Morgunblaðið - 31.07.1992, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1992
félk í
fréttum
Logan og Linda á sigurstundu...
TONLIST
Linda og Logan
syngja saman
Það fór ekki fram hjá neinum sem fylgdist með síð-
ustu sönglagakeppni „Júróvisíon", að Johnny Logan
gekk þar aftur þótt ekki væri hann flytjandi að sigurlag-
inu. Logan, sem hefur tvívegis flutt sigurlög á Júróvisí-
on, var höfundur lags og texta sigurlagsins sem flutt var
af vinkonu hans Linda Martin. Þótt Hamilton flytti lagið
með þeim glans að sigur vannst var Logan engu að síð-
ur kallaður inn á sviðið með henni og látið með hann
eins og hann væri hinn raunverulegi sigurvegari. Þó þau
Logan og Hamilton hafí þekkst lengi og Logan hafi skrif-
að lagið fyrir Hamilton til flutnings á Júróvisíon, hafa
þau aldrei komið fram og sungið saman. Stendur það
nú allt til bóta, því þann 20. ágúst ætla þau að láta verða
af því. Það var boð um gull og græna skóga sem atti
þeim út í það, nýtt spilavíti verður opnað í húsakynnum
Hótel Scandinavia í Kaupmannahöfn og er gestalistinn
við opnunina stjömum og stórmennum prýddur. Aðal-
skemmtiatriðið er samsöngur þeirra Lindu Hamilton og
Johnny Logan.
LJOSMYNDUN
íslandsvinur sýnir Islandsmyndir
Um þessar mundir stendur yfír
í anddyri Norræna hússins
sýning á ljósmyndum eftir Þjóð-
veijann Franz-Karl Freiherr von
Linden. Þetta era nokkrar af ljós-
myndum þeim sem hann ánafnaði
íslensku þjóðinni árið 1990, en þær
spjaldanna á milli allar bækur
Jóns. Ekki minnkaði áhugi á land
og j)jóð við það.
Oskin rættist árið 1959 er hann
réði sig sem kaupamann á
bóndabæ norður í landi. Árin 1962
til 1965 starfaði hann við ljós-
myndadeild Landmælinga íslands
og sankaði þá að sér m.a. miklum
jarðfræðilegum og landfræðilegum
upplýsingum um Island, m.a. með
því að fylgjast grannt með tilurð
Surtseyjar árin 1963 til 65. Eftir
íslandsdvölina vann hann sem ljós-
myndari í Þýskalandi, en kom
hingað til lands árin 1972,73,74,
76 og 77. Kallaði þá ísland annað
heimaland sitt. Hann hefur auk
þessa verið meðhöfundur að ís-
landsbók sem kom út í Sviss og
víðar og flutt fjölmarga fyrirlestra
um ísland í þýskum og svissnesk-
um borgum.
Á árum sínum á íslandi tók von
Linden mikið af ljósmyndum og
árið 1990 ánafnaði hann þjóðinni
myndimar. Tóku fulltrúar Ferða-
málaráðs við gjöfínni fyrir hönd
landsmanna og var þá ákveðið að
Norræna húsið skyldi gangast fyr-
ir sýningu á völdum hluta mynda-
safnsins. Gekk það eftir og stendur
sýningin yfir um þessar mundir.
COSPER
Hvernig ferðu að þekkja tvíburana í sundur?
eru af landi og þjóð. Von Linden
er mikill Islandsvinur og hafa leið-
ir legið saman um langt skeið.
Áhugi hans á íslandi vaknaði þeg-
ar í bemsku, en móðir hans þekkti
Jón Sveinsson„Nonna“ og urðu
þau kynni til þess að hann las
Morgunblaðið/Ó.K.M.
Franz-Karl Freiherr von Linden
t.h. ásamt Gylfa Þ. Gíslasyni við
opnun sýningarinnar í Norræna
húsinu. En á innfelldu myndinni
sést ein af myndum von Lindens,
Strokkur í Haukadal.
