Morgunblaðið - 02.06.1992, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR 2. JÚNÍ 1992
55
Nýtt vikublað í Eyjum;
Blöð koma út reglulega
fjóra daga vikunnar
NÝTT vikublað bættist í blómlega blaðaútgáfu í Eyjum fyrir skömmu,
er TV, Tíðindi vikunnar, hóf göngu sína. TV er þriðja blaðið sem
bætist í hóp vikublaðanna í Eyjum, því fyrir voru tvö rótgróin blöð,
Fréttir og Dagskrá. TV kemur út á miðvikudögum, en Fréttir á
fimmtudögum og Dagskrá á föstudögum. Svo virðist sem aukin sam-
keppni á blaðamarkaðnum í Eyjum hafi orðið til þess að Fréttir
bættu við snúningi því útkomu á þriðjudegi var bætt við og koma
Fréttir því út tvisvar í viku. Eyjamenn geta því flett vikublöðum
sínum fjóra daga vikunnar.
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kopavogi, sími
671800 ^
Nú er fjör í bílaviðskiptum!
Vantar á skrá og á staðinn
allar gerðir af nýlegum
bílum.
Grétar Franksson setti besta tíma í sandspyrnunni á sunnudaginn
og vann flokk sérútbúinna fólksbíla.
Þorsteinn Gunnarsson eigandi og
ritstjóri TV er nýkominn heim eftir
þriggja ára nám í fjölmiðlafræði í
Svíþjóð. Hann segist hafa gengið
lengi með hugmyndina að stofnun
vikublaðs í maganum. Hann hafi
unnið í þijú ár á Fréttum áður en
hann hóf fjölmiðlafræðinámið og
blaðamennska eigi hug sinn allan.
Á blaðinu með Þorsteini starfar
Tómas Ingi Tómasson, en þeir fé-
lagar eru kunnir knattspyrnumenn
og hafa spilað með knattspyrnuliði
ÍBV.
Fyrsta tölublað TV leit dagsins
ljós 13. maí. Þorsteinn segir að blað-
ið hafi hlotið góðar viðtökur og
þeir séu bjartsýnir á framhaldið.
„TV er óháð blað og við leitumst
við að vera ferskir i efnisvali og
uppsetningu. Við ætlum okkur að
taka öðruvísi á málum en vikublöð-
in hafa gert hér til þessa en auðvit-
að erum við einnig í samkeppni við
dagblöðin,“ sagði Þorsteinn.
TV -er, eins og öðrum blöðum í
Eyjum, dreift ókeypis til lesenda.
Þorsteinn býður einnig upp á alhliða
útgáfuþjónustu og almennings-
tengsl. Grímur
Peugout *
o.fl. V. 550 þús. stgr.
Benedikt Valtýsson sló öðrum við í opnum flokki á 200 hestafla
vélsleða.
Sandspyrna:
íslandsmeistar
arnirsnöggir
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Félagarnir Þorsteinn Gunnarsson ritstjóri og Tómas Ingi Tómasson
blaðamaður TV.
KVARTMÍLUKLÚBBURINN
nýtti svæði torfæruökumanna
um helgina þegar haldin var
sandspyrnukeppni í Jósepsdal, sú
fyrsta sem gildir til íslandsmeist-
ara. Keppt var í átta flokkum
og voru 29 keppendur.
Besta aksturtíma dagsins náði
Grétar Franksson, ók brautina á
4,142 sekúndum á skemmtilegum
útfærðum keppnisbíl. í flokki mót-
orhjóla var keppt á götuhjólum og
motor cross hjólum, í þeim fyrr-
nefnda var Páll Steindórsson fljót-
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
29. maftil 1. júní 1992
Óvenju mikið var um innbrot á
starfssvæðinu um helgina. Alls
var tilkynnt um 18 innbrot. í
tveimur tilfellum var brotist inn í
íbúðir og úr þeim stolið verðmæt-
um rafmagnstækjum, geislaspil-
urum og myndbandstækjum, auk
geisladiska. Þá var nokkuð um
að brotist væri inn í bíla og úr
þeim stolið verðmætum, s.s. rad-
arvörum og hljómflutningstækj-
um.
Alls voru 36 ökumenn kærðir
fyrir að aka of hratt, en auk þess
voru 22 ökumenn kærðir fyrir að
aka enn á negldum hjólbörðum
um götur borgarinnar. Átta öku-
menn og tveir reiðmenn voru
færðir til töku blóðsýnis grunaðir
um að vera ölvaðir á farskjótum
sínum. Einn ökumannanna og
báðir reiðmannanna höfðu lent í
óhappi áður en til þeirra náðist.
