Morgunblaðið - 02.06.1992, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ VJÐSHPn/HVWNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992
32
Atvinnurekendur
Flótti fjármagns og at-
gervis aðal keppinauturinn
Selfossi.
ATORKA, samtök atvinnurekenda á Suðurlandi, var stofnuð 7.
maí. Um er að ræða samtök fyrirtækja, einstaklinga og félaga
eða samtaka þeirra á Suðurlandi sem stunda viðskipti á samkeppn-
isgrundvelli. Formaður Atorku var kosinn Þorsteinn S. Asmunds-
son, framkvæmdastjóri Suðurgarðs hf. á Selfossi. Markmið Atorku
er að vinna að framfaramálum atvinnulífs á félagssvæðinu á öllum
sviðum og vera vettvangur fyrir hugmyndir og umræður um
„Við verðum að gera okkur ljósa
grein fyrir því að hinn raunveru-
legi andstæðingur og keppinautur
okkar er flótti fjármagns, atgervis
og verkefna af svæðinu vegna
þess að heimaaðilarnir eru ekki
samkeppnisfærir," sagði Þorsteinn
Ásmundsson, formaður Atorku.
Hann vitnaði í ávarpi sínu til ný-
legrar Gallup-könnunar þar sem
kemur fram að um fjórðungur
heimila á Suðurlandi kaupir 50%
eða meira af daglegum nauðsynja-
vörum sínum á höfuðborgarsvæð-
inu. Einnig kemur fram í könnun-
inni að fólk telur að helstu vanda-
mál Suðurlands séu of fá og fá-
breytt atvinnutækifæri. Fram
kemur og að 28% ungmenna á
aldrinum 18-24 ára vilja helst
flytja úr landshlutanum.
„Þetta eru ógnvænlegar upplýs-
ingar og við þessu þarf að bregð-
ast. Hér beinast spjótin ekki hvað
síst að okkur. Við verðum að
leggja okkar lóð á vogarskálarnar
svo snúa megi þessari óheillavæn-
legu þróun við.
Eg sé Atorku fyrir mér sem
vettvang þar sem félagarnir þjapp-
ast saman til samstarfs um stærri
og flóknari verkefni. Þar sem við
treystum innviðina með fræðslu-
og námskeiðahaldi, þar sem við
þrýstum á stjórnvöld um eigi lak-
ari rekstrarskilyrði en hjá sam-
keppnisaðilum, innanlands sem
utan, þar sem við vinnum með
bæjar- og sveitarstjórnum að ný-
sköpun og framþróun atvinnulífs
og þar sem við berum fulla virð-
ingu fyrir umhverfismálum og
náttúruvernd," sagði Þorsteinn
Ásmundsson, formaður Atorku.
Aðrir sem kosnir voru í stjórn eru:
Birgir Guðmundsson, mjólkurbú-
stjóri Mjólkurbús Flóamanna,
Bergsteinn Einarsson, Seti hf.,
Pétur Reimarsson, Árnesi hf., og
Guðmundur Ingvarsson, G-verki
hf. í varastjórn voru kosnir Örn
Grétarsson, Prentsmiðju Suð-
urlands, og Fannar Jónasson,
Fannbergi sf., Hellu.
Sig. Jóns.
Bílar
Fiat setur á stofn
nýtt fyrirtæki í Póllandi
Ungverskt
flugfélag
eftirsótt-
ur sam-
starfsaðili
PÓLSKA ríkisstjórnin og ít-
alski bílarisinn Fiat hafa samið
um að setja á stofn nýtt fyrir-
tæki í Póllandi sem mun yfir-
taka pólska bílaframleiðandann
FSM. Samningurinn er talinn
vera stærsta erlenda fjárfest-
ingin í Póllandi fram að þessu.
Heildarhlutafé hins nýja fyrir-
tækis mun verða um 200 milljónir
dollara og mun 90% þess verða í
eigu Fiat, en 10% í eigu pólska
ríkisins. I heild hefur Fiat heitið
að fjárfesta alls 2 milljörðum dala
í fyrirtækinu.
