Morgunblaðið - 07.06.1992, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.06.1992, Blaðsíða 48
I* Reghibwidhm • spamaðw Landsbanki fslands MORGUNBLADID, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK SíMl 691100, SfMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI «5 SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Menntamálaráðherra hefur veitt Miðskólanum starfsleyfi: Einkaskóla fyrir 9-12 ára er ætlað að taka til starfa í haust Aðstoðarmaður ráðherra segir að skólinn fái ekki fjárveitingu frá ríkinu Dla horfir með æðar- dún vegna rigningar ÆÐARBÆNDUR á BreiðaQarðar- eyjurn hafa ekki getað sinnt leit sem skyldi yfir varptímann vegna vætutíðar. En miklar rigningar fara illa með æðarvarp og ef ekki styttir fyótlega upp horfir illa með æðardúninn í ár. Að sögn Eysteins Gíslasonar æðarbónda í Skáleyjum hefur ekki verið hægt að sinna leit almennilega vegna slagveðurs. Þess vegna hafa færri svæði verið athuguð á eyjunum en það sem fundist hefur er misslæmt eftir staðháttum á jörðu niðri. Ey- steinn sagði að ekki væri endanlega komið í ljós hver útkoman yrði en miklar rigningar færu illa bæði með æðarfuglinn og dúninn, en stundum yfírgæfi fuglinn hreiður í mikilli vætutíð. Eysteinn sagði að æðarfugl- inn hefði verið seinn að setja upp hreiður í ár en það hefði ræst úr því, en nú setti rigningin strik í reikn- inginn. Eysteinn telur að ekki þurfí að koma til vandræðaástands en þó sé ljóst að haldi vætutíðin áfram þá sé ekki hægt að búast við góðu ári. Ámi Snæbjömsson, ráðunautur, sagði að rysjótt veður vestan- og sunnanlands gætti haft áhrif á dúntínslu. Að sögn Áma lítur æðar- varp vel út norðan- og austanlands, og enn er gott jafnvægi vestan- og sunnanlands en áframhaldandi rign- ingar geta valdið skaða. Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson Birgir Þór Birgisson skyggnir æðaregg í Akureyjum. MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur staðfest skipulagsskrá Mið- skólans sem heimilar rekstur einkaskóla í Reylgavík fyrir 9-12 ára börn og er stefnt að því að skólinn taki til starfa í haust, að sögn Braga Jósepssonar, ritara skólanefndar. Miðað er við að skólinn taki við allt að 100 nem- endum og hefur verið ákveðið að skólagjald fyrir hvern nemanda verði 15 þúsund krónur á mánuði eða 135 þúsund krónur á ári. Óiaf- ur Arnarson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, segir að skólinn uppfylli skilyrði almennra grunnskóla, „en þetta er ekki stefnumarkandi ákvörðun og ekki verður um neinar fjárveitingar rikisins til skólans að ræða,“ seg- ir hann. Fyrrverandi menntamálaráð- herra, Svavar Gestsson, hafnaði beiðni aðstandenda Miðskólans um starfsleyfi í ágúst 1989 og vísaði m.a. til umsagna fræðslustjórans í Reykjavík og Kennarasamtakanna sem lögðust gegn stofnun skólans, auk þess sem hann taldi fjárhagsleg- an gmndvöll skólans ótraustan. Að sögn Ólafs hefur umsókn Mið- skólans verið til skoðunar í ráðuneyt- inu í vetur. „Við tókum þetta til rækilegrar endurskoðunar og skoð- uðum málið vandléga. Við gerðum ýmsar athugasemdir við ýmsa þætti málsins og þegar bætt hafði verið úr þeim staðfesti ráðherra skipulags- skrá skólans en lét það jafnframt fylgja að þetta fæli ekki í sér nein loforð um fjárveitingar," sagði Ólaf- ur. Bragi staðfesti að farið hefði ver- ið fram á opinbert framlag til skól- ans og sagði að þótt ekki yrðu gerð- ar frekari tilraunir til að fá fjárveit- ingu til skólans fram að áramótum muni aðstandendur skólans halda þeirri ósk til streitu. „Við teljum að foreldrar sem senda böm sín í einka- skóla og greiða skatta eins og aðrir eigi líka einhvern rétt. Við væntum þess að við fáum sama lágmarks- styrk og aðrir hliðstæðir skólar eins og til dæmis Tjarnarskólinn," sagði Bragi. Ólafur sagði að þegar ákvörðunin var tekin hefði verið haft til hliðsjón- ar að í dag væru reknir einkaskólar fyrir böm á aldrinum 6-8 ára og börn eldri en 12 ára. Miðskólinn verður starfræktur í miðbæ Reykjavíkur en ekki hefur verið gengið endanlega frá hús- næðismálum skólans. Að sögn Braga standa viðræður um þau mál yfir við Reykjavíkurborg. Ekki hefur verið gengið frá ráðningu kennara eða skólastjóra. „Ég tel engin vand- kvæði á að fá úrvalskennara," sagði hann. Gert er ráð fyrir samfelldum skóladegi í Miðskólanum frá kl. 8.30 árdegis til kl. 15.30 síðdegis. Verður hádegismatur framreiddur í skólan- um en kostnaður við máltíðir er ekki innifalinn í árgjaldi skólans. Ólafur S. Andrésson lífefnafræðingur við Tilraunastöð HÍ: Tengsl millí Skeiðarárhlaupa og stærðar þorskárganganna? Virkjanir fallvatna eru taldar kunna að draga ÓLAFUR S. Andrésson, lífefnafræðingur á Tilraunastöð Há- skóla íslands í meinafræði, segir í grein sem birt er í Morgun- blaðinu í dag, að hugsanlega sé samband á milli hlaupa í Skeið- ará og stærðar þorskárganga. Ólafur bendir á að ferskvatns- hlaup flýti fyrir eða auki þörungablóma sunnan við landið og geti þannig haft áhrif á afkomu svifdýra og fiska. Samanburð- ur leiði í Ijós að í átta af ellefu „hlaupárum" Skeiðarár hafi þorskárgangar næsta ár á eftir verið yfir meðallagi. Sam- kvæmt einföldu tölfræðiprófi séu líkurnar á að slíkt gerist fyr- ir tilviljun minni en 5%. Ólafur bendir á að milljónir sunnan við landið. Ferskvatn frá þorsklirfa hafi klakist í sjónum árósum auki lagskiptingu sjávar úr stærð þorskstofna og beri fram mikið af kísilsýru en hvort tveggja stuðli að vexti kísilþörunga. Ólafur hefur einnig kannað hvort fjöldi nýliða þorskárganga vex eða minnkar í kjölfar Skeiðar- árhlaups. „Eftir hlaup stækkuðu árgangar í níu skipti en minnkuðu í tvö. Onnur ár varð aukning sautján sinnum en minnkun tutt- ugu og einu sinni. Líkumar á slíkri tilviljun eru um 3%,“ segir hann í greininni. Hann veltir einnig fyrir sér áhrifum stórflóða og hlaupa úr öðrum ám á afkomu svifdýra og físka. „Sé svo þá er vert að velta fyrir sér hvaða áhrif virkjun fallvatna hefur. Það er t.d. greinilegt af rennslismæling- um að með miðlunarmannvirkjum hefur stórlega dregið úr flóðtopp- um. Stórvirkjanir kunna því að vera okkur dýrkeyptari en virðist í fljótu bragði," segir hann. Sjá „Hlaupaþorskar“ á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.