Morgunblaðið - 03.09.1992, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992
21
Málræktarsjóður
500 þús. kr.
framlag frá
sparísjóðum
Málræktarsjóði hefur borist
500 þúsund króna framlag frá
Sambandi íslenskra sparisjóða.
Hér er um að ræða stærsta fram-
lag til sjóðsins frá stofnun hans,
7. mars 1991.
Stofnendum Málræktarsjóðs
fjölgar stöðugt. Auk framlags
sparisjóðanna bárust í ágúst fram-
lög frá Grindavíkurbæ (10.000 kr.),
Ólafsfjarðarbæ (10.000 kr.), Morg-
unblaðinu (100.000 kr.), Auglýs-
ingastofunni Hvíta húsinu hf.
(20.000 kr.), Skýrsluvélum ríkisins
og Reykjavíkurborgar (100.000
kr.), Húsavíkurkaupstað (50.000
kr.) og Seltjarnarnesi (50.000 kr.).
Ennfremur hafa sjóðnum borist
fjölmargar minningargjafir og
framlög frá einstaklingum. Stofn-
endur Málræktarsjóðsins eru orðnir
119 auk íslenskrar málnefndar. í
sjóðnum eru um þessar mundir
rúmlega 8,5 milljónir króna.
-----»■ ♦.♦--
Forsætisráðuneytið
Hreinn hættir
HREINN Loftsson aðstoðarmað-
ur forsætisráðherra hefur látið
af því starfi en hann hefur gegnt
starfinu frá 1. júní 1991. Ekki
hefur verið tekin ákvörðun um
eftirmann hans.
Hreinn Loftsson var í ársleyfi frá
lögfræðiskrifstofu sinni og mun nú
snúa sér aftur að lögmannsstörfum.
Hreinn mun áfram sinna sérstökum
verkefnum á vegum ráðuneytisins
og gegna formennsku í fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu.
-----♦ ♦ ♦---
Rukkunar-
heftí tapaðist
Rukkunarhefti tapaðist hjá blað-
bera Mogunblaðsins við Ármúla eða
Síðumúla. Þeir sem kynnu að geta
gefið upplýsingar um heftið vinsam-
legast hafíð samband við afgreiðsl-
una í síma 691140.
Morgunblaðið/Júlíus
„Loksins er ég komin heim,“ sagði Hallbjörg Bjarnadóttir söng-
kona.
Eg hef alla tíð haft
mjög mikla heimþrá
- segir Hallbjörg Bjarnadóttir
EFLAUST kannast margir við nafn Hallbjargar Bjarnadóttur og
tengja það jafnframt við sönglistina, sem hún er hvað þekktust
fyrir. Margt hefur á daga hennar drifið og hún hefur langtímum
dvalið í fjarlægum löndum. Hin síðustu ár hefur hún aftur á
móti tileinkað líf sitt myndlistinni en sjálf segir hún að alla tíð
haft löngun til að teikna og mála blundað með henni. En Hall-
björg er aftur á móti komin heim og að hennar sögn er hún
komin til að vera.
„Ég hef hreinlega liðið af heim-
þrá,“ segir Hallbjörg og segir það
eina helstu ástæðuna fyrir komu
sinni heim til íslands. „Eg er mjög
ánægð að vera nú loksins komin
aftur því hér á ég mínar rætur.“
Hallbjörg hefur síðustu þijú ár
dvalið í Danmörku þar sem hún
hefur ásamt manni sínum starfað
að sameiginlegu áhugamáli
þeirra, myndlistinni.
Síðast var Hallbjörg á íslandi
fyrir um þremur árum en þá var
gefin út bók um líf hennar sem
nefnd var Hallbjörg - eftir sínu
hjartans lagi. Það er henni enn
ferskt í minni þegar hún söng
fyrst en þá var hún aðeins fimm
ára gömul. Hún var heldur ekki
mjög gömul þegar hún í fyrsta
skipti kvaddi heimaland sitt. Hún
var þá aðeins 16 ára en áður en
langt um leið var hún farin að
syngja undir leiðsögn góðra kenn-
ara í Kaupmannahöfn. Hún helg-
aði sig klassískri tónlist til að
byija með en heillaðist fljótt að
þeirri tegund tónlistar sem tröll-
reið heiminum á fjórða áratugin-
um, nefnilega jazzinum. Fyrr en
varði var hún orðin mjög eftirsótt
söngkoná. Hún ferðaðist víða um
Evrópu og dvaldi lengi í Banda-
ríkjunum en þar gerðist það eftir
langan feril að hún missti rödd-
ina. Hún var þó hvergi nærri af
baki dottin og vakti upp af dvala
hæfileika sinn að mála. „Eitt er
það þó, sem ég sakna mikið og
það er að hafa aldrei komið til
Italíu. Það var og er minn draum-
ur að stíga á svið Scala-óperunnar
í Mílanó."
En hvað hyggst listakonan
Hallbjörg gera nú þegar hún er
alkomin heim? „Ég verð að láta
tímann skera úr um það. í raun
veit enginn upp á hveiju ég gæti
tekið en satt að segja er það ein-
faldlega fullnægjandi í bili að vera
komin heim,“ sagði hin lífsglaða
Hallbjörg Bjarnadóttir að lokum.
