Morgunblaðið - 03.09.1992, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 03.09.1992, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992 ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ 16 500 FTRST VAR ÞAÐ TORTIMANDINN, NU ER ÞAÐ OFURSVEITIN JIAN-CIAUDE VAN DAMME DOLPH UINDGREN Almost human. coROlNG SPtaR AL RE \m ui DOLBY STEhEO í A og B sal -K BORNNAHURUNNARi m Sýnd kl. 5 í B-sal. ENGLISH SUBTITLE. Miðaverð kr. 500. OÐURTILHAFSINS * * * Sýnd kl. 7. Bönnuð i. 14ára. NATTFARAR SPENNA HRAÐI HROLLUR SPENNA HRAÐI HROLLUR JEAN-CLAIJDK VAN DAMME DOLPH LUNDGREN ÞEIR VORU NÆSTUM ÞVÍ MANNLEGIR, NÆSTUM ÞVÍ FIILLKOMNIR, NÆSTUM ÞVÍ VIÐRÁÐANLEGLR STÓRKOSTLEG SPENNUMYND, ÓTRÚLEGAR BRELLUR FRÁBÆR ÁHÆTTUATRIDI. Leikstjóri: Roland Emmerich. Framleiðandi: Mario Kassar (Rambo, Total Recall, Terminator 2, Basic Instinct). Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 9.15 og 11. Bönnuði. 16ára. ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ Morðsaga Kvikmyndir Amaldur Indriðason Varnarlaus („Defence- Iess“). Sýnd í Regnbog- anum. Leikstjóri: Martin Campbell. Handrit: Ja- mes Hicks. Aðalhlut- verk: Barbara Hershey, Sam Shepard, J.T. Walsh, Mary Beth Hurt. •Nú, þegar Ógnareðli hefur lokið göngu sinni í aðalsal Regnbogans, tekur við annar spennutryllir sem reyndar hefur ekki neinar stjörnur að ráði og heldur ekki kynlífssenur og ekki eins mikið ofbeldi eða kjafthátt en er byggð- ur á handriti sem mun meira vit er í. Varnarlaus eða „Defenceless" í leik- stjóm Martin Campbell er hin ágætasta afþreying, spennandi mynd um morð sem flækir þig í getgátur fram á síðustu stundu og passar að hafa nógu marga grunaða og halda að þér nógu mörgum grun- samlegum hliðarsögum til að verða aldrei fyrirsegjan- leg. Handritið er flókið í kynningum sínum á per- sónum og leikendum í byrj- un, sumstaðar rekur mann í vörðumar, en það er ekki til að hafa áhyggjur af, því allir endar eru snöfur- mannlega hnýttir undir lokin og úrlausnin er mjög ásættanleg og vitræn til tilbreytingar. Hið flókna púsluspil gerir það að verk- um að það tekur talsverðan tíma að láta myndina rúlla, margir fletir era á sam- bandi persónanna og fátt er eins og það sýnist í byij- un. Varnarlaus er ekkert stórvirki í gerð spennu- mynda en hún er einkar fagmannlega af hendi leyst, heldur sannarlega athyglinni og dregur þig jafnvel fram á sætisbrún- ina nokkrum sinnum. Hún er í raun um Qöl- skylduharmleik og ljótu leyndarmálin sem gerast inni á heimilunum en við sögu koma framleiðendur klámmynda, klámmynda- leikari, hefnigj.arn faðir ungrar stúlku sem véluð hefur verið í klámmyndir, saksóknari í kosningahita, lögga í leit að sannleikan- um, forstjóri byggingafyr- irtækis, dóttir hans og eiginkona og gömul vin- kona konunnar, lögfræð- ingur leikinn af Barbara Hershey, sem verður fyrir talsverðu sjokki þegar hún kemst að því að nýi og indæli kærastinn hennar, forstjórinn, er giftur vin- konu hennar. Forstjórinn er líka skjólstæðingur Hershey, sakaður um að eiga þátt í klámmynda- gerðinni og þegar hún fer að hitta hann eitt kvöldið á skrifstofu hans til að slíta