Morgunblaðið - 02.06.1992, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.06.1992, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992 Alþjóðleg ráðstefna um málefni fatlaðra í Vancouver í Kanada; „Sjálfstæði ’92“ - markmið fyrir fatlaða eftir Margréti Margeirsdóttur Dagana 21.-26. apríl síðastliðinn var haldin alþjóðleg ráðstefna um málefni fatlaðra í borginni Vancou- ver í Kanada. Það voru aiþjóðleg samtök fatlaðra sem stóðu að ráð- stefnunni, en þau heita á ensku Disabled People International og eru skammstöfuð D.P.I. Samtökin voru stofnuð á alþjóðaári fatlaðra 1981, í því skyni að vinna að sameiginleg- um hagsmunamálum 'fatlaðra um heim allan. Auk þessara samtaka stóðu að ráðstefnunni ríkisstjóm Kanada, fylkisstjóm og borgarstjórnin í Vancouver, en fjölmargir aðrir aðil- ar, s.s. félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar létu í té stuðning á ýmsan hátt. Þátttakendur á ráðstefnunni vom um þijú þúsund frá rúmlega 90 þjóð- löndum og mun þetta vera stærsta ráðstefna sem hefur verið haldin um málefni fatlaðra. Langmestur hluti þátttakenda var úr röðum fatlaðra, þaraf voru um 700 manns í hjólastól- um að því er talið var, en flestir ef ekki allir hópar fatlaðra áttu fulltrúa á ráðstefnunni. Auk þáttakendanna á ráðstefn- unni sem skráðir voru á ráðstefnuna var aðstoðarfólk hinna fötluðu svo og sjálfboðaliðar sem gegndu marg- víslegum störfum. Þannig mun sam- ankominn fjöldi hafa verið á milli 4-5.000 manns. Sjálfboðaliðar voru m.a. nemendur úr menntaskólum í Vancouver og nærliggjandi borgum sem fengu frí úr skólum til að sinna þessum störfum og var það metið til punkta eins og um nám væri að ræða. Ráðstefnan fór fram í glæsilegum húsakynnum í miðborg Vancouver sem heita á ensku: World Trade Union Centre en þessi bygging var tekin í notkun árið 1986 þegar heimssýningin var haldin í Vancou- ver. Byggingin er í tengslum við Hótel Pan Pacifíc og þarf vart að taka fram að aðgengi fyrir fatlaða var alveg til fyrirmyndar — það besta sem ég hef séð á hótelum. I þessu sambandi má geta þess að bæði borgaryfirvöld og einkafyrir- tæki hafa lagt sig fram um að bæta aðgengi fyrir fatlaða bæði varðandi byggingar og samgöngumál og virt- ist vera tiltölulega auðvelt fyrir fólk í hjólastólum að ferðast um í borg- inni. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Sjálfstæði ’92“ (Independence ’92) sem felur í sér stefnumótandi mark- mið fyrir fatlaða. Tilgangur ráð- Margrét Margeirsdóttir „Þátttakendur á ráð- stefnunni voru um þrjú þúsund frá rúmlega 90 þjóðlöndum og mun þetta vera stærsta ráð- stefna sem hefur verið haldin um málefni fatl- aðra. Langmestur hluti þátttakenda var úr röð- um fatlaðra, þar af voru um 700 manns í hjólastólum að því er talið var, en flestir ef ekki allir hópar fatl- aðra áttu fulltrúa á ráð- stefnunni.“ stefnunnar var m.a. sá að gera eins konar úttekt á því hvað hefði áunn- ist á síðastliðnum áratug í málefnum fatlaðra og hvaða markmið og stefnu ætti að setja þennan áratug fram á næstu öld. Samkvæmt dagskrá sem þátttak- endur fengu í hendur við upphaf ráðstefnunnar voru tæplega eitt hundrað umræðuefni til umfjöllunar og rúmlega 400 manns fluttu þarna ræður og framsöguerindi auk þeirra sem tóku þátt í umræðum. Til að gefa nokkra vitneskju um efni sem fjallað var um og fjölbreytni þeirra, má nefna eftirfarandi: Sjálfs- ákvörðunarréttur, tryggingabætur og fjárhagslegt sjálfstæði, hvemig geta fatlaðir haft áhrif á þjóðfélags- legar breytingar og skipulagsmál, afnám stofnana, þátttaka fatlaðra í samfélagsmálum, draumur eða veru- leiki, mismunum, útskúfun og fá- tækt, jafnrétti, mannréttindi, fjöl- miðlar og áhrifamáttur þeirra á við- horf til fatlaðra. Þátttaka fatlaðra í stjórnmálum, Fatlaðar konur í þró- unarlöndunum, Alnæmi, ný fötlun, ný útskúfun. Hjálpartæki og tækni- framfarir, Menntun fatlaðra (mörg erindi), Arvinnumál fatlaðra (mörg erindi) Húsnæðismál fatlaðra, Al- þjóðasamstarf fatlaðra og þróun þess, íþróttir, og þannig mætti lengi telja. Það gefur augaleið að þegar um er að ræða svo umfangsmikið efni eins og upptalningin hér að framan gefur til kynna fer margt framhjá sem áhugavert hefði verið að hlýða á. Hins vegar var gefln út bók með útdráttum flestra erindanna þar sem kemur fram nokkuð