Morgunblaðið - 10.09.1992, Page 1
64 SIÐUR B/C
205. tbl. 80. árg.
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skákeinvígið
Spasskí
sigraði
BORIS Spasskí vann sigur í
fimmtu einvígisskákinni gegn
Bobby Fischer í gær. Banda-
ríkjamaðurinn gaf skákina eftir
fimm klukkutíma og fjörutíu og
fimm leiki. Hefur Spasski nú
forystu í einvígínu, sem háð er
í Sveti Stefan í Svartfjallalandi,
og er með tvo vinninga á móti
einum vinningi Fischers. Tvær
skákir hafa endað með jafntefli.
Lothar Schmidt, yfirdómari
mótsins, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi að Fischer
hefði ekki tekið tapinu illa en hugs-
að sig mjög lengi um í gjörsamlega
vonlausri stöðu undir lokin. „Það
er greinilegt að það er eitthvað
ekki í lagi hjá Bobby [Fischer],"
sagði Schmidt sem nú tekur sér
frí frá dómarastarfinu í bili eða
þar til lokaskákir einvígisins verða
tefldar í Belgrad.
Ekki brot á
viðskiptabanni
Schmidt var spurður hvort að
hann teldi ekki dómgæslu sína
vera brot á viðskiptabanni
Sameinuðu þjóðanna en hann
sagðist hafa grennslast fyrir um
það hjá þýska utanríkis-
ráðuneytinu og fengið skýr svör
um að svo væri ekki þar sem mótið
væri á vegum einstaklings.
Friðrik Ólafssyni var boðið að taka
við dómgæslu en hann baðst undan
því. Því mun varadómari mótsins,
alþjóðlegi stórmeistarinn
Karaklajic frá Serbíu, dæma næstu
skákir.
Sjá einnig skákskýringu á
blaðsíðu 5.
Stuðningur í Frakklandi við Maastricht-samkomulagið, um nánari
efnahagslegan og pólitískan samruna Evrópubandalagsríkjanna, virð-
ist fara dvínandi á ný. í könnun sem gerð var í gær fyrir dagblaðið
Le Parísien mældist stuðningur einungis 51%. Frakkar ganga til þjóð-
aratkvæðis um Maastricht 20. september nk. og er kosningabaráttan
nú að ná hámarki. Hér má sjá tvær litlar stúlkur, sem nýbyrjaðar eru
í skólanum, virða fyrir sér áróðursspjöld andstæðinga samkomulagsins.
Borís Jeltsín frestar Japansferð
Ljóst að samkomu-
lag hefði ekki tek-
ist um Kúríl-evjar
Moskvu. Reuter. ^
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti frestaði í gær fyrirhugaðri opinberri
heimsókn sinni til Japans og Suður-Kóreu og bar fyrir sig annríki
við úriausn mála heima fyrir og nýlegrar þróunar í alþjóðamálum,
að sögn talsmanns forsetaembættisins í Seoul.
Talsmaður japönsku stjórnarinn-
ar sagði að ríkisstjórninni þætti
miður að Jeltsín skyldi fresta heim-
sókninni. Ætluðu Japanir að nota
heimsóknina til þess að knýja á um
að Rússar skiluðu f|'órum syðstu
eyjum Kúrileyja sem Japanir nefna
ætíð norðurhéruð Japans. Hafa þeir
sett það sem skilyrði fyrir stórtækri
efnahagsaðstoð við Rússa.
Jeltsín frestaði förinni eftir fund
með rússneska öryggisráðinu og
sögðu vestrænir stjórnarerindrekar
að frestunin hefði verið óhjákvæmi-
leg; hann hefði ella farið erindis-
leysu.
Með því að fresta heimsókninni
með aðeins fjögurra daga fyrirvara
er Jeltsín sagður hafa snuprað Jap-
ani en þeir höfðu varað hann við
því að koma
tómhentur til
Tókýó.
Stjórnmála-
skýrendur segja
að Jeltsín hefði
ekki haft neitt
svigrúm til
samninga um
Kúrileyjar.
Rússneskir
íhaldsmenn
hefðu lagst harðlega gegn afsali
eyjanna og það hefur veikt stöðu
Jeltsíns enn frekar að lítill sem eng-
inn sýnilegur árangur hefur orðið
af róttækum efnahagsaðgerðum
ríkisstjórnarinnar. Því hefði það ver-
ið pólitískt stórslys að fara til Jap-
ans og koma með enga efnahagsað-
stoð til baka.
Skotárás á bílalest Sameinuðu þjóðanna harðlegfa fordæmd
1 alið örug’gl • að múslím-
ar beri ábyrgð á árásinni
Sænski seðlabankinn hækkaði vexti í 75 prósent
Gjaldeyrir streym-
ir til Svíþjóðar
SÆNSKI seðlabankinn greip í gær til nýrra ráð-
stafana til þess að tryggja óbreytt gengi sænsku
krónunnar en í fyrradag hækkaði bankinn vexti
á skammtímalánum til viðskiptabanka úr 16% í
24% í sama tilgangi. Dugði það ekki til að stöðva
fjárstreymi úr landi og voru sömu vextir hækkað-
ir í 75% i gær, að sögn Reuíers-fréttastofunnar.
