Morgunblaðið - 10.07.1992, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
FÖSTUDAGUR 10. JUU 1992
vid Eyjamenn
Miklar líkur á að Jón Sveinsson, miðvörður Fram, leiki einnig með ÍBV
EYJAMENN hafa fengið liðs-
styrk - Rússann Levan Barat-
ashwilit. „Rússinn er 29 ára og
'leikur í stöðu framliggjandi
miðjumanns. Júrí Sedov, fyrr-
um þjálfari Víkings, hefur gefið
honum góð meðmæli," sagði
Sigurlás Þorleifsson, þjálfari
Vestmannaeyjaliðsins við
Morgunblaðið. Baratashwilit,
sem kemurtil landsins í dag,
hefur bæði leikið með 21 og
23 ára landsliði Sovétríkjanna.
Eyjamenn, sem hafa ekki átt láni
að fagna, verða því með tvo
útlendinga í herbúðum sínum, en
fyrir er Slóveninn Bojan Bevc. Þá
eru miklar líkur á að Jón Sveins-
son, miðvörður úr Fram, gangi til
liðs við Eyjamenn og verði þá orð-
inn löglegur með ÍBV fyrir leik liðs-
ins gegn Val í 10. umferð, en Rúss-
inn verður orðinn löglegur fyrir leik
liðsins gegn Víkingi í 11. umferð.
„Það hefur verið aðalhöfuðverkur-
inn hjá okkur, hvað okkur hefur
gengið illa að nýta marktækifæri
okkar. Þá hefur leikur okkar ekki
verið eins markviss og áður,“ sagði
Sigurlás. Þess má geta að Eyja-
menn hafa misst þijá sterka leik-
menn frá því í fyrra - Hlyn Stefáns-
Pétur með flest
öétur Amþórsson, miðvallarspil-
■ ^ ari hjá Fram, hefur fengið
flest M eftir átta umferðir, eða alls
12. Næstur á blaði eru Rúnar Krist-
insson með ellefu.
Hér er listinn yfír leikmenn sem
hafa fengið flest M:
Pétur Amþórsson, Fram..........12
Rúnar Kristinsson, KR..........11
Kristján Finnbogason, ÍA.......10
Luka Kostic, ÍA................10
Pótur Arnþórsson
Ólafur Gottskálksson, KR.......10
Óskar H. Þorvaldsson, KR.......10
Pétur Ormslev, Fram............10
Gunnar Gíslason, KA............ 9
Hlynur Birgisson, Þór.......... 9
Kristján Jónsson, Fram......... 9
ValdimarKristófersson, Fram.... 9
Skagamenn efstir
Skagamenn hafa fengið flest M
af 1. deildarliðinum, en hér er list-
inn yfir hvað félög hafa fengið
mörg M og innan sviga hvað marg-
ir leikmenn liðanna hafa fengið M:
Akranes 76 (13). Fram 75 (14). KR 71
(12). Valur 61 (12). Þór 57 (12). KA 46
(14). UBK 45 (15). ÍBV 42 (15). FH 41
(10). Víkingur 41 (14).
Fj. leikja U J T Mörk Stig
lA 8 5 3 0 14: 5 18
KR 8 5 2 1 15: 7 17
FRAM 8 5 1 2 17: 9 16
ÞÓR 8 4 3 i 9:4 15
VALUR 8 3 3 2 12:9 12
FH 8 2 3 3 9: 15 9
VÍKINGUR 8 2 2 4 9: 15 8
KA 8 1 3 4 10: 15 6
IBV 8 1 1 6 5: 13 4
UBK 8 1 1 6 3: 11 4
■NÆSTU LEIKIR: í kvöld KA - ÍBV. Á
morgun ÍA - Þór. Sunnudagun Fram - FH,
UBK - Víkingur. Mánudagur: KR - Valur.
BULLET
OPIÐ UNGLINGAMÓT
Opið unglingamót fer fram hjá Golfklúbbi
Selfoss sunnudaginn 12. júlí.
Keppt verður í tveimur flokkum:
Flokki 14 ára og yngri og flokki 15-18 ára.
Ræst verður út frá kl. 10.00-12.30.
