Morgunblaðið - 27.08.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1992
17
Afmæliskveðja
Agust Lárusson,
Stykkishólmi
í dag, 27. ágúst, fyllir vinur
minn, Ágúst Lárusson bóndi, verka-
maður og sjómaður, nú búsettur í
Stykkishólmi sinn 9. áratug. Löng
og viðburðarík ævi að baki og
margs hefír hann orðið vísari, fært
sér það í nyt, ríkur lífsreynslu og
hefir jafnan unnið sér og sínum,
verið trú þjónn þeirra sem hann
hefir unnið fyrir. Glöðu stundimar
í lífí hans lifa vel og dafna. Erfíðis-
og raunastundum heldur hann lítið
til haga, en það segir Ágúst hik-
laust að Drottinn leggi ekki meira
á hann en hann geti borið eða risið
undir. Það má rétt vera, þótt mér
sem vini fínnist ótrúlegir þeir bagg-
ar sem hann hefír orðið að axla frá
upphafi. Hann fæddist með krafta
í kögglum og sterkan og athafnasa-
man heila og það hefir dugað af-
burða vel. Minnið þannig að upp í
því er hægt að fletta og_ er enn
óbilað. Sönn guðsgjöf. — Ágúst er
fæddur í Hólminum árið 1902.
Móðir hans var þá vinnukona hjá
Samúel Richter, verslunarstjóra
Gramsverslunar. Móðir hans, Krist-
ín Lámsdóttir, lét soninn fárra daga
í hendur foreldra sinna á Hrísum í
Helgafellssveit. Það var góð byijun.
En ömmu og afa missti hann fyrir
fermingu og séra Siguður Gunnars-
son, hinn merki klerkur, fermdi
hann í Helgafellskirkju 1916. Sá
dagur fer ekki úr huga Lárusar.
Fimmtán ára fer hann síðan að
vinna fyrir sér. Fer til vandalausra
og er of langt mál að rekja þann
feril. Sextán ára fer hann til sjós
og seinasta róðurinn fer hann 76
ára. í 12 ár var hann sjómaður
bæði á árabátum og mótorbátum,
í Grindavík og Vestmannaeyjum.
Þaðan em margar sérstakar minn-
ingar. Árni frá Teigi í Grindavík
var formaður hans nokkur ár og
er gaman að heyra Ágúst segja frá
samskiptum þeirra, en Árni er ný-
látinn rúmlega 100 ára. Af honum
lærði Ágúst margt.
Ágúst var kvæntur Ástrósu Hall-
dórsdóttur frá Kothrauni, sem látin
er fyrir nokkrum árum. Þau eignuð-
ust 4 börn. Bjuggu allan sinn bú-
skap á Höfða og Kötluholti. Fluttu
síðan til Stykkishólms, þar sem
Ástrós lést og dvelur Ágúst á Dval-
Umdæmis-
þing Kiwanis
22. umdæmisþing Kiwanis-
umdæmisins Island-F æreyjar
verður haldið dagana 28.-30.
ágúst nk. Rétt til setu á þinginu
eiga 158 fulltrúar úr 46 klúbbum
ásamt fyrrverandi umdæmis-
stjórum. Einnig munu sitja þing-
ið Walter Sellers, fulltrúi í
heimsstjórn, Giouanni Tingbra
Evrópuforseti, Guy Báckmann,
umdæmisstjóri Norden, og sex
fulltrúar frá Færeyjum.
Steindór Hjörleifsson, um-
dæmisstjóri Kiwanis-umdæmisins
Ísland-Færeyjar, Kiwanisklúbbn-
um Elliða í Reykjavík, setur þingið
við hátíðlega athöfn í Neskirkju
föstudaginn 28. ágúst nk. að við-
stöddum þingfulltrúum og erlend-
um gestum. Þinginu lýkur laugar-
daginn 29. ágúst með „galadans-
leik“ á Hótel Sögu.
í íslenska Kiwanis-umdæminu
eru nú starfandi 44 klúbbar víðs-
vegar um landið á sex svæðum.
Tveir Kiwanisklúbbar eru í Færeyj-
um og tilheyra þeir íslenska um-
dæminu. Verðandi umdæmisstjóri
á íslandi fyrir árið 1992-1993 er
Finnbogi G. Kristjánsson, Kiwanis-
klúbbnum Vífli $
arheimili aldraðra í Stykkishólmi.
