Morgunblaðið - 02.06.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2, JÚNÍ 1992
35
Stór stund a
erlendrigrund
MORGUNBLAÐINU hefur borist
svohljéðandi fréttatilkynning frá
Ferðaklúbbi Ingólfs:
„Margir óska þess að minnast
merkra tímamóta á ævinni með því
að gera eitthvað sérstakt fyrir sjálfa
sig, nýtt og eftirminnilegt. Flestir
halda uppá tilefnið með veizluhöldum
innanlands eða utan, en mörgum vex
í augum umstangið og kostnaður við
stórveizlur, og í afmælisfréttinni er
þess oft getið að viðkomandi „verði
að heiman". Margir telja ferðir
Heimsklúbbsins veglegan vettvang
þess að gera sér dagamun, sem
munað er eftir. Komið hefur í ljós,
að æ fleiri sækja í ferðir Heims-
klúbbsins til að minnast jafnframt
sérstaks tilefnis auk þeirrar upplifun-
ar sem ferðin er í sjálfu sér. I nýaf-
staðinni Heimsreisu var t.d. haldið
upp á sjö afmæli frá fertugu til sjö-
tugs.
Til að uppfylla óskir margra um
ógleymanlega gleðistund tengda sér-
stöku tilefni, hefur Heimsklúbbur
Ingólfs tekið upp sérþjónustu undir
kjörorðinu: „Stór stund á erlendri
grund.“ Tilefnin geta verið margs
konar, s.s. brúðkaup, brúðkaupsaf-
mæli, námsafmæli, starfsafmæli, af-
mæli fyrirtækis, stórafmæli eða önn-
ur merk tímamót á mannsævinni.
Heimsklúbburinn sér um allan undir-
búning á vönduðu hóteli og völdum
veitingastað í samráði við afmælis-
bamið eða aðstandendur. Þegar dag-
urinn rennur upp, hefst hann með
blómagjöf og kampavíni, ef óskað
er, ásamt heiðursskjali og heillaósk-
um frá Heimsklúbbnum og kveðjum
að heiman fyrir milligöngu hans, en
deginum lýkur með hátíðakvöldverði
á völdum veitingastað og tónlist til-
einkaðri heiðursgestinum. Með slíku
móti býðst afmælisbami Heims-
klúbbsins að halda upp á daginn sinn
í fegurstu borgum og á beztu hótel-
um Italíu í ágúst, á Filippseyjum eða
glæsihótelum Japans og Taiwan eða
Thailands í september, í safaríferð í
Afríku eða borgum guils og demanta
jafnt og náttúruparadís Suður-Afr-
íku, þegar blómadýrðin er mest í
október að ógleymdum „perlum aust-
ursins" í Malaysíu, Bomeo, Singap-
ore og Penangs í nóvember.
Auk veizlunnar sjálfrar stendur
veizlugestinum til boða gegn smá
aukagreiðslu viðhafnargisting í de
luxe-herbergi eða svítu í stað al-
menns herbergis á afmælisdaginn. í
kynningartilboði fyrir 10 fyrstu pant-
anir með þessu sniðu er veizlan í
boði Heimsklúbbs Ingólfs, en kostar
annars aðeins 10 þúsund fyrir tvo
með blómum, kampavíni, margrétt-
uðum hátíðarkvöldverði og þjónustu.
Til að auðvelda afmælisbörnum
að láta slíkan draum rætast, geta
vinir, ættingjar og samst-arfsmenn
skotið saman andvirði ferðarinnar
eða hluta þess og opnað sérreikning
hjá Heimsídúbbnum á nafni afmælis-
bamsins eða keypt gjafakort og
ákveðið upphæðina sjálft. „Stór
stund á erlendri grund“ er ekki bund-
in við auglýstar ferðir Heimsklúbbs-
ins, heldur er hún einnig fyrir ein-
staklinga sem velja sér vandaðar
ferðir á eigin vegum og njóta sam-
banda og fyrirgreiðslu Heimsklúbbs-
ins. Að undanfömu hefur Heimsklúb-
burinn skipulagt ferðir ýmissa sér-
hópa og einstaklinga og selt farseðla
og vandaða gistingu á sérkjörum á
staði utan Evrópu. Heimsklúbbur
Ingólfs rekur almenna ferðaskrif-
stofu á sérsviði en öllum opna og
með fullum réttindum og njóta við-
skiptavinimir góðs af sérsamningum
við mörg flugfélög og hótel um allan
heim.“
(Fréttatilkynning)
Slökkt á
Seljanesvita
Finnbogastaðaskóla, Trékyllisvík.
ÁVKEÐIÐ hefur verið að leggja
niður vitann á Seljanesi við Eyv-
indarfjörð. Slökkt var á honum
15. maí sl.
