Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 3
Umræður í atvinnu-
málanefndinni
MOHGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
3
Sjávarútveg-
ur, aðstöðu-
gjald og sam-
euiingarmál
AFNAM aðstöðugjalds, veiðar á
vannýttum fiskitegundum, aukin
viðskipti með fisk af erlendum
skipum og sameining sveitarfé-
laga eru þau mái sem helst eru
til umræðu í atvinnumálanefnd
ríkissljórnarinnar, aðila vinnu-
markaðar og fulltrúa sveitarfé-
laga, að sögn Þórarins V. Þórar-
inssonar, framkvæmdastjóra VSÍ,
sem sæti á í nefndinni.
„Við erum að skoða einstaka þætti
í skipulagi íslensk atvinnulífs sem
standa í vegi fyrir því að umsvifa-
aukning geti átt sér stað. Okkur ber
ekki síst að horfa til fækkunar sveit-
arfélaga og breytinga á atvinnu-
svæðum, þar sem hafnarmál koma
inn í og flugvallarmál. Það Vantar
heildarsýn í þessum efnum og fram-
kvæmdir við þessa hluti eiga að geta
verið mun ódýrari en þær eru nú,“
sagði Þórarinn.
Þórarinn sagði að dæmi væru um
að uppsafnað aðstöðugjald í endan-
legu verði einstakrar vöru geti num-
ið allt að 5%. „Það segir sig sjálft
að þetta er til þess fallið að ýta at-
vinnunni úr landi.“
Þá hefur verið rætt í nefndinni
með hvaða hætti hægt er að stuðla
að frekari nýtingu vannýttra fiski-
stofna og koma ónýttum fiskiskipa-
flota á veiðar á fjarlægum miðum.
„Þessir hlutir eru í umræðunni á
þessu stigi,“ sagði Þórarinn.
Hann sagði að starf atvinnumála-
nefndarinnar snúast um það að ná
heildarsýn í atvinnumálum sem snúi
að næstu misserum.
-----» ■»■■».
Flateyri
Maðurinn
sem brennd-
ist látinn
MAÐURINN sem brenndist illa í
vinnuslysi á Flateyri um siðustu
mánaðamót er látinn. Hann var
fluttur á gjörgæsludeild Landspit-
alans eftir slysið og lést þar eftir
viku legu.
Maðurinn brenndist alvarlega þeg-
ar neisti úr rafsuðutæki komst í bens-
ín þar sem hann vann ásamt félaga
sínum að viðgerð á bíl í bílskúr á
Flateyri.
-----4--------
Ekið á konu
á gangbraut
EKIÐ var á roskna konu á gang-
braut á Hafnargötu í Keflavík um
hádegisbilið í gær. Konan slasað-
ist töluvert og mun hafa bein-
brotnað. Hún var flutt á spítalann
í Keflavík og þaðan á Borgarspít-
alann.
Gangbrautarljós voru við slysstað-
inn. Ökumaður bílsins bar því við að
konan hefði ekki notað gangbrautar-
ljósin. Að sögn lögreglunnar í Kefla-
vík mun konan hafa verið við það
að komast yfir götuna þegar bifreið-
in skall á henni.
Bifhjólaslys
í Hafnarfirði
UNGUR piltur á léttu bifhjóli varð
fyrir bíl í Hafnarfirði rétt fyrir
kl. 20 í gærkvöldi. Pilturinn slas-
aðist nokkuð og var talinn hafa
fótbrotnað.
Slysið varð á mótum Skjólvangs
og Sævangs í Hafnarfirði. Pilturinn,
sem er 15 ára gamall, ók í veg fyrir
bíl sem kom aðvífandi með fyrr-
greindum afleiðingum. Hann var
fluttur á slysadeild Borgarspítalans.
Sauðfé í sjálf-
heldu á skeri
Bíldudal.
ATTA kindur sluppu naumlega úr sjálf-
heldu af skeri við Bíldudal nýlega. Kind-
urnar voru komnar hálfar á kaf í sjó
þegar þær tóku til sunds i átt að landi.
Er vart varð við kindurnar á skerinu
var farið á trillu að skerinu til að stugga
þeim í land. Það tókst ekki þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir. Mikið hvassviðri og öldu-
gangur var þegar þetta gerðist. Það var
ekki fyrr en tæpum þremur klukkutímum
síðar, þegar öldurnar voru farnar að brotna
á skepnunum,-að ein kindin synti til lands
og fylgdu hinar allar á eftir. Syntu þær
rúmlega 100 metra vegalengd og tókst
þeim að ná landi eftir langan tíma í köldum
sjónum,
R. Schmidt
Lokar þú augunum fyrir
skemmtilegu fríi í útlöndum?
Ef svo er getur þú opnaö þau fyrir ódýru fargjöldunum hjá SAS, þau eru ótrúleg en sönn
og spennandl áfangastaðir bíða þín um alla Evrópu.
26.9°°’'
Kaupmannahöfn
Gautaborg
Malmö
Osló
Stavanger
Bergen
Kristiansand
Lágmarksdvöl 6 dagar, hámarksdvöl 1 mánuöur. Barnaafsláttur er 33%. Bókunarfyrirvari er 14 dagar til borga Skandinavíu og 21 dagur til annarra
borga Evrópu. Veröiö gildir fyrir feröir sem hefjast fyrir 1. nóvember. Flugvallarskattur er ekki innifalinn í uppgefnu veröi: 1250 kr. á íslandi,
auk 630 kr. á fargjald til Kaupmannahafnar og 225 kr. til Þýskalands.
Brottfarardagar: Mánudagar, miövikudagar og laugardagar.
3 Komudagar: Þriöjudags-, föstudags- og sunnudagskvöld.
V)
to
I
s Hafðu samband við SAS
eða ferðaskrifstofuna þína.
SAS á íslandi - valfrelsi í flugf!
Laugavegi 172 - Sími 62 22 11
aaS00’’
Stokkhólmur
Norrköping
Jönköping
Kalmar
Vesterás
Helsinki
Frankfurt
Munchen
Zurich
Vínarborg
as-®00’’
Hamborg
Morgunblaðið/Róbcrt Schmidt
Kindurnar átta voru búnar að vera á þriðja klukkutíma á skerinu þegar þær lögðust til sunds
í átt að landi.