Morgunblaðið - 07.06.1992, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1992
39
Þessar ungu stúlkur færðu Rauða krossi íslands rúmlega 2.970 kr.,
sem þær söfnuðu á hlutaveltu til ágóða fyrir Hjálparsjóð RKÍ. Þær
heita Álfheiður Eva Óladóttir, Ásta H. Gylfadóttir og Sunna Ingvars-
dóttir.
Guðrún Helga Jónsdóttir, Eygló Tómasdóttir og Sigríður Ólöf Guð-
mundsdóttir. Þær söfnuðu fyrir Hjálparsjóð Rauða krossins 1.746 kr.
Þessi tombólusveit safnaði 7.000 kr. til Hjálparsjóðs Rauða krossins
á hlutaveltu. Krakkarnir heita Anna Berglind Jónsdóttir, Finna ívars-
dóttir, Andrés Pétursson, íris Björk Pétursdóttir, Ásta Rún Péturs-
dóttir og Rósa Árnadóttir.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
ITAUVINDUNNI
Tónlist
Ámi Matthíasson
Tónleikahald erlendra stór-
sveita hér á landi undanfarin ár
hefur ekki gengið áfallalaust og
margur tónleikagesturinn fundist
hann svikinn. Það skýrir líklega
hvers vegna ekki voru nema um
3.000 manns sem komu á föstu-
dagskvöld og hlýddu á bresku
hljómsveitina Iron Maiden, sem
er án efa ein fremsta þungarokk-
sveit heims um þessar mundir.
Þeir sem létu sig hafa það að
fara fengu mikið fyrir sinn snúð,
því fáar sveitir standa Iron Maid-
en á sporði á sviði, eins og sannað-
ist eftirminnilega í Laugardals-
höllinni.
Tónleikagestir voru á blendnum
aldri, enda viðbúið að hljómsveit
eins og Iron Maiden, sem á að
baki sextán ára feril, hafi sankað
að sér áheyrendahóp sem spannar
allt frá ríflega þrítugu og niður í
gelgjuskeið. Vísast voru það ein-
mitt harðir Iron Maiden-áhang-
endur sem fjölmenntu í Laugar-
dalshöllina að þessu sinni, en frek-
ar að þeir forvitnu hafi haldið sig
heima.
Eins og áður segir hefur Iron
Maiden starfað í sextán ár og það
mátti heyra að þeim árum hefur
ekki verið varið til einskis, því frá
fyrstu tónum var ljóst að hljóm-
sveitin er geysiþétt og líklegasta
ein þéttasta rokksveit sem hér
hefur spilað lengi, lengi. Fyrsta
lagið var fyrsta smáskífa sveitar-
innar af nýútkominni breiðskífu,
Be Quick or Be Dead, mikið
keyrslulag og gaf tóninn fyrir þá
samfelldu keyrslu sem á eftir kom.
Hljómsveitarmeðlimir léku á als
oddi og gáfu hvað þeir gátu, enda
geislaði af þeim spilagleðin. Gam-
an var að sjá hve þeir sóttu í
aðdáun áheyrenda, sem gaf þeim
aukinn kraft, og sú hugsun lædd-
ist að hvort það sé ekki éinmitt
þetta samband við áheyrendur
sem haldi sveitinni gangandi, því
ekki er það fjárþörf.
Sveitarmenn brugðu iðulega á
leik, því ljóst var að þeir voru að
skemmta sér ekki síður en áheyr-
endum. Þannig drógu þeir rótara
sína inn á sviðið til að syngja
bakraddir milli þess sem þeir
sprelluðu hver með öðrum og
Bruce Dickinson hafði áheyrendur
í vasanum frá upphafí tónleik-
anna.
Uppistaða tónleikanna var eðli-
lega nýja platan, en einnig voru
viðraðir gamlir slagarar, allt frá
fyrstu plötunni (Iron Maiden) í
,þá þarsíðustu (Tailgunner) og
Bring Your Daughter to the
Slaughter m.a.). Þannig var að
þegar sveitin var búin að leika
af fullum krafti í nærfellt klukku-
stund og nokkuð dregið af áheyr-
endum eftir að hafa hoppað,
klappað og öskrað allan þann
tíma, brugðu þeir félagar fyrir sig
Run to the Hills, lagi af mest
seldu plötu sveitarinnar, og það
var eins og skipt hefði verið inn
á nýjum áheyrendum, því öll
þreyta hvarf út í veður og vind.
Þannig drifu sveitarmenn, og þá
sérstaklega snjall söngvarinn,
Bruce Diekinson, áheyrendur
áfram, sem ekki slepptu sveitinni
af sviðinu fyrr en hún var búin
að leika í um tvær klukkustundir.
Það voru líka dasaðir áheyrendur,
sem líklega hefur liðið eins og
hefðu þeir lent í tauvindu, sem
reikuðu sveittir, ringlaðir og sælir
út í nóttina.
Gæsla öll var vel skipulögð og
til fyrirmyndar og enginn fór inn
í húsið án þess að á honum væri
leitað. Þannig safnaðist gríðarstór
hrúga af ýmsum flátum, sem flest
innhéldu vísast áfengi, þó margir
hafí sturtað öllu í sig sem þeir
gátu torgað með góðu móti áður
en inn var farið. Þetta réð því að
ölvun var með minna móti, en
sefjunin var reyndar það mikið
að erfitt gat verið að greina hvort
viðkomandi væri í áfengis- eða
gleðivímu.
