Morgunblaðið - 03.09.1992, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.09.1992, Blaðsíða 36
36^ MORGUNBLMJIÐ^ FIMMTUDAGUR, ,3. .SEPT^EMBER 1992 t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BERGUÓT EIRÍKSDÓTTIR, vefnaðarkennari, Skeggstöðum, Hveragerði, lést í Landspítalanum 1. september. Jarðarförin auglýst síðar. Eiður Hermundsson og fjölskylda. t Bróðir okkar, GUÐMUNDUR JÓNSSON, Stóragerði 25, Hvolsvelli, lést í Landspítalanum 1. september. Brynjólfur Jónsson, Einar Jónsson, Guðrún Helga Jónsdóttir, Hanna Jónsdóttir, Lilja Jónsdóttir. t JÓHANN EIRÍKSSON, frá Felli í Mýrdal, lést af slysförum 21. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. september kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Slysavarnafélag íslands. Þór Jóhannsson, Marfa Þorláksdóttir, Þórdis Rúnarsdóttir og aðrir aðstandendur. t , ' Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGIMUNDUR STEFÁNSSON, kennari, Fannborg 1, Kópavogi, lést í Borgarspítalanum mánudaginn 31. ágúst. Fyrir hönd aðstandenda, Blanca Ingimundardóttir, Vilhjálmur Guðmundsson, Helga Ingimundardóttir, Árni Jóhannesson, Jan Ingimundarson, Guðrún Garðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, AÐALBJÖRG HARALDSDÓTTIR, Laugarnesi, Laugarvatni, verður jarðsungin laugardaginn 5. ágúst, klukkan 13.30 frá Sel- fosskirkju. Jarðsett verður á Laugarvatni. Ásrún Magnúsdóttir, Böðvar Magnússon. t Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, HALLDÓR ÁGÚSTSSON, Ásgarði, Vogum, Vatnsleysuströnd, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstutíaginn 4. september kl. 13.30. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Andrea Ágústa Halldórsdóttir, Lilja Sólrún Halldórsdóttir, Þórunn Halldórsdóttir, Þuríður Kristín Halldórsdóttir, Auður Kristinsdóttir, og barnabörn hins látna. Steindór Hjartarson, Hjörtur Þór Björnsson, Aðalsteinn Torfason, Sverrir Heiðar Sigurðsson t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TEITUR JÚLÍUS JÓNSSON, húsasmíðameistari, dvalarheimilinu Seljahlið, áður til heimilis á Langholtsvegi 83, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. september kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans, láti Hjartavernd njóta þess. Rannveig Guðjónsdóttir, Pálma Júlíusdóttir, Andrés Guðlaugsson, Þórunn J. Júlíusdóttir, Kristján Örn Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Brynhildur Jósefs- dóttír - Kveðjuorð I dag, 3. september 1992, hefði fyrr- um bamaskólakennari okkar, frú Brynhildur Jósefsdóttir, orðið 90 ára, en hún lést seinnipart árs 1991. Margt kemur upp í hugann þegar litið er til baka til áranna góðu í Breiðagerðisskólanum, undir hand- leiðslu Brynhildar og fáum við seint fullþakkað það veganesti sem hún sendi okkur með út í lífið. Hún var fædd til kennslu og að leiðbeina, var ákveðin, jafnvel á stundum ströng, en jafnframt blíð og óumræðanlega mannleg og átti hún virðingu okkar allra. Við virtum og dáðum Brynhildi Jósefsdóttur. Hún hafði ríka málvit- und og lagði mikið upp úr íslensku- kennslu og ekki má gleyma skrift- inni. Brynhildur hafði ákaflega fall- ega rithönd og lagði á það mikla áherslu að nemendur hennar væru vel^ skrifandi. 