Morgunblaðið - 02.06.1992, Page 34
Reykjavík-Mývatnssveit:
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fjölmargir þátttakendur á íþróttadegi
F]ölmargir tóku þátt í dagskrá íþrótta- og útivistardags sem haldinn var notkun og börn sem leið áttu um Kjamaskóg fengu að prófa risatram-
í þriðja sinn á Akureyri á laugardag. Margs konar íþróttagreinar voru bolín, og setjast á bak Grána, einum af stærstu hestum landsins. Þá
kynntar almenningi, fræðsluerindi haldin, hjólabrettabraut var tekin í tóku margir þátt í Krabbameinshlaupinu sem efnt var til þennan dag.
Daglegt
áætlunarflug
Björk, Mývatnssveit.
MYFLUG HF. í Mývatnssveit hef-
ur hafið daglegt áætlunarflug
milli Reykjavíkur og Mývatns-
sveitar.
Brottför úr Reykjavík er á morgn-
ana kl. 7.50 og úr Mývatnssveit á
kvöldin kl. 19. Þess má geta að elli-
lífeyrisþegar fá 50% afslátt og sömu
fjölskyldufargjöld, Apex- og Pex-far-
gjöld, og gilda hjá Flugleiðum gilda
hjá Mýflugi. Síðastliðið sumar gekk
áætlunarflug Mýflugs mjög vel.
- Kristján
Alþjóðleg
ráðstefna um
Menor - menningardagskrá júní 1992
Þriðjudagur 2. júní:
Fredenskirkjunni í Árhus í Dan-
mörku kl. 19.30. Kór Akureyrar-
kirkju, stjórnandi Bjöm Steinar
Sólbergsson. Á efnisskránni verða
íslensk verk.
Miðvikudagur 3. júní:
Silkeborgkirke í Silkeborg,
Danmörku, kl. 19.30. Kór Akur-
eyrarkirkju, stjórpandi Bjöm
Steinar Sólbergsson.
Föstudag 5. júní:
Húsavíkurkirkja kl. 20.30. Org-
eltónleikar, Wolfgang Tretsch,
(ísafirði).
Laugardag 6. júní:
Akureyrarkirkja kl. 12.00. Há-
degistónleikar: Wolfgang Tretsch,
orgelverk eftir Bach, Distler, Ki-
el, Eben. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu á eftir.
Dyssegárdkirke í Hellerup,
Danmörku, kl. 17.00. Kór Akur-
eyrarkirkju, stjórnandi Bjöm
Steinar Sólbergsson.
Sunnudag 7. júní (hvítasunnu-
dagur):
Holmenkirke í Kaupmanna-
höfn, Danmörku, kl. 14.00. ís-
lensk messa, Kór íslenska safnað-
arins í Kaupmannahöfn. Messu-
kaffi í Jónshúsi á eftir.
Föstudagur 12. júní:
Dalvíkurkirkja kl. 20.30. Dóm-
kórinn, stjórnandi Marteinn H.
Friðriksson.
Laugardagur 13. júní:
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 12.15. Tónleikar í
tengslum við aðalfund Menor,
ýmsir flytjendur.
Dalvíkurkirlq'a kl. 17.00. Minn-
ingartónleikar. Söngkonurnar
Halla Jónasdóttir og Fríður Sig-
urðardóttir ásamt Kára Gestssyni
píanóleikara flytja íslensk ein-
söngs- og tvísöngslög.
Sunnudagur 14. júní:
Breiðumýri í Reykjadal kl.
15.00. Söngur og sólstöðukaffi.
Kvennakórinn Lissý, Hildur
Tryggvadóttir sópran, Ragnar
Þorgrímsson píanó, stjómandi
Margrét Bóasdóttir.
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 17.00. Undrabörnin frá
Rússlandi. Listahátíð í Reykjavík
og Tónlistarskólinn á Akureyri
standa fyrir komu fimm framúr-
skarandi unglinga frá Rússlandi.
Laugardag 20. júní:
Martinskirche Múnsingen í
Þýskalandi kl. 19.30. Kór Glerár-
kirkju, stjórnandi Jóhann Bald-
vinsson. Á efnisskránni verða ís-
lensk verk.
Sunnudag 21. júní:
Safnahúsið á Húsavík kl. 20.30.
Pavol Kovac, píanó, (Þýskalandi).
Hólar í Hjaltadal. Dómkórinn,
stjómandi Marteinn H. Friðriks-
son.
Fimmtudagur 25. júní:
Lovísa í Finnlandi (Vinabær
Ólafsfjarðar). Kirkjukór Ólafs-
Qarðar, stjórnandi Jakub Ko-
losowski, Lidia Kolosowska píanó.
Á efnisskrá em íslensk lög.
Þriðjudagur 30 júní:
Dómkirkjan Kornelimúnster í
Aachen, Þýskalandi, kl. 19.30.
Kór Glerárkirkju, stjómandi Jó-
hann Baldvinsson.
Listsýningar
Sýningarhópurinn Trójuhestur-
inn. Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju 10.-21. júní. Málverk,
grafík, skúlptúrar eftir Sólveigu
Eggertsdóttur, Sigurð Örlygsson,
Sigrid Valtingojer, Guðrúnu
Kristinsdóttur, Kristin Hrafnsson,
Önnu Eyjólfsdóttur, Ólöfu Sigurð-
ardóttur.
Mannlíf á Siglufirði frá 1930 til
okkar daga. Ljósmyndasýning.
Nýja bíó á Siglufirði. Opið frá
9-21 alla daga í sumar. Stein-
grímur Kristinsson og Kristfinnur
Guðjónsson Ijósmyndarar.
