Morgunblaðið - 02.06.1992, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992
27
Belgía;
Tekjumar af EB og
tengdri starfsemi
um 170 milljarðar
Brusscl. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
í SKÝRSLU, sem tekin var saman fyrir borgaryfirvöld í Brussel um
fjárhagslegan ávinning borgarinnar af veru Evrópubandalagsins
(EB) þar, kemur fram að þegar allt er talið eru tekjur Belga rúm-
lega 170 milljarðar ÍSK á ári af EB og starfsemi í tengslum við
bandalagið.
Skýrslan var tekin saman í fram-
haldi af háværri gagnrýni á meintan
yfirgang moldríkra embættismanna
EB og starfsmanna sendiráða í
borginni sem sagðir eru leggja und-
ir sig bestu veitingastaðina og bíla-
stæðin.
í skýrslunni kemur fram að ef
allt er talið - starfsmenn EB og
sendiráða, fulltrúar þrýstihópa og
blaðamenn, auk venslafólks - er
flöldi þeirra sem hefur viðurværi
sitt af veru EB í Brussel nálægt
46.000 manns. Helmingur þeirra
er Belgar.
Sérstakur ráðherra Brussel-
borgar fer með samskipti við út-
lendingana en hann lét taka skýrsl-
una saman til að sýna löndum sínum
fram á að vera EB í borginni skipti
miklu máli fyrir hana, ekki einung-
is fyrir efnahaginn heldur og mann-
lífíð. Þó svo Belgar kvarti yfír 75%
hækkun á fasteignaverði í Brussel
frá 1985 er ljóst að stærstur hluti
þeirrar hækkunar rennur í þeirra
eigin vasa. Þá er bent á að góð
veitingahús og öflugt menningarlíf
byggi að umtalsverðum hiuta á
bjargálna embættismönnum EB og
annarra.
Samkvæmt skýrslunni eru tæp-
lega 600 blaðamenn víðsvegar að
úr heiminum í Brussel. Aðeins í
Washington eru þeir fleiri. Þótt
■ ANCHORAGE - Ejögurra
fjallgöngumanna var saknað á
McKinley-fjalIi í gær og talið var
að þeir hefðu hrapað niður gilskorn-
ing við fjallstindinn á 5.791 meters
hæð. Ekki var skýrt frá því hvers
lenskir mennimir voru. Hafí íjór-
menningamir beðið bana hafa alls
ellefu týnt lífí á fjallinu það sem
af er árinu, eða fleiri en nokkm
sinni. McKinley er hæsta fjall Norð-
ur-Ameríku.
skýrslan leiði í ljós að blaðamenn
séu mun aðhaldssamari í eyðslu
sinni en embættismenn er minnt á
að þeir beri orðstír Bmssel og Belg-
íu um heimsbyggðina alla sem sé
framlag sem seint verði metið til
fjár.
Andstæðingar Maastricht-samkomulagsins lýstu Evrópubandalaginu sem samkomu svínslegra aurapúka
________________ á hátíðinni „Rokk gegn Brussel“.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um Maastricht-samkomulagið í Danmörku:
Poul Schliiter biður Dani
að afstýra „sögulegu slysi“
VÍÐA í Evrópu bíða menn með öndina í hálsinum eftir að heyra álit
Dana á Maastincht-samkomulaginu í þjóðaratkvæðagreiðslu í dag. Verði
það fellt er samkomulagið, sem tólf ríki Evrópubandalagsins (EB) börðu
saman á tólf mánuðum, í raun að engu orðið. Poul Schluter forsætisráð-
herra hefur beðið landa sína að samþykkja samninginn og forða Dan-
mörku þannig frá „sögulegu slysi“. Verði það ekki gert muni EB ekki
veita öðrum Norðurlöndum inngöngu í bráð.
getur sakað Dani um að hafa ekki
Fjórar milljónir danskra kjósenda
eiga þess kost að staðfesta eða fella
samkomulagið, sem meðal annars
kveður á um sameiginlega mynt og
aukið samstarf EB-ríkjanna í utan-
ríkis- og efnahagsmálum. Ekkert
annað ríki gefur þegnum sínum tæki-
færi á að kjósa um samkomulagið á
beinan hátt, nema írland, sem heldur
þjóðaratkvæðagreiðslu um miðjan
þennan mánuð. Forystumenn Evr-
ópubandalagsins eru því að vonum
kvíðnir og það yrði erfíður biti að
kyngja fyrir þá ef þriðja fámennasta
ríkið í bandalaginu ýtti áætlunum
um frekari sameiningu aftur á byij-
unarreitinn.
Það er ekki heiglum hent að skilja
Maastrict-samkomulagið, en enginn
reynt það. 300.000 eintök af texta
þess í heild sinni seldust eins og
heitar lummur svo að prenta þurfti
fleiri. „Enginn maður getur lesið allt
samkomulagið og skilið það, ekki
einu sinni ég þó að ég hafí samið
um það,“ sagði Uffe Ellemann-Jens-
' en, utanríkisráðherra Dana. Til að
einfalda málið lét hann gefa út upp-
lýsingabækling með heitinu „107
spurningar um hina nýju Evrópu“.
Andstæðingar samkomulagsins
sögðu það sýna hvers konar lang-
hundur það væri þegar einfölduð
útgáfa þess kæmist ekki af með
færri en 107 -spumingar.
