Morgunblaðið - 27.08.1992, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1992
43
ÚRSLIT
Fram - KA 1:0
Laugardalsvöllur, fslandsmótið f knatt-
spymu, 1. deild - Samskipadeild - miðviku-
dagur 26. ágúst 1992.
Aðstæður: Sterk gola og fimbulkuldi, völl-
urinn eins og áður fallegur á að líta.
Mark Fram: Ingólfur Ingólfsson, (86.)
Gult spjald: Jón Erling Ragnarsson Fram,
(29.), fyrir leikræna tilburði, fvar Bjarklind
KA, (50.), fyrir brot.
Áhorfendur: 475.
Dómari: Ari Þórðarson, full snöggur að
flauta í byijun en skánaði er á leið.
Línuverðir: Þorvarður Bjömsson og Einar
Sigurðsson.
Fram: Birkir Kristinsson - Kristján Jóns-
son, Pétur Ormslev, Jón Sveinsson - Steinar
Guðgeirsson, Kristinn R. Jónsson (Ómar
Sigtryggsson 87.), Ánton Bjöm Markússon
(Ásgeir Ásgeirsson 59.), Ingólfur Ingólfsson
- Jón Erling Ragnarsson, Valdimar Kristó-
fersson.
KA: Haukur Bragason - Öm Viðar Amar-
son, Gunnar Gíslason, Halldór Kristinsson
- Ámi Þór Freysteinsson, fvar Bjarklind
(Árni Hermannsson 82.), Bjami Jónsson,
Páll Gíslason, Pavel Vandas (Gauti Laxdal
59.), Ormarr Örlygsson - Gunnar Már Más-
son.
UBK-Valur 0:5
Kópavogsvöllur.
Aðstæður: Gola en sólskin.
Mörk Vals: Anthony Karl Gregory (19. og
49.), Hilmar Sighvatsson (sjálfsmark 34.),
Steinar Adolfsson (43. vsp.), Jón Grétar
Jónsson (73.).
Gult spjald: Jón Þ. Jónsson, UBK (38.),
Izudin Dervic, Val (18.), Einar P. Tómas-
son, Val (69.) og Jón S. Helgason, Val (75.)
allir fyrir brot.
Áhorfendur: 488.
Dómari: Kári Gunnlaugsson, ágætur.
Línuverðir: Gísli Björgvinsson og Þorkell
Ragnarsson.
UBK: Hajrudin Cardaklija - Sigurður Víðis-
son, Pavol Kretovic, Úlfar Óttarsson - Grét-
ar Steindórsson, Reynir B. Bjömsson, Am-
ar Grétarsson, Hilmar Sighvatsson, Jón Þ.
Jónsson (Kristófer Sigurgeirsson (46.) -
Sigurjón Kristjánsson (Guðmundur Þórðar-
son 46.), Valur Valsson.
Valur: Bjami Sigurðsson - Jón G. Jónsson,
Einar P. Tómasson, Jón S. Helgason - Bald-
ur Bragason, Steinar Adolfsson (Hörður
M. Magnússon 75.), Ágúst Gylfason, Izudin
Dervic (Sveinbjöm Hreiðarsson 67.) - Anth-
ony Karl Gregory, Arnljótur Davíðsson.
FJ. leikja u j T Mörk Stig
ÍA 15 10 3 2 32: 15 33
ÞÓR 15 9 4 2 24: 9 31
KR 15 9 3 3 27: 13 30
VALUR 15 8 4 3 29: 14 28
fram 15 7 1 7 21: 19 22
FH 15 4 5 6 19: 24 17
VÍKINGUR 15 4 4 7 20: 27 16
KA 15 3 4 8 15: 26 13
UBK 15 3 3 9 9: 24 12
IBV 15 2 1 12 14: 39 7
Gunnar Gíslason, KA. Kristján Jónsson,
Fram. Anthony Karl Gregory, Val.
Birkir Kristinsson, Jón Sveinsson, Pétur
Ormslev, Pétur Amþórsson og Steinar Guð-
geirsson, Fram. Haukur Bragason, Öm
Viðar Amarson, ívar Bjarklind, Árni Þór
Eleysteinsson, Bjami Jónsson og Oimarr
Örlygsson, KÁ. Bjami Sigurðsson, Ágúst
Gylfason, Izudin Dervic, Salih Porca, Einar
Páll Tómasson, Jón G. Jónsson og Baldur
Bragason, Val. Grétar Steindórsson, Amar
Grétarsson, Hilmar Sighvatsson og Kristó-
fer Sigurgeirsson, UBK.
