Morgunblaðið - 27.08.1992, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1992
___________________i________________
Suðurlandsmót
í hestaíþróttum
________Hestar____________
Valdimar Kristinsson
MIKILL keppnisgalsi hefur
hlaupið í hestamenn nú síðustu
vikur og daga keppnistímabils-
ins sem senn fer að Ijúka.
Nýafstaðið er íslandsmót með
metþátttöku og fyrir dyrum
stendur Suðurlandsmót í
hestaíþróttum þar sem þátt-
taka er meiri en nokkru sinni
fyrr. Eru 50 skráðir til leiks í
tölti og yfir 40 í bæði fjór- og
fimmgangi, þá eru keppendur
í gæðingaskeiði vel á fjórða
tuginn.
Forráðamenn mótsins sem
haldið verður nú um helgina ætla
að freista þess að afgreiða dag-
skrána á tveimur dögum. Mótið
er haldið í Torfdal á Flúðum hefst
klukkan tíu á laugardagsmorgun
með forkeppni í fjórgangi fullorð-
inna, unglinga og bama. For-
keppni í tölti hefst að loknum
fjórgangi og ríða unglingarnir
þar á vaðið en næst koma bömin
og endað verður a fullorðnum. Á
sunnudag rísa menn snemma úr
rekkju því dagskrá hefst klukkan
átta með fimmgangi fullorðinna
og unglinga þar á eftir. Þá verð-
ur keppt í hlýðni fullorðinna,
unglinga og bama en um klukk-
an tólf hefst keppni í gæðinga-
skeiði. Að því loknu heíjast úr-
slit um klukkan tvö með íjór-
gangi bama, wunglinga og full-
orðinna. Þá er röðin komin að
fimmgangi unglinga og fullorð-
inna strax á eftir. Lýkur dag-
skránni með töltúrslitum bama
unglinga og fullorðinna.
Kveðjumót vekringanna á
Varmárbökkum
Samkvæmt mótaskrá átti Suð-
urlandsmótið að vera síðasta mót
ársins en svo verður ekki því
skeiðreiðarmenn hafa ekki fengið
nóg og því tók Hestaíþróttafélag-
ið Hörður í Kjósarsýslu að sér
að halda skeiðmót á Varmár-
bökkum laugardaginn 5. septem-
ber nk. undir nafngiftinni Loka-
sprettur ’92. Keppt verður í gæð-
ingaskeiði, 150 og 250 metra
skeiði en auk þess verður boðið
upp á töltkeppni.
Verður töltkeppnin með hefð-
bundnu sniði að öðru leyti en því
að aðeins einn dómari mun
dæma. í því vandasama hlutverki
verður sá kunni hestamaður Sig-
urður Sæmundsson í Holtsmúla
en hann þykir einn fárra manna
með nógu breitt bak til að axla
ábyrgð fimm dómara. Líklegt
þykir að flestir bestu vekringar
landsins muni mæta til leiks í
skeiðið og glíma við íslandsmetin
á einni bestu skeiðbraut landsins.
Að keppni lokinni, sem hefst
klukkan 13.00, verður boðið upp
á grill í Harðarbóli, félagsheimili
Harðarfélaga, þar sem hinn
kunni matreiðslumeistari Haf-
steinn Gilsson mun mæta með
sitt landsfræga vagngrill.
Afmæliskveðja
Signrður Kristins-
son, málarameistari
Sjötíu ára er í dag góðvinur minn,
Sigurður Kristinsson, málarameist-
ari og fyrrverandi forseti Lands-
sambands iðnaðarmanna, Hring-
braut 9, Hafnarfirði.
