Morgunblaðið - 07.06.1992, Side 2

Morgunblaðið - 07.06.1992, Side 2
2 FRÉTTIR/INNLEIMT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JUNÍ 1992 EFNE Tyrkneska forræðismálið: Faðir telpnanna mein- ar Sophiu að hitta þær SOPHIA Hansen fékk ekki að hitta dætur sínar tvær í Istanbúl í gær þrátt fyrir dóm undirréttar þar að lútandi á fimmtudaginn. Hún átti samkvæmt dómnum að fá að hitta telpurnar 1. og 3. laugardag í hveij- um mánuði fram í september en þá á að taka málið fyrir að nýju. Þeg- ar Sophia átti að hitta þær í gær kom i ljós, að faðir þeirra var horfinn úr borginni með þær og er hann nú talinn dveljast í heimaþorpi sínu í fjalllendi Kúrdistan. Hún segist afar hrædd um telpurnar enda telji hún að þær sæti illri meðferð af hálfu föður þeirra. Sophia Hansen sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að þegar hún hafí átt að hitta dætur sínar í gær hafi faðir þeirra verið horfinn með þær úr borginni. Hann hafí sent dóm- aranum í málinu bréf, þar sem hann hafi sagst ætla að dveljast með þær í heimabyggð sinni í Kúrdistan þar til málið yrði tekið til endanlegrar afgreiðslu í september. Sophia segist telja, að hann hafi fyllst ótta þegar hann sá málatilbúnað hins nýja I N N ft N V E 6 6 J A HEIMILISINS JHcrouubUMii Sérblað um heimilið Innan veggja heimilisins nefn- ist sérblað sem fylgir fasteigna- blaði Morgunblaðsins í dag. Þar er á 16 síðum fjallað um atriði sem viðkoma innréttingum og endurbótum á heimilum, lýs- ingu, gólfefnum, málningu, straumum í innanhússarkitekt- úr og fleiru. Sjá blað C. tyrkneska lögfræðings hennar, en hann hafí meðal annars krafíst þess að andlegt og líkamlegt ástand telpnanna yrði rannsakað af sérfræðingum. Sophia segir að lögfræðingur hennar muni strax eftir helgi kanna hvort faðir telpnanna sé raunverulega með þær þar sem hann segist vera og jafnframt leita leiða til að þvinga hann til að leyfa henni að hitta þær. Enn sé hins vegar ekki hægt að segja hvemig að því verði staðið. Hún seg- ir að samkvæmt dómnum frá því á fímmtudag sé hægt að dæma mann- inn í um 100 þúsund króna sekt fyr- ir að meina henni að hitta bömin í fyrsta sinn. Ef það endurtaki sig geti hann einnig sloppið með því að greiða sekt en fyrir þriðja brot sé hægt að setja hann í fangelsi. ♦ ♦.♦ Snarfari hafði sigxtr í skeiðinu SNARFARI frá Kjalardal sigraði í 150 metra skeiði á Hvítasunnu- móti Fáks á 14,63 sek. Knapi var Sigurbjörn Bárðarson. Sóti, sem Sigurbjörn sat einnig, varð annar á 15,10 sek. og Harpa, sem Þórður Þorgeirsson sat, varð þriðja á 15,11 sek. í 350 metra stökki sigraði Sleipnir frá Engi, sem Sölvi Sigurðarson sat, á 28,42 sek. og Stormur, sem Hjalti Guðmundsson sat, varð annar á 28,75 sek. og Seifur, sem Símon Símonar- son sat, varð í þriðja sæti á 28,89 sek. í 800 metra stökki sigraði Sleipnir, sem Magnhildur Magnús- dóttir sat, á 63,92 sek., Funi, sem Daði Már Ingvarsson sat, varð annar á 64,70 sek. og sá kunni hlaupagarp- ur Lótus frá Götu varð þriðji á 65,77 sek., en Reynir Aðalsteinsson sat hann. Frá undirritun samkomulags um undirbúning stofnunar lyfjaverk- smiðju í Litháen. Frá vinstri: Þór Sigþórsson lyfjafræðingur, Juozas Olekas heilbrigðisráðherra Litháen, Jón Sigurðsson iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, Grímur Sæmundsen framkvæmdasljóri og Almar Grímsson lyfjafræðingur. íslenska heilsufélagið hf.: Samið um undirbúning lyfjaverksmiðju í Litháen ÍSLENSKA heilsufélagið hf. hefur undirriteð samning við litháísk stjórnvöld um undirbúning að lyfjaverksmiðju í Litháen. Var það gert í opinberri heimsókn Jóns Sigurðssonar iðnaðar- og viðskipta- ráðherra til Litháen í vikunni. Markmið þessa sameiginlega fyrirtæk- is verður framleiðsla dreypilyfja sem mikil þörf er fyrir i sjúkrahús- um Litháen. Grímur Sæmundsen, fram- kvæmdastjóri íslenska