Rástíma er hægt að panta í golfskála
eða í síma 98-22417.
SPORTBÚÐ KÓPA VOGS,
Hamraborg 22.
SPORTBÆR, SELFOSSI,
Austurvegi 11.
son, Amljót Davíðsson og Berg
Ágústsson.
„Ég vona að við séum ekki í
hringekjunni sem vill oft einkenna
þau lið sem falla. Hjá þeim hefur
gengið illa að skora á mikilvægum
augnablikum, og þá jafnvel á sama
tíma og þau hafa verið að fá á sig
ódýr mörk. Við eigum heima í 1.
deild - erum með góðan mannskap,
sem hefur æft vel og komið vel
undirbúinn fyrir mótið. Óheppni og
meiðsli hafa sett strik í reikninginn.
Við emm ákveðnir að fara að snúa
dæminu við,“ sagði Sigurlás Þor-
leifsson.
Jón Svelnsson á leiðinni til Eyja
til Blilcanna
HÖRÐUR Hilmarsson, sem
var látinn hætti sem þjálfari
1. deildarliðs Breiðabliks sl.
haust eftir tveggja ára starf,
tekur við þjálfun liðsins á
nýjan leik skv. heimildum
Morgunblaðsins og stjórnar
liðinu f næsta leik, gegn Vík-
ingum á Kópavogsvelli á
sunnudagskvöldið.
Ekki hafði verið skrifað undir
samning þegar Morgunblað-
ið hafði síðast fréttir af málinu í
gærkvöldi, en skv. heimiidum
blaðsins átti aðeins eftir að ganga
frá smáatriðum og leikmönnum
hafði verið tilkynnt að Hörður
tæki við þjálfun.
Vignir Baldursson hætti sem
þjálfari Breiðabliks í vikunni, eftir
að liðið féll út úr Mjólkurbikar-
keppninni. Liðið er í neðsta sæti
Samskipadeildarinnar með fjögur
stig að átta leikjum loknum.
Hörður tók við þjálfun Blikanna
fyrir keppnistímabið 1990, er liðið
lék i 2. deild og það komst upp í
1. deild undir stjóm hans. í fyrra
Hörður Hilmarsson
lenti liðið svo í 5. sæti deildarinn-
ar, og Hörður var endurráðinn
fljótlega eftir að keppnistímabil-
ínu lauk, skrifaði undir samning
24. september — en þeim samn-
ingi sagði knattspymudeild
Breiðabliks svo upp 81. október.
Víkingar með flest spjöld
Leikmenn Víkings hafa fengið
að sjá flest gul spjöld í 1. deild-
arkeppninni, eða 20. Ellefu leik-
menn Víkings hafa fengið að sjá
spjald. Þess má geta að 109 gul
spjöld hafa verið á lofti og þrjú
rauð. Að meðaltali hafa verið gefin
2,72 spjöld í leik. Á sama tíma í
fyrra var búið að sýna 122 gul
spjöld og fimm rauð sjöld. Að með-
altali var þá 3,05 gul spjöld á lofti
Akranes mætir Stjörnunni
Bikarmeistarar Akraness í knattspyrnu kvenna fá Stjörnuna i" heim-
sókn i undanúrslitum keppninnar í ár og KR-ingar mæta íslands-
meistumm Breiðabliks í hinum undanúrslitaleiknum. Leikirnir eiga að
fara fram miðvikudaginn 29. júli.
I DAG OG UM HELGINA
Knattspyrna
KA og ÍBV leika í 1. deild kl. 20. (kvöld.
Fjórir leikir verða á sama tíma í 2. deild:
BÍ - Selfoss, Fylkir - Þróttur R., Víðir - ÍBK
og Stjaman - ÍR.
Sund
Sundmeistaramót tslands fer fram í sund-
laug Kópavogs um helgina. Mótið hefst í
kvöld kl. 20, en síðan hefst keppni kl. 15
laugardag og kl. 13 sunnudag.