Auk þeirra slasaðist fólk í tveimur
öðrum umferðaróhöppum, en til-
kynnt var um 36 slík um helgina.
Á föstudag var bíl ekið yfir
nýtyrft svæði við Seltjarnarnes-
kirkju á Valhúsahæð og olli akst-
urinn talsverðum skemmdum.
Vitað er hver þar var að verki og
verður ökumanninum væntanlega
gert að færa torfið í samt lag.
Á föstudagskvöld þurfti að hafa
afskipti af 8 piltum þar sem þeir
voru að klifra I styttunum við
Stjórnarráðið. Þeir voru færðir á
lögreglustöðina þar sem reynt var
að koma þeim í skilning um að
styttumar væru ekki ætlaðar til
þessa.
Skömmu eftir miðnætti á föstu-
dag var akstur bifhjóls stöðvaður
á Bústaðavegi við Flugvallarveg
eftir að það hafði mælst á 127
km hraða á veginum. Ökumaður-
inn var færður á lögreglustöðina
og sviptur ökuréttindum. Sl. mið-
vikudagskvöld héldu Sniglarnir
og lögreglan með sér árlegan fund
um umferðarmál. Þar var m.a.
rætt um hraðakstur, ökukennslu,
akstur bifhjóla á og við gatna-
mót, hávaðamengun, akstur-
skeppni o.fl. En þó Sniglarnir séu
allir af vilja gerðir til þess að
koma á bifhjólamenningu eru
greinilega til aðrir bifhjólamenn,
sem eru á annarri skoðun.
Á föstudagskvöld féllu vinnu-
pallar utan á húsi nr. 84 við
Laugaveg á mannlausan bíl. Tals-
vert tjón varð á bílnum, en talið
er að pallarnir hafi verið felldir
af einhveijum illa innrættum.
Á laugardag var tilkynnt um
að drengur á reiðhjóli hefði fallið
af hjólinu og meiðst á höfði. Hann
var fluttur á slysadeild með
sjúkrabíl, en drengurinn mun ekki
hafa verið með hjálm.
Á laugardagskvöld veittu lög-
reglumenn á ómerktum lögreglu-
bíl athygli bíl, sem ekið var ógæti-
lega um miðborgina. Bílnum var
ekið um Hringbraut og inn á
Bústaðaveg þar sem hraðinn var
aukinn. Lögreglumennirnir veittu
bílnum eftirför inn á Kringlumýr-
arbraut og komst hraðinn upp í
138 km/klst. Þeir létu þá af eftir-
för og ákveðið var að grípa til
annarra aðgerða. Skömmu síðar
var bíllinn stöðvaður í Seljahverfi,
ökumaðurinn færður á lögreglu-
stöðina og sviptur ökuréttindum.
Á sunnudagsmorgun stöðvaði
lögreglan „partý“ í líkamsræktar-
stöð við Stórhöfða. Miðum hafði
verið dreift til ungs fólks í mið-
borginni þar sem „partý“ var aug-
lýst á nefndum stað eftir kl. 3.00.
Á þriðja hundrað gestum var vísað
úr „samkvæminu" og var aldur
þeirra allt niður í 15 ár. Grunur
er um að áfengissala hafi verið
stunduð á staðnum. Málið kemur
til með að sæta rannsókn og við-
komandi aðilar látnir gera grein
fýrir tildrögum þess.
Á sunnudagskvöld var tilkynnt
um lausan hund í Skipasundi og
að hundurinn hefði bitið níu ára
gamalt bam, sem þar var, í oln-
boga þannig að úr blæddi og
bólgnaði. Flytja þurfti bamið á
Slysadeildina, en hundurinn
fannst ekki þrátt fyrir leit. Aðili,
sem gaf sig fram taldi að hundur-
inn hefði bitið annað barn, en það
atvik hefði ekki verið tilkynnt til
lögreglu. Hundaeftirlitsmaður var
kallaður til og átti að freista þess
að hafa upp á hugsanlegum eig-
anda í spjaldskrá.
Á föstudag drap laus hundur
önd við bæ í Laugardal.
Á sunnudagskvöld var tilkynnt
um að þrír drengir væru í óleyfi
inni í Hólabrekkuskóla. Lögreglan
fann drengina inni á kennara-
stofu. Sögðust þeir hafa notað
lykil til þess að komast inn, en
lyklinum hefði einn kunningi
þeirra, sem reyndar var fjarstadd-
ur, stolið í skólanum nokkru áð-
ur. Engar skemmdir voru sjáan-
legar eftir drengina, en þeir sögð-
ust hafa farið inn í skólann til
þess að spila billjard.