góð yfirsýn um málefni fatlaðra í hinum ýmsu lönd- um heims. Frá einstökum ríkjum voru hlutfallslega flest framsögu- erindi flutt af þátttakendum frá Kanada og er það eðlilegt þar sem ráðstefnan var haldin þar. Þjónusta við fatlaða í Kanada Aður en vikið er að einstökum erindum verður gerð stutt samantekt um þjónustu við fatlaða í Kanada á grundvelli þeirra upplýsinga sem þarna komu fram í ræðu og riti. Þjónusta við fatlaða er mismun- andi langt á veg komin eftir fylkjum. Þó er alls staðar stefnt að samskipan fatlaðra bæði á almennum skólum og í þjóðfélaginu yfírleitt, en það á bæði við um andlega og líkamlega fatlaða. Stórar stofnanir eru að Ieggjast af og lítil heimili og íbúðir taka við sem búsetuúrræði, þó er enn skortur á slíkum úrræðum. Fram kom að í Kanada er 14% atvinnuleysi og eiga fatlaðir því erf- itt uppdráttar á vinnumarkaðnum sem kemur fram í þeim tölum sem nefndar voru, en talið er að milli 60-70 fatlaðra í Kanada séu án atvinnu. Jafnvel þeir sem lokið hafa háskólaprófun verða undir í þeirri hörðu samkeppni sem á sér stað á vinnumarkaðnum. Hvað viðkemur ferli- og aðgengismálum kom fram að miklar úrbætur hafa átt sér stað á síðustu árum. Einn ötulasti ein- staklingur sem hefur beitt sér í bar- áttunni fyrir bættu aðgengi er Kanadamaðurinn Rick Hansen en hann vakti heimsathygli fyrir nokkr- um árum þegar hann ferðaðist í hjólastól umhverfis hnöttinn og heimsótti 34 lönd. Ferðin tók rúm- lega tvör ár og þótti mikið afrek. Þess skal getið að Rick Hansen var formaður undirbúningsnefndar ráð- stefnunnar og flutti hann ávarp við opnunina. Þeir sem töluðu fyrir hönd fatl- aðra gagnrýndu þó ýmislegt sem þeim þótti ábótavant einkum í at- vinnumálum og tryggingamálum. Margir lögðu mikla áherslu á auknar tryggingabætur og aukið fjárhags- legt öryggi sem væri forsenda fyrir því að geta lifað sjálfstæðu lífl. Á síðastliðnum áratug hefur verið komið á fót í ýmsum fylkjum Kanada eins konar svæðismiðstöðvum sem heita á ensku: Independent Living Centres. Þetta eru ráðgjafastöðvar fyrir fatlaða sem eru reknar af einkaaðilum en njóta opinberra styrkja svo og fjárhagslegs stuðn- ings frá félagasamtökum og fyrir- tækjum. Þessar ráðgjafastöðvar eru starf- ræktar á grundvelli hugmyndafræði um samskipun og miðast starfið við að hjálpa fötluðum til sjálfstæðis og aukinnar þátttöku í samfélaginu. Á ráðstefnunni var sérstök kynning á þessari starfsemi og var gerð ítarleg grein fyrir hvernig hún er skilgreind og hvemig skipulagið er. Þessar ráðgjafastöðvar njóta mikilla viður- kenninga og eru nú um 20 slíkar í Kanada og er stöðugt unnið að því að koma þeim á fót sem víðast. Fólk sækist eftir að starfa á þeim og vinna jafnvel margir sem sjálf- boðaliðar. Töluverður þáttur í kana- dísku félagsmálastarfí er ýmiss kon- ar sjálfboðavinna (volunteer service) sem er vel skipulögð eftir því sem næst varð komist. Hér má skjóta inn í að á stærstu endurhæflngardeild- inni í Vancouver, G.P. Strong Cen- tre, sem ég heimsótti að lokinni ráð- stefnunni komu sjálfboðaliðar til að sinna félagslegum þörfum sjúkling- anna. Hvað varðar opinberar aðgerðir í þágu fatlaðra í Kanada verður nú vitnað í ræðu forsætisráðherrans Brian Mulroney sem hann hélt við opnun ráðstefnunnar. Að vísu mætti hann ekki í eigin persónu heldur sendi yfirlýsingu Sameinuðu þjóð- anna um réttindi fatlaðra 1981 þeg- ar áratugur fatlaðra hófst. I kjölfar yfirlýsingarinnar var komið á fót sérstakri ráðuneytisdeild til að skipuleggja og samhæfa að- gerðir í þágu fatlaðra sem tekur til allra fylkja í Kanada. Á vegum ríkis- 0 Listahátíð í Reykjavík Art Film hf og Steinar hf kynna: Wm\ i LaoqARdalshöll 16. júní kl. 20.00 Fram koMA: Bubbi Morthens Ný-Dönsk Sólin Hans Jóns Míns Síóan Skein Sól Todmobile MÍÓAVERð AÓEÍNS kR. 1.000 • * í foRsölu. Kr. 1.500.' á TONlEÍkAÖAq. Míóar eru seIcJír kjÁ LisTAhÁTÍð í REykjAvík oq VersIunum Steínars hF Músik & MyNdÍR. Sú EUen oq FLeírí Liíta upp. TÓNlEÍkAR þEssÍR veröa kvikMyNÖAÓÍR aF kvikMyNdAFálAqÍNU Art FíLm oq eru hluTÍ aF IslENskRÍ qAMANMyNd SEM FfiUMSyNd VERÖUR í jANÚAR Á NÆSTA ÁRÍ. M Ú 5 í K FLUGLEIDIR ^ M Y N D I R 0 Listahátíð í Reykjavík ^Taeknival ISLISSM UtnSISGtSIOHS HI ISLANOSBANKA Lambakjöt alagmarkyverbi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.