Morgunblaðið - 10.07.1992, Blaðsíða 40
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
siqváhMalmennar
MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
slMI 691100, SlMBRÉF 691161, PÓSTHÓLF I55S / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTl 65
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
m—mmmammm—mmmmmmmmmmmmmmmm—m—m—mm
Kringlan:
Peningar
hverfa
ur fiskbíl
PENINGAR hurfu úr paUbíl Ara
Bjarnasonar fiskkaupmanns í
Hafrúnu í Skipholti á meðan hann
brá sér með físk inn í verslun í
Kringlunni síðdegis í gær.
Á meðan Ari fór inn í verslunina
virðist sem óráðvandur maður hafi
farið inn í bíl hans og tekið þaðan
poka með peningum. Vegfarandi
fann pokann á gangstétt og afhenti
Ara hann. Þá vantaði 7-8 þúsund
krónur í pokann.
Áhugi á sól-
arlandatil-
boðum Dana
FRÆNDUR okkar í Danmörku
pjóta einmuna veðurblíðu um
þessar mundir og láta freistandi
tilboð um sólarlandaferðir lítt á
sig fá. íslendingar hafa hins veg-
ar sýnt þessum tilboðum áhuga
samkvæmt upplýsingum Flug-
leiða enda ekki von á byltingar-
kenndum breytingum á íslenskri
veðráttu á næstunni. Þó fengust
þær upplýsingar þjá Veðurstof-
unni að veður færi hlýnandi og
ekki væri von á meiriháttar úr-
komu næstu daga.
Ásdís Auðunsdóttir, veðurfræð-
ingur, sagði að veður væri aðgerð-
arlítið og erfitt að spá um skýjafar.
Engu mætti muna hvort stæði af
hafi með þungbúnu veðri eða landi
með léttskýjuðu. Björtu hliðamar
væru hins vegar þær að veður færi
hlýnandi og ekki væri von á meiri-
háttar úrkomu á næstunni. Um helg-
ina er gert ráð fyrir hægri vest-
. Jægri og breytilegri átt og hlýnandi
veðri. Skúrir gætu orðið vestan
lands. Annars sagði Ásdís að spáin
væri fremur loðin og hvorki hægt
að ýta undir bjartsýni né svartsýni.
Samkvæmt upplýsingum Flug-
leiða hefur fólk haft samband við
fyrirtækið og spurst fyrir um sólar-
landatilboð danskra ferðaskrifstofa
en þar í landi hefur verið einstök
veðurblíða að undanfömu og lítil
hreyfmg á ferðum af þessu tagi.
DORGAÐA BRYGGJUNNI
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ríkislögmaður telur óbeina eignaraðild útlendinga í sjávarútvegsfyrirtækjum ólöglega:
Seljum ekki okkar hlutabréf
nema fá sanngjamt verð fyrir
- segir Kristinn Björnsson forstjóri Olíufélagsins Skeljungs
ÁLIT ríkislögmanns um að
óbein eignaraðild erlendra fyr-
irtækja í íslenskum útgerðar-
eða fiskvinnslufyrirtækjum sé
ólögmæt sætir gagnrýni hags-
munaaðila. í framhaldi af álitinu
mun viðskiptaráðuneytið gera
kröfu um að viðkomandi fyrir-
tæki, m.a. Olís, Skeijungur,
Hampiðjan auk Hlutafjársjóðs,
selji hlutafé sitt í útgerðar- og
fískvinnslufyrirtækjum. Krist-
inn Björnsson forstjóri Skelj-
ungs hf. segir að ekki komi til
greina að Skeyungur selji sitt
hlutafé í sjávarútvegsfyrirtækj-
um nema fá sanngjarnt verð
fyrir. Bryryólfur Bjarnason for-
stjóri Granda hf. segir niður-
stöðu ríkislögmanns fráleita og
hæpið að hún fái staðist. Jón
Sigurðsson viðskiptaráðherra
segir að hann eigi eftir að kynna
sér álitið nánar og ræða við sjáv-
Meðferðarheimili að Sogni:
JVíutíu umsóknir bárust
um 18 gæslumannsstöður
Undirbúningur að meðferðarheimili fyrir ósakhæfa afbrotamenn
á Sogni í Ölfusi gengur samkvæmt áætlun. Rekstrarstjóm vinnur
nú að úrvinnslu umsókna og unnið er að bréýtingum á húsnæði.
Starfsemi á meðferðarheimilinu á að hefjast í byijun september.
Guðjón Magnússon hjá heilbrigð-
isráðuneytinu sagði að verið væri
að fara jrfir umsóknir um störf
gæslumanna. Hann sagði að 18
stöður hefðu verið auglýstar og að
90 umsóknir hefðu borist. Rekstrar-
stjómin væri að íjalla um þessar
umsóknir og kalla fólk til viðtals.
