Morgunblaðið - 03.09.1992, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992
myndum og allt sem hún gerði var
unnið af smekkvísi og alúð, hún
kastaði ekki höndunum til þeirra
verka sem hún tók að sér. Mér
eru minnisstæðar árshátíðirnar
sem hún hafði yfirumsjón með og
tókust með ágætum. Nemendur
hennar báru mikla virðingu fyrir
henni og það var auðfundið að hún
náði vel til þeirra. Hún var ávallt
tilbúin að prófa nýja hluti og þau
tvö ár sem við unnum saman voru
dýrmæt og gleymast aldrei.
Helga Alice var ekki fyrir að
trana sér fram en fljótlega fann
ég út að henni var margt til lista
lagt fyrir utan kennsluna. Hún var
með sitt eigið fyrirtæki þar sem
hún kenndi dans og leikfimi. Jafn-
framt því söng hún í hljómsveit
og var með útvarpsþátt. Þegar hún
var spurð hvar hún fyndi eiginlega
tíma til að gera þetta allt og vera
svona hress og kát hló hún bara
og yppti öxlum. Helga Alice var
hrókur alls fagnaðar á mannamót-
um og ekki þurfti hún að neyta
áfengis til að skemmta sér, hún
var bindindismaður á áfengi og
tóbak. Hraustari manneskju var
varla hægt að hugsa sér bæði
andlega og líkamlega. Þegar svona
ung kona, í blóma lífsins, fellur
frá spyr maður „hvers vegna?“
Stundum er erfítt að skilja lífið
og hvaða lögmáli það lýtur. Ég
votta Hadda og Katrínu Mist mína
dýpstu samúð og bið Guð að hug-
hreysta þau á þessari erfíðu
stundu.
Sigríður Heiða Bragadóttir.
Hún Helga Alice okkar er dáin.
Ég leyfi mér að segja „okkar“, því
slík eining myndaðist meðal þess
fólks sem stundað hefur réttinda-
nám grunnskólakennara sl. fjögur
ár, að það var sem ein stór fjöl-
skylda. Nú er strax komið skarð
í þessa fjölskyldu þar sem einn
hinna yngstu er horfínn sjónum
okkar. Því leitar hugurinn norður
um heiðar þessa dagana. Ég veitti
Alice fljótlega sérstaka athygli,
annað var reyndar ekki hægt því
hún var bæði glæsileg og hafði
einstaklega fágaða framkomu. Þó
var hún hæglát og lét lítið yfir sér
en við nánari kynni kom í ljós
hennar innri auður og ljúf-
mennska. Henni var margt til lista
lagt og var ákveðin í að ná sínu
marki. Ég er viss um að við mun-
um hana alltaf glaða, rólega en
örugga þegar hún stjórnaði dag-
skrá á fyrsta „bekkjarkvöldinu“
okkar. Annar sumarið í náminu
okkar bættust tveir nýir skólafé-
lagar í hópinn. Það var litla dóttir-
in, Katrín Mist, og ungur herra-
maður vestan af Mýrum. Þau voru
okkur öllum til mikillar gleði þar
sem þau sátu oft kennslustundir
með hinum, vær og góð í stólunum
sínum. Katrín Mist var fyrsta barn
Alice og manns hennar og allt virt-
ist leika í lyndi.
Svo kom fréttin eins og þruma
úr heiðskíru lofti, illvígur sjúkdóm-
ur hafði heltekið þessa hamingju-
sömu, ungu móður. Spurningar
sem engin svör fást við flykktust
fram. Hvers vegna þessi góða,
fallega kona í blóma lífsins? Hún
sem lifði eins heilbrigðu lífi og
manni virðist unnt með líkams-
rækt og reglusömu líferni. —
Hversu stutt erum við ekki komin
að leita svara við staðreyndum
eins og þessum þrátt fyrir miklar
framfarir á sviði læknavísinda?
Við kveðjum Alice með hjartans
þökk fyrir þá daga sem við fengum
að eiga með henni í KHÍ.
Innilegar samúðarkveðjur til þín
Haraldur og litlu skólasysturinnar
okkar. Við höfum fylgst með sam-
eiginlegri baráttu ykkar úr
fjarska, hversu dugleg þið hafíð
verið og hvernig þú lagðir allt í
t
Hjartkær sonur okkar, bróðir og mágur,
EINAR BERGUR ÁRMANNSSON,
Fannborg 7,
Kópavogi,
lést af slysförum sunnudaginn 30. ágúst.
