Morgunblaðið - 27.08.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.08.1992, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1992 Munirnir úr skipsflökunum við Flatey afhentir Þjóðminjasafni Hollenskur diskur var í öðru flakinu MUNIRNIR sem áhugakafaramir af Vestfjörðum afhentu Þjóð- minjasafninu í gær eru úr tveimur skipum. Að sögn þjóðmiryavarð- ar virðist annað skipið vera fiskiskip frá 19. öld og er meirihluti munanna úr því. Hitt skipið er mun eldra og eru tveir hlutir taidir vera úr því, eikarbútur úr skipinu sjálfu og brot af hollenskum leirdiski. Þjóðminjavörður segir að leirdiskurinn sé forvitnilegastur af þessum munum og að ýmislégt bendi til þess að hann sé frá 17. öld. Samkvæmt heimildum blaðsins er öruggt talið að hann sé hol- lenskur. Þjóðminjavörður segir ekki útilokað að annað skipið sé hollenska kaupfarið sem fórst við Flatey 1659. Guðmundur Magnússon þjóð- mundur að sérfræðingar safnsins teldu að ýmislegt benti til þess að það væri frá 17. öld. „Ef það reyn- ist vera rétt gæti það komið heim og saman við það að þetta væri gripur úr hollensku kaupfari sem fórst við Flatey árið 1659.“ Guðmundur sagði að sérfræð- ingar Þjóðminjasafnsins væru bytj- aðir að meðhöndla munina svo hægt verði að skoða þá betur og aldursgreina. „Þær lýsingar á að- stæðum sem við höfum fengið frá köfurunum, sérstaklega á öðru flakinu, eru þess eðlis að mér sýn- ist óhjákvæmilegt að athuga það frekar með því að senda sérfræð- inga vestur," sagði hann. Gripimir úr Breiðafirði verða til sýnis í Þjóð- minjasafninu fram yfír helgi. minjavörður sagði að þessi tvö skip lægju mjög þétt saman og hefðu kafaramir fundið munina í ná- grenni þeirra. Megnið af hlutunum virtist samkvæmt lýsingum vera úr yngra skipinu sem gæti verið frá 19. öld. Sagði hann að þetta virtust ekki vera mjög fomlegir gripir, hlutir sem þekktust úr skút- um, meðal annars hverfísteinn og ýmsar festingar. Þjóðminjavörður sagði að tveir gripanna tengdust eldra skipinu. Annað væri eikarbútur þar sem sjáanlegt væri far eftir tréfleyg, sem gæti hafa brotnað úr byrðingi og á eikarbútnum virtust vera ummerki eftir eld. Hinn gripurinn er brot af leirdiski og sagði Guð- Morgunblaðið/Kristinn Fornir gripir úr sæ Sérfræðingar Þjóðminjasafnsins skoða munina, f.v.: Vilhjálmur Öm Vilhjálmsson fomleifafræðingur, Lilja Ámadóttir safnstjóri, Guðrún Sveinbjarnardóttir fomleifafræðingur og Guðmundur Ólafsson forn- leifafræðingur. Hollenski diskurinn er á miðju borði. Boðið upp á heilsdagsskóla í 5 skólum í tilraunaskyni SKÓLAMÁLARÁÐ Reykjavíkur hefur ákveðið að hefja tilraun með heilsdagsskóla, samfellda þjónustu frá 7.45 til 17.15, í fimm grunn- skólum borgarinnar á komandi skólaári. Verður í framhaldi þessar- ar tilraunar, sem fram fer í Árbæjarskóla, Ártúnsskóla, Lauga- lækjarskóla, Laugarnesskóla og Ölduselsskóla, ákveðið hvort og þá hvernig þjónusta af þessu tagi verður boðin í öllum grunnskól- um Reylgavíkurborgar. Misbrestur varð í inn- flutningi á grænmeti MAGNÚS Ágústsson og Garðar Árnason, starfsmenn Búnaðarfé- lags íslands, urðu varir við nokk- um misbrest í innflutningi á græn- meti við eftirlit á innflutningi á kjöttómötum í vikunni. Eftirlitið leiddi í ljós innflutning á litlum kjöttómötum á stærð við venju- lega tómata, sem bannað er að flytja inn á þessum tíma, innflutn- ing á grænmeti sem ekki var get- ið um í tollskýrslum, og grænmeti sem óleyfilegt er að flylja inn á þessum tíma. Magnús sagði að eftirlit með inn- flutningi á kjöttómötum sem leyfílegt er að flytja inn hefði leitt í ijós að tveir aðilar hefðu flutt inn 4,2 tonn og 1,2 tonn af litlum kjöttómötum á stærð við venjulega tómata sem óleyfilegt væri