Morgunblaðið - 03.09.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992
23
Reuter
Gluggað í Prövdu kapítalistans
OKSANA heitir þessi 22 ára blómarós frá Kíev sem las Prövdu, sem
áratugum saman var málgagn sovéska kommúnistaflokksins, á miðju
Rauða torginu í gær. Henni leikur væntanlega forvitni á að vita hvort
blaðið hafi breyst eftir að grískur auðkýfingur festi sér meginhlutann
af hiutafé þess.
A
Atökin í Georgíu
Víkinga enn að
fínna í Bretlandi
VlKINGAR búa enn í Bretlandi og er þá að finna í Conway-dal í
Norður-Wales, í miðhluta Vatnahéraðsins, í Pembroke-skíri á norðaust-
urströnd Skotlands og á Hjaltlandi, að því er breska dagblaðið T/ie
Independent» hafði eftir vísindamönnum nýlega.
Derek Roberts, erfðafræðipró-
fessor í háskólanum í Newcastle,
sagði, að ný rannsókn á erfðafræði-
legum mun á Bretum hefði leitt í
ljós, að upprunasvæði þeirra væru
átta talsins og skýrt afmörkuð. Ibú-
ar þessara svæða ættu margir hveij-
ir ættir sínar að rekja til ævafornra
landnáma þar.
Hann sagði, að í Bretlandi eins
og öðrum löndum Evrópu mætti
greina erfðafræðilegan slóða frá
suðaustri til norðvesturs. Þar væri
um að ræða leifar af margendur-
teknum innflytjendabylgjum frá
meginlandinu.
Þegar nýir innflytjendur komu úr
suðri, var ábúendunum, sem fyrir
voru, ýtt í norðurátt, þar sem þeir
leituðu sér skjóls á ákveðnum svæð-
um. Ibúar Orkneyja, svo að dæmi
sé tekið, eru erfðafræðilega frá-
brugðnir öðrum íbúum Bretlands-
eyja. Þeir hljóta því að vera afkom-
endur landnámsmanna sem settust
þar að fyrir ævalöngu og lifðu löng-
um í einangrun, að sögn Roberts.
Unnt er að rekja uppruna íbúa
Suður-Wales til þess tíma þegar
Keltar voru enn ekki komnir þang-
að. Ættleggur Orkneyinga nær þó
lengst aftur, eða 7000 ár, til nýstein-
aldar.
Bandarískir vísindamenn sem
studdust við áralangar rannsóknir
komust einnig að raun um, að íbúar
miðhluta Vatnasvæðisins voru erfða-
fræðilega frábrugðnir þeim sem búa
á útjöðrum þess.
Þeir komust að raun um, að íbúar
miðhlutans höfðu marga erfðavísa,
sem svipar til erfðavísa Norðmanna
nú á dögum. Roberts telur að þetta
stafi af því, að víkingar hafi sest að
á Vatnasvæðinu fyrir 1000 árum.
Önnur erfðafræðileg skil eru í
Austur-Anglíu og greina í grófum
dráttum Norfolk frá Suffolk. Rob-
erts sagði, að þetta væri sennilega
hin forna skipting landnáma Engla
og Saxa.
Aukin þekking á erfðaeinkennum
fólks á ákveðnum svæðum gerir vís-
indamönnum auðveldara að skilja
erfðagalla sem hijá það. Til dæmis
er mænusigg algengara meðal Ork-
neyinga en annarra Breta og eru
ástæðurnar að líkindum erfðafræði-
legar.
Tilboði Rússlands um
í Abkhazíu og fulltrúa Rússlands-
hluta Kákasus. Einn hinna síðar-
nefndu, Akhsarbek Galazov þing-
forseti Norður-Ossetíu, segir að
Rússar ættu að skerast í átökin,
ella gætu þau endað með blóðugri
borgarastyijöld. Máli sínu til stuðn-
ings bendir hann á íhlutun Rússa
til binda enda á aðskilnaðartilraunir
í öðrú Georgíu-héraði, Suður-Osse-
tíu, en segir aðgerðaleysi geta haft
sorglegar afleiðingar fyrir syðri
byggðir Rússlands. Rússaher hefur
skilið stríðandi aðila í öðru fyrrum
Sovétlýðveldi, Moldovu, í sumar.
Olga er í fleiri grannríkjum Rúss-
lands en Georgíu. Armenía og Az-
erbajdzhan saka hvort annað um
að hafa rofið vopnahié sem lýst var
yfir í byijun vikunnar í baráttunni
um héraðið Nagorno-Karabak, en
ekki bárust fréttir um meiriháttar
átök í gær.
Stjórnarandstæðingar í Tadzhí-
kístan hafa náð forsetabústað lýð-
veldisins á sitt vald og halda þar í
gíslingu borgarstjóra höfuðborgar-
innar Dúshanbe og nokkrum ráð-
herrum. Mótmæli gegn forsetanum
Rakhmon Nabíjev, sem er gamall
kommúnisti, hafa verið hávær und-
anfarna mánuði. Hann slapp á
mánudagskvöid undan hundruðum
manna sem umkringt höfðu bústað-
inn og kröfðust afsagnar forsetans.