Margrét Einarsdóttir, Ármann Jónsson,
bræður og mágkonur.
Lokað
í dag frá kl. 13.00 vegna jarðarfarar ÁGÚSTAR
SÆMUNDSSONAR.
Stensill hf.,
Suðurlandsbraut 4a.
Lokað
Lokað vegna útfarar KJARTANS GUÐMUNDS-
SONAR stórkaupmanns, frá kl. 12.00 á hádegi
4. september.
Verslunin Hamborg,
Laugavegi 22 og Hafnarstræti 1.
sölurnar til að létta henni lífíð til
hinstu stundar. Ég trúi að Guð
launi þér og gefi þér styrk.
Unnur Breiðfjörð, skólafélagi
úr hópi réttindanáms við KHÍ.
Það eru til mörg þúsund fjöll á íslandi
og sum þeirra eru svo há svo há
að vonin er alltaf að stíga.
Það eru til mörg þúsund vötn á íslandi
og sum þeirra eru svo djúp svo djúp
að vonin er alltaf að hníga.
(Jóh. úr Kötlum: Landslag)
Engu er líkara en váleg tíðindi
eigi greiðari leið til okkar en margt
það sem okkur kæmi betur að
fregna. Á milli vonar og ótta fylgd-
umst við úr fjarlægð með erfíðri
og langvinnri baráttu Helgu Alice
við skæðan sjúkdóm þar sem hún
virtist framan af ætla að hafa
betur og „vonin var alltaf að
stíga“. En slíkt er ranglæti heims-
ins að Helga Alice, sem í augum
okkar var ímynd heilbrigðis og
hreysti, skyldi falla frá af völdum
þess háttar sjúkdóms, sem enn er
læknavísindunum ofviða.
í þeim glaðværa 40 manna hópi
er útskrifaðist úr aðfaranámi
Kennaraháskóla íslands vorið
góða 1976 var Helga Alice enginn
eftirbátur annarra. Hún var jafn
glaðlynd og aðrir og jafnan var
stutt í brosið en samt var hún
nokkuð dul, sagði lítt af sjálfri
35
sér. Hún var iðin, reglusöm og
viljasterk með afbrigðum og áhugi
hennar og hæfíleikar á sviði
íþrótta fór ekki fram hjá neinum
en fáum árum eftir að hún lauk
stúdentsprófí settist hún að í
heimabæ sínum Akureyri, og vann
þar merkilegt brautryðjendastarf
á sviði nútíma heilsuræktar þar
sem bömin voru- ekki síst höfð í
fyrirrúmi.
Nú, þegar leiðir skilja alltof
fljótt minnumst við Helgu Alice
með þakklæti fyrir margt. Eftirlif-
andi eiginmanni hennar, ungri
dóttur og öðrum aðstandendum
sendum við okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Skólasystkini.
□ Skólatöskur
□ Skjalatöskur
□ Leikskólatöskur
□ Ftennaveski
□ Skrifundirlegg
□ Stílabœkur
□ Reikningsbœkur
□ Glósubœkur
□ Hringbœkur
□ Laus blöö
□ Fönablöö
□ Skýrslublokkir
□ Millimetrablokkir
□ Vélritunarpappír
□ Skrifblokkir
□ Minnisblokkir
□ Klemmuspjöld
□ Plastmöppur
□ Plastumslög
-□ Blekpennar
□ Kúlupennar
□ Kúlutússpennar
□ Filttússpennar
□ Glœrupennar
□ Áherslupennar
□ Reglustikur
□ Horn
□ Skœri
□ Bókaplast
□ Trélitir
□ Tússlitir
□ Vatnslitir
□ Vaxlitir
□ Blýantar
□ Teikniblýantar
□ Fallblýantar
□ Yddarar
□ Strokleöur
Nýtt Lib re s s e
inv isible
jpryÚmiM
Libresse invisible er aðeins 4 mm. þykkt.
Nýja Libresse bindið er helmingi þynnra en venjuleg dcxnubindi en alveg
jafn ömggt. Það er fest með tveimur litlum vængjum, (límflipum),
þunnt, ömggt og þægilegt. Ysta lag bindisins, sem er úr nýju efni
(Dry sensation), er alltaf þurrt viðkomu, 100% óbleikt. Þú hreinlega
tekur ekki eftir nýja Libresse invisible dömubindinu.
Libresse
alveg náttúrulegt.
Kaupsel hf.
Sími: 27770 - 27740