Að sögn Guðjóns er gert ráð fyrir
að búið verði að fara yfir umsókn-
imar 15. júlí nk. Hann sagði að auk
gæslumannanna 18 ætti að ráða
yfirlækni og yfirsálfræðing. Um-
sóknarfrestur um stöðu yfírlæknis
rynni út 15. júlí nk.
Guðjón sagði að gera ætti sam-
starfssamning við Sjúkrahúsið á
Selfossi um að fá þaðan sjúkraþjón-
ustu, umsjón um almennt skrif-
stofuhald, bókhald og launagreiðsl-
ur. Að sögn Guðjóns á eftir að semja
um nákvæma útfærslu á þessu sam-
starfi, en samkomulag um sam-
vinnu væri milli viðkomandi aðila.
Guðjón sagði að senda ætti
gæslumennina í starfsþjálfun til
réttargeðdeildar í Vástervik þar
sem íslendingur væri yfirlæknir, en
hann væri ráðgjafi vegna stofnunar
meðferðarheimiiisins á Sogni. Hann
sagði að yfirsálfræðingurinn færi
með og hefði umsjón með námsdvöl-
inni. Að sögn Guðjóns er stefnt að
því að senda hópinn í ágúst, en
ekki sé hægt að segja endanlega
til um tilhögunina af því að eftir
sé að senrýa um kaup og kjör á
starfsþjálfunartímanum.
Að sögn Ingólfs Þórissonar, for-
manns byggingamefndar, á fram-
kvæmdum vegna breytinga á hús-
næðinu að ljúka um mánaðamót
ágúst-september og ekki líti út fyr-
ir annað en að það muni takast.
arútvegsráðherra og ríkislög-
mann um framkvæmdaratriði
þess.
í áliti því sem ríkislögmaður
gerði að beiðni sjávarútvegsráð-
herra kemur m.a. fram að sam-
kvæmt lögum sem öðluðust gildi í
apríl 1991 sé ólögmætt fyrir fyrir-
tæki með erlendri eignaraðild að
eiga hlut í útgerðar- eða fisk-
vinnslufyrirtækjum. Verði stjóm
íslensks fyrirtækis áskynja um
slíka fjárfestingu í fyrirtækinu á
hún tveggja kosta völ: Annaðhvort
að leita leiða til að stöðva þá fjár-
festingu sjálf eða með atbeina
stjómvalda eða sætta sig við hina
erlendu fjárfestingu og losa sig í
því tilfelli við eignarhald sitt í út-
gerðar- eða fiskvinnslufyrirtæki.
Það er síðan á valdi viðskipta-
ráðuneytisins að sjá um að lögun-
um sé framfylgt. Bjöm Friðfinns-
son ráðuneytisstjóri í viðskipta-
ráðuneytinu segir að ráðuneytið
muni gera þá kröfu til þessara
fyrirtækja að þau losi sig við eign-
arhald sitt í útgerðar- eða físk-
vinnslufyrirtækjum og að verið sé
að vinna að því hve langur frestur
verði veittur til slíks.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra segir að álit ríkislög-
manns hafi ekki komið á óvart og
hann væntir þess að viðskiptaráðu-
neytið fylgi málinu eftir.
Kristinn Bjömsson segir að
hlutabréfakaup Skeljungs og ann-
arra sem flokkast með erlenda
eignaraðild hafi í mörgum tilfellum
verið gerð til að létta undir með
skuldastöðu viðkomandi útgerðar-
eða fiskvinnslufyrirtækis. Honum
fínnst hlálegt af ráðuneytinu að
ætla að skipa þeim að selja þessi
hlutabréf þegar ljóst liggi fyrir að
mjög erfitt verði að fá kaupendur
að þeim.
Brynjólfur Bjarnason forstjóri
Granda hf. segir að hann telji
niðurstöðu ríkislögmanns fráleita
og að með henni standi hlutafélög
í útgerð og fiskvinnslu mjög ber-
skjölduð gagnvart þessum lögum.
„Eg skil ekki að mjög stór hlutafé-
lög geti stjómað því hverjir gerist
hluthafar í þeim,“ segir Brynjólfur.
Sjá nánar á miðopnu.
Fáskrúðsfjörður:
Mjög mikil
veiði á laxi
MJÖG mikið hefur veiðst af
laxi á Fáskrúðsfírði undan-
farið. Mikið af laxi er í sunn-
anverðum firðinum og i
smábátahöfninni.
Menn hafa staðið í tugatali
og dregið lax úr sjó á Fá-
skrúðsfirði í gær og fyrradag.
Bæði veiðist vel á spún og með
því að beita síld. Athygli vekur
að hrygnumar era úttroðnar
af hrognum. Laxinn er 6-7
pund en stærri fiskurinn er í
smábátahöfninni. Einstaka
bleikja slæðist með hjá stang-
veiðimönnunum. Albert.