Vitinn var reistur um 1930 -i
tengslum við síldarstarfsemi sem
Norðmenn byggðu á Eyri. Frá upp-
hafi hafa þeir Jón Guðmundsson,
Kristinn Jónsson og nú síðustu árin
Guðmundur Jónsson séð um vitann.
- V. Hansen.
Fundur um útgáfu fræðirita
BANDALAG háskólamanna, BHM, stóð fyrir opnum fundi þriðjudag-
inn 12. maí sl. um efnið: Ríkið og útgáfa fræðirita. Meginmarkmið
fundarins var að fá fram umræður um hvernig haga skuli stuðningi
ríkisins við útgáfu fræðirita þannig að fé til þeirra mála nýtist sem best.
Framsögumenn á fundinum voru
Helga Kress, bókmenntafræðingur,
Ari Trausti Guðmundsson, jarð-
fræðingur, og Halldór Guðmunds-
son, útgáfustjóri Máls og menning-
ar. í fróðlegum framsöguerindum
og umræðum að þeim loknum kom
skýrt fram sú skoðun fundarmanna
að ríkið hefði augljósum skyldum
að gegna við gerð, útgáfu og dreif-
ingu fræðirita, en nauðsynlegt væri
að endurskoða rækilega núverandi
framkvæmd þessara mála. í fram-
haldi af þessum fundi ályktaði
framkvæmdastjórn BHM eftirfar-
andi á fundi sínum 19. maí sl.
„Framkvæmdastjórn BHM minn-
ir á að útgáfa fræðirita er einn af
hornsteinum þjóðmenningar og for-
senda þróunar ýmissa fræða og vís-
inda. Slík útgáfa skilar sjaldnast
hagnaði á stuttum tíma, og því hlýt-
ur að koma til stuðningur hins opin-
bera. Á þetta ekki síst við í fámenn-
um samfélögum með lítinn markað.
Framkvæmdastjóm BHM skorar
því á stjórnvöld að sjá til þess að
fyrirhugaðar breytingar á bókaút-
gáfu á vegum ríkisins verði ekki til
þess að fjárveitingar til fræðiritaút-
gáfu dragist saman heldur verði
í fréttatilkynningu frá undirbún-
ingsnefnd mótmælafundarins segir,
að hvalveiðiþjóðimar ísland, Noreg-
ur og Japan muni reyna að fá hval-
veiðibanninu aflétt á fundi hval-
veiðiráðsins. Örlög þeirra hvala sem
eftir em í sjónum velti á afstöðu
ráðsins og mótmælafundurinn geti
verið síðasta tækifærið til að sýna
hvalveiðimönnum að yfirgnæfandi
meirihluti almennings sé þeirrar
skoðunar að hætta eigi þessari til-
þær þvert á móti auknar. Jafnframt
er bent á mikilvægi þess að þannig
sé staðið að þessum stuðningi að
flárveitingar nýtist sem best.-Þetta
verður best tryggt með því að út-
hlutun fjár sé í höndum fagfólks
sem starfi óháð stjórnmálaflokk-
gangslausu og grimmilegu slátmn,
eins og það er orðað í fréttatilkynn-
ingunni.
Að mótmælafundinum standa
m.a. Grænfriðungar, World Wide
Fund for Nature, Whale and Dolp-
hin Conservation Society og Envir-
onmental Investigation Agency.
Ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins hefst mánudaginn 29. júní en
úrsögn íslendinga úr ráðinu tekur
gildi daginn eftir.
um.
Mótmælafundur gegn
hvalveiðum í Glasgow
BRESK umhverfisverndarsamtök eru að skipuleggja mótmælafund
gegn hvalveiðum í Glasgow í Skotlandi, kvöldið áður en ársfundur
Alþjóðahvalveiðiráðsins hefst þar í lok júní.
UTIGRILL
Utigrill er orðið fastur liður í matarmenningu okkar íslendinga. Við bíðum ekki bara eftir sumrinu heldur líka grili-
veðrinu, og það virðist ætla að verða löng bið núna. Sumir hafa ekkert skeytt um veðrið, hafa haldið sínu striki
og grillað. En erfítt er að grilla í köldu veðri, einkum ef hvasst er. Flest grill em úr þunnu blikki og hleypa kuldanum
í gegnum sig, en þar sem loftkæling er mikil er erfitt að grilla. Það næst aldrei góður árangur.