Vonandi vita þessi Iron Maiden-
tónleikar á gott, því þeir hljóta
að fara langt með að endurvekja
traust tónleikagesta á innflutningi
erlendra rokksveita.
Vélritunarkennsla
Kvöldnámskeið er að byrja.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Hátíðarsamkoma í kvöld kl. 20.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
KFUM-KFUK-SÍK
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30 á Háaleitisbraut 58 í um-
sjón NÝ-UISJG. Allir velkomnir.
Færeyska sjómannaheimilið,
Brautarholti 29.
Samkoma hvítasunnudag kl.
17.00. Lovísa Niclasen og Simon
Hansen tala.
KROSSÍNI
Um hvítasunnuhelgina verðum
við með mót í Varmalandi í Borg-
arfirði. Gleðilega hátíð.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjuslræti 2
Athugið, engin samkoma á
hvítasunnudag.
Annan í hvítasunnu kl. 20.30
hefst samkomuherferð þar sem
kapteinarnir Magna og Jostein
Níelsen eru aðalræðumenn.
Samkomur á hverju kvöldi til og
með fimmtudagsins 11. júní.
Fjölmennið á þessar góðu sam-
komur.
Gleðilega hátíð.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
fÍMnhj
ólp
Hátíðarsamkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.
Mikill söngur. Samhjálparvinir
taka lagið og gefa vitnisburöi.
Barnagæsla. Ræðumaður Óli
Ágústsson. Kaffi að lokinni sam-
komu. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Nýja postulakirkjan
íslandi
Ármúla 23, 2.h.,
108 Reykjavik.
Guðsþjónusta verður hvfta-
sunnudaginn 7. júnf kl. 11.00.
Ritningarorð er tekið úr:
Rómverjabréfi 8.6.
Verið velkomin.
Safnaðarprestur.
4mdL
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma á morgun
2. í hvítasunnu kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnirl
Gleðiiega hátíð!
VEGURINN
iy Krístið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kóp.
Ath. engin samkoma í dag,
sunnudag, en samkomur á
morgun, annan f hvítasunnu,
verða sem hér segir:
Almenn samkoma kl. 16.30.
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Ath. í sumar verða engar morg-
unsamkomur.
Miðvikudag kl. 18.00 Biblfulestur
með séra Halldóri S. Gröndal.
„Drottinn er þinni hirðir, þig
mun ekkert bresta'*.
ÚTIVIST
Hallveigarstíg 1, sfmí 614330.
Dagsferðir sunnud. 7. júní
Kl. 10.30 Fjallganga nr. 3, Akrafjall.
Kl. 13.00 Landnámsgangan.
DagsferSir 2. í hvítasunnu
Kl. 10.30 Vigdísan/ellir-Hús
hólmi. Kl. 13.00 Útivistardagur
fjölskyldunnar. Brottför í ofan-
greindar ferðir er frá BSÍ, bens-
ínsölu.
Kvöidganga miðikud. 10.
júníkl. 20.
Dagsferðir sunnud. 14. júní
Kl. 9.30 kirkjugangan: Hítardalur.
Nýtt símanúmer 614330.
Sjáumst! útivist
ZífstnÁs
ÚTIVIST
Hallveigarstig 1, sími 614330.
Helgarferðiríjúní
19.-21. júnf sólstööuganga á
Snæfellsjökul. Skemmtilegasta
jökulganga ársins. Gist í tjöldum
á Búðum.
19.-21. júní Vestmannaeyjar -
Úteyjar. Siglt út í eyjar. Gist í
svefnpokaplássi.
Bókið tímanlega í þessar vin-
sælu ferðir.
Básar á Goðatandi
Um hverja helgi. Gist í
húsi/tjaldi. Skipulagðar göngu-
ferðir. Brottför kl. 20 á föstud.
heimkoma kl. 18. á sunnud.
Munið ódýra sumardvöl f Básum.
Skrifstofan er opin frá kl. 9-17.
Sjáumst í Útivistarferðl
Útivist.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Dagsferðir - kvöldferðir
- helgarferðir:
7. júní kl. 13.00: Hvalsnes -
Stafnes - Básendar
Kirkjan skoðuð í Hvalnesi, ekið
að Stafnesi og gengið þaðan að
Básendum, en þar var eitt sinn
verslunarhöfn, sem skolaðist
burt í flóöinu mikla 1799. Göngu-
teiðin liggur um láglendi.
Verð kr. 1.500.
8. júnf (annar I hvftasunnu) kl.
13.00: Höskuldarvelllr - Græna-
vatnseggjar - Vigdfsarvellir
Ekiö um afleggjarann frá Kúa-
gerði (Keflavíkurvegur) að
Höskuldarvöllum, þaðan verður
gengið um Grænavatnseggjar
yfir í Móhálsadal að Vígdísarvöll-
um (eyðibýli). Verð kr. 1.100.
10. júnf kl. 20.00: Heiðmörk -
skógræktarferð (frftt).
11. júnf kl. 20.00: Viðey - Lundey.
Siglt umhverfis Lundey og sfð-
an gengið á land í Viðey.
13. júní kl. 9.00: Söguslóðir
Njálu.
Helgarferð tii Þórsmerkur
12. -14. júní. Gist í Skagfjörðs-
skála, Langadal.
Brottför í ferðirnar er frá Um-
ferðarmiðstöðinni, austanmegin
og Mörkinni 6.
• Ferðafélag Islands.