112.F í Breiðagerðisskóla veturinn 1960-61, vom nemendur, 22 stelpur og 11 strákar. Það gefur augaleið að það hefur oft verið líflegt í svo stórri bekkjardeild, en þó kom ekki oft til vandræða, við vildum ekki vera Brynhildi erfið og segir það sína sögu um hvem hug við bárum til hennar. Flest okkar í bekknum vomm þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa Brynhildi sem kennara allan barna- skólann, hún tók þátt í gleði okkar og sorgum, fylgdist með okkur þroskast frá því að vera lítil börn að læra að lesa og skrifa, til þess að verða táningar, með öllum þeim væntingum sem fylgja þeim aldri. Hún fylgdist alltaf með okkur þó í fjarska væri, og gat átt það til að hringja í eitthvert okkar til að fá fréttir af okkur. Hún vildi fylgjast með okkur. Þegar Brynhildur varð 80 ára hélt hún stórveislu að höfðingja sið. Þar var samankominn stór hópur skyld- menna, vina, samstarfsmanna og að sjálfsögðu 12.F úr Breiðagerðisskól- anum, og emm við þess fullviss að fáir skemmtu sér eins vel og við. Þama mættu 27 af 33. Við þetta tækifæri var tekin „bekkjarmynd" Hjörtur P. Hjartar- son - Kveðjuorð Hjörtur Pálmi Hjartarson var fæddur 5. mars 1913 að Norður-Bár í Gmndarfirði. Hann lést eftir stutta spítalalegu 24. ágúst sl. Sá sem þess- ar línur ritar kynntist Hirti fyrir tæpum aldarfjórðungi. Veit því lítið um ævi hans og störf allt fram til þess er við kynntumst. Vil ég þó skýra frá því helsta sem ég veit. Foreldrar Hjartar voru Hjörtur Frí- mann Gíslason, fæddur 25. septem- ber 1868 í Hlíð í Víðidal, og kona hans Þóra áigríður Pálsdóttir, fædd 17. nóvember 1878 í Hraunholtum, Kolbeinsstaðahreppi. Faðir Hjartar Pálma lést áður en drengurinn fædd- ist. Fluttist ekkjan með bömin að Lindarbrekku, Hellnum, og síðan til Hellissands, þar sem Hjörtur ólst upp hjá móður sinni og systkinum. Sjó- mennska varð hans ævistarf. Hann bjó um nokkurt skeið á ísafirði, kvæntist og eignaðist eina dóttur (kjördóttur) Hjördísi. Þegar ég kynntist Hirti höfðu hann og fyrri kona hans slitið sam- vistir og hann kvænst eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigrúnu Karólínu Pálsdóttur frá Eyjum í Kaldrananes- hreppi, f. 12. apríl 1926, en hún er dóttir Páls Guðjónssonar frá Kaldbak í Kaldrananeshreppi, f. 14. maí 1891, d. 1. febrúar 1989, og Guðrúnar Jónsdóttur frá Eyjum, f. 6. sept- ember 1897, d. 22. júní 1982. Þau Hjörtur og Sigrún giftust 15. janúar 1949 og hafa síðan lengst af verið tengd jörðinni Reykjarvík í Kaldrana- neshreppi. Kynni okkar Hjartar urðu með nokkuð óvenjulegum hætti. Að minnsta kosti tel ég mér óhætt að fullyrða, að sá aðdragandi sem varð að kunningsskap okkar, og að ég tel vináttu, sé óvenjulegur. Þannig var að á árinu 1968 eða 1969 kom inn á skrifstofu mína í bæjarfógetaemb- ættinu í Kópavogi maður sem ég hafði aldrei séð áður, svo sem auðvit- að átti sér oft stað, og kvaðst eiga við mig erindi. Þannig væri að ná- kominn ættingi konu hans hefði misst sambýlismann sinn og tvo syni í sjóslysi og stæði nú uppi ekkja með tvær ófjárráða dætur. Dætumar þyrftu fjárráðamann um stundarsak- ir til þess m.a. að sinna uppgjörum við atvinnurekanda og tryggingafé- lög, en ég ætti að skipa fjárráða- manninn vegna búsetu mæðgnanna í Kópavogi. Við komumaður, sem var Hjörtur P. Hjartarson, ræddum mál- + Móðir mín, amma, langamma og langalangamma, ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR, frá Einarsnesi, til heimilis að Silungakvísl 6, Reykjavík, verður jarðsungin frá Stafholtskirkju laugardaginn 5. september kl. 14.00. Sigríður Guðmundsdóttir, Þórarinn Sigþórsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Guðmundur Sigþórsson, Helga Sigþórsdóttir, Jóhanna Sigþórsdóttir, Óöinn Sigþórsson, Þór Sigþórsson, Sigríður Sigþórsdóttir, Herborg Árnadóttir, ÞórðurS. Gunnarsson, Hjalti Jón Sveinsson, Björg Jónsdóttir, Guðný Þorgeirsdóttir, Hallmar Sigurðsson, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Í Hjartkœr eiginkona mín, móðir, tengda- móðir