Morgunblaðið - 10.07.1992, Page 13

Morgunblaðið - 10.07.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1992 13 sömu akbrautum verður alltaf hættulegur. Þetta er staðreynd sem foreldrar verða að hafa í huga vegna hjólreiða barna. í umferðar- lögum stendur að börn yngri en 7 ára megi ekki hjóla á almanna- færi. Það er skylda foreldra að hafa eftirlit með því að böm undir 7 ára aldri séu ekki á reiðhjólum og hjólaskautum á akbrautum þar sem þeim er hætta búin. En hvar er bömum óhætt að hjóla? í flestum hverfum stærri bæja er í raun að- eins óhætt að hjóla á gangstéttum og á þeim örfáu hjólreiðastígum og göngustígum sem til era. Um hjólreiðar á gangstígum gildir þó sú regla að taka verður fullt tillit til gangandi fólks. í minni bæjum þar sem umferð er lítil geta eldri börn hjólað á akbrautum en ekki er það algilt. Langflestar stofn- brautir í Reykjavík og stærri bæj- um era allt of hættulegar fyrir börn að hjóla á. Hjólabretti og hjólaskautar era skemmtileg leikföng en leikur á þeim má ekki færast út á akbraut- ir. Börn og unglingar verða að leika sér á hjólaskautum og hjólabrettum á svæðum fjarri umferð t.d. skóla- lóðum á sumrin. Mörg slys hafa orðið þegar bam á hjólabretti ekur á mann á gangstétt, þetta verða böm og unglingar að hafa í huga. Hjálmar veita góða vöm og era nauðsynlegir fyrir þá sem era á reiðhjólum eða hjólabrettum, en hjáimur kemur ekki í veg fyrir slys. Aðalatriðið er að vera að leik í ör- uggu umhverfi fjarri bílaumferð. Aðgerðir til úrbóta Umhverfi heimila og skóla verð- ur að vera þannig úr garði gert að böm komist leiðar sinnar án þess að vera í stöðugri hættu vegna bfla. Slysum á gangandi og hjólandi fóiki mætti fækka veralega með því að gera fieiri undirgöng t.d. í tengslum við hjólreiðastíga. Undir- göng nýtast bæði gangandi og hjól- andi vegfarendum, þannig að þeir þurfa ekki að fara yfir hættuiegar akbrautir. Ennfremur ætti að auka skólaakstur þar sem umferðin er hættulegust. Það má einnig auka áróður þann- ig að maðurinn bak við stýrið hegði sér betur. Það er þrátt fyrir allt iangalgengast að slys verði vegna mannlegra mistaka, hvort sem vegfarandinn er gangandi, hjólandi eða akandi. Böm geta ekki barist fyrir eigin hagsmunum, þar verðum við full- orðna fólkið að gera. Heimildir:Grein Baldurs Krist- jánssonar um slys á börnum í fé- lagslegu samhengi og slysaskýrslur Umferðarráðs árin 1985 til 1991. Höfundur er fulltrúi í Umferðarráði. Fáskrúðsfjörður: Kirkjan á Kolfreyjustað endurvígð Fáskrúðsfirdi. KIRKJAN á Kolfreyjustað, sem fauk þann 18. september 1990 hefur nú verið endurbyggð í umsjá Húsafriðunamefndar, og verður endurvígð af biskupi ís- lands, herra Olafi Skúlasyni, laugardaginn 11. júlí 1992. Yfirsmiður við verkið hefur ver- ið Eyþór Friðbertsson, húsasmiða- meistari á Fáskrúðsfirði. Kirkjan hefur verið máluð í upprunalegum frá 1878, málarameistari var Guð- laugur Þórðarson. Efnt var til fjár- öflunar meðal Fáskrúðsfirðinga bæði heimamanna og brottfluttra og hafa safnast um 2 milljónir kr. í þeirri söfnun. Jöfnunarsjóður sókna, Húsafriðunamefnd og Kirkjugarðasjóður hafa stutt end- urbygginguna. Athöfnin hefst kl. 14. Þar verða prófastur og prestar prófastsdæm- isins viðstaddir. Skálholtskirkja: Fyrsta tónlistarhelgi Sumartónleika FYRSTU tónleikar átjánda starfsárs Sumartónleika í Skálholtskirkju verða haldnir nk. helgi og bera yfirskriftina: Ný tónlist. Meginstefna tónleikanna verður trúarleg samtímatónlist en einnig verða flutt verald- leg nútímaverk. A efnisskránni er að finna verk eftir fimm íslensk tónskáld: Askel Másson, Þorstein Hauksson, Svein L. Bjömsson, Hauk Tómasson og Finn Torfa Stefánsson. Laugardag- inn 11. júlí kl. 14 fjallar Þorkell Sig- urbjömsson tónskáld um trúarlega nútímatónlist. Kl. 15 flytur Caput- hópurinn tónverk eftir Áskel Másson, Þorstein Hauksson, Messiaen, Arvo Paer, Iannis Xenakis, Schnittke o.fl. Kl. 17 flytur hópurinn verk eftir Ric- ardo Nova og frumflytur verk eftir Hauk Tómasson og Finn Torfa Stef- ánsson. Sunnudaginn 12. júlí kl. 15 flytur hópurinn úrval úr tónleikaskrám laugardagsins. Messa verður kl. 17 með þátttöku Caput. Undanfama viku hefur Caput-hópurinn dvalið í Skálholti við æfingar og undirbún- ing. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Boðið verður upp á bamapöss- un meðan á tónleikunum stendur og hægt að kaupa veitingar í Skálholts- skóla. Caput-hópurinn i I i i i eftír heima. En áður en lagt er af stað, hvort heldur sem er í stutta eða langa gönguferð, þá er rétt að búa sig vel og þess vegna förum við í Skátabúðina. Númer eitt er að vera í góðum frá SCARPA. Svo að válynd veður eyðileggi ekki fyrir þér skemmtilega ferð, þá er nauðsynlegt <^jhafa góðan hlífðarfatnað frá KARRIMOR OG FRANCITAL. Góður og traustufy^V \^Prrá KARRIMOR, fyrir nestið, aukafatnað og ýmsa aðra fylgihluti, er nauðsynlegbr, þægilegur og áreiðanlegur. SKATABUÐIN -SMRtfR, FRAMÚK er hið mesta þarfaþing þegar dvalið er næturlangt úti í náttúrunni. Og að leggjast til hvílu í hlýjum og mjúkum AJUNGILAK er ^re'nn una&ur- Svona væri hægt að telja lengi áfram, en í Skátabúðinni finnurðu nánast allt sem þú þarft í gönguferðina eða í útileguna. ÞER ER OHÆTT AÐ TREYSTA Á SKÁTANA - ÞEIR HAFA REYNSLUNA! OPNUNARTÍMI: MÁN. - FÖS. 09:00 - 18:00 LAU. 10:00 -14:00 VISA0GEUR0 V=j. V GREIÐSLUKORTAÞJONUSTA SENDUMIP0STKR0FU! SNORRABRAUT 60*105 REYKJVAVÍK SÍMAR: 1 20 45 og 62 41 45 - Albert.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.