Ágúst vann mikið að sveitamálum
meðan hann var í Eyrarsveit og
Fróðárhreppi. Var þar fjölda ára í
sveitarstjórn, oddviti og sýslunefnd-
armaður, fyrir utan mörg önnur
störf. Fiskverkun og daglaunastörf
stundaði hann utan heimilis. Lagði
gjörva hönd á margt og bjargaði
þannig viðbót við búskapinn.
Fyrir nokkrum árum varð Ágúst
fyrir því að missa annan fótinn. Það
lét hann ekki aftra sér frá að lifa
lífínu lifandi, göngugrindin og
hjólastóllinn hjálpuðu. Hann ferðast
og skrifar minningar og merka við-
burði. Glaður og reifur skyli gumna
hverr, stendur þar og má tilfæra
þau orð um Ágúst. Missi ástvina
tekur hann með bæn og þakklæti
til Drottins og horfír fram. Trúin
gefur styrkinn.
90 ára afmælisins minnist hann
með því að bjóða vinum sínum á
heimili Sæunnar, dóttur sinnar, og
tengdasonar, Hábrekku 13 í Ólafs-
vík, næsta laugardag, 29. þ.m. kl.
15.00 og þangað eru allir hjartan-
lega velkomnir.
Um leið og ég óska vini mínum
blessunar Drottins í komandi fram-
tíð þakka ég honum fræðandi og
skemmtilega samleið. Við hjónin
sendum til hans, í okkar ágæta
blaði, hjartanlegar kveðjur og
heillaóskir.
Árni Helgason.
e@K]
Skjótvirkur stíflueyóir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Shell- og Esso
-stöftvar
og helstu byggingavöru-
verslanir.
Dreifing: Hringás hf.,
sími 77878.
<r
var algengasta svar viðskiptavina okkar, þegar við spurðum um ástæðu þess að þeir keyptu
vörur úr 3 SUISSES vörulistanum.
Vetrarlistinn frá 3 SUISSES hefur glæsilegar vörur fyrir alla, einnig þá sem ekki skilja frönskul
Honum fylgja nefnilega einfaldar íslenskar leiðbeiningar. Dugi þær ekki, er bara að reyna ágætu
símaþjónustuna okkar.
Hringdu strax í síma 91-642100 og pantaðu eintak.
Listinn fæst einnig í eftirtöldum bókaverslunum:
Kilju, Miðbæ v/Háaleitisbraut 58-60, Reykjavík.
Bókaskemmunni, Stekkjarholti 8-10, Akranesi.
Bókaverslun Grönfeldts, Egilsgötu 6, Borgarnesi.
Bókabúð Brynjars, Suðurgötu 1, Sauðárkróki.
Bókaversluninni Eddu, Hafnarstræti 100, Akureyri.
Bókaverzlun Þórarins Stefánssonar, Garðarsbraut 9, Húsavík.
Bókabúð Sigurbjörns Brynjólfssonar, Fellabæ, Egilsstöðum.
Versluninni Hvammi, Ránarslóð, Höfn.
Bókabúðinni Heiðarvegi 9, Vestmannaeyjum.
Bókabúð Keflavíkur, Sólvallagötu 2, Keflavík.
Syy/'r-y
Kríunesi 7. Pósthólf 213, 212 Garðabæ
PHILIPS HEFUR AUGUN OPIN FYRIR NÝJUNGUM
NÝR100 RIÐA SKJÁR ÞÆGILEGRIFYRIR AUGUN
Að horfa á sjónvarp er hluti hins daglega lífs.
Vaninn lokar augum okkar fyrir göllum og
vanstillingu tækjanna. - Ef þú horfir vel á
hefðbundinn skjá, muntu sjá að myndin flöktir.
Þessvegna hefur Philips hannað nýja kynslóð
sjónvarpstækja. Philips Matchline, 100 riða,
hágæðatæki meðfullkomnu íslensku textavarpi.
Philips myndlampi,
mattur, sem gefur
50% meiri skerpu
og eðlilegri liti, óháð
birtuskilyrðum.
Skjástærðir;
25-28-33 tommu.
öll Philips tæki eru
með NICAM steríó.
Textavarp MÍM
Fullkomið íslenskt Mynd í mynd, hægt
textavarp með 20 er að hafa tvær
síður í minni. stöðvaráskjánumí
einu.
ÍJ)
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SlMI 691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
, of &ö \mvc .Avvvvv^yfyA e&t ,eL\ bój
merk:suenn hf