Morgunblaðið - 03.09.1992, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEFTEMBER 1992
SIEMENS
Þvottavéiar
Þurrkarar
Uppþvottavélar
Nóatúni 4 - Sími 28300
Eldavélar
Örbylgjuofnar
Gœðatœki fyrir
þig og þína!
SMITH&
NORLAND
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans! '
fclk f
fréttum
KVIKMYNDIR
Harrison
Ford nýi
James Bond?
Nú eru að hefjast námskeið þar sem foreldrum
gefst kostur á að kynnast og tileinka sér ákveðnar
ICOSPER
COSPER
NORÐUR-KOREA
Leikarinn Harrison Ford, sem
þekktastur er fyrir hlutverk
sitt sem Indiana Jones, fornleifa-
fræðingurinn ævintýragjarni, hefur
gert samning við kvikmyndaver í
Hollywood um að leika njósnarann
Jack Ryan í fimm kvikmyndum
byggðum á skáldsögum Toms
Clancy. Ford hreppir að minnsta
kosti 50 milljónir dollara fyrir snún-
inginn og kunnugir telja að mynda-
röðin gæti orðið arftaki James Bond
myndanna sem gengu áratugum
saman við ótrúlegar vinsældir. Allt
púður er nú úr James Bond eftir
að Timothy Dalton þótti klúðra
persónunni.
Pat McQueeny, umboðsmaður
Harrisons Ford hefur látið eftir sér
hafa að Ford sé þeirrar skoðunar
að tími sé kominn fyrir arftaka
Bond að stíga fram á sjónarsviðið
og að honum lítist vel á að kljást
við verkefnið. í fyrstu var fast sótt
að Alec Baldwin að taka að sér
hlutverk Ryans, en hann kaus held-
ur að leika á sviði í New York á
móti Jessicu Lange í hinu klassíska
verki „A Streetcar Named Desire."
Var þá farið á fjörurnar við Ford
og hann greip gæsina.
Harrison Ford.
Kim Il-sung á 5 ára dóttur
með þrítugri hjákonu sinni
ástkonu Kims að koma í fylgd líf-
varðar út úr stórverslun í Stokk-
hólmi. Hafi hún dvalist í sænsku
höfuðborginni ásamt móður sinni
og dóttur frá 20. júlí til 7. ágúst
og búið á glæsihóteli. Að verslunar-
og hvíldarvistinni lokinni hefðu
mæðgurnar haldið til Pyongyang
með viðkomu í Peking.
Sankei Shimbun segir að mál
þetta eigi að líkindum eftir að koma
sér illa fyrir yfirvöid í Norður-
Kóreu. Leiðtogar landsins hefðu
farið með það eins og mannsmorð,
slík hefði leyndin átt að vera.
Kim Il-sung á tvo syni með sitt-
hvorri eiginkonunni, Kim Jong-il
með fýrstu konu sinni Kim Jong-
suk, og Kim Song-ae með núver-
andi konu sinni Kim Song-ae en
hún hefur einnig alið manni sínum
dóttur, Kyong-hui.
í lok greinar sinnar spyr Sankei
Shimbun hvernig Kim Il-sung hefði
75 ára gamall getað barnað hjákonu
sína. Svarar blaðið spurningunni
jafnframt og segir það ekki þurfa
að hljóma einkennilega að svo aldr-
aður Norður-Kóreumaður afreki
slíkt þegar haft sé í huga hversu
mikla áherslu yfírvöld í Pyongyang
leggi á að halda leiðtogum sínum
við góða heilsu og hvers mikið lagt
sé í rannsóknir þar í landi á því
hvernig auka megi lífslíkur manna.
Kim Baek-yon,
fimm ára dótt-
ir Kim Il-sungs
og ástkonu
hans.
Japanska blaðið Sankei Shimbun
hefur flett ofan af Kim U-sung,
áttræðum leiðtoga Norður-Kóreu,
og birtir myndir af þrítugri hjákonu
hans og fímm ára dóttur þeirra.
Japanska blaðið segir ástkonu
Kims heita Kim Song-juk og dóttir
þeirra Kim Baek-yon. Dóttirin er
sögð mun líkari syni leiðtogans ást-
sæla, Kim Jong-il, en honum sjálf-
um og veltir vöngum yfir því hvort
Kim Song-juk
ástkona Kim II-
sungs kemur
út úr verslun í
Stokkhólmi í
fylgd lífvarðar.
hann sé ef til vill faðirinn. Hefur
blaðið eftir embættismönnum í Suð-
ur-Kóreu að Kim eldri sé bamsfað-
irinn, um það sé engum blöðum að
fletta, yfírvöld í Seoul hafí lengi
vitað allt um ástarlíf hans.
I frétt Sankei Shimbun segir að
danskonan fyrrverandi hafí alið
Kim Il-sung dótturina á sjúkrahúsi
í Vínarborg í maí 1987. Með frá-
sögn sinni birtir blaðið mynd af
hugmyndir og aðferðir í samskiptum foreldra og
bama. Þar verður m.a. fjallað um hvað foreldrar
geta gert til að:
• Aðstoða börn sín við þeirra vandamál.
• Leysa úr ágreiningi án þess að beita valdi.
• Byggja upp jákvæð samskipti innan
fjölskyldunnar.
Upplýsingar og skráning í síma 621132 og
626632
Hugo Þórisson Wilhelm Norðfjörð
sálfrœðingur sálfrœðingur
saMskipti
FRÆÐSLA OG RÁÐGJÖF SF.
RÝMIN G ARSALA
Alltfyrir ungabarnið
Rýmum fyrir nýjum vörum
50-80% afsláttur
bJTXfA r ÍISIA Leífsgötu 32, sínti 12136.
r 0pið kl n_18 alla
Versliö þar sem úrvaliö er mesl virka daga.