Þ.J.
Fyrstu réttir um næstu helgi
FYRSTU fjárréttir haustsins verða næstkomandi
sunnudag. Þá verður réttað á tveimur stöðum í
Suður-Þingeyjarsýslu, Hlíðarrétt í Mývatnssveit
og Hraunsrétt í Aðaldal. Á meðfylgjandi lista
sem Ólafur Dýrmundsson ráðunautur hefur tek-
ið saman yfir helstu fjárréttir í haust sést að
réttir eru flestar á hefðbundnum tíma. Þó hefur
þremur réttum á Suðurlandi verið flýtt um viku,
það er Hrunaréttum, Skaftholtsréttum og
Skeiðaréttum. Fyrstu stóðréttirnar verða 13.
september, þegar réttað verður í Silfrastaðarétt
í Skagafirði.
sunnud. 13. sept.
sunnud. 20. sept.
sunnud. 13. sept.
sunnud. 13. sept.
Auðkúlurétt í Svínavatnshr., A-Hún. laugard. 12. sept.
ÁfangagilsréttíLandm.afr., Rang. fimmtud. 24. sept.
Baldursheimsrétt, í Mývatnss. S.-Þing. sunnud. 13.
sept.
Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr.
Dalsrétt í Mosfellsdal, Kjós
Fellsendarétt í Miðdölum, Dal.
Fljótstungurétt í Hvítársíðu, Mýr.
Fossvallaréttv/Lækjarb., (Rvík/Kóp.)sunnud. 20. sept.
GrímsstaðaréttíÁIftaneshr., Mýr. þriðjud. 15. sept.
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn.laugard. 19. sept.
HítardalsréttíHraunhr., Mýr. mánud. 14. sept.
HlíðarréttíBólstaðarhl.hr., A-Hún. sunnud. 13. sept.
Hlíðarrétt í Mývatnssveit, S-Þing. sunnud. 6. sept.
Hraunsrétt í Áðaldal, S-Þing. sunnud. 6. sept.
HrunaréttiríHrunamannahr.,Árn. fimmtud. 10. sept.
Hrútatungurétt í Hrútafirði, V-Hún. sunnud. 13. sept.
Húsmúlarétt v/Kolviðarhól, Árn. laugard. 19. sept.
Kaldárrétt v/Hafnarflörð laugard. 19. sept.
KjósarréttíKjósarhr., Kjósarsýslu mánud. 21. sept.
Kollaijarðarrétt, Kjalameshr., Kjós. mánud. 21. sept.
Langholtsrétt í Miklah.hr., Snæf. miðvikud.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skagafirði laugard.
Miðfjarðarrétt í Miðfírði, V-Hún. sunnud.
Nesjavallarétt í Grafningi, Árn. laugard.
Oddsstaðarétt í Lundarr.dal, Borg. miðvikud.
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. föstud.
Reykjaréttir á Skeiðum, Árn. föstud.
Reynistaðarrétt í Staðarhr., Skag. sunnud.
Selflatarétt í Grafningi, Árn. mánud.
Selvogsrétt í Selvogi, Ám. mánud.
Silfrastaðarétt í Akrahr., Skag. mánud.
Skaftholtsréttir í Gnúpv.hreppi, Árn.fimmtud.
Skaftárrétt í Skaftárhr., V-Skaft. laugard.
Skaftártungurétt í Skaftárt., V-Skaft.laugard.
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugard.
Skarðsrétt í Borgarhr., Mýr. mánud.
Skrapatungurétt í Vindh.hr., A-Hún. sunnud.
Stafnsrétt í Svartárdal, A-Hún. laugard.
Tungnaréttir í Biskupstungum, Árn.miðvikud.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, Á-Hún. laugard.
Valdarásrétt í Víðidal, V-Hún. föstud.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V-Hún. laugard.
Þórkötlustaðarétt í Grindavík sunnud.
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr. mánud.
Ölfusréttir í Ölfusi, Árn. þriðjud.
Helstu stóðréttir
16. sept.
12. sept.
13. sept.
19. sept.
16. sept.
18. sept.
11. sept.
13. sept.
21. sept.
21. sept.
14. sept.
10. sept.
12. sept.
12. sept.
12. sept.
14. sept.
13. sept.
12. sept.
16. sept.
12. sept.
11. sept.
12. sept.
20. sept.
14. sept.
22. sept.
Skarðarétt í Göngusk., Skag. laugard. 19. sept. hádegi
ReynistaðarréttíStaðarhr.,Skag. laug. 19. sept. síðd.
Silfrastaðarétt í Akrahr., Skag.sunnud. 13. sept. hádegi
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag.laugard. 3. okt. hádegi
Hlíðarrétt í Bólst.hl.hr., Á-Hún. laug. 19. sept. hádegi
SkrapatunguréttíVindh.hr., A-Hún. sunn. 20. sept. hád.
Víðidalstungurétt í Víðid., V-Hún. laug. 3. okt. hádegi
ÁJpLSTýJóT
frukost
í^TTLDA
COOKINTHEBA
gatewat J
ffó + HÁKNÆBlNG
200 ml
HAGKAUP
- allt í einni ferd
TILBOÐ
VIKUNNAR