og amma, PETRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Kambsvegi 32, Reykjavik, verður jarðsett föstudaginn 4 septem- ber kl. 15.00 frá Áskirkju. Þeir sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Sigurður Pálsson, Heimir Sigurðsson, Maria Bjarnadóttir, Kristrún Sigurðardóttir, Símon Ólafsson, Viðar Sigurðsson, Kristrún L. Garðarsdóttir, og barnabörn. af Biynhildi með nemendum úr 12.F, 21 ári síðar. Var þá ákveðið að við myndum mæta þegar hún yrði 90 ára, 3. september 1992 og taka þá aftur mynd. Af því verður ekki, en við höfum ekki gleymt okkar elsku- lega bamaskólakennara, við ætlum að hittast, en hvort tekin verður ný bekkjarmynd, á eftir að koma í ljós, það vantar Brynhildi. Nemendur í 12.F í Breiða- gerðisskóla 1960-1961. ið nokkra stund, en í þeim viðræðum leiddi ég talið öðrum þræði að komu- manni sjálfum, störfum hans og hög- um, svo og því hversu mjög hann virtist bera umhyggju fyrir þessu frændfólki konu sinnar. Tai okkar leiddi til þess að ég spurði hann hvort hann vildi ekki bara taka starfíð sjálfur. Komumaður tók því víðs- fjarri í fyrstu, hann hefði til þess hvorki menntun né æfíngu í skrif- stofuvinnu eða skýrslugerð. Þegar ég hafði skýrt komumanni frá því, að ég teldi heiðarleika og samvisku- semi, að viðbættri heilbrigðri skyn- semi, þýðingarmestu kosti fjárráða- manns, a.m.k. þar sem ekki væru flókin eða sérhæfð viðfangsefni að ræða, féllst hann á að taka að sér starfíð, ef hann mætti bera undir mig skýrslugerð áður en skilað væri, og önnur atriði sem hann þyrfti að leita ráða um. Við sinntum þessum málum síðan saman í nokkurn tíma sem fjárráða- maður og yfírfjárráðandi, en sú sam- vinna leiddi til kunningsskapar og vinskapar þeirra hjóna og okkar. Ég var nokkuð góður með mig yfír því að hafa séð þennan yfírlætis- lausa sjómann rétt út sem fjárráða- mannsefni og hann virtist ekki vita hvernig hann gæti þakkað mér þá litlu aðstoð sem ég veitti honum í starfí hans, sem raunar var engin önnur en sú sem embættisskylda bauð. Þessi kynni okkar sem í upp- hafí tengdust stjórnsýslustörfum áttu eftir að leiða til mikilla og góðra kynna í einkalífínu. Við áttum oft ánægjulega fundi með þeim Sigrúnu og Hirti í Njarðvík, Kópavogi, Kaldr- ananeshreppi, Biskupstungum og Reykjavík. A þeim fundum komumst við smátt og smátt að sögu þeirra, búskap á eignarjörð þeirra Reykjar- vík í Kaldrananeshreppi, en hann var bæði til lands og sjávar, og síðan útgerðinni til hrognkelsaveiða, sem þau stunduðu saman í áratugi með ótrúlegri elju og fyrirhyggju, að ekki sé talað um aðdáunarverða sam- starfshæfni. Fyrir hreina Iandkrabba eins og okkur hjónin var þetta allt saman eins og lítt skiljanlegt ævin- týri. Þau hjónin höfðu lögheimili í * Njarðvík eftir að þau brugðu búi á Ströndum, en voru í 5-6 mánuði árlega á Ströndum við útgerð sína. Varðandi samband þeirra hjón- anna, Sigrúnar og Hjartar tek ég af heilum hug undir það sem segir í síðustu málsgrein fallegra minning- arorða sem birtust í Morgunblaðinu á útfarardegi Hjartar, en þau hljóð- uðu svo: „Hjörtur og Lilla hafa í mínum huga verið sem óijúfanleg heild því varla minnist ég þess að hafa séð annað þeirra án þess að hitt væri nærri fyrr en þessa síðustu daga. Það var fátt sem þau hjálpuð- ust ekki að við ...“ Eftir þessi tæplega aldarfjórðungs kynni af Hirti P. Hjartarsyni er það fyrirvaralaus skoðun mín, að hann hafí verið einn af hinum traustu og ábyggilegu samferðamönnum, sem lífið býður manni upp á að eiga skipti við. „ . „ Sigurgeir Jonsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.