Morgunblaðið - 02.06.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.06.1992, Blaðsíða 18
61 1« MORGÚNBLAÐIÐ ÞRIÐJÚDÁgUr 2. JÚNÍ1992 s SUMARBÚSTAÐA EIGENDUR GOn ÚRVAL n Efna til vatns oa Efna til vatns og hltalagna, úr járni eir eða plasti. Einnig rotþrœr o.m.fl. Hreinlœtistœki, stálvaskar og sturtuklefar. VSnduð vara sem endist \éá VATNSVIRKINN HF. fT.. ARMULA 21 SIMAR $86455 - 685966 BSlS FAX 91-687748 V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! s fflsrgnwlfrlfofotfo Um kostnað við heilbrigðisþj ónustu Heilbrigðisútgjöld hins opinbera á mann Miðað við kaupmáttargengi VLF í Bandaríkjadollurum (PPP) --------------------------------------------------900 eftir Ólaf Ólafsson Hagfræðistofnun kvittar fyrir greinina í Morgunblaðinu 14. maí sl. með því að draga í efa skýringu á súluriti sem birtist í greininni. Inntak þess súlurits var að draga saman að nokkru leyti sam- eiginlegan kostnað heilbrigðis- og félagsmálaþjónustu Norðurlanda. Það virðist hafa farið framhjá Hagfræðistofnun að mörkin milli heilbrigðis- og félagsþjónustu eru oft mjög óskýr. Skal ég því leitast við að skýra málið. Hugsum okkur að aldraður maður leggist inn á öldrunarstofnun. í upphafí þarfn- ast hann engrar eða lítillar aðstoð- ar. En eftir því sem árin færast yfír þarfnast hann meiri hjálpar. Að lokum verður hann rúmfastur og ellisjúkdómar marka hann meir. Hann er orðinn hjúkrunar- sjúklingur. Hvar endar félagslega aðstoðin og hvar tekur heilbrigðis- þjónustan við? Nú er það svo hér á landi að greiðsluformið auðveldar okkur að aðgreina þjónustu sem veitt er í félags- og heilbrigðisþjónustu. í mörgum öðrum löndum er greiðsluformið annað, t.d. þar sem sami aðili, þ.e. lífeyristryggingar, greiðir alla þjónustu stofnunarinn- ar, verður mun erfíðara að að- greina heilbrigðis- og félagsþjón- ustu. Sömuleiðis er erfitt að skil- greina nákvæmlega heilbrigðis- þjónustuna. Hvar eru t.d. mörkin milli félagslegrar umönnunar og hjúkrunar? Og hvers eðlis þarf hjúkrun að vera og hversu mikil til þess að flokkast sem heilbrigð- isþjónusta? Mörkin eru ekki skýr. Ýmsar þjóðir eiga því í skiljanleg- um erfíðleikum með að aðgreina heilbrigðisþjónustuna frá almennri öldrunarþjónustu og flokka hana því til félagsþjónustu. Þess vegna verður að hafa fyrirvara á alþjóð- legum samanburði í heilbrigðis- málum. Þetta er ekki gert til þess að gera Hagfræðistofnuninni erfiðara fyrir. Undirritaður hefur áður skýrt frá útgjöldum íslendinga til heil- brigðismála en til frekari skýringa eru hér birtar tölur um heildarút- gjöld Norðurlanda til heilbrigðis- og félagsþjónustu (tölurnar eru gengisleiðréttar af Þjóðhagsstofn- un). Heildarútgjöld til heilbrigðis- og félagsmála sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu 1988: ísland 18,1 Danmörk 29,1 Finnland 24,8 Noregur 25,2 Svíþjóð 36,0 Vegna þess að hlutfallslega er fieira fólk 65 ára og eldri á hinum Norðurlöndunum eru hér birt heildarútgjöld til félags- og heil- brigðisþjónustu á íbúa 15-64 ára á Norðurlöndum 1988 (gengisleið- rétt af Þjóðhagsstofnun): ÍSK ísland 284.000 Danmörk 396.000 Finnland 337.000 Noregur 356.000 Svíþjóð 517.000 Meira atvinnuleysi er á hinum Norðurlöndunum en á Islandi svo að eitthvað minnkar munurinn en HÚSEIGENDUR í STÓRRÆÐUM Nú eru áhyggjur af öllu ruslinu sem safnast við vorverkin úr sögunni, því aö hjá okkur getiö þiö fengi3 stóra og smáa gáma fyrir múrbrot, garðaúrgang og allt annaS sem fellur til af rusli. Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 67 68 55. HIRÐIR uMMViiuHíiiuéNym Höfðabakka 1,110 Reykjavik sími 67 68 55, telefax 67 32 40 Ólafur Ólafsson „Ég ítreka fyrra boð um að Hagfræðistofn- unin sitji samráðsfundi embættisins með Þjóð- hagsstofnun um kostn- að við heilbrigðisþjón- ustu. Slíkir fundir eru líklegri til þess að bera ávöxt en skrif í dag- blöð.“ ljóst má_ vera að útgjöldin eru lægst á íslandi. Hagfræðistofnun reyndi ekki að öðru leyti að kasta rýrð á niður- stöður mínar. Eftir stendur að Hagfræðistofnun hefur ekki gætt þess er hún reiknar útgjöld til heilbrigðismála að: 1. íslendingar skrá útgjöld vegna þjónustu við aldraða og áfengissjúka undir heilbrigðismál en margar aðrar þjóðir skrá slík útgjöld að verulegu leyti undir félagsmál. Afleiðingamar eru þær að mynd sú er Hagfræðistofnunin dregur upp af kostnaði við heilbrigðis- þjónustu íslendinga í samanburði við margar OECD-þjóðir er röng. 2. Þegar Hagfræðistofnun skrá- ir opinber útgjöld íslendinga til heilbrigðismála í Bandaríkjadöl- um, umreiknuð með gengisvísi- tölu, miðað við aldursvegnar mannfjöldatölur, hefur stofnunin ekki leiðrétt fyrir verðbólgu í Bandaríkjunum. Þegar heilbrigðis- kostnaður er staðvirtur miðað við verðbólgu í Bandaríkjunum blasir allt önnur mynd við, sbr. meðfylgj- andi línurit sem unnið er af Þjóð- hagsstofnun. Þar kemur glögglega í ljós að heildarútgjöld til heilbrigð- ismála hér á landi hafa minnkað að raunvirði frá 1988. ísland er trúlega í 5.-7. sæti í Evrópu en ekki langefst. Eg ítreka fyrra boð um að Hag- fræðistofnun sitji samráðsfundi embættisins með Þjóðhagsstofnun um kostnað við heilbrigðisþjón- ustu. Slíkir fundir eru líklegri til þess að bera ávöxt en skrif í dag- blöð. Höfundur er landlæknir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.