Morgunblaðið - 31.07.1992, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 31.07.1992, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1992 Mál og menning: Styrkurinn jafn kostnaðinum við sovésku bækurnar ÚTGÁFA Máls og menningar á fimm sovéskum bókum árið 1970 kostaði rúmlega eina milljón og tvö hundruð þúsund krónur. Þetta voru þrjár bækur eftir V. I. Lenín og tvö síðustu bindin af ævisögu Konstantíns Pástovskís. Sé kostnaður við útgáfu tveggja fyrri bindanna af ævisögu Pástovskís reiknaður með nemur samanlögð upphæðin sem útgáfa þessara sovésku bóka kostaði 1.632,665 krónum en styrkurinn sem Kristinn E. Andrés- son veitti viðtöku frá sovéska kommmúnistaflokknum nam 1.760 þúsund krónum. Sovéski styrkurinn og kostnaður við útgáfu sové- skra bóka hjá forlaginu standast því næstum á endum. í upplýsingum frá Máli og menningu kemur fram að velta bókaforlagsins á árinu 1970 var 9.777,787 krónur og nam sovéski styrkurinn því 16 prósentum af þeim. Sama ár voru skuldir félags- ins samkvæmt efnahagsreikningi 13.640,073 krónur og jafngilti styrkurinn 13 prósentum af skuld- um. Núverandi forsvarsmenn Máls og menningar telja að þótt skuld- irnar hafí verið miklar á þessum tíma hafí gjaldþrot ekki verið yfír- vofandi, því að fyrirtækið hafí átt eignir umfram skuldir. Morgunblaðið/Sig. Jðns. Vínandinn sem lögreglan lagði hald á í Hveragerði er í plastbrús- unum á myndinni. Bruggarar handteknir í Hveragerði Selfossi. LÖGREGLAN á Selfossi lagði hald á um 21 lítra af tilbúnum vínanda við húsleit í Hvera- gerði, aðfaranótt fimmtudags. Þrír menn voru handteknir og yfirheyrðir vegna þessa og við- urkenndu þeir sölu á 40 lítrum af vínánda. Tveir mannanna viðurkenndu að hafa staðið í ’sölu á vínandanum en sá þriðji mun hafa keypt af þeim og selt öðrum. Vínandinn sem lögreglah lagði hald á var í „neyt- endaumbúðum“, eins og lögreglan orðaði það, og var um 40% að styrk- leika. Bruggtaékin voru ekki á staðnum en lögreglan hefur vitn- eskju um hvar þau muni niðurkom- in en það er á höfuðborgarsvæðinu. Yfirheyrslur lögreglunnar yfír mönnunum þremur stóðu til klukk- an fjögur aðfaranótt fímmtudags. Staðfestur grunur leiddi til þessara aðgerða, svo og það að í hönd fer mikil skemmtanahelgi og þá um leið líklegur sölutími á vínanda. Sig. Jóns. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 31. JULI YFIRLIT: Við Jan Mayen er 997 mb lægð sem hreyfist ANA. Um 700 km SSA af Hvarfi er heldur vaxandi 990 mb lægð á leið ANA. SPÁ: Fremur hæg breytileg átt og víða bjart veður í fyrstu, en þykknar upp með SA-ströndinni með golu eða kalda er líður á daginn, og hætt við síðdegisskúrum SV-lands. Hiti á bilinu 8 til 16 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg SA-læg átt. Súld með S- og SA-strönd- inni, hætt við síðdegisskúrum V-lands, en þurrt og víða bjart veður um norðanvert landið. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast um landið vestanvert. HORFUR Á SUNNUDAG: SA-átt. Strekkingur og rigning eða súld með suðurströndinni, en hægari og úrkomulítið annars staðar. Hiti á bilinu 8 til 18 stig, hlýjast um landið vestanvert. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. ▼ Heiðskírt r r r r r r r r Rigning Léttskýjað Hálfskýjað * r * * * * * / * * r * r * * * Slydda Snjókoma Skýjað Alskýjað v v ý Skúrír Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig v súld = Þoka 5tig-. FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30ígeer) Allir helstu vegir um landið eru nú greiðfærir. Fært er nú fjallabílum um mestallt hálendið nema Hlöðuvallavegur er ennþá ófær. Uxahryggir og Kaldidalur eru opnir allri umferð. Vegageröin og verktakar hennar hafa lagt allt kapp á að undirbúa vegi landsins fyrir Verslunarmannahelgina. Allir fjölfarnir maiarvegir eru nýlega heflaðir og viða hefur verið rykbund- ið. Ferðalangar eru hvattir til þess að leita upplýsinga um færð áður en lagt er af stað í langferð. Vegaeftirlit verður um allt land um helgina í samráði við Umferöarráð í þeim tilgangi að fylgjast með ástandi vega og laga þá kafta sem gætu farið illa. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91 -631500 og í grænni linu 99-6315. Vegagerðín. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veftur Akureyri 10 akýjað Reykjevík 10 skýjað Bergen 14 þrumuveður Helsinki 22 skýjað Kaupmannahöfn 21 skýjað Narssarssuaq 10 Iétt8kýjað Nuuk 6 þoka á afð.ktst. Osló 20 akýjað Stokkhólmur 21 skýjað Þórshöfn 12 akýjað Algarve 25 léttakýjað Amsterdam 25 skýjað Barcelona 27 mistur Berlín 20 hálfskýjað Chlcago 18 alskýjað Feneyjar 29 þokumóða Frankfurt 31 heiðskirt Glasgow 16 skýjað Hamborg 24 skýjað London 24 skýjað LosAngeles 18 þokumóða Lúxemborg 30 heiðskfrt Madrid 30 léttakýjað Maiaga 29 skýjað Mallorca 30 lóttskýjað Montréal 15 skýjað NewYork 23 skýjað Orlando varrtar Parfe 33 hálfskýjað Madelra 23 skýjað Róm 32 heiðskírt Vfn 29 léttskýjað Washington vantar Winnlpeg 10 léttskýjað Innflutningur á notuðum Mercedes Benz-bifreiðum frá Þýskalandi; 116 Benzar flutt- ir hingað 1989-91 60 keyptir beint frá verksmiðjunum ALLS voru 116 notaðar Mercedes Benz-bifreiðar fluttar hingað til lands á árunum 1989 tií 1991. Það sem af er þessu ári hafa 17 slík- ar bifreiðar komið hingað til lands. Af þessum fjölda komu a.m.k. 60 bifreiðar beint frá verksmiðjunum ytra. Samkvæmt upplýsingum frá Jónasi Þórí Steinarssyni, framkvæmdastjóra Bílgreinasambands- ins, voru 50 notaðir Benzar fluttir inn árið 1989 en rúmlega 30 á ári 1990 og 1991. Björn Hermannsson tollstjóri segir að flestar bif- reiðarnar séu um þriggja ára gamlar þar sem sá aldur sé hagstæð- astur hvað varðar þær afskriftareglur sem gilda þjá embættinu. Verð á þessum bifreiðum komn- um á götuna hérlendis er nokkuð 'mismunandi en Björn Hermannsson segir að yfirleitt sé ekki farið eftir reikningum um kaupverð þeirra ytra. Tollstjóraembættið styðst við ákveðið matsverð á bílunum og síð- an eru reiknaðar afskriftir af því verði. Sem dæmi um verðmyndun og síðan tolla og álögð gjöld má taka þriggja ára gamlan Mercedes Benz 230. Uppgefíð verð á þessum bíl nýjum í Þýskalandi er 40.700 þýsk mörk. Afskriftir af bílnum á þremur árum nema 42% þannig að hingað til lands, með flutnings- kostnaði, er verð bílsins metið 950.000 krónur. Á þetta verð leggj- ast svo tollur og álögð gjöld, sam- tals 1.120.000 krónur þannig að á götuna kostar bíll þessi um tvær milljónir króna. Björn segir að afskriftareglur þær sem tollstjóraembættið notar við þennan innflutning séu að á fyrsta árinu nemur afskrifin 18%, næsta ár 12% og þriðja árið 12%. Sé bíllinn eldri en þriggja ára nem- ur afskrift fyrir hvert ár umfram það 6%. Sökum þessara reglna sé algengast að fluttir séu inn þriggja ára gamlir bílar þar sem það komi hagstæðast út fyrir kaupanda. Rannsóknarlögreglan vinnur nú að rannsókn á stolnum Mercedes Benz-bifreiðum sem fluttar hafa verið hingað til lands og vitað er um fjórar slíkar bifreiðar. Jafnframt er talið að þær séu fleiri á götunni hérlendis. Stærsti aðilinn í innflutn- ingi á notuðum Mercedes Benz-bif- reiðum hérlendis flytur inn bílana beint frá verksmiðjunum í Þýska- landi. Þetta er Þröstur Kristinsson hjá Bílastúdíó sem segir að hann hafi orðið fyrir töluverðu ónæði í framhaldi af frétt Morgunblaðsins í gærdag um málið. „Á undawnf- örnu hálfu öðru ári hef ég flutt inn um 60 notaða Mercedes Benz-bíla beint frá verksmiðjunum ytra en þetta eru bílar sem verksmiðjunar hafa tekið upp í kaupverð á nýjum bílurn," ségir Þröstur. „Ég veit að upp hafa komið tilvik þar sem kaup- endum hér voru seldir stolnir bílar en ég kaupi beint frá verksmiðjun- um til að tryggja öryggi minna við- skiptavina því oftast eru töluverðar fjárhæðir í húfí.“ Eitt skip á loðnuveið- um í gær NÓG er til af góðri loðnu á loðnumiðunum að sögn Jóns Eyfjörðs skipstjóra á Þórs- hamri GK sem var eina skipið á loðnuveiðum í gær. Veiði- banni norsku skipanna verður aflétt í dag en búist er við fleiri íslenskum loðnuskipum á miðin eftir verslunarmanna- helgina. Jón Eyfjörð sagðist vera á leið til Raufarhafnar með full- fermi eða tæp 600 t af loðnu þegar haft var samband við hann síðdegis í gær. Hann kvaðst búast við að verða kominn til hafnar um hálf níu leytið í gær- kvöldi en farið yrði aftur út að lokinni löndun. Hann sagði að það eina sem vantaði væru fleiri skip. „Þetta er hálf nöturlegt þegar nóg er til af loðnu,“ sagði Jón en í máli hans kom fram að hann hefði fengið loðnufarminn í þremur köstum. Aðspurður kvaðst Jón ekki vera ánægður með loðnuverðið enda væri engin samkeppni í gangi enn. Engri loðnu var landað á Raufarhöfn á miðvikudag og Þórshamar var eina skipið sem átti að koma þangað f gær. Ekkert hefur verið landað af loðnu í Þórshöfn gær og fyrra- dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.