Bar sú ákvörðun árangur því samkvæmt upplýs-
ingum sem Morgunblaðið fékk hjá Seðlabanka
íslands streymdi gjaideyrir til baka til landsins.
Bengt Dennis seðlabankastjóri sagði að gengi krón-
unnar yrði varið með öllum tiltækum ráðum og væru
engin takmörk fyrir vaxtahækkunum í því sambandi.
Auk þess að hækka millibankavexti sína tók bank-
inn í gær erlent lán að upphæð 16 milljarðar evr-
ópsku mynteiningarinnar (ECU), jafnvirði 120 millj-
arða sænskra króna, til þess að auka gjaldeyrisforða
sinn. Sagði Dennis að sú lántaka yrði tvöfölduð ef á
þyrfti að halda.
Sænskir hagfræðingar sögðust í gær álíta að seðla-
bankinn myndi lækka vexti sína fljótlega ef fjár-
streymið snýst við og peningar taka að streyma aftur
til Svíþjóðar. Væri vaxtalækkunar því allt eins að
vænta innan viku. Þeir sögðu að ekki væru við því
að búast að viðskiptabankarnir hækkuðu útlánavexti
sína, þeir væru nú þegar taldir í hámarki.
Reuter.
Bengt Dennis seðlabankastjóri skýrir frá ráð-
stöfunum sem bankinn greip til í gær til þess
að treysta gengi sænsku krónunnar.
Aðgerðir sænska seðlabankans urðu til þess að
strika út áhrif gengislækkunar finnska marksins í
fyrradag á alþjóðlegum gjaldeyrismarkaði en þá lækk-
aði gengi finnska marksins um 13% gagnvart ECU.
Vakti það ótta á gjaldeyrismarkaði um að önnur
Norðurlönd myndu einnig fella gengi; fjárfestar og
spákaupmenn sneru sér að þýska 'markinu og leiddi
ákvörðun Finna því óbeint til verðlækkunar Banda-
ríkjadollars. Vegna ákvörðunar Svía hækkaði gengi
hans hins vegar í gær gagnvart markinu og jeninu.
Zagreb, París, Sameinuðu þjóðunum. Reuter, The Daily Telegraph.
MIKIL reiði ríkir vegna skotárásar á bílalest Sameinuðu þjóðanna
skammt frá Sarajevo á þriðjudagskvöld. Tveir franskir friðar-
gæsluliðar létu lífið í árásinni og fimm særðust. Hafa Frakkar
farið fram á við öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að það gefi út
yfirlýsingu þar sem ódæðið er fordæmt. Cyrus Vance, sérlegur
fulltrúi SÞ í fyrrum Júgóslavíu, sagði að loknum fundi í höfuðstöðv-
um sveita SÞ í Zagreb, höfuðborg Króatíu, að flest benti tU að
það hefðu verið múslímar sem skutu á bílalestina.
Áður hafði Ali Abdul Razek,
hershöfðingi og yfirmaður sveita
SÞ í Sarajevo, lýst því yfir á blaða-
mannafundi að „óábyrg öfl“ innan
raða múslíma bæru ábyrgð á árás-
inni. Hann sagði að þessi „óábyrgu
öfl“ hefðu ekki hlýtt skipunum
bosníska yfírmannsins á svæðinu
og hafið skothríð á bílalestina af
hundrað metra færi. Ejup Ganic,
einn fulltrúa múslíma í sjö manna
forsætisráði Bosníu, sagði hins
vegar að það væru Serbar sem
væru ábyrgir.
Cyrus Vance, sem kom til
Zagreb í gær ásamt Owen lá-
varði, samningamanni , Evrópu-
bandalagsins, var ómyrkur í máli
er hann fordæmdi árásina. „Það
að Frakkarnir voru drepnir og
margir aðrir særðust er mjög sorg-
legur atburður. Þetta var beinlínis
kaldrifjað morð,“ sagði hann við
blaðamenn. Franska ríkisstjórnin
fundaði um málið í gær og sendi
að því loknu frá sér yfírlýsingu
þar sem þess er krafist af Bosníu-
mönnum að þeir sæki hina ábyrgu
til saka. Roland Dumas, utanríkis-
ráðherra Frakklands, sagði árás-
ina hafa verið „stríðsaðgerð" og
að hann hefði farið fram á við
Boutros Boutros Ghali, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, að í framtíðinni yrði nægileg
hervernd með bílalestunum til að
koma í veg fyrir frekari árásir af
þessu tagi.
Embættismenn hjá SÞ skýrðu í
gær frá því að rannsókn hefði leitt
í ljós að ítalska flutningavélin, sem
hrapaði í Bosníu, hefði verið skotin-
niður. Flug með hjálpargögn til
Sarajevo hefur legið niðri frá því
véljn hrapaði.
í gærkvöldi var einnig skýrt frá
því að bosnískar sveitir, sem aðal-
lega eru skipaðar múslímum, hefðu
í fjórum tilvikum skotið að friðar-
gæslusveitum SÞ.