrita
samninginn.
Ekki verður unnt að ganga frá
nýjum samningi um verndun villtra
dýra og lífvera í Rio þar sem marg-
ir af þeim sérfræðingum, sem hafa
verður samráð við, verða ekki á
ráðstefnunni.
Óttast er að yfirlýsing Bandaríkj-
astjórnar verði til þess að upp komi
ágreiningur að nýju um hversu
mikla fjárhagsaðstoð norðlæg iðn-
ríki skuli veita suðlægum þróunar-
ríkjum. Afstaða Bandaríkjastjórnar
gæti leitt til þess að Japanir neituðu
einnig að undirrita samninginn. Þá
var skýrt frá því í Rio að suðlæg
ríki eins og Pakistan væru líkleg
til að neita að undirrita samning
um aðgerðir til að draga úr loft-
slagsbreytingum, sem verður þung-
amiðjan á ráðstefnunni, til að sýna
óánægju sína með afstöðu Banda-
ríkjastjórnar.
Talsmenn náttúruverndarsam-
taka sögðu að yfirlýsing Bandaríkj-
astjórnar hefði komið á versta tíma
og gæti orðið til þess að ekki yrði
hægt að undirrita neina samninga,
sem gengið var frá fyrir ráðstefn-
una. „Þetta gæti leitt til þess að
samningaviðræðurnar í Rio kæmust
í hnút,“ sagði Barry Coates, frá
Worldwide Fund for Nature. Jer-
emy Leggat, helsti vísindamaður
Grænfriðunga, sagði að iðnríkin
ættu nú að einangra Bandaríkja-
menn með því að undirrita samning-
inn um vemdun villdra dýra og líf-
vera. Ráðstefnan hefst á morgun,
miðvikudag, og stendur til 14. júní.
Milljarðamæringnrinn Ross Perot kynnir viðhorf sín;
Myndi ekki velja samkyn-
hneigða í æðstu embætti
ROSS Perot, sem óvænt er kom-
inn í fremstu röð í baráttunni
fyrir forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum í nóvember, var
yfirheyrður um stefnumál sín í
sjónvarpsþætti fyrir helgina. Þá
sagði hann meðal annars að það
væri ekki „raunsætt" fyrir sam-
kynhneigða að gegna herþjón-
ustu og að hann myndi hvorki
skipa slíkt fólk í há embætti né
þá sem hefðu orðið uppvísir að
framhjáhaldi.
„Nei, ég vil ekki standa fyrir
ráðningum sem stríddu gegn vilja
bandarísku þjóðarinnar," sagði
milljarðamæringurinn frá Dallas í
viðtali við Barböru Walters hjá
ABC-sjónvarpsstöðinni sem dag-
blaðið International Herald Tribune
greinir frá. „Það myndi tmfla það
starf sem þarf að inna af hendi.
En hvað mig snertir þá er það einka-
mál fólks hvað það gerir í einkalífi
sínu.“
Perot sagði að brátt mætti vænta
tillagna frá sér um hvernig skera
ætti niður ríkisútgjöld. „Síðan
myndi ég snúa öllu við til að útrýma
sóuninni...Á nokkrum vikum myndi
ég framkvæma niðurskurðartillög-
Ross Perot heilsar stuðnings-
mönnum á kosningafundi ú Or-
lando í Florída.
urnar þannig að brátt yrði röðin
komin að smáatriðunum." Ennfrem-
ur sagðist hann algerlega andvígur
skattahækkunum.
Perot kvaðst hlynntur efna-
hagsaðstoð við aðildarríki Samveldis
sjálfstæðra ríkja en. gaf til kynna
að það væri hyggilegt að binda að-
stoðina því skilyrði að bandarískar
vörur yrðu keyptar fyrir féð. Perot
kynnti einnig hugmyndir um endur-
skipulagningu utanríkisþjónustunn-
ar. Sagði hann að það væri úrelt
að hafa öll þessi sendiráð erlendis.
„Áður fyrr þegar fjarskipti heims-
hluta á milli voru óþekkt var sendi-
herrann talsmaður ríkis síns. En nú
þegar hægt er að ná sambandi án
tafar heimshorna á milli gegna
sendiherrar fýrst og fremst félags-
legu hlutverki. Ef Bandaríkjamaður
rekst inn á skrifstofuna og leitar
ásjár er hann látinn finna fyrir því
að hann er til vandræða. Eg held
við ættum að stokka sendiráðaskip-
ulagið upp.“
Hvað gerist ef enginn fær
' hreinan meirihluta
kjörmanna?
Atli Steinarsson, fréttaritari
Morgunblaðsins í Florída, skrifar:
Skoðanakannanir síðustu daga
benda til að Perot hafi svo mikið
fylgi að hann muni e.t.v. koma í veg
fyrir að George Bush eða Bill Clin-