Ekki er vitað hvar Nabíjev heldur
sig en viðræður uppreisnarmanna
og fulltrúa stjórnvalda eru hafnar.
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
friðargæslu illa tekið
Moskvu. Reuter.
RUSSAR lögðu í gær til að friðargæsluhersveit frá þeim yrði notuð
í Georgíu til að binda enda á átök aðskilnaðarsinna og stjórnarher-
manna. Tillagan verður rædd á fundi sem fyrirhugaður er með leið-
togum lýðveldanna í dag en aðstoðarforsætisráðherra Georgíu tók
henni þunglega í gær og sagði ekki þörf á íhlutun. Yfirmaður Rúss-
landshers segir að rússnesk fallhlífaherdeild sem nú er í Abkhaziu
geti nokkuð styrkt annast hlutverkið, en pólitíska ákvörðun þurfi
til. Ólga er í öðru fyrrum Sovétlýðveldi, Tadzhíkístan, þar sem stjórn-
arandstæðingar halda ráðherrum í gíslingu í bústað forsetans sem
komst undan uppreisnarmönnum á mánudag. Viðræður eru hafnar
til að leysa úr hnútnum.
Rússar drógust inn í átökin í
Georgíu þegar hundruð byssumanna
frá norðurhluta Kákasus héldu yfir
fjöllin til að styðja sjálfstæðisbar-
áttu aðskilnaðarsinna í Abkhazíu.
Edúard Shevardnadze leiðtogi Ge-
orgíu flaug til Moskvu í gær til við-
ræðna við Borís Jeltsín Rússlands-
forseta. Hann hittir einnig Vladislav
Ardsinba leiðtoga aðskilnaðarsinna
Deilur danskrar móður og íransks föður
Fangelsisdómur
fyrir að hundsa
umgengnisrétt
Kaupmannahofn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
I SIÐUSTU viku var dönsk kona, Vivian Madsen, hneppt í fangelsi
fyrir að leyna dvalarstað sex ára dóttur sinnar fyrir Mostafa Taher-
ian, föður barnsins. Faðirinn er frá íran. Eftir skilnað þeirra var
föðurnum dæmdur umgengnisréttur við dótturina en móðirin hefur
ekki leyft þeim að hittast af ótta við að hann ræni barninu og flytji
það til Irans.
Vivian Madsen segir föðurinn
hafa hótað að ræna stúlkunni og
fara með hana til íran til að hún
fái uppeidi í samræmi við siði og
venjur þeirra er þar búa. Þó dóm-
stóll hafi dæmt henni forræði dótt-
urinnar og föðurnum umgengnis-
rétt hefur Vivian Madsen ekki leyft
föðurunum að hitta hana. Faðirinn
ákváð því að leita réttar síns fyrir
dómstólum. Móðirin hefur ekki
sinnt umgengnisskyldunni og var
af þeim sökum dæmd í hálfs árs
fangelsi. Hún hefur nú verið látin
laus. Foreldrarnir eru sáttir við að
óvilhaliur sálfræðingur verði feng-
inn til að leysa málið í samvinnu
við þá.
Alls hafa um 23 börn danskra
mæðra og erlendra feðra verið flutt
úr landi án vitundar og vilja móð-
ur. Á það hefur verið bent að besta
lausnin til að koma í veg fyrir slíkt
sé að utanríkisráðuneytið geri
samninga við viðkomandi lönd um
gagnkvæma lausn þessara mála.
Frakkland hefur gert slíkan samn-
ing við Alsír sem áður var eitt af
þeim löndum sem farið var með
börn til en eftir að samningar tók-
ust milli landanna hefur þetta lagst
af.
Brazilía
Efnahagsmálaráð-
herra hvarffst fara frá
San Pnnln. Rpnfpr ^ ^ ^ ^
MARCILIO Marques Moreira, efnahagsmálaráðherra Brazilíu, hyggst
segja af sér embætti hvort sem þingið neyðir Fernando Collor de
Mello forseta til að segja af sér sökum spillingar eður ei. Moreira er
þakkaður uppgangurinn í brazilísku efnahagslífi á síðasta ári.
Ýmis borgaraleg samtök í Brazilíu
hafa farið formlega fram á það við
þingið, að Collor verði rekinn úr for-
setaembætti en sá ferill er mjög flók-
inn og getur tekið allalangan tíma.
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa
raunar undirritað heit þess efnis að
segja ekki af sér fyrr en á síðari
stigum málareksturs gegn forsetan-
um, komi þá til hans, en nú virðist
Moreira hafa snúist hugur. Honum
er þakkaður efnahagsuppgangurinn
í Brazilíu að undanfömu og segi
hann af sér þykir nokkuð víst, að
öll stjórnin fari fljótt sömu leið.
NYJASTA ENSKA ORÐABOKIN
1.116 blaðsíður - handhæg og notadrjúg.
Kynningarverð
kr. 1.600.