að flytja inn. Hann sagði að ekki hefði verið hægt að koma í veg fyrir að tómatamir færu á markað en ástæða væri til að setja reglur um stærð innfluttra kjöttóm- ata til að koma í veg fyrir innflutn- ing af þessu tagi. Við eftirlitið kom ennfremur í ljós að verið var að flytja inn grænmeti sem ekki var getið um í tollskýrslum, og grænmeti sem bannað er að flytja inn á þessum árstíma. Magnús sagði að á fyrra tilfellinu hefði fengist sú skýring að hollenskur útflytjandi hefði ekki átt þá vöru sem beðið hefði verið um, og sett aðrar í stað- inn. Tollyfírvöld stöðvuðu vöruna og Iét innflytjandinn eyða henni. Auk þess sem hennar var ekki getið í tollskýrslum var bannað að flytja hana inn. í hinu tilfellinu var um að ræða innflutning á rauðu salati sem bann- að er að flytja inn á þessum árs- tíma, en varan hafði fengið öll tilskil- in leyfi og fór því til heildsalans. Magnús sagði að eina leiðin til að koma í veg fyrir misskilning af þessu tagi væri að efla upplýsingaflæði milli ráðuneytis og innflytjenda. Ámi Sigfússon, formaður Skóla- málaráðs, sagði að markmiðið með heilsdagsskólanum væri að til hlið- ar við hina ríkisstyrktu kennslu kæmi ákveðin grannþjónusta sem veitt yrði öllum foreldram sem þess æsktu. Yrði þarna um að ræða fræðslu af ýmsu tagi, aðstoð við heimanám-og fleira. Fyrir grannþjónustuna þarf að greiða að hámarki 6.500 krónur á mánuði, að sögn Áma, en óski menn eftir færri tímum verður gjaldið 110 krónur á klukkustund. Sagði hann að ef tekið væri dæmi af bami með stuttan, hefðbundinn skóladag, sem myndi nýta sér grannþjónustuna að fullu, yrði tímagjaldið sem greiða þyrfti um 50 krónur á klukkustund. Ofan á þetta bætist síðan ýmis þjónusta í tómstundastarfi á veg- um íþrótta- og tómstundaráðs sem boðin verður á skólatíma til að skapa tengingu við skólastarfið. Árni sagði að þessu til viðbótar hefði verið haft samband við einka- skóla til að kanna hugsanlegt sam- starf og hefðu sautján aðilar sýnt því áhuga og væra reiðubúnir að bjóða þjónustu sína inn í skólana á þessum tíma. „Foreldrar hafa því í raun þijá valkosti. Grunnþjónustuna, starf- semi íþrótta- og tómstundaráðs og fræðslu- eða listaverkefni á vegum einkaskólanna. Við ætlumst til þess að þjónusta einkaskólanna verði ódýrari en hingað til hefur verið þar sem hún verður í skóla- húsnæði og þeir þurfa ekki að leggja í auglýsingakostnað vegna hennar,“ sagði Ámi Sigfússon. Hann bætti við: „Ég tel það vera eitt af grundvallarverkefnum í stjómmálum að tryggja undir- stöðumenntun einstaklinganna. Menntun er ekki bara niðurstaða úr prófum í stærðfræði eða ís- lensku heldur varðar hún líka þroska á mjög mörgum öðram sviðum. Með þessu tilboði til for- eldra þá teljum við að unnt sé að koma til móts við fjölda bama sem eiga ekki í önnur hús að venda yfír hversdaginn auk þess sem hún svari markmiðum okkar um holla fræðslu og tómstundaiðkun. Þetta markmið okkar teljum við vera mjög mikilvægt að efla og ná með þessum hætti.“ Skólamálaráð hefur einnig sam- þykkt að á næsta skólaári verði lögð á það áherslu í öllum grunn- skólum Reykjavíkurborgar að bæta aðstöðu fyrir börn er þarfn- ast viðvera í skóla utan kennslu- tíma. Verður sama tímagjald fyrir þessa þjónustu og innan heilsdags- skólans eða 110 krónur á klukku- stund. -----.......... Ólympíumótið í brids ísland í 4. sæti eftir tólf leiki ÍSLAND vann Liechtenstein 17-13 í 12. umferð Ólympíumóts- ins í brids í gærkvöldi og er í 4. sæti í sínum riðli. Fyrr um daginn tapaði íslenska liðið 10-20 bæði fyrir Hollandi og Tævan. Hollendingar era efstir í riðlin- um með 240 stig, Bandaríkjamenn og Norðmenn koma næstir með 224 stig og íslendingar hafa 223 stig. Þá koma