Morgunblaðið - 02.06.1992, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 02.06.1992, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992 Glæsihryssan Vör var valin fegurst gæðinga' hjá Sörla, knapi er Guðmundur Einarsson. Fieygur frá Hvassafelli hlaut 8,73 í sætið, knapi er Hinrik Bragason. einkunn hjá Andvara og efsta 3. Kópur, eigandi og knapi Jón Pétur Ólafsson, 25,4 sek. Brokk 300 metrar 1. Goði, eigendur Inga og Daði, knapi Daði Ingvarsson, 44,59 sek. 2. Perla, eigandi og knapi Þorbjörg F. Sigurðardóttir, 49,36 sek. 3. Hvinur, eigandi Agúst V. Odds- son, knapi Ragnar E. Ágústsson, 51,54 sek. Stökk 300 metrar 1. Funi, eigandi Ingvar Björgvinsson, knapi Daði Ingvarsson, 23,35 sek. 2. Kóngur, eigandi og knapi Guð- mundur J. Jónsson, 24,07 sek. 3. Stígur frá Akranesi eigandi og knapi Ragnar E. Ágústsson. Stökk 250 metrar 1. Krummi, eigandi og knapi Sævar Þorvarðarson 20,64 sek. 2. Draumur, eigandi og knapi Guð- mundur J. Jónsson, 20.87 sek. 3. Gjafar, eigandi og knapi Halldóra Hinriksdóttir, 22,76 sek. Eins dags mót hjá Andvara Andvaramenn í Garðabæ af- greiddu sitt gæðingamót á sunnu- deginum. Einkunnir vorú góðar eink- um í B-flokki gæðinga en þar hlaut hæstu einkunn Fleygur frá Hvassa- felli sem Sveinn Ragnarsson sat í forkeppni en Hinrik mágur hans Bragason sat í úrslitunum. Fleygur hlaut í einkunn 8,73 og hélt hann fengnum hlut í úrslitum. Þá voru gefnar góðar einkunnir í barnaflokki en þar sigraði Sigurður Halldórsson á Kardinála með 8,50. Hálfgert kalsaveður setti svip sinn nokkuð á mót Andvara. Nokkuð er langt í land að framkvæmdir við mótssvæði þeirra Andvaramanna ljúki. Brýnt er að skapa betri aðstöðu fyrir áhorf- endur því segja má að þeir fáu sem fylgjast með þurfi að gera það úr talsverðri fjarlægð þannig að engin stemmning næst upp í kringum keppnina. Annars fór mótið ágætlega fram og konumar voru með kaffi- hlaðborð í ágætu félagsheimili. Úrslit hjá Andvara urðu sem hér segir: A-flokkur 1. Flugar frá Hrólfsstöðum, F.: Orri, Akureyri, M.: Rúna, Saltvík, eigandi og knapi Halldór Svansson, 8,40. 2. Gullbrá frá Ásmundarstöðum, F.: Djass, Bakkakoti, M.: Hylling 5759, Stóra-Hofi, eigandi Margrét Magn- úsdóttir, knapi í forkeppni Friðþjófur Vignisson, knapi í úrslitum Guðni Jónsson, 8,36. 3. Flugar frá Keldulandi. F.: Miðill, Keldulandi. M.: Stóra-Jörp s.st. Eig- andi og knapi Friðþjófur Vignisson, 8,39. 4. Fjölvi. F.: Fáfnir 897, Fagranesi. M.: Sóta 5222, eigandi Ragnar Vals- son, knapi í forkeppni Sveinn Ragh- arsson, knapi í úrslitum Hinrik Brag- ason, 8,22. 