3. deild
Magni - Skallagrimur..............2:2
Ólafur Þorbergsson -
Grótta - Völsungur................4:1
Sæbjörn Guðmundsson 2, Þröstur Bjama-
son 2 -
KS - Dalvík.......................0:3
- Guðjón Stefánsson, Bjami Gunnarsson,
sjálfsmark.
Haukar - Ægir.....................1:2
Guðmundur Valur Sigurðsson - Kristbjöm
Orri Guðmundsson, Kjartan Helgason.
Þróttur Nes. -Tindastóll..........2:1
Zoran Zikic, Eysteinn Þór Kristinsson -
Sverrir Sverrisson.
Fj. lelkja U j T Mörk Stig
TINDASTÓLL 16 14 1 1 49: 20 43
GRÓTTA 16 9 4 3 27: 17 31
ÞRÓTTURN. 16 8 4 4 37: 30 28
SKALLAGR. 16 6 4 6 38: 29 22
HAUKAR 16 6 4 6 29: 30 22
MAGNI 16 5 4 7 24: 22 19
DALVlK 16 5 1 10 26: 28 16
VÖLSUNGUR\6 4 4 8 19: 30 16
ÆG/fi 15 4 4 7 16: 32 16
KS 15 3 O 12 16: 43 9
KNATTSPYRNA / 1. DEILD - SAMSKIPADEILDIN
Frábær nýting Valsmanna
Blikar hins vegar lánlausir við mark bikarmeistaranna
Morgunblaðið/RAX
Anthony Karl hefur verið iðinn við kolann að undanförnu, gerði þrjú mörk á sunnudaginn og tvö í gærkvöldi. Hér
skorar hann með kollspymu fyrsta mark Vals í gær.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar
VALSMENN voru ekki lengi að
ná sér eftir bikarúrslitin því í
gær burstuðu þeir Breiðabliks-
menn 5:0 í dálítið skrítnum leik.
Hann var mun jafnari en tölurn-
ar sýna, en Blikar voru mjög
lánlausir við mark Vals á með-
an bikarmeistararnir nýttu fær-
in vel.
Blikar áttu nokkrar snaggaraleg-
ar sóknir í upphafi en síðan
komust Valsmenn inní myndina og
Baldur átti tvö góð
skot áður en fyrsta
marmið kom. Næstu
tvö færi voru Blika
en síðan gerðu Blikar
sjálfsmark og það þriðja var gert úr
vítaspymu skömmu fyrir hlé. Þriggja
marka forysta í leikhléi var meira
en gangur leiksins gaf tilefni til, en
um það er ekki spurt.
Liðin skiptust enn á um að sækja
í síðari hálfleik og sem fyrr voru
sóknir Vals mun hættulegri og mark-
vissari. Blikar fengu þó ívið opnari
færi en það vantaði alltaf herslumun-
inn. Annað hvort varði Bjami, sem
átti góðan leik, eða þá vamarmenn
náðu að komast fyrir boltann á síð-
ustu stundu.
„Við höfum slæma reynslu af
næsta leik á eftir bikarúrslitum og
það hefur sjálfsagt hjálpað í kvöld,“
sagði Ingi Bjöm Albertsson þjálfari
Vals eftir leikinn, en Valur tapaði
fyrir Víði að Hlíðarenda eftir bikar-
úrslitaleikinn í fyrra.
„Mörk breyta auðvitað gangi leiks-
ins og við fengum þijú mörk eftir
fyrirgjafir, sem við vissum að Vals-
menn myndu nota mikið. Sjálfsmark-
ið var óheppni og vítaspyman kemur
upp úr engu. Við fengum færi líka
en nýttum þau ekki,“ sagði Hörður
Hilmarsson þjálfari UBK.
Með þessu tapi em Blikar með 4
mörkum meira í mínus en KA, sem
er í næsta sæti fyrir ofan þá í töfl-
unni og gæti það haft mikið að segja
þegar upp verður staðið.
ENGLAND
Guðni ekki í náðinni
Guðni Bergsson, sem lék um 40
leiki með aðalliði Tottenham á
síðasta tímabili, er úti í kuldanum
hjá félaginu og hefur ekki einu sinni
fengið að leika með varaliðinu.
Samningur Guðna og Tottenham
rennur út næsta vor, en fyrr í sumar
óskaði hann eftir að verða settur á
sölulista og sagðist jafnframt ekki
vilja fara til annars liðs í Englandi.
Síðan fór hann í landsleik Islands
gegn ísrael í óþökk félagsins og
hafa forsvarsmenn Spurs vart yrt á
hann eftir það. Guðni hefur því ekki
verið inni í myndinni í sambandi við
aðalliðið frekar en Pat Van Den
Hauwe, sem fór fram að verða seld-
ur í sumar, og fékk þau skilaboð í
gær að hann ætti ekki að spila með
varaliðinu.