Að sögn aðalsamningamanns
Fiat er innifalið í þessum 2 millj-
örðum um það bil 800 milljón doll-
ara greiðsla til ýmissa aðila vegna
hönnunar og markaðssetningar
Fiat Cinquecento, sem kynntur var
í desember síðastliðnum, en hann
er framleiddur af FSM. Að öðru
leyti felst íjárfestingin í margs
konar endumýjun verksmiðjanna
og nýrra vélasem nota á við fram-
leiðslu nýs bfls sem taka á við af
Fiat 126.
Hið nýja fyrirtæki mun verða
stærsta framleiðslueining Fiat ut-
an Ítalíu. Forsvarsmenn Fiat segj-
ast staðráðnir í að sýna fram á
að hægt sé að fjárfesta í Póllandi
og hafa þegar lagt 500 milljónir
dollara til hliðar í því skyni að
heija tæknivæðingu FSM.
Á svipuðum tíma og samningur-
inn var kynntur staðfesti Fiat að
nú þegar væru hafnar viðræður
við pólsk yfírvöld um enn frekari
ijárfestingar í Póllandi. Ekki hefur
fengist staðfest um hvað viðræð-
urnar snúast, en talið er að rætt
sé um náið samstarf eða yfirtökur
innan rafeindatækniiðnaðar.
Hólaskóli Hólum í Hjaltadal
Á Hólum getur þú stundað
lifandi starfsnám á fögrum og friðsælum stað!
Almenn búfjárrækt - sauðfjárrækt - jarðrækt
- bútækni - bústjórn - tölvufræði - bleikjueldi
- hrossarækt.
Á Hólum eru ný kennslufjárhús og athyglisverður fjárstof n.
Á Hólum er miðstöð rannsókna í bleikjueldi.
Á Hólum er hrossakynbótabú ríkisins.
Á Hólum er gott hesthús og reiðkennsluhús.
Á Hólum hafa nemendur aðgang að vel búnu tölvuveri.
Umsóknarf restur er til 10. júni.
Takmarkaður nemendafjöldi.
Bændaskólinn Hólum I Hjaltadal,
551 Sauðárkrókur.
Sími: 95-35962. Símbréf: 95-36672.
Vilja auka viðskipti
Islands ogsuðurríkja
Bandaríkjanna
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morg^unblaðsins.
INNAN Íslenzk-ameríska verzlunarráðsins, sem hefur aðalstöðvar
sínar í New York, hefur nú verið stofnuð deild sem tekur til suður-
ríkjanna þriggja, Louisiana, Mississippi og Alabama. Aðalmarkmið
félagsskaparins er að greiða fyrir viðskiptum og menningarlegum
tengslum á milli þessa svæðis og íslands. Enn sem komið er hafa
aðeins sex forsvarsmenn fyrirtækja gerst fullgildir aðilar, en
margir hafa sýnt málinu áhuga og munu gerast félagsmenn þegar
deiidinni vex fiskur um hrygg.
Driffjöður þessa félagsskapar
er Greg Beuerman, sem rekur ráð-
gjafarfyrirtæki í New Orleans með
víðtækum samböndum við ýmsa
framleiðendur og fyrirtæki í Miss-
issippi og Alabama. íslenzk-amer-
íska verzlunarráðið í New York,
svo og sendiráð íslands í Washing-
ton og Bandaríkjanna í Reykjavík,
hafa einnig veitt þessu máli lið-
sinni sitt.
Meðal viðskiptaaðila, sem hin
nýstofhaða deild Íslenzk-ameríska
verzlunarráðsins hefur góð sam-
bönd við, eru framleiðendur
ýmissa matvæla og íblöndunar-
Fyrirtæki
efna, fatnaðar, íþróttavarnings,
iðnvarnings af ýmsu tagi svo og
aðilar ferðamála.
Að sögn Gregs Beuermans er
verið að undirbúa 3-5 daga hóp-
ferð viðskiptaaðila til Reykjavíkur
til að stofna til gagnkvæmra við-
skiptasambanda þar. Þessi þrjú
suðrænu ríki Bandaríkjanna eru
um margt athyglisverð. Þar er iðn-
aðarframleiðsla á mjög háu stigi
og fyrir íslenzkt ferðafólk er svæð-
ið nýstárlegt. Heimilisfang Beuer-
mans er 228 St. Charles Ave.,
Suite 1333, New Orleans, LA
70130. Faxnr. 504-524-3344.
STÓRU flugfélögin í Evrópu,
British Airways, Lufthansa og
KLM, keppa nú hart um að kom-
ast yfir það hlutafé sem ætlunin
er að selja í ungverska ríkisflug-
félaginu Malev, en það eru um
35%.
