Morgunblaðið - 02.06.1992, Síða 45

Morgunblaðið - 02.06.1992, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992 45 Lára Vigfúsdóttir, Narfeyri — Minning Fædd 19. janúar 1900 Dáin 13. maí 1992 Hún fæddist í Brokey aldamóta- árið, dóttir Kristjönu og Vigfúsar J. Hjaltalín, og þar ólst hún upp í glöðum systkinahóp. Ég vissi það um Brokey að þar áttu heima um skeið Hákon Hákonarson rímna- skáld sem kvað rímur af Reimari og Fal hinum sterka og ég hafði mikið yndi af. Það var snemma á seinustu öld. Þá vissi ég það að þar hafði Jón Mýrdal átt heima, sem frægur var af bókinni Mannamun sem lesin var „upp til agna“ víðs vegar um land og þótti kjörgripur á kvöldvökum. Ég hafði líka heyrt um merkismenn á Narfeyri og þeg- ar ég kom í Hólminn fór það ekki framhjá mér hver þar bjó, Vilhjálm- ur, einn af okkar mestu stærðfræð- ingum, ólærður en samt í stærð- fræðingafélagi íslands. Hann var einnig fulltrúi Skógstrendinga í sýslunefnd og við vorum saman á fyrsta sýslufundinum sem ég var á 1942. Einnig átti hann sæti í yfir- skattanefnd og þar urðu kynni okk- ar svo traust að ekkert bilaði. Hann var sérstakur í öllu og þá ekki síður Lára kona hans, það fann ég alltaf betur og betur eftir því sem á leið og það er hún sem mig langar til að minnast í þessari grein um leið og þakklætið verður þar efst í huga. Ég kom á heimili þeirra strax fyrsta árið og heimsóknir þangað urðu tíðar. Það var svo margt sem dró að heimili þeirra. Lára hafði á uppvaxtarárum haft mikinn hug til menntunar og auðn- aðist að vera einn vetur á Hús- mæðraskólanum á Blönduósi, og einnig var hugur hennar að kanna vegu erlendis og í Danmörku var hún í tvö ár, var þar í vistum og lærði mikið af því. Vilhjálmur og Lára bjuggu allan sinn búskap á Narfeyri. Hann tók við af foreldrum sínum, Málfríði og Ögmundi, er þau hættu búskap. Þá skal á' það minnst hvernig Lára studdi mann sinn og örvaði í hans áhugamálum, bjó honum og börnum þeirra gott heimili og hlýtt. Það kunnu þau vel að meta. Eftir lát Vilhjálms 1965 bjó Lára með Hreiðari sínum uns hún afhenti búið í hendur honum og konu hans, Kristinar Teitsdóttur. Seinustu árin dvaldi Lára á elliheimilinu Grund og þar var einnig í dvöl systir henn- ar Kristin, háöldruð. Hann var ekki margbrotinn lífsferillinn hennar Láru en hann var þeim mun sann- ari og trúverðugri, þar var vakað yfir öllu og mætt líðandi stund með umhyggju fyrir velferð heimilisins. Þau Lára og Vilhjálmur eignuðust þrjú börn, Hreiðar, bónda á Narf- eyri, Huldu húsfreyju, búsetta í Reykjavík, og Reyni, prófessor í Þýskalandi, og voru þau öll viðstödd útför móður sinnar sem fór fram á Narfeyri 21. maí, þar sem leg var henni búið við hlið manns síns. Þar mættu vinir og venslamenn að votta hinni merku konu virðingu og þökk. Við hjónin viljum flytja Láru okkar innilegustu þökk fyrir sam- fylgdina. Hún var hugljúf og sterk og minningu um góða konu geym- um við i þakklátum huga. Guð blessi minningu hennar. Árni Helgason. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA INGVELDUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 41, lést í Landspítalanum laugardaginn 30. maí sl. Örn B. Ingólfsson, Hjördís Óskarsdóttir, Þorsteinn Ingólfsson, Hólmfrfður Kofoed-Hansen, Guðrún Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, BALDÍNA ELÍN SIGURBJÖRNSDÓTTIR frá Fagrabæ, lést á dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn 22. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun. Steingerður Bjarney Ingólfsdóttir, Hulda Ingólfsdóttir, Baldur Arngrímsson, Adám Örn Ingólfsson, Lára Lárusdóttir, Pálmi Ingólfsson, Ólafía Karlsdóttir, Indíana ingólfsdóttir Stefán Gunnar Vilhjálmsson, og barnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÞYRÍ GÍSLADÓTTUR, Hvassaleiti 127, Reykjavík. Þórður Ó. Þorvalds- son — Kveðjuorð Fæddur 26. febrúar 1934 Dáinn'15. maí 1992 Mig langar að minnast mágs míns Dodda, Þórðar Ólafs Þór- valdssonar. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að upplifa nærveru hans og ijölskyldu hans. Þótt ég hafi ekki haft mikið sam- band síðustu ár við þau hjón Dodda og hálfsystur mína Karólínu, eða Kæju eins og hún er kölluð, er mér afar minnisstæður sá tími er ég sem barn og unglingur sótti mjög mikið á heimili þeirra. Þar fann ég hlýju og mannkærleika og var mjög gott að vera í návist Dodda, Kæju og barnanna þeirra, Sigurlínu, Ágústs og Katrínar. Þær voru margar gleð- istundirnar sem ég átti á því heim- ili. Doddi hafði mjög ljúfa fram- komu, var léttur, hress og kátur og mikill mannvinur. Hann átti til að sjá hlutina með skoplegum aug- um og hafði skemmtilegan frá- sagnargáfu. Eitt sumarið þegar ég var 11 ára fór ég í ferðalag um ísland með þeim hjónum, þá var Sigur- lína, fyrsta barnið þeirra, á fyrsta aldursári. Það var mjög skemmti- legt ferðalag. Doddi og Kæja neit- Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. S(mi 31099 til ki. 22,-einnig um helgar. ■ uðu mér aldrei um neitt ef ég bað þau einhvers. Þegar ég var 17 ára fóru þau hjón með mérj verslunarleiðangur er ég var að kaupa húsgögn í fyrsta skipti og var það mikill stuðningur fyrir mig að hafa þau með. Ég varð mjög ánægð með það sem ég verslaði og góðar minningar sátu eftir fyrir það en ég er mjög þakk- lát. Tímarnir breytast, árin líða. Nema Doddi, hann var alltaf sami Doddi í mínum augum. Sami gamli góði Doddi. Doddi málaði myndir, hafði listíamannshæfileika. Á 20 ára afmælisdaginn minn færðu þau hjónin mér málverk eft- ir Dodda í afmælisgjöf og átti ég mjög eftirminnilega kvöldstund með þeim. Doddi fékk erfiðan sjúkdóm sem leiddi hann í svefninn langa aðeins 58 ára gamlan, en einhver hlýtur tilgangurinn að vera þegar svo ungur maður er tekinn frá eigin- konu og yndislegum börnum hér á jörðinni. Guð veri með Karólínu Þóru Ágústsdóttur, Sigurlínu Kristínu, Ágúst Helga og Katrínu Guðmundu og veiti þeim styrk á sorgarstundu. Blessuð sé minning Dodda. Sigfríður L. Friðfinnsdóttir. Friðrik Ólafs- son - Kveðjuorð Fæddur 25. september 1963 Dáinn 12. maí 1992. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinarskilnaður, viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka, Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna, Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem) Þriðjudaginn 12. maí barst mér sú hörmulega fregn að vinur minn og fyrrverandi mágur væri dáinn. Það er sárt að hugsa til þess að ég eigi aldrei eftir að sjá Frikka aftur. Hann reyndist alltaf góður vinur þegar ég þurfti á vini að halda og einnig öfugt og þakka ég fyrir það. Svo var það í febrúar 1989 að Fri- kki kynntist Þórdísi, vinkonu minni, sem á son frá fyrra sambandi, Sigga Þór. Var Frikki sem faðir hans og alltaf mjög góður við hann. Svo eignuðust þau saman Árna Ólaf, sem var einnig augnayndi pabba síns. Ég bið Guð að styrkja Þórdísi, Árna Ólaf, Sigga Þór, Óla, Öldu, Sigga og Jónas og hans fjölskyldu í þeira miklu sorg. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og alit. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Guðborg Eyjólfsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG SÍMONARDÓTTIR frá Þingeyri, sem andaðist 29. maí í Sjúkrahúsi ísafjarðar, verður jarðsungin frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 6. júní kl. 14.00. Aðstandendur. Steingrímur Haraldsson, Alma Birgisdóttir, Guðni Á. Haraldsson, Stefanía Jónsdóttir, og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, LÁRU M. VIGFÚSDÓTTUR frá Narfeyri. Hreiðar Vilhjálmsson, Hulda Vilhjálmsdóttir, Reynir Vilhjálmsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát GUÐBJARTAR B. JÓHANNSSONAR. Sérstakar kveðjur og þakklæti sendum við starfsfólki Sólvangs. Ragnhildur Bjarnadóttir, Jóhann Guðbjartsson, Jóhanna Þorgeirsdóttir og barnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÓLAFARHELGU FERTRANSDÓTTUR frá Nesi í Grunnavík. Sérstakar þakkir viljum við færa hjúkrunar- og starfsfólki Hrafn- istu, Reykjavík, fyrir hlýhug og góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Guðbjörg Halldórsdóttir, Gunnar Halldórsson, Ólafur Halldórsson, Ingólfur Halldórsson, Margrét Halldórsdóttir, Pétur Pétursson, Álfhildur Friðriksdóttir, Margrét Reimarsdóttir, Anna Dóra Ágústsdóttir, Gústaf Gústafsson, Ragnheiður Halldórsdóttir, Ingólfur Konráðsson, Guðrún Björnsdóttir, barnabörn og fjölskyldur þeirra. Birting afmælis- og minningargreina Morgtinblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.