heilsufé- lagsins, sagði að Almar Grímsson, einn af forráðamönnum íslenska heilsufélagsins, hefði gert úttekt á heilbrigðiskerfinu í Litháen fyrir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO) á síðasta ári og hefði þá komið fram þörfín á framleiðslu dreypilyfja. Grímur og Þór Sigþórs- son, forstjóri Lyfjaverslunar ríkis- ins, fóru síðan í mars á þessu ári og athuguðu staðhættl í framhaldi af þeirri ferð var unnin undirbún- ingsvinna, en með undirskrift sam- komulags íslenska heilsufélagsins og stjórnvalda í Litháen er fyrsta formlega skrefíð tekið í þessari samvinnu. Grímur sagði að þeir hefðu átt í samkeppni við öfluga sænska aðila við að ná þessum samningi en þar sem íslendingar hefðu sýnt vilja í verki við undir- búningsvinnu hefðu þeir haft vinn- inginn. Hann sagði að einnig væri alveg ljóst að frumkvæði íslensku ríkisstjómarinnar í að viðurkenna Litháen í sjálfstæðisbaráttunni hefði haft afgerandi áhrif á afstöðu landsmanna til íslendinga. Grímur benti ennfremur á að stuðningur íslensku ríkisstjómarinnar við und- irbúning samkomulagsins hefði vegið þungt hjá stjórnvöldum í Lit- háen, og hefði nærvera Jóns Sig- urðssonar, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, í Litháen hraðað því að samkomulag hefði náðst. Grímur sagði að stýfnt væri að því að setja upp Jramleiðslueiningu fyrir allt Litháen og yrði hún sex sinnum stærri en starfseining Lyfjaverslunar ríkisins hérlendis. Reiknað er með að heildarkostnað- ur við þetta verkefni verði 300-400 miiljónir íslenskra króna. Grímur sagði að leitað yrði eftir aðstoð til þess að fjármagna þetta verkefni hjá samnorrænum stofnunum og Þróunarbanka Evrópu. Flugleiðír endurnýja samninga um kaup félagsins á eldsneyti Eldsneytisverð fer hækkandi á alþjóðamarkaði FLUGLEIÐIR endurnýjuðu um síðustu mánaðamót alla samninga félagsins um eldsneytiskaup bæði hér á landi og á áfangastöðum sínum erlendis. Öll kaup á eldsneyti eru boðin út hjá félaginu einu sinni á ári, og að sögn Guðmundar W. Vilhjálmssonar, forstöðu- manns eldsneytisdeildar Flugleiða, náðist nokkur árangur af útboð- unum að þessu sinni. Hér innanlands var endurnýjaður samningur við Skeljung um afgreiðslu á þotueldsneyti á Keflavíkurflugvelli og Reylqavíkurflugvelli. Hins vegar hefur eldsneytisverð farið hækk- andi að undanförnu á alþjóðamarkaði sem hefur í för með sér nokk- urn kostnaðarauka fyrir félagið. Eldsneytiskostnaður Flugleiða var rúmlega 20 milljónir dollara, 1.160 milljónir kr., á sl. ári og not- aði félagið þá um 24 milljónir gall- ona af þotueldsneyti. „Við erum nokkuð ánægðir með árangurinn af útboðunum þó tilboðin hafí ekki verið jafnhagstæð erlendis og f fyrra. Það voru 18 aðilar sem gerðu okkur tilboð erlendis eftir að við höfðum tilkynnt um 20 aðilum um að eldsneytissamningar okkar væru að renna út. Sumsstaðar hafa orðið þó nokkrar verðlækkanir í tilboðum og útboðið gekk sérstaklega vel hér á landi. Það er ódýrara að fylla á Vegna Hvítasunnuhelgar- innar kemur Morgunblaðið næst út miðvikudaginn 10. júní. nýju Fokker-vélamar en og þær eyða að sama skapi aðeins um 73% af eyðslu gðmlu vélanna," sagði Einn möguleiki væri að stunda engar beinar þorskveiðar heldur yrði þorskur einungis aukaafli með öðrum tegundum. Því markmiði væri hægt að ná jafnt með því að loka svæðum og takmarka veiðar Guðmundur í samtali við Morgun- blaðið. Aðspurður um áhrif hækkana á þotueldsneyti að undanfömu sagði Guðmundur að meðalverð á tonni hefði verið skráð 194 dollarar í maí en á miðvikudag hefði verðið verið skráð 204 dollarar. Þessi hækkun hefði í för með sér um 63 þúsund dollara (3,6 m.kr.) kostnaðarauka fyrir félagið á mánuði. Hins vegar væri félagið ekki eins viðkvæmt fyrir eldsneytishækkunum og áður vegna nýju millilandaflugvélanna. við ákveðnar skipastærðir. Þetta ætti þó allt eftir