5. Sjúss frá Hrólfsstöðum. F.: Fjalar s. st. M.: Lýsa s. st. Eigandi Vignir Guðmundsson, knapi Jón Ó Guðmundsson, 8,22. B-flokkur 1. Fleygur frá Hvassafelli. F.: Gáski 920, M.: Grána, Hvassafelli, eigandi Jón Guðmundsson, knapi í forkeppni Sveinn Ragnarsson, knapi í úrslitum Hinrik Bragason, 8,73. Fieygur var af dómurum valinn glæsilegasti hest- ur mótsins. 2. Ábóti frá Bólstað, Rang. F.: Gáski 920. M.: Prinsessa, Bólstað, eigandi og knapi Halldór Svansson, 8,38. 3. Gjafar frá Hofsstöðum. F.: Fáfnir 897, Fagranesi. M.: Lukka, Hofs- stöðum, eigandi Guðrún Þóra Jóns- dóttir, knapi Orri Snorrason, 8,53. Unglingar 1. Bryðja 7986 frá Stokkhólma. F.: Barón, Stokkhólma. M.: Svarta- Stjama, Stokkhólma, eigandi Guðrún Frederiksen, knapi Stefán Ágústs- son, 8,28. Stéfán hlaut einnig ásetu- verðlaun. 2. Vinur frá Ölvaldsstöðum. F.: Elg- ur 965, Hólum. M.: Kolka, eigandi Jón H. Skúlason, knapi Elfa Dröfn Jónsdóttir, 8,01. 3. Fengur, knapi Hrafnhildur Hann- esdóttir, 7,73. 4. Guðrún Jóhannsdóttir (vantar all- ar upplýsingar) 7,35. Börn 1. Kardináli frá Ólafsvöllum. F.: Stormur, Hreðavatni. M.: frá Ólafs- völlum, eigandi Halldór Svansson, knapi Sigurður Halldórsson, 8,50. Sigurður hlaut einnig ásetuverðlaun. 2. Glaður frá Götu, eigandi Inga Stefánsdóttir, knapi Funi Sigurðs- son, 8,43. 3. Nótt frá Hafnarfirði. F.: Hrafn, Öndólfsstöðum. M.: Venus, Hóli, Skag. Eigandi Hulda Sigurðardóttir, knapi Þórdís Höskuldsdóttir, 8,36. 4. -5. Sikla, knapi Hulda Jóhannsdótt- ir, 8.08. 4.-5. Óðinn frá Langagerði, eigandi Sigurður Ragnarsson, knapi Dagur Sigurðsson, 8.08. Létt æfing hjá Fáki Fáksmenn hugðust um helgina velja gæðinga til keppni á Hvítsunnu- mótinu. Velja átti 20 hesta i hvorum flokki en þar sem aðeins 25 tóku þátt í B-fiokki og 27 í A-flokki var reiknað með að hætt yrði við úrtök- una en svo var þó ekki og má því líta þetta sem létta æfíngu Fáks- manna fyrir sjálfa keppnina. Þau tíðindi gerðust að Þokki frá Hösk- Flassi kominn heim til Sörla á nýjan leik og beint í efsta sætið, knapi er Sveinn Jónsson. uldsstöðum stóð jafnfætis Gými frá Vindheimum sem er hæst dæmdi gæðingur landsins. Einkunnin er 8,71 sem er reyndar nokkru Iægri einkunn en met Gýmis þannig að reikna má með að þama hafi knap- arnir aðeins siglt á hálfu gasi. Næst-> ur kom Mozart frá Grenstanga með 8,62. Knapi á Gými var Trausti Þór Guðmundsson, Atli Guðmundsson sat Þokka og Ragnar Ólafsson sat Mozart. í B-flokki stóð efstur Náttf- arasonurinn Prati sem Alfreð Jörg- ensen sat með 8,63. Oddur og Sigur- bjöm Bárðarson komum næstir með 8,57 og Kolskeggur sem Maríanna Gunnarsdóttir sat þriðji með 8,47. Allir verða þessir hestar dæmdir á nýjanleik í vikunni ásamt hestum frá öðrum félögum sem nú taka þátt í Hvítasunnumótinu í tilefni 70 ára afmæli félagsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.