Michelle Pfeiffer og Fisher Stevens,
KATTARKONAN
Draumurinn rættíst
Nú er stórmyndin „Batman
Retums" komin á fullt
skrið, en með aðalhlutverkin í
henni fara Michael Keaton, Mich-
elle Pfeiffer og Danny DeVito.
Ungfrú Pfeiffer fer með hlutverk
Kattakonunnar og hefur haft
mikil áhrif á tískuna fyrir vestan
haf þar sem nú eru fjöldafram-
leiddar alls konar eftirapanir af
búningum Pfeiffers úr myndinni.
í byijun stóð ekki til að leikkonan
færi með hlutverkið, heldur An-
nette Bening, en hún varð að
draga sig í hlé vegna bamsburð-
ar. Pfeiffer hefur látið hafa eftir
sér að með því að fá hlutverk í
myndinni hafi draumur orðið að
vemleika.
Michelle Pfeiffer er mjög virt
leikkona í Hollywood og hún þyk-
ir hafa skilað ýmsum af hlutverk-
um sínum eftirminnilega, til
dæmis með þeim Bridgesbræð-
mm Jeff og Beau í „The Fabulo-
us Baker Boys“. En hún hafði
aldrei leikið á móti fyrmm sam-
býlismanni sínum Michael Kea-
ton. Þau slitu samvistum fyrir
rúmum fjórum árum síðan og
höfðu ekki einu sinni sést þar til
að þau hittust við tökur á Bat-
mann-myndinni sem um ræðir.
Pfeiffer segir, að Keaton sé ein-
mitt sú manngerð sem best er
að vinna með, hann sé skilnings-
ríkur og ætíð reiðubúinn að rétta
fram hjálparhönd. Því hafí hún
þráð að vinna einhvern tíma með
honum þó svo að ástarsamband
þeirra hafí farið út um þúfur.
Um samband þeirra segir Keaton:
„Okkur þykir vænt hvort um
annað og við þekkjum mjög vel
tilfínningar hvors annars. Við
emm um margt lík og ég fagn-
aði því að hitta hana aftur og
leika á móti henni. Það gaf verk-
efninu stóraukið gildi“.
En bæði tóku fram að ekkert
gæfí tilefni til þess að þau myndu
hressa upp á gamla kunnings-
skapinn, Pfeiffer er heitbundinn
minni háttar leikara að nafni Fis-
her Stevens og Keaton býr með
leikkonunni Courtney Cox.
Stoltur faðir með Ieðurklæddann son sinn.
ROKK
Sjaldan fellur eplið
að er sagt að sjaldan falli epl-
ið langt frá eikinni þó svo
að til þessa hafí epli aldrei vaxið
á eikartijám. Þetta skrýtna orða-
tiltæki sannast þó á þeim feðgum
Billy og Willem Idol.
Billy er sem kunnugt er heims-
fræg rokkstjama og annálaður
slagsmálahundur, en þegar hann
eignaðist son, Willem litla, sem
nú er á fímmta aldursári, réði
hann sér vart af gleði og lýsti
yfir að nýr rokkari væri fæddur.
Billy og barnsmóðir hans era ekki
sambýlingar, en vinátta ríkir
þeirra í milli og bamið er eins
mikið hjá föðumum og frekast er
kostur. Og Billy hefur ekki bilað
á uppeldinu. Drengurinn klæðist
denim og leðri og spilar dynjandi
rokktónlist föður síns daginn út
og inn. Það er ekki verið að horfa
á múmínálfana á þeim bæ. Þó
ekki sé aldurinn hár er hann far-
inn að krefjast þess að fá að fylgja
föður sínum á tónleikaferðalögum.
Þó ekki hafí hann orðið að ósk
sinni enn sem komið er, er ljóst
að þess er ekki langt að bíða.