„Rokk gegn Brussel“
Ekki hafa allir andstæðingar Ma-
astricht puðað í gegnum slíkt torf,
enda á andúð á skrifræði og miðstýr-
ingu stóran þátt í afstöðu margra
þeirra. Á fímmtudag voru haldnir
tónleikar á Kristjánsborgar-torgi í
Kaupmannahöfn undir yfirskriftinni
„Rokk gegn Brussel", þar sem þús-
undir ungmenna hrópuðu slagorð á
borð við „Evrópusamband - nei!“ á
milli laga.
Sumir Maastricht-andstæðingar
segja að verði samkomulagið fellt
geti Danmörk samið upp á nýtt um
opnari stjórnarhætti í EB og
auðveldari inngöngu nýrra ríkja.
Poul Schluter og Uffe Ellemann-
Jensen eru ekki á sama máli, eins
og nærri má geta. Schluter segir að
verði samkomulagið fellt muni hin
EB-ríkin 11 semja sín á milíi og skilja
Dani útundan. Slíkt muni hafa af-
drifaríkar afleiðingar fyrir efnahag
Dana, sem búa nú við lægstu verð-
bólgu EB-ríkjanna og hagstæðan
viðskiptajöfnuð. Nú sé tækifæri til
að takast á við atvinnuleysið, sem
er nærri 11 prósent, en það verði
ekki auðvelt ef Danmörk verður
„skilin eftir“ í þróuninni í Evrópu.
Fimm af átta stjómmálaflokkum
á þingi styðja Maastricht-samkomu-
lagið, en þrír eru andvígir því. Þar
við bætist að flestir fjölmiðlar og
hagsmunasamtök eru í „Já“-hópn-
um.
Þetta virðist hafa haft nokkur
áhrif á Dani, því skoðanakannanir
benda til þess að þeir séu heldur að
hallast að því að staðfesta samkomu-
lagið. Fyrir rúmri viku mældust and-
stæðingar Maastricht heldur fleiri
en hinir, en á miðvikudag sýndi Gall-
up-könnun 6 prósentustiga forskot
„Já“-manna og á laugardag var
munurinn orðinn 9 prósent.
Bent er á að í þjóðaratkvæða-
greiðslum um aukna sameiningu við
Evrópu árin 1972 og 1986 hafí Dan-
ir sagst vera andvígir í könnunum,
en verið samþykkir þegar á reyndi á
kjördag.
ton tryggi sér sigur í kosningunum
3. nóvember. Eins og kunnugt er
er ekki um beinar forsetakosningar
að ræða. Sigurvegari í hvetju ríki
fær kjörmenn þess ríkis og það er
svo kjörmannaráðið, sem kemur
saman að loknum kosningum, sem
velur forsetann. Ráðið er skipað 538
kjörmönnum og þarf stuðning 270
þeirra til að hreppa forsetaembætt-
ið. Samkvæmt nýjustu skoðana-
könnunum eygir Perot möguleika á
sigri í níu ríkjum Bandaríkjanna sem
samtals myndu færa honum 136
kjörmenn. Bush hefur forystu í sext-
án ríkjum sem tryggir honum 183
kjörmenn en Clinton hefur einungis
forystu í sínu eigin heimaríki,
Arkansas, þar sem eru sex kjör-
menn.
Ef enginn frambjóðandi fær 270
kjörmenn kemur til kasta fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings. Slíkt hefur
gerst tvisvar áður, 1801 og 1825.
I síðara skiptið hafði Andrew Jack-
son fengið flesta kjörmenn en full-
trúadeildin valdi eftir mikil hrossa-
kaup John Quincy Adams. í deild-
inni eru fimmtíu fulltrúar, einn frá
hveiju ríki, og þyrfti atkvæði 26
þingmanna til að sigra. Liklegt er
að Bill Clinton stæði vel að vígi ef
fulltrúadeildin þyrfti að skera úr,
því demókrataflokkurinn er þar með
meirihluta. Kenningar eru uppi um
að ef mjótt yrði á munum milli fram-
bjóðendanna þriggja þá kynni full-
trúadeildin að velja einhver allt ann-
an og hefur Lloyd Bentsen öldunga-
deildarþingmaður verið nefndur í
því sambandi.
FALLEGAR LINUR
Civic hefur verið endurhannaður með
nýjar kröfur samtímans í huga. Nútímabílar
þurfa að vera kraftmiklir og þægilegir, en
jafnframt taka tillit til umhverfisins.
Efnin sem notuð eru í Civic eru 80%
s endurvinnanleg sem hefur mikið að segja
þegar horft er til framtíðarinnar. VTEC er
nýjung í Civic sem opnar ventlana í
hlutfalli við snúningshraða vélarinnar.
Þessi tækni dregur mjög úr mengun og
eyðslu en eykur kraft vélarinnar.
Civic er búinn skemmtilegum innrétt-
ingum. Hver hlutur er á hinum eina rétta
stað. Sætin eru mjúk og þægileg.
Civic fellur undir reglugerð um virðis-
aukaskatt og fæst því einnig án vsk.
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24,
mánudaga til föstudaga kl. 9:00 - 18;00 og
laugárdaga kl. 11:00 — 15:00.
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
Verð frá: 969.000,- stgr.
Verð frá: 778.313,- stgr. án VSK
Greiðslukjör við allra hæfi.
(0
HONDA