Samningaviðræður milli flugfé-
laganna þriggja og ungversku ríkis-
stjórnarinnar hafa þegar staðið yfir
um nokkurt skeið og vonir standa
til að unnt verði að ljúka þeim nú
fyrri part sumars. Um er að ræða
35% hlut í félaginu og er það hluti
af áætlunum ríkisstjómarinnar um
einkavæðingu.
Hinn mikli áhugi stóru flugfélag-
anna kemur til af því að Malev á
einhvern nýjasta og gróðavænleg-
asta flugflota í Evrópu auk þess
sem náið samstarf tryggir aðgang
að flugvellinum í Búdapest sem er
í hjarta hinnar nýju Evrópu og er
líklegur til að verða mikilvægur
þegar fram líða stundir.
Mikil uppbygging hefur átt sér
stað á undanförnum árum hjá
Malev og stendur reyndar enn yfir.
Áætlað er að fjárfesta fyrir um 400
milljónir dollara á næstu tveimur
árum og er hugmyndin að láta söl-
una fjármagna þær að hluta. Enn-
fremur kemur til greina að Evr-
ópski þróunarbankinn kaupi hlut í
félaginu eða styðji það með öðmm
hætti þegar samningar við sam-
starfsaðila eru frágengnir.
PepsiCo og General Mills
sameinast í Evrópu
BANDARÍSKU stórfyrirtækin PepsiCo og General Mills hafa
ákveðið að sameina starfsemi sína innan skyndibitaframleiðslu í
Evrópu. Sameiningin er þó háð samþykki Evrópubandalagsins.
Með sameiningunni mun hið
nýja fyrirtæki keppa um forystuna
á markaðnum fyrir skyndibitafæði
í Evrópu, þar sem hið breska fyrir-
tæki KP-foods er umsvifamest
fyrir. Önnur öflug fyrirtæki eru
Bahlsen frá Þýskalandi, BSN frá
Frakklandi og San Carlo frá Ítalíu.
Bandarísku fyrirtækin passa
ótrúlega vel saman innan Evrópu.
General Mills á verksmiðjur í
Frakklandi, Belgíu og Hollandi og
hefur forystu á markaðnum þar
en PepsiCo á verksmiðjur á Spáni,
Grikklandi og Portúgal. Ennfrem-
ur nota fyrirtækin svipaða tækni
við framleiðsluna, og bæði dreifí-
kerfí og markaðskerfi eiga vel
saman.
PepsiCo mun eiga 60% hlutafjár
hins nýja fyrirtækis og General
Mills 40% en engar beinar
peningagreiðslur munu eiga sér
stað. PepsiCo mun annast dagleg-
an rekstur hins nýja fyrirtækis en
skipun allra helstu yfirmanna mun
þó verða í samræmi við skiptingu
hlutafjár. Alls munu starfa 4.650
manns hjá fyrirtækinu og það mun
reka 8 verksmiðjur í 6 löndum nú
í upphafi en þegar eru uppi áætl-
anir um byggingu nýrra verk-
smiðja.
í sameiningunni felst trú á því
að neytendur í Evrópu muni fylgja
í kjölfar bandarískra neytenda en
í Bandaríkjunum hefur neysla
skyndifæðis aukist gífurlega á síð-
ustu 10 árum. Samhliða því hefur
hagnaður fyrirtækja á þessu sviði
margfaldast. Þannig er hagnaður
PepsiCo af skyndifæðu í dag meiri
en hagnaðurinn af sölu gosdrykks-
ins;
í Evrópu þykjast menn nú sjá
þess merki að þar eigi sér stað
sama þróun. Aukin atvinnuþátt-
taka kvenna hefur leitt til þess
að fjölskyldur borða sjaldnar sam-
an og neysla skyndifæðu hefur
aukist. Forsvarsmenn PepsiCo og
General Mills telja að þegar neysla
skyndifæðu hefur fest sig í sessi
muni hún, eins og í Bandaríkjun-
um, stöðugt aukast og kalla á æ
meiri fjölbreytni.