Morgunblaðið - 03.09.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992
sérkenni þeirra mun betur til skila.
Vettvangurinn er listhúsið Ný-
höfn, en þar sýnir Hafsteinn um
þessar mundir tólf olíumálverk, tvö
akrýlmálverk og tólf vatnslita-
myndir sem hann hefur gert á und-
anförnum árum. I vatnslitamyndun-
um þræðir listamaðurinn hinn
gullna meðalveg um stærðir mynda,
en hvað málverkin snertir virðist
hann dálítið smitaður af kröfu gær-
dagsins um miklar stærðir og ábúð-
armikil form. Ég segi gærdagsins
vegna þess, að nokkuð er um liðið
síðan yfirstærðirnar urðu ráðandi á
sýningum jafnvel þótt öllum megi
vera það ljóst að stærðir mynda
gera þær að vísu magnþrungnar
og fyrirferðarmiklar, en eru ekki
neinn mælikvarði á gæði. Gefa þó
drjúgan möguleika á hvers konar
brambolti með myndflötinn og
óvæntar uppákomur.
Hafsteinn velur þó frekar hóf-
sama leið og er yfirmáta trúr form-
og litasýn sinni þó hann brjóti form-
in upp á ýmsa vegu.
Burðargrind formanna er jafnan
dökk og ósjaldan alveg svört og
eins og myndar glugga þar sem sér
í birtu og yl. Og þegar hann teflir
svörtu og hvítu pólunum saman á
magnþrunginn hátt eins og í mál-
verkinu „Staka“ (3) finnst mér hann
á heimavelli. Hér er öll vinnslan í
hæsta máta karlmannleg og pensil-
förin markviss og sannfærandi.
Vatnslitamyndum sínum hefur
Hafsteinn valið samheitið „Þríleik-
ir“, en þó eru form þeirra mun fjöl-
breyttari málverkunum og hér nær
hann á áhrifaríkan hátt að magna
upp litaglóð með brögðum listar.
Vil ég nefna myndir eins og nr. 18
og 19 svo og 23 og 24 sem dæmi
um tærar og safaríkar vatnslita-
myndir og í þeim koma fram ýmsir
sértækustu eiginleikar listamanns-
ins Hafsteins Austmanns að mínu
mati.
mannsins af Ibsen auk sjálfsmynd-
ar. Frímerkið hefur yfir sér mikinn
þokka og er mjög vel útfært. Þann-
ig á þetta einmitt að vera, að jafn-
ræði sé með skáldi og þeim er
myndlýsir bækur hans; sem er dálít-
ið sem við hér uppi á Islandi höfum
ekki með öllu viðurkennt ennþá.
Listamenn og bókagerðarmenn
ættu að fjölmenna í Norræna húsið
til að kynna sér þetta ágæta fram-
tak frænda vorra, því að svo lengi
lærir sem lifir.
Náttúruverndarfélag
Suðvesturlands
Myndun og
dreifing fræja
og aldina
EYÞÓR Einarsson grasafræðing-
ur fjallar um dreifingu fræja og
aldina á rabbfundi Náttúruvernd-
arfélags Suðvesturlands í kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 21.
Fundurinn verður í Hafnarhúsinu,
1. hæð, gengið inn að vestanverðu.
Eyþór mun taka þátt í umræðum á
eftir um fundarefnið.
(Fréttatilkynning)
HINN EINISANNI
markaður
Með lágu verði, miklu vöruúrvali og þátttöku fjölda fyrirtækja
hefur stór-útsölumarkaðurinn svo sannarlega
slegiðígegnogstendurundirnafni.
m.
Fjöldi fyrirtækja -
gífurlegt vöruúrval
/Fatnaður fyrir skólafólkið á öllum aldri
/1Skór á alla fjölskylduna
/Tískufatnaður í gífurlegu úrvali
/Hljómplötur, diskar og kassettur
/Allskonar gjafavörur
/Gluggatjöld og allskonar fataefni
/Sængur, koddar og rúmfatnaður
/Blóm KAFFl
/Barnafatnaður o.m.fl. mYNDBANDA-
HORN
FYRW BORN
Opnunartími: Föstudaga kl. 13-19.
Laugardaga kl. 10-16
Aðra daga kl. 13-18
ótrúlegt
VERÐ