Svíar með 215 stig og Frakkar og Spánveijar með 207 stig. I dag spilar íslenska liðið við Þjóðveija, lið Samveldisins og Pak- istana en þessi lið era öll í efri hluta riðilsins. Sjá bridsþátt á bls. 18. Fjölmennur fundur starfsmanna og aðstandenda vistmanna á Kópavogshæli Með spamaðaráformum verður dregið úr lágmarksþjónustu ÞUNGT h\jóð var i aðstandendum vistmanna og starfsfólki á Kópavogshæli á fjölmennum fundi í gærkvöldi. Töldu fundarmenn að með fyrirhuguðum sparnaðaráformum væri verið að draga úr lágmarksþjónustu og spurt var hvort ekki væri eðlilegra að spara í sjúkrahúsyfirbyggingu hælisins en þjálfun og umönnun vistmanna. Á fundi Davíðs Á. Gunnarssonar með yfirmönnum hælsisins í gær var farið yfir tillögur til sparaaðar í rekstrinum og segir Davíð að tillöguraar felist í almennu aðhaldi á öllum sviðum. Hann sagðist vona að með útsjónarsemi tækist að finna á hvern hátt hægt væri að mæta markmiðum fjárlaga. Arni Már Björasson, yfirþroskaþjálfi á vinnustofum Kópavogshælis, sagði að starfsfólkið væri afskaplega ósátt við að þurfa að draga úr þeirri lágmarksþjónustu sem vistfólki á hælinu væri boðið upp á. „Slíkt tel ég nálg- ast að vera mannréttindabrot gagnvart því fólki sem hér býr,“ sagði Árai. Hulda Harðardóttir, starfsmaður Kópavogs- hælis, sagði í í gærkvöldi að fólk væri ráðvillt, en þá stóð yfir fundur aðstandenda og starfs- fólks á Kópavogshæli. „Fólki fínnst líka að þeir sem búi hér sitji alitaf skör lægra en aðrir fatl- aðir í landinu og enn eigi að saxa á það litla sem fyrir _er,“ sagði Hulda. Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítal- anna, sagði í gær að sumarið hefði verið Kópa- vogshælinu dýrt og það hefði skapað ákveðinn vanda. „Við erum að reyna fínna leiðir tii að mæta því en það eru jú fyrst og fremst þau, sem stýra Kópavogshæli, sem eru að reyna að koma með tillögur og voru raunar búin að setja fram mjög markvissar tillögur um það með hvaða hætti væri hægt að mæta þeim vanda sem við erum í. Þannig vona ég að þeim takist með útsjónarsemi að fínna með hvaða hætti er hægt að reyna að mæta markmiðum fjárlaga,“ sagði Davíð. Hann sagði að ekki yrði um beinan fjárstuðn- ing að ræða til hælisins. „Við eigum enga pen- inga nema það sem er í fjárlögunum og erum að leita allra tiltækra Ieiða til þess að halda rekstri ríkisspítalanna og þar með auðvitað allra okkar eininga, stórra og smárra, innan ramma fjárlaganna, og Kópavogshælið er bara ein af þeim einingum. Þar var mikill hugur í fólki að reyna að gera þetta þótt það sé mikill vandi því þar er ekki hægt að draga úr starfsemi vegna þess að hvorki er hægt að fresta með- ferð á þeim skjólstæðingum sem þar eru né senda þá heim.“ „Samdráttur sá sem verið er að tala um hér þýðir mikla skerðingu á þeirri faglegu uppbygg- ingu sem hér hefur farið fram síðustu 5-10 ár,“ sagði Árni Már Bjömsson, yfírþroskaþjálfí á vinnustofum Kópavogshælis, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það er rætt um að draga úr þjónustu á stoðdeildum, eins og í hæfíngu á vinnustofum, í sjúkraþjálfun og sundi, jafnvel tómstundum líka, og það er skoðun okkar hér að þetta væri stökk mörg ár aftur í tírnann." Ami Már sagði að fréttir af niðurskurðinum hefðu komið líkt og þruma úr heiðskíru lofti yfír starfsfólk hælisins, því talið hafí verið að rekstur þess væri á áætlun. Hann sagði aug- ljóst að erfítt væri að gera sama niðurskurð á Kópavogshæli og á öðrum ríkisspítölum, þar sem ekki væri unnt að loka þar deildum. „Hér býr fólk allt sitt líf, og því er eðlilegt að dregið verði úr öllu öðru en ráðningum á heimiliseining- ar tii að mæta samdrættinum," sagði hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.