Reiðhjólaskoðun fer fram
samkv. auglýstri dagskrá við skól-
ana næstu daga og er fólk, ungt
sem eldra, hvatt til þess að færa
reiðhjól sín þangað til skoðunar.
astur á tímanum 4,981 en fjölmenn-
asta flokinn, flokk motor cross hjóla
vann Guðmundur Sigurðsson á tím-
anum 5,500. íslandsmeistarinn í
torfæraakstri, Ámi Kópsson, vann
flokk útbúinna jeppa á tímanum
4,392 en honum hefur ekki gengið
sem skyldi í torfæramótum ársins,
en hann var nálægt því að slá eigið
akstursmet í sandspyrnunni.
Tryggvi ÓIi Þorfinnsson vann
flokk standard fólksbfla á tímanum
7,563 en Gunnlaugur Emilsson
vann flokk sérútbúinna fólksbfla á
5,073 sekúndum. Vilhjálmur Ragn-
arsson margreyndur sandspymu-
kappi setti íslandsmet í flokki
standard jeppa á 4,392. í opnum
flokkum vann Benedikt Valtýsson
örugglega á tímanum 4,356 en
hann ók vélsleða á móti öflugasta
jeppanum og fólksbílnum og hafði
betur.
ikkjag.
Chrysler Town & Country turbo statlon
88, „Luxus eintak“ leðurklæddur, sjálfsk.,
ek. 47 þ., rafm. í öllu o.fl. V. 1390 þús., sk.
ó ód.
Daíhatsu Rocky 4x4 '85, 2000, vökva
stýri, rauöru, ek. 86 þ. Gott eintak. V. 590
þús. stgr.
Range Rover 4 dyra '84, sjálfsk., ek. 96 þ.
Fallegur jeppi. V. 1190 þús., sk. á ód.
Daihatsu Charade CX trubo look '87, ek.
45 þ., 5 g., 5 dyra, álfelgur o.fl. V. 460 þús.,
skipti ó dýrari.
Toyota Corolla XL Uftback ’88, rauður, ek;
aöeins 46 þ., saml'rtir stuöarar, o.fl.
V. 680 þús. stgr.
Ford Escort XR3I '88, svartur, 5 g., ek. 54
þ., ABS, sóll. o.fl. V. 980 þús., sk. ó ód.
Peugout 309 XE ’88, 5 g., ek. 26 þ. V. 480
þús. stgr.
Daihatsu Charade TS '88, ek. 51 þ., 4ra
g. Fallegur bíll. V. 490 þús.
Dalhatsu Charade Sedan SG '90, 5 g., ek.
18 þ. V. 750 þús., sk. á ód.
Ford Econoline 250 XLT 4x4 diesel '90,
11 manna, mikið af aukahl. V. 3,2 millj., sk.
ó ód.
Lada Sport '90, 5 g., ek. 23 þ. V. 630 þús.
sk. ó ód. fólksbfl.
MMC Colt GLX '90, 5 g., ek. 30 þ„ rafm.
í rúðum o.fl. V. 850 þús., sk. ó ód.
MMC Lancer GLX '87, 5 g„ ek. 72 þ„ rafm.
í rúöum o.fl. V. 580 þús.
Toyota Tercel 4x4 station '87, gott ein
tak. V. 650 þús„ sk. á ód.
Honda Prelude 2.0M6v, 4ws ’88, 5 g,
m/öllu, ek. 60 þ. V. 1080 þús. stgr„ sk. á ód.
Toyota Hilux Douple Cap m/húsi '91, ek.
23 þ. Upph., o.fl. V. 1670 þús. stgr.
Honda Civic GU ’91, 3ja dyra, 5 g„ ek. 26
þ. V. 980 þús„ sk. á ód.
wmi
IMNN ÞIN
FJÖLSKYLM?
Heildarvinningsupphæðin :
106.864.114 kr.
22. leikvika 30-31. ir
Röðin : 1X1-222-112-1222
13 réttir:
12 réttir:
11 réttir:
10 réttir:
86 raöir á
2.022 raöir á
21.566 raöir á
139.631 raöirá
335.500 - kr.
8.980 - kr.
890 - kr.
290 - kr.
Um helgina fengu rúmar 150 þús. raöir vinning. Nú er búiö
aö opna fyrir sölu á EM-AUKASEÐU þar sem danskir
peningar bætast einnig í pottinn. Búist er viö aö 1. vinningur
veröi rúmar 70 mllljónir. Biöjiö um AUKASEÐIL á næsta
sölustaö. Góöa skemmtun.
—fýrirþlg ogþína fjólsKyldu!