að ræða. Þorskveiðar Færeyinga á þessu ári em taldar verða innan við tíu þúsund tonn og hafa þær aldrei verið minni, að sögn Kjartans. „Það „Það er mjög óvenjulegt að verð hækki á þessum tíma og ekki héppi- legt fyrir okkur þar sem háanna- tíminn er að byrja. Hins vegar hef- ur verðið oft verið skráð hærra yfír vetrartímann og að meðaltali var það skráð 221 dollari hvert tonn á sl. ári. Hráolían hefur einnig hækk- að mikið í verði og ef verð á henni lækkar ekki aftur þá verða enn frekari hækkanir á þotueldsneyti í júlí. Birgðir af þotueldsneyti em þó nógar núna en verðið mun ráðast af framboði og eftirspum á alþjóða- markaði," sagði Guðmundur. eru allir sammála um að þorskstofn- inn hafi aldrei verið í jafn slæmu ástandi og nú. Helsta skýringin á því er léleg nýliðun á sama tíma og veitt hefur verið of mikið,“ sagði hann. Aðspurður um hvaða áhrif það myndi hafa fyrir Færeyinga að fara eftir tillögum Alþjóðahafrannsókn- arráðsins sagði Kjartan að vegna þess hve lítil þorskveiði væri nú mætti segja að menn væm þegar búnir að taka höggið. Aiþjóðahafrannsóknarráðíð: Færeyingar hætti þorskveiðum FÆREYINGUM BÁRUST í vikunni tillögur frá Alþjóðahafrannsókn- arráðinu þess efnis að þeir hætti þorskveiðum á næsta ári. Kjartan Hoydal, fiskimálastjóri Færeyja, sagði í samtali við Morgunblaðið að tillögurnar væru það nýtilkomnar að ekki hefði gefist tími til að skoða þær tii fulls. Þegar búið væri að meta tillögurnar yrði ákveðið hvernig bregðast bæri við þeim. Bjóst hann við að tillögur þess efnis myndu liggja fyrir þegar þingið kæmi saman að nýju 29. júlí nk. ►Tillögur Alþjóðahafrannsóknar- áðsins um 40% skerðingu í þorsk- sókn er mikið áfall fyrir þjóðarbú- skapinn. Slíkur samdráttur kæmi misþungt niður á byggðum lands- ins./lO Flughræðsla ►Yfir 17% íslendinga þjást af flughræðslu, en hér segir frá nám- skeiði sem Flugleiðir efndu nýlega til fyrir fólk sem vill yfirvinna þennan kvilla./14 Erfiði dagsins hverfur út í víndinn ►Miklir þurrkar hafa verið í sunn- anverðri Afríku að undanförnu. Dóra Stefánsdóttir, verkefnisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar ís- lands, skrifar frá Namibíu./17 Styrkurinn liggur í samstöðunni ►Rætt við Sighvat Bjarnason sem á næstunni sest í framkvæmda- stjórastól Vinnslustöðvarinnar h.f. /18 Herjólfur til heimahafnar ►Nýja Vestmannaeyjafeijan er væntanlegtil heimahafnar næstu daga. Hér segir Ámi Johnsen frá skipinu í máli og myndum./20 HEIMILI/ FASTEIGNIR ► l-28 Húsaleiga og atvinnu- húsnæði ►Rætt við Reyni Kristinsson hjá Hagvangi./lO Líf og dauði í Sauð- burðinum ►Fyrir Reykvíking sem fer helst ekki út fyrir borgarmörkin, kemur vorið með lóunni en sumarið með erlendum ferðamönnum. í sveitinni kemur sumarið með lömbunum. Hér fylgjumst við með sauðburði hjá Jóni Skarphéðinssyni bónda í Kringlu í Miðdölum./l Kirkjan áleik ►Hvemig verður ný sókn til? Hvað dreymir prestshjónin um? Hefur kirkjan komið til móts við nýja tíma? Því svara séra Vigfús Þór Árnason og Elín Pálsdóttir./8 Ástin, hamingjan og óttinn ►Nokkrir punktar um Gurudev og kenningar hans./lO Af spjöldum glæpa- sögunnar ►Bess Myerson, fyrrum fegurðar- drottning, komst til áhrifa í banda- rískum stjórnmálum en var síðar sökuð um spillingu og misferli í opinbem starfi og varð að segja af sér embætti í borgarstjórn New York-borgar./16 ► FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Skoðun 23 Leiðari 24 Helgispjall 24 Reykjavíkurbréf 24 Minningar 26 íþróttir 40 Útvarp/sjónvarp 42 Gámr 47 Mannlífsstr. 6d Kvikmyndir 12d Dægurtónlist Fólk I fréttum Myndasögur Brids Stjömuspá Skák B(ó/dans Bréf til blaðsins Velvakandi Samsafnið INNLENDAR FRÉTTIR- 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR- 1-4 13d 18d 20d 20d 20d 20d 21d 24d 24d 26d

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.