Sigurður leit fyrst dagsins ljós
27. ágúst 1922, sonur sæmdarhjón-
anna Kristins J. Magnússonar,
málarameistara, og Maríu Alberts-
dóttur. Kristinn var einn af þekkt-
ari borgurum Hafnarfjarðar á sinni
tíð fyrir fjölþætt félags- og menn-
ingarstörf sem hann hlaut verð-
skuldaðan heiður fyrir í mörgum
félögum. Ég kynntist lítillega hinni
öldnu kempu þegar ég kom fyrst á
Iðnþing í Hafnarfirði 1950. Einnig
kynntist ég mörgum forystumönn-
um í iðnaðarsamtökum Hafnar-
fjarðar sem síðar urðu traustir
stuðningsmenn mínir. Ég hef því
ávallt litið á Hafnarfjörð sem
vinabæ minn.
Sigurður hefur erft marga góða
hæfileika föður síns, hann hóf ung-
ur nám í málaraiðn hjá honum.
Fleiri þekktir málarar eru í ætt Sig-
urðar á Suðumesjum og má þar
nefna Guðna föðurbróðir hans og
Birgi Guðnason sem báðir eru einn-
ig þekktir félagsmálamenn. Að
loknu iðnskólanámi lauk Sigurður
sveinsprófi 1945 og meistararétt-
indi fékk hann 1950. Hann nýtur
trausts og viðurkenningar fyrir
hæfni í iðngrein sinni, hann átti
reyndar ekki langt að sækja það
og að greinin erfíst virðist mér því
sonur Sigurðar er einnig málara-
meistari.
En nú byijuðu snemma að hlað-
ast á þennan starfssama unga
Hafnfirðing fjölmörg félagsstörf
sem of langt væri upp að telja í
stuttri afmælisgrein. Þó skal nefna
að Sigurður var í stjóm Knatt-
spymufélagsins Hauka, Iðnráði
Hafnarfjarðar, Iðnaðarmannafélagi
Hafnarflarðar, skólanefnd Iðnskól-
ans í Hafnarfirði og var einnig
bæjarfulltrúi á árunum 1962-1970.
Þá var hann sæmdur heiðursmerkj-
um Leikfélags Hafnarfjarðar fyrir
leiklist og leyfi ég mér að telja
hann margra stjömu leikara. Um
allt þetta era Hafnfirðingar marg-
fróðari en ég.
Margt kemur í huga minn á
merkum tímamótum þessa fjölhæfa
vinar míns. Kynni okkar Sigurðar
hófust er hann var formaður Iðnað-
armannafélags Hafnarfjarðar á ár-
unum 1960-1968 og betur tengd-
ust böndin er hann var kosinn í
stjóm Landssambands iðnaðar-
manna 1965 og mætt höfum við á
öll Iðnþing íslendinga síðan. Á þess-
um vettvangi urðu menn fljótt var-
ir við forystuhæfíleika Sigurðar og
baráttuvilja hans fyrir eflingu iðn-
aðar landsmanna sem leiddi til þess
að hann var kjörinn forseti Lands-
sambands iðnaðarmanna á Iðnþingi
1973.
Nú hófust miklir annatímar,
endalaus fundahöld í nefndum og
ráðum því að á þessum áram vora
mikil umsvif og breytingar til upp-
byggingar heildarsamtakanna og
til stuðnings fyrirtækjum í iðnaði.
Þessu erilsama starfí gegndi Sig-
urður ásamt fjölhæfu starfsliði
landssambandsins þar til að hann
vildi gefa öðram tækifæri til þess
að taka við 1985. Sigurður naut
trausts og vinsælda vegna fjölhæfr-
Tveggjít daga námskeið 1 um fiármál einstaklinga 6.900,-kr.
27. og 28. ágúst kl. 9-1 L|| VÍB-stofunni, Ári^^ðBd tó^2. og 3. september kl. 20-22:30 í T hæð. Námsgögn innifalin
VIÐBÓTARNÁMSKEIÐ
9. og 10. september kl. 20-22:30
10. og 11. september kl. 9-11:30
23. og 24. september kl. 20-22:30
- Ég hef unníb í brábum 20 ár hjá sama
Jyrirtceki, ég hef ágœt laun en finnst samt áb
ég eigi ekki mikib.
Hvernigget ég best aukib eignirnar og tryggt
þannig öryggi og afkomu fjölskyldunnar?