Ólympíuhlaup
Ólympíuhlaupið verður þreytt á morgun,
laugardag, og er að þessu sinni minningar-
hlaup um Svein Björnssou, fyrrverandi for-
seta ÍSt. Það hefst kl. 11 við íþróttamið-
stöð ÍSf og verður hlaupið um Laugardal-
inn. Hægt er að velja um tvær vegalengdir
- 3 km eða 6 km. Skráning keppenda verð-
ur frá kl. 9. Þátttakendur fá Olympíuskjal,
undirritað af Juan Antonio Samaranch, for-
seta alþjóða Ólymplunefndarinnar.
Golf
Opið kvennamót verður haldið á morgun á
Hlíðarvelli í Mosfellsbæ og hefst það klukk-
an t!u árdegis. Leiknar verða 18 holur með
og án forgjafar. Skráning fer fram í síma
667415 til klukkan átján í dag.
Færri mörk
Alls hafa verið skoruð 104
mörk í 1. deildarkeppninni,
eða að meðaltali 2,6 mörk í
leik. Eftir átta umferðir í fyrra
var búið að skora meira, eða
110 mörk. Það er að meðal-
tali 2,75 mörk í leik.
í leik.
Hér er listinn yfir spjöld -
gult/rautt og innan svipa hvað
margir leikmenn liðanna hafa feng-
ið að sjá spjald:
Víkingur 20/0 (11). Akranes
17/1 (10). Breiðablik 12/1 (8). ÍBV
11/1 (9). KA 11/0 (6). Valur 9/0
(6). Fram 8/0 (4). Þór 8/0 (5). FH
7/0 (5). KR 6/0 (6).
mm
FOLK
■ BIRGIR Þór Karlsson, leik-
maður með Þór á Akureyri, er
handleggsbrotinn og verður í gifsi
næstu sex vikumar.
■ BALDUR Bjarnason hjá Fram
og Árni Þór Ámason, Þór, eiga
yfir höfði sér eins leiks bann þar
sem þeir hafa fengið að sjá fjögur
gul spjöld. Þeir verða því ekki með
liðum sínum þegar Fram og Þór
leika í 10. umferð.
■ ENN er óvíst hvort að Lárus
Sigurðsson, markvörður Þórs, geti
leikið gegn Skagamönnum, en
hann meiddist á hásin í bikarleikn-
um gegn KA á þriðjudaginn. „Ég
fer á Skagann - þá mun koma í
ljós hvort ég geti leikið," sagði þessi
snjalli markvörður.
■ JAN Eriksson, sænski lands-
liðsbakvörðurinn sem vakti athygli
í úrslitum Evrópukeppninnar fyrir
tvö frábær skallamörk og góðan
vamarleik, hefur gengið til liðs við
Kaiserslautern í Þýskalandi.
Nokkur önnur lið vom einnig á
höttunum eftir kappanum, m.a.
Frankfurt, Nottingham Forest
og Chelsea, ásamt ítölsku 1. deild-
ar félagi. Gengið verður frá kaup-
verðinu í næstu viku.
■ GERARD Houllier aðstoðar-
maður Michels Platinis þegar hann
var landsliðsþjálfari Frakka í
knattspyrnu, hefur verið ráðinn
aðalþjálfari franska landsliðsins.
Houllier þjálfaði lið Paris St
Germain á árunum 1985 til 1988,
og gerði liðið að frönskum meistur-
um 1986.
■ FYRSTI leikur franska lands-
liðsins undir stjórn Houlliers verð-
ur vináttuleikur gegn Brasilíu 26.
ágúst næstkomandi.
■ RUDI Völler hefur skrifað und-
ir tveggja ára samning við frönsku
meistarana Marseille. Völler mun
taka sæti Jean Pierre Papin í lið-
inu, en hann gekk til liðs við AC
Milan á Ítalíu fyrir skömmu.
■ MARSEILLE hefur gengið frá
samningum við fleiri nýja leikmenn,
þar á meðal er sóknarmaðurinn
Francois Omam-Biyik frá Kamer-
ún, júgóslvneski miðjumaðurinn
Dragan Stojkovic.sem kemur aft-
ur eftir eins árs dvöl hjá Verona á
Ítalíu, og Króatinn Alen Boksic.
KNATTSPYRNA
Rússi til liðs