sambandinu endanlega takast þau á svo blóð flýt- ur um allt, hún hleypur út í bílinn sinn en snýr við aftur og þegar hún kemur til baka hefur maðurinn verið myrtur. Hver er morðinginn? Heldur ósennileg tilviljun verður reyndar til að hrinda atburðarásinni af stað en handritið passar að vera alltaf einu skrefí á undan okkur þegar það opinberar siðlaust líferni hins myrta og áhrifín sem hann hefur haft á fólkið í kringum sig því hér er það hinn myrti sem er hinn raunverulegi sökudólgur. Enn flækjast málin þegar lögreglan stingur eigin- konunni í steininn og Hers- hey verður veijandi henn- ar. Leikstjóranum Camp- bell ferst ágætlega að vinna úr flókinni atburða- rásinni og byggja upp sál- fræðilega spennú bæði í sambandi vinkvennanna og í kringum rannsókn Hershey á málinu. Hann heldur uppi góðum hraða í frásögninni og áhorfand- anum við efnið eftir því sem nýir fletir opnast í málinu og myndin heldur sig frá klisjunum m.a. með því einu að hafa kvenmann í aðalhlutverkinu. Hershey fer ágætlega með hlutverkið og lýsir vel hvaða áhrif bæði svik kæ- rastans, morðið og rann- sóknin, sem hún er ómeð- vitað flækt í, hefur á per- sónu hennar. Sam Shepard leikur lögguna sem aðstoð- ar eða grunar Hershey sjálfa um verknaðinn eftir því hvernig sagan þróast og er góður á sínum fuil- komlega rólegu nótum; maður hefur á tilfinning- unni að hann mundi ekki nenna í bílaeltingaleik þótt honum byðist það. Hann er yfír það hafínn. Myndin líka. Hennar leikur er að fínna morðingjann. STÆRSTA BIOIÐ ÞAR SEM ALLIR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS HASKOLABIO SÍMI22140 YEAR Hún sá dauðann nálgast... Alvöru stórmynd um ofsa í tilfinningum og náttúruöflum. SPENNANDI SAGA Leikarar: PIERRE VANECK, ÁLFRÚN H. ÖRNÓLFSDÓTTIR, TINNA GUNNLAUGSDÓTTIR, VALDIMAR ÖRN FLYG- ENRING, SIGRÍÐUR HAGALÍN, HELGI SKÚLA- SON, CHRISTOPHE PIN- ON, CHRISTIAN CHAR- METANT. leikstjóri: KRISTÍN JÓHANNESDÓTTIR. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Verð kr. 700. Lægra verð fyrir börn innan 12áraogellilífeyris- þega. Frumsýnir spennumynd JOHN FRANKENHEIMERS ÁRBYSSUNNAR Hann skrifar skáldsögu sem var einum of nálægt sannleikanum og hann blandast í banvænan, pólitískan leik þar sem einskis er svifist og hver svíkur annan. SHARON STONE HIN MAGNADA ÞOKKAGYÐJA ÚR MYNDINNI „ÓGNAREÐLI" FER MED EITT AÐALHLUTVERKIÐ ÁSAMT ANDREW McCARTY (CLASS) OG VALERIA GO- LIND(RAINMAN). TILÞRIFAMIKIL ÁTÖK UPP Á LÍF OG DAUÐA UMDEILD The Sunday Express. The Daily Star. Empire Magasin. Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05. Bönnuð innan 16 ára. ■ HLJÓMSVEITIN Sálin hans Jóns míns leikur á Norðurlandi um helgina, nánar tiltekið í Sjallanum, Akureyri á föstudagskvöld og í Ýdölum, Aðaldal á laug- ardagskvöld. í fréttatilkynn- ingu segir: „Það er ef til vill ekki í frásögur færandi að Sálarmenn tylli tám þar nyrðra, því það hafa þeir gert nokkrum sinnum í sum- ar. Það sem þó er merkilegt við för þeirra að þessu sinni er sú staðreynd að þetta verða fyrstu tónleikarnir sem sveitin heldur í Sjallanum í rúm tvö ár.“ V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.