íipulegri npptoyggimgtt
eigma,
Lögð er áhersla á: Markmib ífjármálum, bæbi til lengri og skemmri tíma, þar sem reynt er ab
samrcema drauma og veruleikann; reglulega uppsetningu á eignum ogskuldum meb tengingu vib
rekstur heimilis; markvissa eignastýringu þarsem veginersaman áhætta ogávöxtun; reglubundinn
samanburb á árangri og settum markmibum.
Einsiakt námskeib fyrir einstaklinga
sem vilja hnitmibaba leibsögn vib
hámörkun eigna sinna, á hvaba aldri
sem er. Leibbeinandi er Sigurbur B.
Stefánsson, framkvœmdastjóri VÍB.
Þátltaka tiíkynnist til afgreibslu VÍB,
Amheibar Eddu Rafnsdóttur, ísíma
91-681530.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.
ar þekkingar á margháttúðu náms-
kerfi iðnaðarmanna og allri löggjöf
um iðnað og rekstrarform. Þá er
Sigurður mjög góður ræðumaður
og flytur mál sitt af sannfæringu
og leikni, svo að eftir er tekið. Það
gleður okkur eldri menn tengda
iðnaðarmálum og aðra sem muna
tímana tvenna að minnast 50 ára
afmælisfagnaðar Landssambands
iðnaðarmanna fyrir tíu áram, undir
öraggri forystu þáverandi forseta,
Sigurðar Kristinssonar, og starfs-
fólks Landssambandsins, hve allur
undirbúningur og skipulag var til
fyrirmyndar á hátíðarfundinum í
virðulegum salarkynnum Gamla
bíós. Hátíðin var samboðin íslensk-
um sem erlendum gestum sem
komu frá öllum Norðurlöndum, for-
ystu heildarsamtaka iðnfyrirtækja
í löggiltum iðngreinum. Það fylgir
forystu í landssambandinu að vera
í stjóm Nordisk Hándværksrád sem
heldur norrænt Iðnþing fjórða hvert
ár til skiptis í löndunum.
Sigurður kvæntist 9. nóvember
1946 mikilli ágætiskonu, önnu
Dagmar Daníelsdóttur b. í Kolmúla
við Reyðaifyörð Sigurðssonar. Eiga
þau sjö mannvænleg böm, fímm
dætur og tvo syni er því afkomenda-
hópurinn stór. Ég hef notið þeirrar
ánægju á heimili þeirra að blanda
geði með þessari samheldnu stóru
fjölskyldu og njóta, gestrisni og ein-
lægrar gleði húsráðenda á góðum
stundum. Erlendir forystumenn iðn-
aðarsamtaka hafa í mín eyra lofað
mjög innilegar móttökur og gest-
risni á þessu íslenska hafnfirska
heimili. Anna hefur staðið dyggi-
lega við hlið Sigurðar og gert hon-
um kleift með dugnaði sínum að
annast stórt heimili og fylgja manni
sínum á mannfundi heima og er-
lendis hvort öðra til sóma.
Fyrir frábær félagsmálastörf
sem Sigurður hefur leyst af hendi
hafa honum verið veittar margar
viðurkenningar og verðið sæmdur
heiðursmerkjum, m.a. Landssam-
bands iðnaðarmanna og heildar-
samtaka iðnaðarins í Noregi og
Svíþjóð, riddarakross Fálkaorðunn-
ar 1. janúar 1988 og heiðursfélagi
Landssambands iðnaðarmanna
1987. Sigurður er nú starfsmaður
íslandsbanka hf. í Reykjavík. Eftir
þriggja áratuga ánægjuleg kynni,
gestrisni og heilhug vil ég þakka
hjónunum fyrir allar ánægjustundir
á vegum landssambandsins með
iðnaðarmönnum og á heimili þeirra.
Góði vinur, hugheilar heillaóskir,
megir þú njóta góðrar heilsu um
ókomin ár.
Björgvin Frederiksen.
SKILAR ÞÉR ARÐI
ÆVILANGT
Ný námskeiö eru aö hefjast
S 812411
STjúmuniARSKúunini