Sunnudagsmorguninn 3. maí sá ég kríuna koma á Garðaholtið til mín, fyrst komu þrjú pör eins og til að kanna aðstæður,
en skömmu síðar komu þær í stórum hópum. Þá fannst mér sumarið vera komið. Tveimur dögum síðar, þegar fólk á Stór-
Reykjavíkursvæðinu vaknaði við það að mikill snjór hafði fallið um nóttina, hljóp fjögurra ára dóttursonur minn inn til mömmu
sinnar og hrópaði fokvondur: „Þið skrökvuðuð að mér, þið sögðuð að það væri komið sumar, það er ljótt að skrökva. „Bless-
að barnið, var það nema von, sumardagurinn fyrsti ferskur í minni og tíu dagar liðnir áf sumri. En við erum nú á Islandi og
það hefur áður sumrað seint. En krían reiddist eins og drengurinn, það hætti að heyrast í henni og öðrum fuglum, en lóan sem
ég hafði fagnað nokkrum dögum fyrr hvarf af holtinu og hefur ekki komið
aftur. Það má segja að raddir vorsins hafi þagnað. í morgun, 14. maí, var
kríunni runnin reiðin og hún lék á als oddi og vakti mig með látum við sólar-
upprás. Hefur líklega verið að segja mér að fara á fætur og grilla, en ég var
nú ekki í þeim hugleiðingum. En um kvöldið var hið besta veður, þótt hitinn
væri ekki nema 5 stig og ég stóðst ekki mátið og grillaði sítrónu/hunangs-
kjúkling. Þegar ég stakk fyrsta munnbitanum
upp í mig leit ég út um gluggann á kríu sem ——=<5—______________< •> -v >
flaug yfir grillinu og tók í nefið ilminn af peru- ——-—*—
tertunni sem var að bakast á því.
Sítrónu-hunangskj úklingur
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
2 kjúklingar, 1,2— 1,5 kg hvor
'h dl sítrónusafi
'h matarolía
1 msk. hunang
1 tsk. ferskt timian
eða 1 ‘/2 tsk. þurrkað
‘/2 tsk. paprikuduft
IV2 tsk. salt
1. Kreistið safa úr sítrónu, setjið
í skál ásamt matarolíu, timían,
paprikudufti, salti og hunangi,
sem gott getur verið að hita örlít-
ið áður en því er blandað saman
við.
2. Hlutið kjúklingana í sundur,
takið læri frá og kljúfið bringur.
Penslið alla bitana með leginum
og látið bíða í 1-2 klst.
3. Hitið grillið, setjið mjóa ál-
bakka milli viðarkolanna á grillinu
til að taka við fitu. Hitið grindina,
penslið síðan með matarolíu. Stað-
setjið grindina í miðrim á kola-
grilli en hafið millihita á gasgrilli.
Takið kjötbitana úr leginum, en
geymið hann. Þerrið bitana örlítið,
leggið síðan á heita grindina, lát-
ið haminn snúa upp. Penslið öðru
hveiju með leginum. Snúið við
eftir 20 mínútur og grillið í 15
mínútur á hinni hliðinni.
Meðlæti: hrásalat með ferskum
sveppum, sjá hér á eftir. Athugið:
hægt er að nota íslenskt villt blóð-
berg (thymus arcticur) en það er
milu bragðminna en hið ræktaða,
(thymus vulgaris).
Hrásalat
'h meðalstór kínakálshaus
150 g ferskir sveppir
nokkur strá ferskur graslaukur
safí úr 'h sítrónu
‘Adl matarolía
salt milli fingurgómanna
nýmalaður pipar
1 skvetta úr tabaskósósuflösku
1. Þvoið kínakálið, skerið þvert í
þunnar sneiðar.
2. Burstið sveppina eða þerrið
vel. Þvoið ekki.
3. Þvoið graslaukinn og klippið
smátt. Setjið saman við.
4. Setjið sítrónusafa og matarolíu
í hristiglas, setjið salt og tabaskó-
sósu saman við, hristið og hellið
yfir salatið. Malið pipar yfír.
Blandið saman með tveimur göffl-
um.
Þessa köku er bara hægt að
baka á gasgrilli.
Perukaka raeð íssósu
2 egg
1 dl sykur
1 dl hveiti
’Atsk. lyftiduft
2 msk. mjólk
2 ferskar perur
súkkulaði-íssósa
kringlótt álform, 25 cm í þvermál
1. Þeytið saman egg og sykur.
2. Setjið hveiti, lyftiduft og mjólk
út í og hrærið lauslega saman.
3. Smyijið álformið. Setjið deigið
í það.
4. Afhýðið perurnar, stingið úr
þeim kjarnann, skerið í rif og rað-
ið ofan á deigið.
5. Setjið íssósu í hringi ofan á.
Byrjið að setja sósu á út við kant-
inn.
6. Bakið kökuna á gasgrilli, hafið
mesta hita á öðru hólfinu, en
slökkt undir hinu, og á því á kakan
að vera. Bakið í 20-30 mínútur.
Snúið kökunni öðru hveiju, þann-
ig að sama hliðin snúi ekki alltaf
að hitanum.