Morgunblaðið - 07.06.1992, Side 38
■® TRYGGVAGATA 4—6,
SÍM115520.
SJAVARRETTA-
HLAÐBORÐ
í HÁDEGI
frá 1. júní til 1. september
í sumar bjóðum við uppá ferska og fallega fiskrétti á
hlaðborði. Þar verður úrval margra góðra sjávarrétta,
svo sem: lax, bæði reyktur og grafinn, úthafsrækjur,
kræklingur, ostabaka með skelfisk, reyksoðinn fiskur,
síld, kryddbakaður fiskur, fiskur í hlaupi og fiskisúpa,
ásamt grænmeti, brauði og salötum.
Verðkr. 1.195,-
Einnig úrval léttra hádegisverða
og a la carte á góðu verði.
MATSTAÐUR MEÐ METNAÐ
—
■ m wm em sm bsí t m em mn i i ISa ÍSl liifil EEI feSI !fr 1 —
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMÁ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1992
Iðnskólanum í Reykjavík slitið
ar fyrir bestan námsárangur í ís-
lensku á burtfararprófi. Sólmundur
Oddsson, kjötiðn, hlaut verðlaun fyr-
ir bestan námsárangur á burtfarar-
prófi og verðlaun Landssambands
iðnaðarmanna fyrir bestan árangur
í löggiltri iðngrein. Yngvi R. Krist-
jánsson, húsasmíði, hlaut verðlaun
fyrir 2. besta árangur á burtfarar-
prófi, og Þóra H. Passauer, tækni-
teiknun, hlaut verðlaun Pennans fyr-
ir bestan námsárangur í teikningum.
Auk þess hlutu verðlaun skólans
þeir nemendur sem náðu einkunn-
inni 8,7 í samanlögðu, en þau voru:
Ingibjörg Gísladóttir, sem einnig
fékk viðurkenningu fyrir störf að
félagsmálum, Bjargey G. Gísladóttir,
Ellert Traustason, Guðni Magnús
Bjömsson, Guðrún Sigrún Jónsdótt-
ir, Hrólfur Eggert Pétursson, Hrönn
Gunnarsdóttir, Pálína Elíasdóttir,
Páll Bragason, Sólmundur Oddsson,
Yngvi R. Kristjánsson og Þóra H.
Passauer.
Skólameistari Iðnskólans í Reykjavík, Ingvar Ásmundsson, afhendir
prófskírteini.
TVÖ HUNDRUÐ og sextíu nem-
endur útskrifuðust frá Iðnskól-
anum í Reykjavík föstudaginn 29.
maí, þar af 48 úr meistaranámi.
Alls voru nemendur 1.574 í dag-
skóla, en 244 í kvöldskóla. Kenn-
arar voru 131 í dagskóla og 52 í
kvöldskóla.
í skólaslitaræðu Ingvars Ásmundss-
onar, skólameistara, kom meðal ann-
ars fram að náðst hefði hagræðing
er næmi lækkun kennslukostnaðar
um 40% á nemanda á síðastliðnum
12 árum. Rekstrarkostnaður skólans
væri nú allt að þrefalt minni en sam-
bærilegra skóla á Norðurlöndum.
Einnig kvað Ingvar að til stæði að
koma á gæðastjómun við skólann,
sem ætlað sé að bæta skipulag,
starfsanda, stjórnun, framkvæmd og
eftirlit. Auk þess hafi verið settar á
stofn fagnefndir, sem ætlað sé að
fylgjast með þróun kennslu í viðkom-
andi greinum.
Eftirtaldir nemendur hlutu verð-
laun fyrir góðan námsárangur. Guð-
rún Oiafsdóttir, tölvubraut, hlaut
verðlaun Skýrslutæknifélags íslands
fyrir bestan árangur í tölvugreinum
á burtfararprófi. Hans Óskar íse-
barn, múrari, hlaut verðlaun Verk-
taka- og meistarasambands bygg-
ingamanna fyrir bestan námsárang-
ur á meistaraprófi. Hrólfur Eggert
Pétursson, húsasmíði, hlaut verðlaun
Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur
fyrir hæstu samanlögðu einkunn í
teikningu og ástundun og verðlaun
Finns 0. Thorlacius fyrir hæstu ein-
kunn í iðnteikningu húsasmiða á
burtfararprófi. Hrönn Gunnarsdótt-
ir, tæknibraut, hlaut verðlaun
Landssambands iðnaðarmanna fyrir
bestan árangur á stúdentsprófí,
verðlaun Danska sendiráðsins fyrir
bestan árangur í dönsku á burtfarar-
prófí og verðlaun Máls og menning-
Verslunarhúsnædi til leigu
á Hverfisgötu 26, götuhæð og kjallararými,
samtals 195 fm. Húsnæðið er í næsta húsi
við hið nýja bílageymsluhús á horni Hverfis-
götu og Smiðjustígs.
Upplýsingar gefur Hjalti Geir Kristjánsson,
Laugavegi 13 og í símum 17172 og 625870.
Skrifstofuhúsnæði
miðsvæðis
Frá 1. júlí er til leigu 212 fm skrifstofuhæð
í Sigtúni 7. Fyrri leigjendur voru ÍSNÓ.
Til greina kemur að leigja hæðina í minni
einingum. Afgirt útisvæði, gámastæði gæti
fylgt á sama stað.
Breiðfjörðs blikksmiðja hf.
Sigtúni 7, s: 29022, fax 813860.
AUGL YSINGAR
Skrifstofuhúsnæði óskast
Óska eftir að kaupa skrifstofuhúsnæði,
120-150 fm, á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
KVÓTAMARKAÐURINN HF.
SÍMI: 614321 - MYNDSENDIR: 614323.
Laugavegur
Til leigu mjög gott ca 117 fm verslunarhús-
næði á jarðhæð við Laugaveg neðan Frakka-
stígs. Stórir gluggar. Laust fljótlega.
Upplýsingar í síma 670179 (á kvöldin).
HAGKVÆM
KVÓTAVIÐSKIPTI
KVÓTAMARKAÐURINN HF.
EIÐISTORG117, SELTJARNARNESI.
SÍMI: 614321 - MYNDSENDIR: 614323.
KV<ú»TABANKINN
Vantar varanlega kvóta, allar
tegundir. Staðgreiðsla.
Sími 656412, fax 656372.
Jón Karlsson.
Sumarfagnaður
sjálfstæðismanna í norðuriandskjördæmi eystra, verður haldinn f
golfskála Golfklúbbs Akureyrar að Jaðri, föstudaglnn 12. júní nk. og
hefst með hátlðarhlaðborði kl. 19.30.
Heiðursgestir verða: Davíð Oddsson, forstætisráðherra, Halldór
Blöndal, samgöngu- og landbúnaðarráðherra og Tómas Ingi Olrich,
alþingismaður.
Miðapantanir og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins á Akureyri. Þar er opið milli kl. 13 og 17 alla virka daga
síminn er 21500 eða 21504. Miðaverð kr. 2.500.
Sjáumst hress.