Byijun Tottenham í ensku úrvals-
deildinni lofar ekki góðu, en liðið
hefur fengið níu mprk á sig í síðustu
þremur leikjum. Áður en tímabilið
hófst voru keyptir leikmenn fyrir lið-
lega 400 millj. króna, en fjárfesting-
in hefur ekki skilað sér til þessa.
Oa Dervic fékk sendingu upp vinstri kantinn á 19. mínútu og
■ I gaf þaðan laglega fyrir markið. Anthony Karl stökk manna
hæst og akaliaði neðst í markhornið.
■
• _
voru QÖlmennir á markteignum og Hilmar Sighvatsson ætlaði að
spyma framhjá markinu en ekki vildi betur til en svo að hann negidi
í bláhomið á eigin marki.
JbBaldur Bragason var felldur á 43. mínútu rétt innan víta-
laT ■'Oteigs hægra megin þegar ekkert virtist um að vera. Úr
vítinu skoraði Steinar Adolfsson af ðryggi.
a VIA 49. mínútu endurtóku Dervic og Anthony Karl ieikinn
«*#frá því S fyrsta markinu. Alveg eins mark.
JC^úðja skallamarkið kom á 73. mínútu og var það eins og
\J m dfyrr tvö. Pyrirgjöf frá vinstri og nú var Jón Grétar mættur
í teiginn og skallaði knöttinn fast í jörðina og upp í þaknetið.
Millimetramir og sekúnd-
umar ekki á okkar bandi
-sagði Gunnar Gíslason eftir að Fram tryggði sér sigur á síðustu stundu
Stefán
Eiríksson
skrífar
Það virðist sem millimetramir
og sekúndurnar séu á móti
okkur þessa dagana. Við spilum
allt rétt, vorum
betra liðið í þessum
leik, en náum ekki
að klára dæmið,"
sagði Gunnar Gísla-
son leikmaður og þjálfari KA, eftir
1:0 tap gegn Fram á Laugardals-
velli í gærkvöldi. Leikurinn var jafn,
og sanngjömustu úrslitin hefðu
verið jafntefli, en heilladísirnir voru
með Fram í gærkvöldi, aðilar sqm
ekki hafa látið sjá sig í þeirra her-
búðum síðasta einn og hálfan mán-
uðinn eða svo.
Leikurinn var svo sem ekki sá
11#%Kristinn R. Jónsson
«l#var með boltann á
miðjum vallarhelmingi KA á 86.
minútu, gaf laglega inn í víta-
teiginn á Ingólf Ingólfsson,
sem sneri sér snögglega við og
skaut á milli fóta vamarmanns
og framhjá Hauki Bragasyni í
markinu.
skemmtilegasti sem undirritaður
hefur fylgst með í sumar, en nokk-
ur efnileg færi litu þó dagsins ljós.
Þau skiptust nokkuð jafnt á milli
liðanna í fyrri hálfleik, og svipað
var upp á teningnum í þeim síðari.
Framarar voru þó heldur spræk-
ari í byijun síðari hálfleiks, en
KA-menn sóttu í sig veðrið er á
leið. Bjami Jónsson fékk tvö dauða-
færi í röð, fyrst á 66. mínútu og
tveimur mínútum síðari bjargaði
Valdimar Kristófersson á línu eftir
skalla frá Bjama. Flestir voru á því
eftir þetta að leikurinn myndi enda
með jafntefli, en fjórum mínútum
fyrir leikslok náði Fram að skora
sigurmarkið.
Leikurinn var jafn eins og áður
og varnarmenn beggja liða
bestu menn vallarins. Gunnar Gísla-
son átti stórleik í KA vörninni og
hinum megin var Kristján Jónsson
sem klettur.
GJöf okkar til borgarinnar
„Við áttum heppnina inni,“ sagði
Steinar Guðgeirsson leikmaður
Fram. „Dagskipunin var að fá ekki
á okkur mark og það tókst. En eins
og Einar [Vilhjálmsson] sagði, þessi
sigur er gjöf okkar til borgarinn-
ar,“ sagði Steinar.
„Þetta var enginn stórleikur hjá
okkur, en engu að síður sigur, sem
er hlutur sem við höfum ekki séð
lengi. Þetta gekk í dag í jöfnum
og erfiðum leik. Gengið að undan-
förnu hefur farið illa með menn
andlega, og þegar andlega hliðin
er ekki í lagi er svo sem ekki við
miklu að búast," sagði Pétur
Ormslev þjálfari Fram.