Menning
Menningarsamtök Norðlend-
inga, Menor, halda fund sinn í
safnaðarheimili Akureyrarkirkju
laugardaginn 13. júní kl. 10.30
f.h. í tengslum við fundinn verða
m.a. tónleikar kl. 12.15.
Vinabæir Akureyrar á Norður-
löndum halda mót 22.-28 júní.
Þemað er bókmenntir.
Menor — menningardagskrá
fyrir júlí birtist næst þriðjudaginn
30. júnf 1992.
Dagskrá þessi er byggð á upp-
lýsingum sem berast símleiðis til
tengiliða í hverri sýslu Norðlend-
ingafjórðungs. Dagskráin er birt
með fyrirvara um breytingar.
köfnunjurta
haldin í júní
ALÞJÓÐLEG ráðstéfna sérfræð-
inga í jurtalífeðlisfræði og jurta-
lífefnafræði verður haldin að
Hrafnagili i Eyjafjarðarsveit dag-
ana 24. til 28. júní næstkomandi.
Á ráðstefnunni verður rætt um líf
jurta við lágan hita og súrefnisskort
og til hennar er boðið fimmtán fær-
ustu vísindamönnum á þess afmark-
aða fræðisviði, en þeir munu flytja
erindi sem tengjast köfnun jurta,
aðallega köfnun við lágan hita.
Köfnun jurta verður annað hvort
þegar vatn flæðir yfir gróðurlendi
og stendur þar langtímum saman,
eða þegar langæ svell hylja gróður
að vetri og valda svellkali. Á ráð-
stefnunni verða bæði flóðaskemmd-
um og svellkali gerð skil og greint
frá lífeðlisfræðilegum og lífefna-
fræðilegum viðbrögðum jurtanna.
Flutt verða yfirlitserindi um viðbrögð
jurtanna við loftfirrðinni, hvaða efni
þær framleiða við þær aðstæður og
hvemig þær skemmast og drepast,
svo og erindi um nýjustu og áður
óbirtar rannsóknarniðurstöður á
þessu sviði.
Að ráðstefnunni standa, ISPA,
alþjóðafélag vísindamanna um loft-
firrða öndun plantna og Tilrauna-
stöðin á Möðruvöllum, en Menning-
ar- og fræðslustofnun Sameinuðu
þjóðanna og Landbúnaðarráðneytið
veittu styrki vegna ráðstefnunnar.
Dr. Bjami E. Guðleifsson er formað-
ur framkvæmdanefndar ráðstefn-
unnar.
217 brautskráðir frá Verkmenntaskólanum á Akureyri:
Erum enn á krossgötum þegar
ný heimsmynd er framundan
sagði Bernharð Haraldsson skólameistari
Verkmenntaskólanum á Ak-
ureyri var slitið við athöfn í
íþróttahöilinni á Akureyri á
laugardag. Alls brautskráðust
frá skólanum 217 nemendur, en
á föstudag voru brautskráðir
sjókokkar, 1. og 2. stigs vélstjór-
ar og nemendur með almennt
verslunarpróf. Þá voru á Iaugar-
dag brautskráðir 120 stúdentar,
8 sjúkraliðar, 3 er luku matar-
tækninámi, 29 luku iðnnámi, 1
tækniteiknun, 8 meistaranámi
og 1 þriðja stigi vélstjórnar.
í skólaslitaræðu Bemharðs Har-
aldssonar skólameistara kom fram
að við upphaf skólaárs sl. haust
voru nemendur í dagskóla rúmlega
1.100 og um 1.000 á vorönn, þá
voru tæplega 200 manns í öldunga-
deild á haustönn og 140 á vorönn,
en auk þess sóttu rúmlega 200
manns námskeið á hvorri önn.
Um hundrað kennarar kenndu
nokkuð á þriðja þúsund kennslu-
stunda, en kennt var á fimm stöð-
um í bænum. Auk þess störfuðu
nær 30 manns við önnur störf við
skólann. Unnið var að ýmsum
framkvæmdum við skólann á liðnu
skólaári, en á þessu ári fengust
58 milljónir króna til nýfram-
kvæmda og verður haldið áfram
framkvæmdum innanhúss auk
þess sem bygging við nýja bók-
námsálmu verður hafin og vonast
er til að hægt verði að ganga frá
aðkomunni að skólanum. Enn á
eftir að byggja yfir hússtjórnarsvið
og tréiðnaðardeild og sagði Bem-
harð aðstöðu nýtta til hins ýtrasta
og yrði hún brátt í anda forfeðr-
anna.
í ávarpi sínu til nemenda sagði
Bernharð það ekki alltaf hafa ver-
ið létt að vera Islendingur, við
byggjum í stóru landi en værum
ekki fjölmennari en íbúar meðal-
borgar í Evrópu, en samt kölluðum
við okkur þjóð. „Sjálfstæðisbarátt-
an, afsprengi félagslegra hræringa
úti í Evrópu, borin uppi af ungum
menntamönnum og nærð af sterkri
frelsisþrá hins óbreytta íslenska
erfiðismanns; hún hófst fyrir meira
en hálfri annarri öld, henni er enn
ekki lokið, henni lýkur aldrei. Þess
vegna erum við enn á krossgötum,
þegar ný heimsmynd er framundan
og við skulum gæta okkar. Okkur
má aldrei líða úr minni sú harða
og erfiða barátta sem forfeður
okkar háðu með þjóðernishugtakið
að leiðarljósi, „íslands lag“ kallaði
Grímur Thomsen það á síðustu öld
og því nafni heitir það ennþá,“
sagði Bernharð.