Morgunblaðið - 03.09.1992, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992
39
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
bSudalur
Firmamót
í knatt-
spyrnu
Firmamót í knattspyrnu var
haldið nýlega á Bíldudal.
Aðeins þijú lið tóku þátt í mót-
inu sem verður að teljast léleg
þátttaka af öllu suðursvæðinu.
Lið Egils og Sæbjargar sf. frá
Patreksfirði sigraði á mótinu,
en liðið var skipað ungum og
snjöllum leikmönnum. Lið versl-
unarinnar Edinborgar frá Bíldu-
dal varð í öðru sæti og lið fisk-
vinnslufyrirtækisins Flóka frá
Barðaströnd varð í þriðja sæti.
R. Schmidt.
Lið Egils og Sæbjarg-
ar frá Patreksfirði
sigraði á mótinu.
BARNAGÆSLA
íslenska „barnapían“ fékk
að starfa óáreitt í London
Eg fékk að starfa óáreittur og
hef nýlega lokið ráðningar-
tímanum,“ sagði Árni Kristinsson,
sem nýkominn er heim frá London
þar sem hann hafði þann starfa
að gæta ungs sonar leikarahjóna.
Honum var á sínum tíma neitað
um starfsleyfi á grundvelli laga
sem kveða á um að einungis megi
ráða 17-27 ára stúlkur sem „au-
pair“ til Bretlands og gerðu bresk-
ir fjölmiðlar talsvert úr málinu.
Þrátt fyrir miklar tilraunir fékkst
aldrei starfsleyfi fyrir hann en
vegna fjölmiðlaumræðunnar og
yfirvofandi málskots til Evrópu-
dómstóla létu yfirvöld ekki verða
af því að vísa honum úr landi, að
sögn Árna.
Á mánudag hættu bresk yfir-
völd við að vísa 19 ára Svía, Johan
Egelstedt, úr landi sem einnig
hafði ráðið sig sem „barnapíu" hjá
fjögurra barna ijölskyldu í borg-
inni Leicester í Miðlöndum Eng-
lands, samkvæmt fréttum Reut-
ers-fréttastofunnar.
Egelstedt var handtekinn við
komuna til London mánudaginn
fyrir viku á grundvelli fyrrgreindra
laga. Eftir útskýringar var honum
veitt einnar viku landvistarleyfi
og tímann notuðu hjónin sem
höfðu ráðið hann til þess að knýja
á um lengri landvist.
Fjölmiðlar greindu frá málinu
og á endanum skarst Kenneth
Clarke innanríkisráðherra í leikinn
og sá til þess að landvistarleyfið
væri framlengt um mánuð. Getur
Svíinn síðan sótt um hálfs árs leyfi
er það rennur út. Sá böggull fylgdi
skammrifi að Egelstedt var bann-
að að starfa sem barnapía þann
tíma sem hann dveldist í landinu.
Mál Egelstedts minnir að mörgu
á mál Áma Kristinssonar en Árni
var þó aldrei handtekinn. „Ég lenti
ekki í neinum vandræðum og fékk
dvalarleyfi til tveggja ára þó ég'
fengi ekki starfsleyfi. Þegar ég fór
héim var ég einungis spurður hve-
nær ég kæmi aftur. Geri ráð fyrir
að fara út í október eða desember
og taka upp þráðinn að nýju hjá
annarri fjölskyldu og vóna að það
verði engin vandkvæði á því,“
sagði Árni í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Tveir staðir
CJ
J I
W 1
«! / _ ^
fJ
i eynslan af frjálsu tímunum sem boöið var uppá í
sumar var pað góð að ákveðið hefur verið að haláa
peim áfram í vetur, auk pess sem við tökum upp öll
pau kerfi sem vant er að starfrœkja á vetumar. Sá
háttur verður pó haföur á að einungis verður boðið uppá
ftjálsu tímana ÍJSB Hraunbergi, en öll œfingarkerfi verða
í gangi tJSB Suðurvert.
J S B HRAUNBERGI
FRJÁL 4, 8 eö Gult k< Grænt Rauttl SIR TÍMAR -frjáls mæting og ást a 12 vikur >rt fyrir morguniíma. kort fyrir síðdegistíma. <ort fyrir kvöldtfma. undun
J S B SUÐURVERI
ALMENNT KERFI -agi og öruggur árangur
PÚL OG SVITI -17 ára og eldri
RÓLEGT OG GOTT -50 ára og eldri
TOPPI TIL TÁAR - átak í megrun
Sniöiö aö mannlegum þörfum
...aö þörfum hvers og eins
INNRITUN ALLA DAGA í SÍMA 813730 OG 79988
HAUSTÖNN HEFST MÁNUDAGINN 7. SEPT í HRAUNBERGI
OG 14. SEPT í SUÐURVERI.
Boðið er iippá bamapössun frá kl 10-16 alla daga
LÍKAMSRÆKT
SUÐURVERI • HRAUNBERGI 4
Árni Kristinsson með Samuel
Flynn, litla drenginn sem hann
passaði í London, á herðunum.
B/LALE/GA
Úrval 4x4 fólksbíla og station bila.
Pajero jeppar o.fl. teg. Pickup-bílar
með einf. og tvöf. húsi. Minibussar og
12 sæta Van bílar. Farslmar, kerrur f.
búslóðir og farangur og hestakerrur.
Reykjavík 686915
interRent
Europcar
BILALEIGA
AKUREYRAR
Fáöu gott tilboð!
O ANSSKOjLI
Kennslustaðir:
Reykjavík: Brautarholt 4,
Drafnarfell 4, Ársel og Fjörgyn.
ASTVALDSSON AR
Hafnarfjörður: Góðtemplarahúsið.
Mosfellsbær: Hlégarður.
Innritun í símum 20345 og 74444
kl. 13-19 daglega.
Suðurnes: Keflavík, Grindavík, Sandgerði og Garður. Innritun í síma 67680 kl. 20-22 daglega.
Hveragerði, Selfoss. Innritun í síma 91-74444 kl. 13-19 daglega.
Kennum alla dansa: Samkvæmisdansa,
gömlu dansana, Rock9n Roll, tjútt
og nýjustu „Freestyle“ dansana
eins og t.d. SAFARI
Aukatímar fyrir þá, sem vilja taka þátt í Islandsmeistarakeppnum.
Einkatímar. Sértímar fyrir „prívat“hópa.
Fyrir börn 3ja-4ra ára. Léttar hreyfingar og leikir sem örva hreyfiþroska.
Barnahópar - unglingar - fullorðnir - hjón (pör).
Þmutþjálfaðir kennarar með mikla reynslu
og þekkingu á dansi.